Morgunblaðið - 07.05.2008, Side 36
■ Á morgun kl. 19.30
PPP áttræður
Íslenskt tónlistarlíf og ekki síst Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í
þakkarskuld við Pál Pampichler Pálsson og heiðrar hann áttræðan
með þessum tónleikum þar sem einn athyglisverðasti ungi sellisti
heims leikur dásamlegan sellókonsert Schumanns. Þá er á efnis-
skránni hin magnaða fimmta sinfónía Mahlers auk verks eftir afmælis-
barnið. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba. Einleikari: Danjulo Ishizaka
Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á
Hótel Sögu kl. 18. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir.
■ Fim. 15. maí kl. 19.30
Swingle Singers – frá Bach til Bítlanna Hinn heimsþekkti
sönghópur Swingle Singers mætir með efnisskrá sem spannar allt
sviðið. Tónleikar sem söngunnendur vilja ekki missa af.
■ Lau. 17. maí kl. 14.
Maxi snýr aftur! Vegna fjölda áskorana og mikilla vinsælda
bókarinnar um Maxímús Músíkús verður þetta stórkostlega ævintýri
endurflutt. Tryggið ykkur miða!Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Að sundi loknu bregða
þau sér í glímubúninga
og fá skyndikennslu í þjóð-
aríþróttinni … 43
»
reykjavíkreykjavík
LISTAHÁSKÓLI Íslands segir frá
því í stuttri frétt á vefsíðu sinni að
gríðarlega góð aðsókn hafi verið á
útskriftarsýningu myndlistar-,
hönnunar- og arkitektúrnema á
Kjarvalsstöðum, um 11.000 manns
virtu sýninguna fyrir sér á þeim
tveimur vikum sem hún stóð yfir.
Sýningin var opnuð 19. apríl og
lauk 1. maí. 63 nemendur sýndu þar
lokaverk sín.
Í frétt LHÍ segir að sýningin hafi
hlotið „mjög góðar viðtökur gesta og
gangandi“ og að það hafi end-
urspeglast í frábærri aðsókn. Í fyr-
irsögn er tekið fram að um aðsókn-
armet sé að ræða.
Vafalaust má þakka sýning-
arstaðnum að stórum hluta að að-
sókn hefur verið með endemum góð.
Í fyrra var sýningin í kartöflu-
geymslunum gömlu í Ártúnsbrekku
og þar áður í Hafnarhúsi.
Þessa dagana fara fram tónleikar
lokanema við tónlistardeild skólans
og segir á síðunni að „úrvalsmæt-
ing“ hafi verið á þá til þessa. Nokkr-
ir tónleikar eru eftir og má finna
dagskrána á www.lhi.is.
Nóg er eftir enn hjá listnemum
því 9. maí hefjast sýningar á loka-
verkefnum fyrstu útskriftarnema af
brautinni Fræði & framkvæmd við
leiklistardeild skólans. Sýningar
standa yfir til 18. maí og er ókeypis
aðgangur að þeim.
Aðsóknarmet hjá LHÍ
Morgunblaðið/Valdís Thor
Kanína The unlikely comedy of pink furry twisted biracial bunny, eftir
Heiðrúnu T. Haraldsdóttur sem er nýútskrifuð úr grafískri hönnun.
Myndlistarnem-
inn Þórarinn
Jónsson komst
aftur í fréttirnar
á dögunum þegar
lögreglan skrúf-
aði niður í hljóð-
skúlptúr hans
(bænakalli úr íslam) eftir kvartanir
frá nágrönnum húsnæðis Listahá-
skólans við Skipholt. Líkt og á síð-
asta ári þegar Þórarinn var hand-
tekinn fyrir sprengju-listgjörning
sinn í Kanada, fór af stað umræða
um hvort verk Þórarins gæti talist
til listaverks og sýnist hverjum sitt.
Aðrir hafa hins vegar bent á að
Hannes Sigurðsson framdi svip-
aðan gjörning í Listagilinu á Ak-
ureyri fyrir nokkrum árum. Þá lét
Hannes bænirnar óma yfir gilið á
nokkurra klukkutíma fresti, dögum
saman. Þetta gerði Hannes til að
auglýsa myndlistarsýningu með
verkum múslímskra listamanna
sem þá voru að sýna í Listasafni
Akureyrar.
Þórarinn svaraði
Bænakalli Hannesar
Lítið hefur
heyrst frá
Heru Hjart-
ardóttur
tónlist-
arkonu upp
á síðkastið
enda hefur
hún alið
manninn á
Nýja-Sjá-
landi þennan vetur sem und-
anfarna vetur.
Aðdáendur hennar geta þó orn-
að sér við þá tilhugsun að von er á
tónlistarkonunni til landsins í byrj-
un júlí og hefur hún þá fljótlega
tónleikaferð um landið. Glæný lög
verða með í farteski Heru en svo
er einnig von á nýrri hljóm-
leikaplötu sem tekin verður upp á
Nýja-Sjálandi á föstudag. Áður en
Hera kemur hingað til lands treð-
ur hún upp á Glastonbury-
hátíðinni í Englandi.
Hera á Glastonbury
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
SÖNGLEIKURINN Wake me up eftir Hallgrím
Helgason gerist á níunda áratugnum og var
sýndur við gríðarlegar vinsældir fyrir sjö ár-
um. Þá voru það nemendur Verslunarskólans
sem brugðu sér í snjóþvegnu gallabuxurnar og
settu upp axlapúðana en nú er komið að Norð-
lendingum að endurupplifa þennan áratug og
allt sem honum fylgdi. Söngleikurinn verður
frumsýndur annað kvöld í Samkomuhúsinu á
Akureyri í leikstjórn Guðjóns Davíðs Karls-
sonar.
Albert Sigurðsson, tvítugur nemi í MA, fer
með aðalhlutverkið í söngleiknum sem fjallar
um tímaferðalag ungs manns aftur til ársins
1984 þar sem hann freistar þess að bjarga sam-
bandi foreldra sinna. Allir þátttakendur í sýn-
ingunni eru á aldrinum 13 til 25 ára og haldnar
voru leikprufur þar sem fjöldi fólks af Eyja-
fjarðarsvæðinu og nágrenni tók þátt.
Svolítið spes
„Ég fór ekki í prufurnar, ég byrjaði í hljóm-
sveitinni. Síðan fór ég þaðan í hlutverk,“ segir
Albert sem átti í upphafi aðeins að leika á saxó-
fón í sýningunni. Svo fór að sá sem tók að sér
aðalhlutverkið forfallaðist og Albert stökk til
og fyllti í skarðið. „Ég spila smá á saxófóninn í
sýningunni, ég fæ aðeins að blása.“
Albert er fæddur árið 1988 og þekkir því
ekki fótanuddtæki, neonlitaðar legghlífar og
breikdans nema af afspurn. Tónlistin frá þessu
tímabili hefur þó lifað í gegnum árin og Albert
hefur gaman af lögum Wham og Duran Duran.
„Þetta er mjög skemmtilegt, gömlu „eighties“-
slagararnir, maður þekkir þá. Þetta er svolítið
spes en ég fíla þetta alveg,“ segir hann.
Pínu stress
Þátttakendur í sýningunni eru allt niður í 13
ára gamlir og Albert segir gott að vinna með
fólki á ólíkum aldri. „Þetta kom manni á óvart
fyrst en síðan kynntist maður fólkinu. Ég hélt
að það yrði kannski eitthvað skrýtið að vinna
með svona mikið yngri krökkum en svo hættir
maður alveg að hugsa um það hvað þau eru
gömul. Þetta er búið að vera alveg frábært og
yndislegur hópur að vinna með. Ég þekkti
marga þarna fyrir og hef kynnst fleirum.“
Undirbúningur hefur staðið yfir frá því fyr-
ir jól og annað kvöld er loksins komið að
frumsýningu. Albert segir engan taugatitring
í hópnum. „Það er alltaf pínu stress en ekkert
sem maður ræður ekki við.“
Legghlífar og axlapúðar
Söngleikurinn Wake me up settur upp í Samkomuhúsinu á Akureyri
Ný kynslóð kynnist tísku- og tónlistarstraumum níunda áratugarins
Veggspjald Wake Me Up Albert Sigurðsson virkar heldur lítill í návist kjarnakvennanna fimu.