Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 40

Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA FOOL´S GOLD kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.7 ára STEP UP 2 kl. 3:30 B.i.7 ára UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 4 - 6 LEYFÐ OVER HER DEAD BODY kl. 3:50 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára P2 kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára STÓRA PLANIÐ kl. 4D - 6D - 8D - 10D B.i. 10 ára DIGITAL JUNO kl. 6 B.i. 7 ára HANNAH MONTANA kl. 43D LEYFÐ 3D-DIGITAL SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA eeee - H.J., MBL eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL BÍÓTAL KVIKMYNDIR.IS SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA DRILLBIT TAYLOR kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 10 ára DRILLBIT TAYLOR kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP IN THE VALLEY OF ELAH kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára FORGETTING SARAH MARSHALL kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:30 LEYFÐ SHINE A LIGHT kl. 5:30 LÚXUS VIP SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI óbreytt miðaverð á midi.is SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB Bar 11 er glæsileg og stíliseruðrokkbúlla, minnti grein-arhöfund á viðlíka staði í Austur-Berlín. Innviðirnir eru sæmilega hráir, rokkið undirstrikað með margvíslegu veggskrauti, lík- kista myndar búr fyrir plötusnúð og svo er það auðvitað dúndrandi rokk- tónlistin sem er svona hæfilega fyrir ofan samtalsmörkin. Ekki spillir vertinn þá fyrir, svalur rokk- abillígaur með barta og alles. Á efri hæðinni er svipt upp rokktónleikum við og við, á svæði þar sem ekki er með góðu móti hægt að skipta um skoðun, slík eru þrengslin. Þannig á að það líka að vera, og þar, í svita- kófi, fóru fram einkar magnaðir tónleikar síðasta föstudag. Dauða- rokkssveitin Universal Tragedy hóf tónleikana, hin fjölsnærða öfga- rokksveit Shogun, sigurvegari Mús- íktilrauna 2007, fylgdi í kjölfarið en kvöldið enduðu síðþungarokk- ararnir í Celestine, vonarstjörnur íslensks þungarokks og sýndu svo um munaði að hér fer engin venju- leg hljómsveit.    Ég man ekki eftir að hafa séðjafn rosalega hljómsveit á sviði í mörg ár, það er helst að Mínus hafi framkallað svipaðar tilfinningar þegar þeir voru á Jesus Christ Bobby skeiðinu. Þetta er bara svo „fokking intense“, svo ég sletti nú, að maður trúir því varla þegar mað- ur horfir á og hlýðir. Þunginn er svakalegur, þéttleikinn svo gríð- arlegur að það rennur bókstaflega ekki vatn á milli. Það er ómögulegt annað en að hrífast með þegar hljómsveitin læsir sig í „grúvið“ eins og það er kallað, og þá skiptir engu máli hvort þú ert fyrir svona tónlist eða ekki. Tónlistin rennur áfram, transbundin, meðlimir allir sem einn týndir í tónlistinni. Ég lék mér að því að fylgjast með því hvernig sumir áhorfenda lygndu aftur aug- um og létu berast með hljómbylgj- unum í mikilli innlifun. Þetta var ekki ólíkt því að fylgjast með Sigur Rós á tónleikum, áhrifin sem koma fram eru nauðalík þó að áferð tón- listarinnar sé við fyrstu hlustun ger- ólík. Tónlistarlega er Celestine að spila níðþungt síðþungarokk í anda hinnar mikilhæfu Isis, þar sem mínimalískir kaflar eru brotnir upp með tilraunakenndum „atmosfer- ískum“ innslögum. Söngurinn er þá kapítuli út af fyrir sig; innblásinn, tilfinningaþrunginn og nístandi. Celestine fer í víking innanskamms, mun leika á tón- leikum í Evrópu og kemur m.a. fram á hinni mikilvægu SPOT hátíð í Danmörku, einni helstu „show- case“ eða kynningarhátíð Skandin- avíu. Vonandi leggja sem flestir þar augu og eyru við. Því að eins og með gulldrengina í Sigur Rós er engu upp á þessa pilta logið. Týndir í tilfinningunni » Það er ómögulegtannað en að hrífast með þegar hljómsveitin læsir sig í „grúvið“ eins og það er kallað, og þá skiptir engu máli hvort þú ert fyrir svona tónlist eða ekki. Ljósmynd/Guðmundur Óli Pálmason Innlifun „Þunginn er svakalegur, þéttleikinn svo gríðarlegur að það rennur bókstaflega ekki vatn á milli.“ arnart@mbl.is AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.