Morgunblaðið - 25.04.2008, Side 20

Morgunblaðið - 25.04.2008, Side 20
matur 20 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður. Skútuvogi 13, S. 517 1500 www.teknos.com Best fyrir unglinga í próflestrier að borða ríkulegan morg-unverð og passa að borða reglulega yfir daginn fjölbreyttan al- mennan mat á borð við fisk, kjúkling, lambakjöt, hýðishrísgrjón, heil- hveitipasta, grænmeti og ávexti,“ segir Áslaug Traustadóttir, heim- ilisfræðikennari í Rimaskóla. Næringarríkur og hollur morg- unmatur gæti falist í hafragraut, grófu brauði, osti, ávöxtum, ab-mjólk og öðru, sem inniheldur trefjar. „Trefjaríkt fæði endist lengur í meltingunni en léttmeti á borð við cocoa puffs og cheerios. Ávextir, hnetur og rúsínur eru betri til að narta í en sælgæti, því of mikið af sykri getur valdið hálf- gerðum doða og stundum höfuðverk, sem komið getur í veg fyrir einbeit- ingu við lesturinn og próftökuna,“ segir Áslaug. Slökun á milli lestarna „Ofsalega gott er að frysta vínber, jarðarber og bláber og hafa þetta svo hálffrosið í skál nálægt sér sem snakk meðan á lestrinum stendur. Hnetur og rúsínur eru fínar auk alls konar orku- og heilsustykkja. Súkkulaði gefur vissulega orku og næringu, en gæta verður þess að hafa það í temmilegum skömmtum. Svo er um að gera að lesa ekki of lengi í einu. Nauðsynlegt er að standa upp og slaka á milli lestarna, skreppa í stutta göngutúra og drekka vel af vatni, hreinum safa og jafnvel maltöli. Margir orkudrykkir innihalda mikið af viðbættum sykri svo það þarf að vanda val á þeim og lesa vel inni- haldslýsingar,“ segir Áslaug. Trefjar, hálffrosin ber, mikið vatn og súkkulaði í hófi Morgunblaðið/Kristinn Úthald Hollur matur, slökun og góð hreyfing er gott veganesti í próflestri. Árvakur/Golli Kennarinn Áslaug Traustadóttir mælir með nasli á borð við ávexti og hnetur í stað sælgætis. Trefjaríkur morgunverður og annar fjölbreyttur matur, sem neytt er reglulega yfir daginn, gæti verið lóð á vogarskálar náms- manna í próflestri og aukið dug þeirra, sem nú standa frammi fyrir próftöku. Framhaldsskólanemar búa sig nú undir vorprófin og samræmd próf 10. bekkinga fara fram dagana 29. apríl til 8. maí. Útkoma úr prófum þessum er oft prófsteinn á framtíðar- möguleika ungdómsins. Jóhanna Ingvarsdóttir kynnti sér hvernig búa má sig sem best undir þolraunina. Áslaug Traustadóttir Ég reyni að fara vel yfir öll at-riðin í hverju fagi fyrir sigmeð því að lesa allt, sem tengist efninu og legg auðvitað áherslu á það, sem ég ekki kann. Nauðsynlegt er að temja sér góða skipulagningu með því að nýta frí- tímann sem best og byrja vel fyrir próf svo maður komist yfir allt efn- ið,“ segir Kristín Björk Smáradótt- ir, nemandi í 10. bekk Rimaskóla. Það eru auðvitað ýmsir kvíða- hnútar í maganum fyrir próf. „Það er hægt að hafa áhyggjur af því til dæmis að ná ekki að fara yfir allt efnið fyrir prófið með tilheyrandi stressi á sjálfan prófdaginn. Prófið getur reynst mun erfiðara en búast mátti við. Svo er hægt að hafa áhyggjur af því að ná ekki að klára prófið á tilsettum tíma eða bara standa sig illa sem gæti haft þær af- leiðingar að maður kæmist ekki inn í þann framhaldsskóla, sem helst er óskalistanum,“ segir Kristín Björk og bætir við að hún hafi enn ekki endanlega valið sér framhalds- skóla, en örugglega verði fyrir val- inu málabraut eða listdansbraut þegar þar að kemur. „Dansinn og tungumálin standa upp úr. Ég er að æfa djassballett, klassískan ballet og nútímadans hjá Danslistaskóla JSB enda má segja að dansinn eigi hug minn allan.“ Kristín segist helst kjósa að vera í einrúmi í próflestrinum, en sér finnist þægilegt að læra með öðr- um, ef efnið er bæði tormelt og ill- skiljanlegt. „Gott er að taka sér reglulegar pásur frá próflestrinum og hreyfa sig svolítið á milli tarna svo athyglin hverfi ekki alveg út í buskann. Svo reyni ég að verðlauna mig með því að gera eitthvað skemmtilegt að öllum prófum lokn- um,“ segir Kristín, sem gefur upp- skrift að hollum og góðum Boozt, eða skyrdrykk, sem er í miklu uppáhaldi. Boozt 1 lítil dós jarðarberja skyr.is ¾ dl Brazzi-morgunsafi 4-5 klakar 5 frosin stór jarðarber 1 dl frosnir blandaðir ávextir ½ banani Allt hráefnið er sett í blandara og hrært vel saman. Hellt í glas og borið fram. Pásur og hreyfing nauðsynleg Morgunblaðið/hag Kristín Björk Smáradóttir Góð skipulagning er góður kostur í próf- lestri og nauðsynlegt að taka sér reglulegar pásur. Kristín Björk Smáradóttir Ég skipulegg mig vel nokkrum dögum fyr-ir mikilvæg próf og tek svo eitt námsefnifyrir í einu. Ég einbeiti mér að því sem ég kann ekki og æfi mig á skólavefnum, www.skolavefurinn.is, sem gagnast hefur mér mikið í aðdraganda samræmdu prófanna,“ segir Ásdís Heiðarsdóttir, nemandi í 10. bekk Rima- skóla, sem einnig hefur verið í skátunum frá sjö ára aldri. „Ég hef ekki vanið mig á nein lukkudýr á prófatímum og best finnst mér að einbeita mér ein að próflestrinum í stað þess að læra undir próf með vinkonum. Notalegust eru náttfötin meðan á próflestrinum stendur. Ég reyni að fara snemma að sofa á prófatímum og borða vel. Hafragrauturinn hans pabba er bráðnauðsyn- legur á morgnana. Skinkuhorn finnast mér rosa- lega góð auk þess sem ávextir, salöt og hnetur eru í miklu uppáhaldi. Ég er auðvitað, eins og aðrir jafnaldrar mínir, í kvíðakasti yfir því að sofa af mér samræmdu prófin og gera klaufavill- ur á prófum, en verðlauna mig svo gjarnan fyrir að ná góðum einkunnum með dágóðum fata- kaupum sem er alls ekki leiðinlegt,“ segir Ásdís, sem segist alls óráðin í því hvað sig langi að taka sér fyrir hendur í framtíðinni, en stefni ann- aðhvort á félagsfræðibraut eða háriðn. Ásdís gaf uppskrift að uppáhalds salatinu sínu sem hún segir að sé afskaplega gott að narta í yfir bók- unum. Salat íssalat rauð paprika mangó agúrka vínber Allt hráefnið skorið niður í skál, því blandað vel saman og borðað með góðri lyst. Ásdís Heiðarsdóttir Í kvíðakasti yfir klaufavillum Morgunblaðið/hag Ásdís Heiðarsdóttir Hafragrauturinn hans pabba er bráð- nauðsynlegur á morgnana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.