Morgunblaðið - 25.04.2008, Qupperneq 18
Dagur umhverfisins er í dag og af
því tilefni er opnuð sýningin Vist-
vænn lífsstíll í Perlunni kl. 13.30 og
stendur til 17. Einnig verður sýn-
ingin opin á morgun laugardag
kl. 11 - 17. Aðgangur er ókeyp-
is.
|föstudagur|25. 4. 2008| mbl.is
daglegtlíf
A
ð vera vistvænn felur í
sér fleira en það eitt
að aka um á vistvæn-
um bíl og flokka rusl-
ið. Fólk getur líka lagt
sitt af mörkum í innkaupum og
það á meðal annars við um fata-
innkaup, t.d. með því að með því
að velja fatnað úr lífrænum efnum
eða með því að gefa
gömlum flíkum
nýtt líf. Ein af
þeim verslunum
sem selja not-
aðan fatnað er Gyllti kötturinn í
miðbæ Reykjavíkur en þar er ekki
einungis að finna notuð föt heldur
líka ný föt úr endurnýttum efnum.
„Við erum til dæmis með leður-
jakka sem eru saumaðir upp úr
gömlum leðurkápum, og svo erum
við líka með flíkur sem hafa verið
saumaðar úr efnum gamalla kjóla
eða pilsa. Hér áður voru efni
vönduð og endingargóð, þannig að
kjóll með sniði sem er kannski
ekki það sem hentar í dag er
endurnýttur með því að sauma
úr efni hans nýja flík. Eins er-
um við með gallapils og galla-
stuttbuxur sem áður voru
gömlu góðu Levis 501-
gallabuxurnar. Svo erum
við líka með leðurtöskur
gerðar úr gömlum leð-
urflíkum,“ segir Ása
Ottesen versl-
unarstjóri og stílisti
og bætir við að allar
þessar flíkur kaupi
þau frá Bretlandi.
„Það sem gerir
þetta líka svo skemmtilegt er að
við fáum aðeins eitt eða örfá ein-
tök af sömu flíkinni. Það er líka
svo gaman að blanda saman gömlu
og nýju.“
Eigendur Gyllta kattarins, þau
Haukur Ingi Jónsson og Hafdís
Þorleifsdóttir, leggja mikið upp úr
því að hafa húsgögnin í versl-
uninni gömul, ekki síður en fötin.
„Þetta er nauðsynlegt til að skapa
réttu stemninguna og gera þetta
heimilislegt. Við finnum fyrir vax-
andi áhuga fólks á bæði notuðum
fötum og nýjum fötum sem gerð
eru úr endurnýttum efnum. Hing-
að kemur fólk frá 12 ára aldri og
upp í áttrætt. Hingað koma til
dæmis konur til að kaupa hatta og
selskapsveski sem þær fá hvergi í
nýjum búðum, sem og gömul skinn
sem eru ekki eins dýr og þau nýju.
Gömlu skórnir renna líka út.“
Morgunblaðið/Golli
Eigendurnir Þau Dísa og Haukur sitja hér saman í gamla sófanum. Hún í leðurjakka sem er „nýr“, gerður úr gam-
alli leðurkápu, og hann í skyrtu sem er líka „ný“, en gerð úr gamalli flík.
Töffarastíllinn Ása í svörtum leðurjakka, með leðurtösku, hvort tveggja
gert úr gömlum leðurflíkum. Gallapilsið er gert úr gömlum gallabuxum.
Nýtt úr notuðu Viktoría með sól-
gleraugu og í skrautlegum kjól.
Litríkur Ása versl-
unarstjóri komin í
stuð í grænskræp-
óttum kjól sem
saumaður er úr
gömlum kjól og
hefur nú fengið
nýtt líf.
Nýtt líf töfrað fram
úr gömlum flíkum
Blómleg Viktoría Hermannsdóttir í
sumarlegum kjól úr gömlum flíkum.
ar höfundar Íslands
eru kynntir unglingum
sé alls engin kona
nefnd á nafn? Eða
finnst uppfræðurum
landsins Svava svo
mögnuð að hún haldi
uppi merkjum hálfrar
þjóðarinnar ein og
óstudd?
x x x
Er þessi listi til-skipun frá
menntamálaráðherra?
Eða ákvörðun ís-
lenskukennara í hverj-
um skóla? Víkverji
vonar að fleiri kenn-
arar sjái þessa skekkju og leiðrétti
hana.
Sonur Víkverja valdi svo auðvitað
bók eftir Svövu Jakobsdóttur og
skrifaði m.a. í ritgerð um Leigj-
andann að sagan væri aldrei lang-
dregin heldur bæði skemmtileg og
fróðleg.
x x x
Víkverja fannst forvitnilegt aðlesa ummæli Þorsteins Guð-
mundssonar grínista í 24 stundum
um síðustu helgi. Þar sagði Þor-
steinn m.a.: „Ég var frekar undrandi
þegar ég heyrði sem unglingur að
karlmenn réðu heiminum. Ég hélt að
það væru konur sem réðu öllu.“
Það er kannski ekki skrítið að
ungur karlmaður dragi þá ályktun
að karlar ráði öllu og að það álit
fylgi honum allt lífið þegar sjaldan
er fjallað um konur í fjölmiðlum og
hvað þá um afrek þeirra í listum og
stjórnmálum í skólum landsins. Er
kannski þörf á að setja í lög að
kennsluefni þurfi jafnréttisvottun
áður en það er borið á borð fyrir
börnin okkar? Eða eigum við að
halda áfram að láta þau draga þá
ályktun að karlar ráði öllu?
Eru helstu rithöf-undar Íslands að-
eins karlar? Eða
kannski þrír karlar og
ein kona? Þessi spurn-
ing kom upp í huga
Víkverja þegar son-
urinn kom heim úr
grunnskólanum með
lista yfir fremstu rit-
höfunda síðustu aldar
og átti að velja sér eitt
höfundarverka þeirra
til lestrar. Sonurinn
gerði athugasemd við
það að aðeins ein kona
væri á þessum lista,
Svava Jakobsdóttir.
Kennarinn svaraði því
þá til að reyndar hefði engin kona
verið á listanum en hann hefði upp á
sitt einsdæmi bætt einni við. Þetta
finnst Víkverja frábært framtak hjá
kennaranum en spyr sig engu að
síður hvernig það megi vera að þeg-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is