Morgunblaðið - 25.04.2008, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 25.04.2008, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 43 Engisprettur e. Biljana Srbljanovic sýn. fös. 25/4 örfá sæti laus Vígaguðinn e. Yasminu Reza sýn. lau. 26/4 síðustu sýningar Ástin er diskó, lífið er pönk e. Hallgrím Helgason Nýr íslenskur söngleikur Frumsýning 1. maí Sá ljóti e. Marius von Mayenburg sýn. fös. 25/4 uppselt Sólarferð e. Guðmund Steinsson tvær sýningar 26/4 örfá sæti laus sýn. sun. 27/4 örfá sæti laus „Þau eru frábær, öll fjögur… Þetta er hörkugóð sýning...!“ Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is PBB FBL , 29/3 „Þetta er vel unnin sýning, skemmtileg og óvenju skýrt hugsuð.” MA, MBL 8/4 Bráðfyndið og ágengt gamanleikrit Síðustu sýningar Leikhús tilboð vor á m inni sviðunu m Leikhús tilboð vor á m inni sviðunu m Skoppa og Skrítla í söng-leik e. Guðmund Steinsson Uppselt í apríl, tryggðu þér sæti í tíma Sý i í Kúlunni Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ningar í r Tommy Lee Jones eins og hann gerist bestur FRÁBÆR ÖÐRUVÍSI SPENNUMYND „Hank Deerfield (Tommy Lee Jones) sem leitar að syni sýnum sem hefur ekki sést frá því hann kom aftur sem hermaður frá Írak. Ásamt lögreglukonunni Emily Sanders reynir hann að leysa ráðgátuna sem teygir anga sína víða.” TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Stórleikararnir EBERT BBC Tommy Lee Jones Charlize Theron Susan Sarandon Paul Haggis fyrir (crash) fyrir Dead man walking fyrir Monster fyrir Fugitive í leikstjórn Í upphafi spennutryllisins Vakandi (Awake) er áhorfendum tjáð að ákveðinn hluti sjúklinga sem und- irgangast skurðaðgerðir upplifi meðvitund í svæfingu, en það þýðir að ekki tekst fyllilega að svæfa sjúk- linginn sem þó getur sig hvergi hrært meðan á aðgerðinni stendur. Þegar í ljós kemur að hetja mynd- arinnar, ungur en vellauðugur kaup- sýslumaður að nafni Clayton, þarf nauðsynlega á hjartaaðgerð að halda, er ljóst að þegar er komin fram læknisfræðileg skýring á því sem hann mun ganga í gengum: Að vera vakandi og sárþjáður meðan skurðlæknar krukka í brjósthol hans. Fyrir utan að vera stolin úr smásögu eftir Stephen King er þetta ágætis hugmynd. Leikstjóranum og nýliðanum Joby Harolds reynist hins vegar ómögulegt að yfirstíga þær hindranir sem felast í því að smíða söguþráð utan um aðal- persónu sem getur sig hvergi hrært, getur ekki talað upphátt og er því al- gjörlega óvirkt fórnarlamb þess samsæris sem fljótlega kemur í ljós að hann er flæktur í. Helsti galli myndarinnar er þó hin fullkomlega fyrirsjáanlega, en um leið fjarstæðu- kennda flétta sem í hönd fer. Það mætti halda að hér sé gert ráð fyrir að áhorfendur séu sofandi í stað að- söguhetjunnar því fátt sem hér er sett fram í gervi söguþráðar stenst nærskoðun vakandi manns. Awake Hayden Christensen og Jessica Alba í hlutverkum sínum. Krukkað í líkama KVIKMYND Háskólabíó Leikstjórn: Joby Harold. Aðalhlutverk: Hayden Christensen, Jessica Alba, Lena Olin og Terrence Howard. 84 mín. Banda- ríkin, 2007. Vakandi (Awake) bnnnn Heiða Jóhannsdóttir BJÖRNINN Rocky beit þjálfarann sinn í hálsinn svo hann lést af sár- um sínum síðastliðinn þriðjudag. Rocky hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum, nú síðast í Semi Pro á móti Will Ferrell. Stephan Miller tamdi Rocky sem hefur hingað til verið talinn einn best þjálfaði björn sem til er í heim- inum og sá sem minnst hætta stafar af. Tveir aðstoðarmenn Millers yf- irbuguðu rúmlega þrjúhundruð kílóa þungan björninn með pip- arúða. Björninn og umhverfi hans voru rannsökuð af dýraeftirlits- yfirvöldum í Kaliforníu, en engin merki fundust um það að aðbún- aður dýrsins hefði verið slæmur eða varúðarreglur í umgengni við hann brotnar. Miller mun hafa ver- ið að leika við björninn og hann þá bitið hann á versta stað í hita leiks- ins. Eigendur Rockys hafa ekki ákveðið ennþá hvort hann fær að halda lífi. Bangsi Örlög Rockys eru óráðin. Drap þjálf- arann sinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.