Morgunblaðið - 07.05.2008, Page 17

Morgunblaðið - 07.05.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 17 SUÐURNES Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Það sem mér finnst mest heillandi við Reykjanes- skagann er að það er auðvelt að komast í snertingu við söguna. Það er fátt meira heillandi fyrir göngu- mann en að ganga gamlar leiðir sem forfeður okkar hafa rutt í gegn- um tíðina. Það er áhugavert að ímynda sér hvernig var hér um- horfs og hvernig lífið gekk fyrir sig hér áður en hraun runnu um mest- allan skagann, eins er gaman að velta fyrir sér þeirri keðjuverkun sem átti sér stað í náttúrunni eftir jarðelda sem brunnu fram á 13. öld- ina og uppblástur breytti hér öllu lífi,“ sagði Rannveig Garðarsdóttir, leiðsögumaður og ferðamálafræð- ingur, í samtali við Morgunblaðið. Hún ætlar alla miðvikudaga í sumar að leiða göngur um Reykjanesskag- ann sem opnar eru öllum sem áhuga hafa. Í dag verður gengið með strönd- inni frá Straumsvík að Hvassa- hrauni, gamlar tóftir skoðaðar og sagt frá búsetu á þessu svæði. Yfirferð með nýju sniði Rannveig Garðarsdóttir er mikill göngugarpur og útivistarkona og má rekja þennan áhuga hennar allt aftur til æsku. Hún segist vera alin upp á fjöllum en á undanförnum ár- um hefur hún verið hugfangin af sínu nánasta umhverfi, Reykjanes- skaganum. Hún leiddi lengi vel Strandgönguhópinn sem hafði það að markmiði að ganga ströndina umhverfis Reykjanes og var það sjálfboðaliðsstarf. Eftir nám í ferða- málafræði við Menntaskólann í Kópavogi sótti hún nám við Leið- söguskóla Íslands og útskrifaðist sem svæðisleiðsögumaður um Reykjanes árið 2005. Rannveig sagði í samtali við blaðamann að í ljósi þeirrar eft- irspurnar sem hefur verið eftir gönguferðum um Reykjanesskag- ann hefði sér fundist upplagt að halda áfram yfirferð um svæðið, þó með nýju sniði og þátttöku fleiri að- ila. „Ég vissi að Hitaveita Suð- urnesja (HS) væri með mjög metn- aðarfulla starfsmannastefnu, sem m.a. felur í sér heilsueflingu, og fannst því upplagt að bjóða fyr- irtækinu að taka þátt í þessu með mér. Geysir Green Energy, annar stærsti eigandi hitaveitunnar, tekur einnig þátt í verkefninu.“ Rannveig sagði að forsvarsmenn fyrirtækj- anna hefðu strax tekið vel í hug- myndina enda liður í heilsueflingu fyrirtækjanna að hvetja starfsmenn til að stunda almenna hreyfingu, svo sem gönguferðir, og munu HS og Geysir bjóða sínu starfsfólki og mökum í ferðirnar. Ferðirnar eru þó ekki síður fyrir alla þá sem áhuga hafa og mun SBK annast akstur til og frá áfangastað og mun kosta 500 krónur í hverja ferð. Um- fjöllun um göngurnar verður síðan birt í Víkurfréttum, sem einnig er meðal samstarfsaðila. Auk þess verða í nokkrum ferðanna fróðleiks- molar frá starfsmönnum Geysis og HS varðandi jarðhitasvæði og prestar frá Keflavíkurkirkju verða með sérstök innlegg þegar við á. Ekkert erfiði þrátt fyrir björgunarsveitarmann Það vakti athygli blaðamanns að einn meðlimur frá Björgunarsveit- inni Suðurnesjum verður með í hverri ferð svo það lá beinast við að spyrja hvort göngurnar væru erf- iðar? „Nei, alls ekki. Göngu- dagskráin í sumar einkennist af léttum gönguferðum sem ættu að vera við allra hæfi. Það er samt nauðsynlegt að búa sig vel og taka með sér vatn og nesti. Ekki síður nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm. Göngufólkið er í þess- um ferðum á eigin vegum, þótt ég leiði og sé með fróðleik um svæðið, en öryggisins vegna var ákveðið að hafa einn björgunarsveitarmann með í för. Það mætti líta á þá sem verndara gönguferðanna.“ – Átt þú þér uppáhaldssvæði á Reykjanesinu? „Já, mitt uppáhaldssvæði er Höskuldarvellir og umhverfi, þar er hægt að velja sér fjallgöngu eftir því dagsformi sem hentar, þar er hægt að gera sér í hugarlund hvað gekk á neðanjarðar þegar allar þessar hrauntungur sem liggja þar á stóru svæði láku um allt svæðið. Þaðan er hægt að ganga í allar áttir og virða fyrir sér gamlar tóftir, rjúkandi mosa, stór gróðurlendi, stórar og fallega myndaðar dyngjur og margt margt fleira,“ sagði Rann- veig full tilhlökkunar yfir ferðinni. Rannveig Garðarsdóttir leiðsögumaður leiðir í sumar göngur um Reykjanes Liður í heilsueflingu Morgunblaðið/Svanhildur Göngustjóri Rannveig Garðarsdóttir, ferðamálafræðingur og leið- sögumaður, við kort af Reykjanesi, en þar ætlar hún að leiða göngur. Í HNOTSKURN »Rannveigu Garðarsdótturer Reykjanesskaginn mjög kunnur. Hún leiddi um árabil Strandgönguhópinn og hefur menntað sig í leiðsögn um Reykjanes. »Hitaveita Suðurnesja tókstrax vel í hugmyndir Rannveigar um göngurnar enda falla þær vel að starfs- mannastefnu fyrirtæksins. »Björgunarsveitarmaðurverður með í hverri ferð til að tryggja öryggi göngufólks. Göngurnar eru þó sniðnar að hinum almenna borgara. Heillandi að fara leiðir sem forfeð- urnir ruddu TENGLAR ............................................ www.hs.is www.leidsogumenn.is Grindavík | Maímánuður verður á menn- ingarlegum nótum í Bláa lóninu. Alla mið- vikudaga í mánuðinum, kl. 19.30, verður menningarlegur viðburður á dagskrá. Í dag mun danshópur frá danssmiðju Ís- lenska Dansflokksins flytja hluta úr dans- verkinu Tímarúm á bökkum Bláa lónsins þar sem samspil dansara, tíma og rúms er höfuðinntak verksins. Blúshljómsveitin Klassart mun svo stíga á svið 14. maí en þá munu forsprakkar hljómsveitarinnar, þau Smári og Fríða Dís Guðmundsbörn, vera á rólegu nótunum og flytja vel valin lög sem slá vel í takt við umhverfi Bláa lónsins. Hinn 21. maí verð- ur sérstök stemning í Bláa lóninu þegar Gradualekór Langholtskirkju kemur fram en hann samanstendur af stúlkum á aldr- inum 14 til 18 ára. Leikarinn Bergur Ing- ólfsson mun síðan slá botninn í menning- arlegu dagskrána 28. maí með frumsaminni „bullu“ sem hann ætlar að flytja bæði á íslensku og ensku. Gert er ráð fyrir að öll dagskráin fari fram utandyra þar sem gestir geta fylgst með á meðan þeira slaka á ofan í lóninu. Menning í maí í Bláa lóninu Vallarheiði | Hitaveita Suðurnesja hefur keypt og tekið yfir veitukerfi vatnsveitu og rafveitu á svæði Þróunarfélags Kefla- víkurflugvallar. Stjórn HS hefur staðfest samninga sem um þetta voru gerðir. Samningar höfðu staðið yfir um nokkurt skeið en HS hf. hefur annast alla þjónustu við veitukerfin frá þeim tíma að Banda- ríkjaher hvarf af svæðinu. Í hönd fara upp- byggingartímar þar sem leggja þarf nýtt 50-riða dreifikerfi raforku á svæðinu og gera ýmsar endurbætur á vatnsveitu. Endurbótum á raforkukerfinu þarf að vera lokið fyrir 1. október 2010 og verður unnið að þeim í náinni samvinnu við KA- DECO og þess gætt sérstaklega að við- skiptavinir verði sem minnst varir við end- urnýjunina. Smátt og smátt mun því 60-riða kerfið sem Bandaríkjaher notaði leggjast af á svæðinu. HS tekur yfir veitukerfin LANDIÐ Eftir Atla Vigfússon Þingeyjarsveit | Dagur harmonik- unnar var haldinn hátíðlegur í Ljósvetningabúð um helgina og í tilefni dagsins voru það ungir harmonikuleikarar úr héraðinu sem komu fram. Það hefur verið venja undanfar- in ár að bjóða harmonikunemend- um á þessa hátíð og að þessu sinni voru það nemendur úr Borgarhóls- skóla á Húsavík, Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla sem komu ásamt kennurum sínum. Mikil ánægja var með framlag nemend- anna og sannaðist það að í sýslunni er til efnilegt harmonikufólk sem á eflaust eftir að vera Harmoniku- félagi Þingeyinga lyftistöng er tímar líða. Formaður félagsins, Stefán Þór- isson, ávarpið samkomuna sérstak- lega og þakkaði nemendunum fyrir frábæra frammistöðu og hlutu þau mikið klapp fyrir. Í lokin bauð fé- lagið upp á veislukaffi sem allir kunnu vel að meta. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Harmonikunemendur Í aftari röð Sunna Mjöll Bjarnadóttir, Óðinn Arn- grímsson, Ásta Soffía Þorgeirsdóttir og Hilmar Freyr Birgisson og í fremri röð Sigríður Atladóttir, Birgitta Eva Hallsdóttir og Unnur Ingólfsdóttir. Ungir harmoniku- leikarar áttu sviðið Norðurþing | Sveitarfélagið Norð- urþing hefur ákveðið að vinna nýtt aðalskipulag fyrir sveitarfélagið. Búsetuþróun á svæðinu, nýting og verndun náttúruauðlinda og áform um álver kalla á að sveitarfé- lagið móti sér framtíðarsýn og setji niður stefnu um byggðaþróun og landnotkun. Í aðalskipulagsvinn- unni verður lögð sérstök áhersla á að marka stefnu um miðbæ Húsa- víkur þannig að uppbyggingu hans verði með stýrt í átt að skýrri heild- arsýn á þennan kjarna sveitarfé- lagsins. Skipulagsvinna er hafin en gert er ráð fyrir því að henni ljúki í lok árs 2009. Nýtt aðal- skipulag fyrir Norðurþing Selfoss | Stjórn Atvinnuþróun- arfélags Suðurlands hefur gengið frá ráðningu Sædísar Ívu Elíasdótt- ur sem framkvæmdastjóra hjá fé- laginu en sjóðurinn er með starfs- aðstöðu á Selfossi. Sædís Íva er fædd í Reykjavík 1967. Hún er rekstrarfræðingur frá Bifröst og viðskiptafræðingur MBA frá Háskóla Íslands. Hún hefur ver- ið starfsmaður Atvinnuþróun- arfélagsins frá 1. apríl 2007 en hef- ur jafnframt unnið talsvert á vegum félagsins á undanförnum ár- um. Sædís Íva er búsett í Vík í Mýr- dal ásamt eiginmanni, Grétari Ein- arssyni, og þremur börnum. Sædís Íva ráðin fram- kvæmdastjóri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.