Morgunblaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF   '*$ $%++# /+0( /+0*    $  ,%#-# '$# /+0' /+0,   !"#$"%& ' ( ) $*%+,$ ,%'-* 1+0' 1+0-   *+,- !. (%,$. #%+$# +0+ /+0.   % & '%--. $%$$' /,0' /+0'   :$) (  & (+ $ 79+ ; < + =  > #? &  '() *+ +  ." / 0 "123 // 45 0 "123 -6 3 *70 "123 0 % 8 %/3 9-/2 : ;< %( =>& %(  0 "123 ? 12%; %/3 7 %(8 %/< %(3  & 3 ,@A' , 11 B 1 C* C 83 +&D3 E1 3 ,--  (. / 0 3 . &> 3 . %>. # D . %>@& " &1@F* -/ %/ * ; 0 "123 *G "D  %/ =>& %(>0 "123 'H3& 3 ,/23 + D;;%;  5 %3 I%% 15 %3 '  &  / 1 -2 J&%1 D. 1%1J" 9 0 %(3 9 2 %3 3 45 +  #0,' **0'. $$0+, (0$& $(0'+ ,$0(+ ,$0-+ #-&0++ ,#0-+ -&0(+ '0(. $$0&- *0(, &(0++ $0*+ (0(- ,'+0++ $',$0++ *'+0++ +0-. $'#0++ $0-+ ,$0&. #0,. '#0++ -0.+ .'..0++ $+0++ (0++                                   I /2 ( ;% + 8" K "/( ; ? 12,                                         B  B B     B B   B B                         B   B B B B B     B                                  B B    B  * 5 ( 4 /2              B  B  B B  B B  B B ! ;&%%; 4 /4&                                          DÓTTURFÉLAG Icelandic Group í Bretlandi, Coldwater Sea- food UK, hefur náð samkomulagi við starfsmenn Redditch- verksmiðjunnar, og verkalýðs- félög á svæðinu í nágrenni Birm- ingham, um að loka verksmiðjunni eftir undangengið 90 daga samn- ingaferli sem hófst í byrjun mars. Náðst hefur samkomulag við starfs- menn um uppsagnarákvæði og staðfest hefur verið að verksmiðj- unni verði lokað hinn 6. júní nk. Eru starfsmenn verksmiðjunnar um 180 og hefur velta hennar num- ið um þremur milljörðum króna. Í tilkynningu til kauphallar kem- ur fram að framleiðsla tilbúinna rétta verði flutt yfir í verksmiðjur Coldwater í Grimsby. Að sögn Finnboga A. Baldvinssonar, for- stjóra Icelandic, hefur rekstur Coldwater í Bretlandi verið til end- urskoðunar, en á undanförnum þremur árum hefur verksmiðjum þar verið fækkað úr fimm í tvær. Segir Finnbogi lokunina í Redditch væntanlega vera síðasta skrefið í þeirri endurskoðun. Coldwater Seafood keypti þessa verksmiðju árið 2003 og hefur hún unnið til- búna sjávarrétti. „Með aukinni framleiðni í verksmiðjunni í Grimsby tökum við yfir framleiðsl- una í Redditch án mikillar fjölg- unar starfsmanna þar. Því miður höfum við ekki störf fyrir þá starfs- menn sem unnið hafa í verksmiðj- unni í Redditch,“ segir Finnbogi. Finnbogi A. Baldvinsson Loka breskri verksmiðju HAGNAÐUR Landsbankans á fyrsta fjórðungi ársins nam 17,4 milljörðum króna, samanborið við 13,8 milljarða hagnað af sama tíma- bili í fyrra. Fjárfestingartekjur bankans námu 14,7 milljörðum sem er 67% aukning, mest vegna geng- ishagnaðar. Stærstur hluti hans kemur frá jákvæðri gjaldeyrisstöðu á meðan tap var af hlutabréfum, skuldabréfum og afleiðum. Grunntekjur, þ.e. vaxtamunur og þóknunartekjur námu 26,2 milljörð- um og jukust um 27%. Yfir helm- ingur þeirra, 58%, kom erlendis frá. Í afkomutilkynningu segir að gengi krónunnar hafi veruleg áhrif á efnahags- og rekstrarreikning. Heildareignir námu 3.836 millj- örðum króna í marslok, samanborið við 3.058 milljarða í ársbyrjun. Um- reiknaðar í evrur námu eignirnar 32,1 milljörðum evra í marslok, sem er rýrnun um 1,3 milljarða evra frá áramótum. Hlutfall innlána við- skiptavina af útlánum var 66%. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri, segir afkomuna mjög góða, ekki síst í ljósi erfiðra aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Bankinn njóti nú góðs af endurskipulagningu á fjármögnunargrunni sínum sem gripið var til á árunum 2006 og 2007. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri, segir sterka fjárhagsstöðu og lágar endurgreiðslur á þessu ári gera Landsbankanum fært að standa af sér óhagstæðar aðstæður. Bankinn muni laga vöxt efnahags- reikningsins að aðstæðum og leggja áherslu á samþjöppun og samþætt- ingu í rekstri til að auka hagræði og nýta möguleg samlegðaráhrif. Í tilkynningunni segir einnig að búast megi við að endurmat áhættu á fjármálamörkuðum geti orðið til þess að sjónum verði beint meira að hefðbundinni bankastarfsemi. halldorath@mbl.is Hagnaður jókst um 27% frá fyrra ári Eignir mældar í evrum rýrnuðu en fjárfestingartekjur jukust Morgunblaðið/Brynjar Gauti Uppgjör Hagnaður bankans náði sér aftur á strik eftir talsverða dýfu á síð- asta fjórðungi ársins 2007, en þá nam hann aðeins um 4,9 milljörðum króna. Í HNOTSKURN »Arðsemi eigin fjár eftirskatta var 44% og eiginfjár- hlutfall (CAD) var 11,0%. »Launakostnaður jókst um33% og rekstrargjöld, sem námu 19,7 mö.kr., um 39%. »Nýjar innlánsleiðir í Evrópuverða kynntar næstu mánuði. »292 m.evra munu koma tilgreiðslu af langtímalánum bankans á þessu ári, lausafé í marslok nam 8,2 mö.evra. Uppgjör Landsbankinn FYRSTA fjórðung ársins nam hagn- aður Marel Food Systems 0,7 millj- ónum evra, eða 88,5 milljónum króna, samanborið við um eina millj- ón evra árið áður. Sölutekjur jukust um 2,4% og námu 74 milljónum evra og framlegð var 34,3%, svipuð og fyrir ári. Sölu- og markaðskostnaður og þróunarkostnaður jukust um 8% og námu samanlagt 15,3 milljónum evra. Fjármagnsgjöld jukust einnig lítillega en stjórnunarkostnaður minnkaði og nam 8,2 milljónum evra. Hagnaður af hlutdeildarfélagi nam nú 0,5 milljónum evra saman- borið við 0,3 milljóna tap árið áður. Viðsnúninginn má rekja til fjárfest- ingar LME í hollenska fyrirtækinu Stork, en Marel átti 20% í LME. Hlutur LME í Stork var seldur í jan- úar sl., sem skilaði Marel um 53 milljónum evra. Við samruna Marel og Stork Food Systems tvöfaldast veltan og er nú um 650 milljónir evra. Rekstur Stork á fjórðungnum gekk vel, að því er segir í tilkynn- ingu, og var umfram væntingar. Eignir Marel Food Systems í marslok námu 423,4 milljónum evra og var eiginfjárhlutfall 42,7%. Hörður Arnarson, forstjóri, segir afkomuna mótast af umfangsmikilli samþættingu. Í framhaldi af [nýsam- þykktri] sameiningu Stork og Marel, og þar með framgengnum markmið- um og ytri vöxt, munu megin- áherslur verða lagðar á innri vöxt og bætta afkomu. Ráðgert er að afkoma Marel batni umtalsvert þegar líður á árið og eru þrjár ástæður nefndar í afkomutil- kynningunni. Samlegðaráhrif vegna samþættinga fyrirtækja sem hafa verið keypt á undanförnum árum, verðhækkanir sem gripið var til á síðasta ári til að mæta hækkun á verði hráefnis og loks verður „ráðist í verulega lækkun á föstum kostnaði félagsins á öðrum ársfjórðungi.“ Starfsfólki fækkaði um 110. Það eigi þátt í að lækka fastan kostnað um 8-9 milljónir evra á ársgrundvelli. halldorath@mbl.is Hagnaður Marels 0,7 milljónir evra Ráðgert að samlegðaráhrif, verðhækkanir og fækkun starfsfólks bæti afkomuna Morgunblaðið/Ómar Vöxtur Sameining Stork og Marel hefur nær fimmfaldað samstæðuna. Uppgjör Marel Food Systems Í HEILD telja stjórnendur 365 hf. að niðurstaða fyrsta ársfjórðungs sé viðunandi og gefi ekki tilefni til að breyta áætlunum ársins,“ segir Ari Edwald, forstjóri félagsins. Í af- komutilkynningu kemur fram að rekstur fjölmiðla hafi gengið betur en gert var ráð fyrir en ákveðnir erf- iðleikar væru í afþreyingarhluta samstæðunnar. Sölutekjur fjölmiðla námu 2,3 milljörðum króna og hækkuðu um 21%, sem er að hluta rakið til Stöðv- ar2Sport2 sem sýnir enska boltann. Tekjuaukning á afþreyingarsviði nam 43,7%, m.a. vegna innkomu er- lends hluta dótturfélagsins EFG. Mikill samdráttur var þó í heildsölu á erlendri tónlist og DVD sem stjórnendur telja tímabundinn. Heildarsala beggja sviða nam 3,5 milljörðum og jókst um 29%, kostn- aðarverð nam 2,3 milljörðum og jókst um 33%. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 1,2 milljarða, þar af 940 milljónir vegna gengisþróunar, samanborið við sjö milljónir árið áð- ur. Um 35% af skuldum 365 um ára- mót voru í erlendri mynt. Eignir jukust lítillega frá áramót- um og voru 14,7 milljarðar í marslok. Eiginfjárhlutfall var 25% og veltu- fjárhlutfall 83%. Áætluð velta á árinu er 13,5-14 milljarðar króna. halldorath@mbl.is Gengistapið 940 milljónir, heildartapið 970 milljónir Niðurstaða 365 sögð viðunandi, ársáætlunum ekki breytt Uppgjör 365 hf. ● EIMSKIP var eina félagið sem hækkaði í verði í kauphöllinni í fyrra- dag. Hækkunin var myndarleg, 5,88%, og athygli vekur að hún átti sér stað aðeins tíu mínútum fyrir lokun markaðar. Fram til þess hafði gengi félagsins lækkað töluvert. Þórður Friðjónsson, forstjóri Nas- daq OMX á Íslandi, segir það fara í venjulegt ferli hjá kauphöllinni þegar svo óvenjuleg viðskipti eiga sér stað. „Við köllum eftir upplýsingum frá aðilum viðskiptanna og skoðum jafnframt hvað er að gerast á mörk- uðunum að eðlilegu leyti. Komi eng- in útskýring í ljós sendum við málið til nánari athugunar hjá Fjármálaeft- irlitinu án þess að í því felist nokkur dómur,“ segir Þórður. Fer í venjulegt ferli ● HALLI varð á vöruskiptum við út- lönd í aprílmánuði sem nemur 7,2 milljörðum króna miðað við bráða- birgðatölur Hagstofu Íslands. Sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Hagstofu nam útflutningur 33,5 milljörðum króna, fob, en innflutningur nam 40,8 milljörðum króna, fob, í mán- uðinum. Í apríl á síðasta ári nam út- flutningur 21,8 milljörðum króna en innflutningur 32,8 milljörðum á verð- lagi þess tíma. Vöruskiptahallinn dróst því saman á milli ára. Vöruskiptahalli dregst saman ● SVISSNESKI stórbankinn UBS lagði niður 5.500 störf og seldi 15 milljarða dala virði af eignum til að mæta tapi að húsnæðislánum á síðasta ársfjór- ungi. Tap tíma- bilsins nam 11,5 milljörðum sviss- neskra franka, um 850 milljörðum króna, þó minna en væntingar voru um. Þá tilkynnti bandaríski bankinn Morgan Stanley uppsagnir um 1.500 starfsmanna, en á síðasta fjórðungi nam tap bankans 3,6 milljörðum dala, um 280 milljörðum króna. UBS og Morgan Stanl- ey segja upp fólki UBS Fór illa út úr húsnæðislánum. ● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði enn um 2,4% í gær og var lokagildi henn- ar tæp 4.885 stig. Eimskip lækkaði um 4%, eftir 5,9% stökk daginn áður, Exista lækkaði um 3,4% og Straum- ur um 3,2%. Einu félögin sem hækk- uðu voru Össur og Marel, um 0,7% Talsverð velta var með skuldabréf, eða sem nam 36,9 milljörðum króna, en heildarvelta nam 41,9 milljörðum. Á hlutabréfamarkaði var mest verslað með bréf Kaupþings, fyrir 1,5 milljarða króna. Enn lækka hlutabréf ÞETTA HELST ...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.