Morgunblaðið - 07.05.2008, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 07.05.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 15 ERLENT Umsóknarfrestur er til 30. maí Kynntu þér námið á www.hr.is VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK Tækni- og verkfræðideild HR býður upp á BSc NÁM Í VERKFRÆÐI • BSc í fjármálaverkfræði • BSc í hátækniverkfræði Tækni- og verkfræðideild HR leggur áherslu á framúrskarandi kennslu, öflugar rannsóknir og sterk tengsl við atvinnulífið. Umsækjendur í grunnnám í verkfræði þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða hafa sambæri- lega menntun og með haldgóða þekkingu í stærðfræði, raungreinum, íslensku og ensku. Miðað er við að nemandi hafi lokið a.m.k. 21 einingu í stærðfræði og 6 einingum í eðlisfræði. • BSc í heilbrigðisverkfræði • BSc í rekstrarverkfræði VAXANDI ólga er í Egyptalandi vegna verðhækkana og versnandi kjara hjá almenningi. Óttast er, að sú ákvörðun stjórnvalda að hækka laun og skatta geti gert illt verra. Egypska stjórnin ákvað á mánu- dag að hækka skatta á eldsneyti og tóbaki um 30 til 50% og var það gert til að fjármagna 30% launahækkun hjá opinberum starfsmönnum. Hag- fræðingar segja aftur, að þetta muni kynda undir verðbólgunni, sem var 15,8% á ársgrundvelli í mars. Vegna verðhækkana hafa útgjöld dæmigerðrar, egypskrar fjölskyldu hækkað um 50% frá áramótum en 44% þjóðarinnar eru undir fátækt- armörkum, hafa um eða innan við 150 ísl. kr. sér til framfæris daglega. Brauðverð hefur hækkað mikið en neysla þess er hvergi meiri en í Egyptalandi, um 400 g á mann dag- lega. Óttast margir, að upp úr kunni að sjóða með alvarlegum og ófyrir- sjáanlegum afleiðingum fyrir Egyptaland og heimshlutann allan. Reuters Brauðið Robert Zoellick, forseti Alþjóðabankans, með brauðhleif, sem er táknrænn fyrir þær miklu verðhækkanir, sem orðið hafa á matvælum. Vaxandi ólga í Egyptalandi ÍTALIR kaupa minna en áður af víni, pasta og ávöxtum en þetta þrennt er hluti af því, sem kallað er uppistaðan í ítalskri mat- armenningu. Ástæðan er mikil verðhækkun á þessum vörum. Um þetta var fjallað í dag- blaðinu Corriere della Sera og þar sagði, að pasta væri ekki að- eins hluti af mataræðinu, heldur hluti af ítalskri menningu. Nú væri mataræði margra farið að líkjast því, sem væri hjá náms- fólki fjarri heimili sínu, kjúk- lingabitar og alls kyns snakk, sem fljótlegt er að bregða á pönnu eða stinga inn í örbylgju- ofn. Fyrir utan pasta selst nú minna af brauði, grænmeti, svína- og nautakjöti. Pastakreppa á sjálfri Ítalíu ÍSRAELAR eru farnir að búa sig undir mikil tíðindi í stjórnmálum landsins vegna nýrrar rannsókn- ar á meintri spill- ingu Ehud Ol- merts forsætis- ráðherra. Telja margir, að hann muni neyðast til að segja af sér. Mikil leynd er enn yfir rannsókn- inni á máli Olmerts og hefur það gef- ið alls kyns sögum byr undir báða vængi. Raunar er búist við, að upp- lýst verði um rannsóknarefnið mjög fljótlega en dagblaðið Yediot Aharo- not segir, að Olmert sé grunaður um að hafa tekið við miklu fé frá banda- rískum kaupsýslumanni og notað það til að fjármagna kosningabar- áttu sína. Staðfest hefur verið, að er- lendur maður hafi verið yfirheyrður vagna þessa máls. Flokkarnir við öllu búnir Segi Olmert af sér er líklegt, að Tzipi Livni utanríkisráðherra og fé- lagi í Kadima-flokki Olmerts taki við forsætisráðherraembættinu. Eru samstarfsflokkar Kadima í stjórn nú þegar farnir að tjá sig um hugsanleg forsætisráðherraskipti. Talsmaður Shaflokksins sagði til dæmis, að flokkurinn væri reiðubú- inn að styðja Livni yrði engin breyt- ing á stöðu bókstafstrúaðra en Ehud Barak, fyrrverandi leiðtogi Verka- mannaflokksins, hvatti sinn flokk til að vera viðbúinn nýjum þingkosn- ingum. Er Ehud Olmert á förum? Ehud Olmert ELDGOS, sem hófst í eldfjallinu Chaiten í Chile á föstu- dag, færðist í aukana í gær þegar hraun fór að renna úr gíg fjallsins og öskugos magnaðist. Stjórnvöld fyr- irskipuðu þess vegna að rýma skyldi stórt svæði um- hverfis eldfjallið. Eldfjallið hafði verið óvirkt í rúm 300 ár þegar gos hófst á föstudaginn var. Nær allir 4.000 íbúar bæjarins Chaiten, sem er um tíu km frá eldfjallinu, hafa verið fluttir þaðan. Íbúar bæjarins Futuleufu, um 70 kíló- metra sunnan við Chaiten, flúðu yfir landamærin til Argentínu í gær eftir að aska féll á bæinn. Nokkrir íbú- anna eru hér við rútur sem fluttu þá þaðan. Eldgos í Chile færist í aukana AP CHARLES Taylor, fyrrver- andi forseti Líb- eríu, var um tíma með fimm millj- arða dollara, um 375 milljarða ísl. kr., á tveimur bankareikning- um í Bandaríkj- unum. Kom þetta fram hjá aðalsak- sóknaranum í stríðsglæparéttar- höldunum yfir Taylor en hann er sakaður um að hafa í forsetatíð sinni séð skæruliðum í Síerra Leóne, grannríki Líberíu, fyrir vopnum gegn greiðslu í demöntum. Neitar hann að vísu þeim ásökun- um og þegar hann lét af embætti 2003 lýsti hann yfir, að gæti ein- hver bent á, að hann ætti fé á er- lendum bankareikningum, myndi hann láta það renna „til líberísku þjóðarinnar“. Reynt að rekja slóðina Tugir þúsunda manna létu lífið í borgarastyrjöldinni í Síerra Leóne og enn fleiri voru örkumlaðir og nauðgað. Stephen Rapp, aðalsaksóknar- inn, segir, að um tíma hafi fimm milljarðar dollara verið inni á tveimur bankareikningum Taylors í Bandaríkjunum en síðan hafi féð verið fært til. Sagði hann, að unnið væri að því að rekja slóðina. Árið 2005 var þjóðarframleiðslan í Líberíu um 120 milljarðar ísl. kr. þannig að Taylor hefur þá átt hana þrefalda á tveimur reikningum. Mjög ábata- samt for- setaembætti Charles Taylor

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.