Morgunblaðið - 07.05.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 07.05.2008, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TVÆR konur fagna 100 ára afmæli sínu í dag. Jóhanna G. Kristjánsdóttir og Ragna S.G. Norð- dahl fæddust báðar á þessum degi árið 1908 og tilheyra því nú ört vaxandi hópi Íslendinga sem eru 100 ára og eldri. Skáldmælt hannyrðakona Jóhanna fæddist á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði og bjó þar til ársins 2003 þegar hún var 95 ára. Hún er einn af átta núlifandi Vestfirð- ingum sem hafa náð 100 ára aldri. Jóhanna er dóttir Kristjáns G. Guðmundssonar og Bessabe Halldórsdóttur. Bræður hennar, sem allir eru látnir, voru: Ólafur, fyrrverandi skóla- stjóri Flensborgarskólans í Hafnarfirði, Guð- mundur Ingi, bóndi og skáld sem lést 95 ára að aldri, og Halldór, fyrrverandi alþingismaður og blaðamaður. Jóhanna er næstyngst. Jóhanna var lengi ritari fyrir stjórn Sam- bands vestfirskra kvenna. Hún er mikil áhugakona um tungu- málið esperantó sem og garðyrkju og skóg- rækt og hlaut hún eitt sinn viðurkenningu fyrir störf að garð- yrkju- og skógræktar- málum úr verðlauna- sjóði Kristins Guðlaugssonar frá Núpi. Þá er hún mikil hannyrðakona, prjónar vettlinga og sjöl úr ull, og þykir afar skáldmælt. Í tilefni níræðisafmælis hennar fyrir áratug gaf Kvenfélag Mosvallahrepps, sem Jóhanna er heið- ursfélagi í, út ljóðabókina Hríslurnar hennar Hönnu en hún inniheldur ljóð Jóhönnu. Jóhanna dvelur nú á sjúkrahúsi Patreksfjarð- ar. Hún á eina dóttur, Kolfinnu Guðmundsdóttur. Næstelsta hjúkrunarkona landsins Ragna fæddist á Geithálsi í Mosfellshreppi. Faðir hennar fæddist fyrir 165 árum og mun þetta vera eitt lengsta lífsskeið tveggja kynslóða sem vitað er um, samkvæmt langlifi.net. Segja má að langlífi sé í genum Rögnu en móð- ir hennar varð 92 ára, móðurafi 95 ára, föð- ursystir 96 ára og bróðurdóttir 102 ára. Ragna lauk hjúkrunarnámi 34 ára gömul og vann hún m.a. á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, Heilsu- hælinu í Hveragerði og á Kleppsspítala. Hún er næstelsta hjúkrunarkonan á lífi á Íslandi og dvel- ur nú á Hrafnistu. Tvær íslenskar konur fagna aldarafmæli í dag  Yfir 30 Íslendingar eru 100 ára og eldri  Af þeim fæddust átta á Vestfjörðum Jóhanna Kristjánsdóttir Í TILEFNI 100 ára afmælis hestaréttar Thors Jen- sen að baki Fríkirkjuvegi 11 riðu leikararnir Hilmir Snær Guðnason og Benedikt Erlingsson ofan úr hesthúsahverfi Gusts í Kópavogi og sem leið lá í Hallargarðinn. Þannig vildu félagarnir minna borg- arfulltrúa á að tryggja aðgang að hestaréttinni eftir að Fríkirkjuvegur 11 var seldur. Hilmir og Benedikt vildu jafnframt vekja athygli á þeim lífsgæðum sem svæðið hefur veitt kynslóðum barna í Þingholt- unum. Sjálfir segjast þeir hafa kynnst á þessum leikvelli sem krakkar og brallað ýmislegt á þessum stað. Morgunblaðið/G.Rúnar Þar sem kynslóðir barna léku sér Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Á DÝRALÆKNINGASTOFU Helgu Finnsdóttur hefur verið opnaður banki fyrir frosið hundasæði. Helga segir töluverða þörf hafa verið fyrir aðstöðu til að geyma sæði eft- ir að Héraðs- dýralæknir hætti að annast móttöku þess. Ekki er langt síðan innflutn- ingur á frystu hundasæði til landsins var leyfður, en Helga segir notkun þess geta verið áhugaverðan valkost fyrir rækt- endur hérlendis þar sem stofnar margra hundategunda eru smáir og því geti reynst erfitt að bæta ræktunina með innlendum hund- um. Fylgir því mikill kostnaður og fyrirhöfn að flytja rakka til landsins frá útlöndum auk þess sem bestu verðlaunarakkar eru yfirleitt ekki falir. Sömuleiðis er ómögulegt að senda tíkur utan til sæðingar því ekki má flytja aftur til landsins eða vista í einangrun hvolpafullar tíkur. Vandasöm aðgerð Helga bendir á að sæðing með erlendu sæði sé engu að síður kostnaðarsöm og ferlið flókið. „Margir þættir þurfa að vera fyr- ir hendi ef sæðing á að geta bor- ið árangur,“ segir hún. „Sæðið þarf að vera gott, sæðingin þarf að fara fram á réttum tíma á lóð- aríinu og síðan þarf ákveðna þjálfun og æfingu til að koma sæðinu inn í leg.“ Sæðing með innfluttu sæði er einnig kostnaðarsöm. Bæði getur sæði úr eftirsóttum rökkum kost- að hundruð þúsunda og rakkinn þarf að gangast undir ítarlegar bólusetningar og prófanir í heimalandi sínu til að Mat- vælastofnun samþykki innflutn- inginn. Innflutningur sæðisins og sæðingin sjálf kosta svo sitt. Gefur kost á betri ræktun Tíkin Coco, súkkulaðibrúnn labrador, fæddist í Bandaríkj- unum en var flutt hingað til lands. Hún var ein fjölmargra hvolpa í goti sem kom til eftir sæðingu með frosnu sæði. Sú sæðing var gerð þremur árum eftir að rakkinn drapst og í gotinu fæddust ellefu hvolpar. Eigandi Coco, Ingólfur Guð- mundsson, segir sæðingu með geymdu sæði þýða að hægt sé að fá mun betri upplýsingar um heilsufar rakkans og þeirra hvolpa sem hann hefur feðrað á undan. Þá hefur fengist betri reynsla af því hvernig afkvæmi hans reynast í þjálfun og veiði – nokkuð sem ekki væri hægt ef ræktað væri beint undan ungum hundi. Sæðisbanki fyrir hundasæði tekinn í gagnið á Dýralækningastofu Helgu Finnsdóttur Morgunblaðið/Ingó Hlýleg Coco er ein af 11 hvolpum í goti sem varð til úr frystu sæði. Helga Finnsdóttir Innflutt sæði vandmeðfarið GARÐAR Kjartansson, fram- kvæmdastjóri skemmtistaðarins Apóteksins við Austurstræti, segir að sett verði upp hljóðeinangrun á reykingasvæði í porti til að koma í veg fyrir að hávaði frá reykinga- mönnum trufli gesti Hótel Borgar. Í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Ólafi Þorgeirssyni hótelstjóra að hávaði frá reykingafólki fæli fólk frá hótelinu og valdi því tekju- tapi. Garðar Kjartansson segir að þeir Ólafur hafi átt fund í gær og leyst málið. „Við ætlum að setja upp hljóðeinangrun í portinu,“ segir Garðar og bætir við að engin illindi séu á milli manna heldur sé allt í góðu og málið verði leyst í mestu vinsemd. Hann bendir á að ekki sé um auðvelt mál að ræða. Ekki sé hægt að reka fólk úr bænum þó að það reyki og ekki sé hægt að skipa fólki að hætta að reykja. Ekki megi reykja inni á stöðunum og því þurfi að koma til móts við reykingafólk með aðstöðu úti. „Það þarf að gera þetta allt eftir kúnst- arinnar reglum og við leysum þetta,“ segir hann. Apótekið bregst við hávaða GYLFI Arnbjörnsson framkvæmda- stjóri ASÍ vísar á bug gagnrýni Finns Árnasonar forstjóra Haga á verðkönnun ASÍ sem fjallað var um í blaðinu í gær. Sagði Finn- ur niðurstöðu könnunarinnar ekki geta staðist og véfengdi vinnubrögð ASÍ. Gylfi segir verðkönnun ASÍ mæla það verð sem neytendur standa frammi fyrir, sem vissulega geti tekið breytingum. „En það vekur athygli okkar að þess- ar sveiflur virðast vera svolítið í eina áttina og billegt að reyna að útskýra það með því að Alþýðusambandið sé óvandað í sínum vinnubrögðum, frekar en að verslunareigendur leiti skýringa hjá sér sjálfum,“ segir Gylfi og vísar gagnrýni Haga til föðurhús- anna. „Hagar hafa valið sér þennan málflutning, að gagnrýna Alþýðu- sambandið í sínum störfum. Ég held að mönnum sé minnisstætt hvernig Hagar reyndu að hafa áhrif á mæl- inguna síðastliðið haust og var það þeim ekki til virðingarauka.“ Þá ítrekar Gylfi að ágætt fólk starfi hjá ASÍ við gerð verðkannana, og vandi þetta fólk vinnubrögð sín í hvívetna. Vísa gagn- rýni Haga á bug Gylfi Arnbjörnsson ASÍ segir kannanir sínar gefa rétta mælingu KRISTJÁN Möller samgönguráð- herra efnir í kvöld, miðvikudags- kvöld, til opins fundar um Sunda- braut. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst klukkan 20. Tilgangur fundarins er að upplýsa borgarbúa og annað áhugafólk um samgöngur um fyrirhugaða Sunda- braut, mögulega útfærslu hennar og kostnað. Kristján L. Möller sam- gönguráðherra ávarpar fundinn í upphafi og síðan fjalla sérfræðingar Vegagerðarinnar um Sundabraut. Þá munu borgarfulltrúarnir Gísli Marteinn Baldursson og Dagur B. Eggertsson einnig ávarpa fundinn. Að loknum erindum verður gefinn kostur á umræðum. Fundarstjóri verður Róbert Marshall, aðstoðar- maður samgönguráðherra. Opinn fundur um Sundabraut ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.