Morgunblaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ YFIR 18.000 ÁHORFENDUR - Páll Baldvin Baldvinnsson Fréttablaðið eee - Sigurjón M. Egilsson Mannlíf eeee Stefán Birgir Stefánsson sbs.is - S. V. Morgunblaðið eee Sýnd í kringlunni VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Sýnd í álfabakka,kringlunni, keflavík, akureyri og SelfoSSi / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA IRON MAN kl. 6D - 9PD - 10D B.i. 12 ára DIGITAL IRON MAN kl. 9PD B.i. 12 ára POWERDIGITAL OVER HER DEAD BODY kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára P2 kl.10:10 B.i. 16 ára STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D B.i. 10 ára DIGITAL IRON MAN kl. 5:30D - 8D - 10:40D B.i. 12 ára DIGITAL IRON MAN kl. 5:30D - 8D - 10:40D LÚXUS VIP MADE OF HONOUR kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ DRILLBIT TAYLOR kl. 5:40 B.i. 10 ára IN THE VALLEY OF ELAH kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára FORGETTING SARAH M. kl. 8 - 10:20 B.i.12 ára SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:40 LEYFÐ FOOL´S GOLD kl. 5:40 B.i.7 ára UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 5:40 LEYFÐ Sýnd í álfabakka eeee - H.J., MBL BÍÓTAL KVIKMYNDIR.IS eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL „atH SérStakt leyniatriði er að mynd lokinni (eftir leikara/credit liStanum)“ „iron man er Spennandi,fyndinn og Skemmtileg, þarf maður nokkuð meira til að geta átt góða kvöldStund í bíó?“ - VIGGÓ-24STUNDIR „tækin eru Hreint út Sagt Heillandi, Spennuatriðin eru mögnuð og Húmorinn er frábær...“ - WALL STREET JOURNAL JOE MORGENSTERN eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL eee ROLLING STONE öll; var skotin til bana með nokkrum öðrum í mis- heppnuðu bankaráni í bæn- um. Þegar bókin mikla kemur loks út og verður gríðarleg metsölubók er hann heillum horfinn, orð- inn einskonar flækingur og forðast allt samneyti við menn. Á tíu ára afmæli banka- ránsins hörmulega er rit- höfundinum boðið í minningarathöfn í smá- bænum og verður uppi fótur og fit þegar hann sér konunni sinni sálugu bregða fyrir – hefur hann gengið af göflunum, eða er eitthvað und- ÍRSKI blaðamaðurinn og rithöfundurinn Col- in Bateman er þekktur fyrir bækur og kvik- myndahandrit, en flestir kannast sjálfsagt við bókina Divorcing Jack og / eða samnefnda kvikmynd sem naut talsverðrar hylli. Stíllinn sem hann hefur tamið sér er harð- soðinn á köflum, dálítið amerískur ef svo má segja, en líka langlokulegur. Fyrir vikið eru bækur hans eins og langhlaup með sprettum á milli, geta verið skemmtilegar en líka óttleg soðgrýla. Orphus Rising segir frá írskum blaðamanni og verðandi rithöfundi, hálfgerðum flækingi, sem fellur fyrir konu er hann hittir í banda- rískum smábæ. Þau rugla saman reytum og hann tekur til við að skrifa meistaraverk sitt en áður en hann finnur að því útgefanda er hún arlegt á seyði? Hefst nú mikil hamagangur. Þó sagan sé nútímaleg má sjá af titlinum að Bateman er að vísa í forna sögn af Orfeus og Evridísi og kemur líka í ljós eftir því sem líður á bókina, sérstaklega þegar framliðnir fara að láta til sín taka, og þar kemur að söguhetja vor þarf að gera sér ferð til Hadesar í leit að sinni Evridís. Alla jafna er ég lítið gefinn fyrir glæpasögur með dulrænu ívafi og þegar menn eru farnir að spjalla við framliðna er verið að beita býsna billegum brögðum að mínu viti. Þegar við bæt- ist að frásögnin er vaðalsleg og sjálf fléttan ótrúleg fær Bateman ekki háa einkunn. Orpheus snýr aftur Orpheus Rising eftir Colin Bateman. Hodder gefur út. 377 bls. innb. Árni Matthíasson FORVITNILEGAR BÆKUR» MÖGNUÐ ÆVISAGA PREDIKARANS HENRYS WARDS BEECHER METSÖLULISTAR» 1. The Whole Truth - David Bal- dacci 2. Hold Tight, - Harlan Coben 3. The Miracle at Speedy Motors - Alexander McCall Smith 4. Unaccustomed Earth - Jhumpa Lahiri 5. Where Are You Now? - Mary Higgins Clark 6. Certain Girls - Jennifer Weiner 7. Quicksand - Iris Johansen 8. Dead Heat - Joel C. Rosenberg 9. The Appeal - John Grisham 10. Santa Fe Dead - Stuart Woods. New York Times 1. The World According to Bertie - Alexander McCall Smith 2. This Charming Man - Marian Keyes 3. The Lollipop Shoes - Joanne Harris 4. Excellent Women - Barbara Pym, et al. 5. Mister Pip - Lloyd Jones 6. Engleby - Sebastian Faulks 7. The Diary of a Provincial Lady - E.M. Delafield, et al. 8. A Thousand Splendid Suns - Khaled Hosseini 9. The Reluctant Fundamentalist - Mohsin Hamid 10. On Chesil Beach - Ian McEwan Waterstone’s 1. Good Guy - Dean Koontz 2. Bad Luck and Trouble - Lee Child 3. Witch of Portobello - Paulo Co- elho 4. Children of Hurin - J. R. R. Tol- kien 5. Ghost - Robert Harris 6. After Dark - Haruki Murakami 7. Sanctuary - Raymond Khoury 8. Exit Music - Ian Rankin 9. Deep Storm - Lincoln Child 10. Lollipop Shoes - Joanne Harris Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is UNDIR lok ævisögu predikarans bandaríska Henrys Ward Beecher er vitnað í málskjöl vegna dómsmáls sem varðaði framferði hans þar sem einn þeirra sem við sögu kom segir svo frá að Beecher hefði aldrei náð þeim árangri sem predikari sem hann vissulega náði ef ekki hefði ver- ið fyrir dýrslegt eðli hans; hann hafi predikað svo innblásið um veikleika holdsins vegna þess hve hann var veiklundaður sjálfur. Nokkuð sem má vissulega heimfæra upp á fjöl- marga predikara og guðsmenn. Henry Ward Beecher var gríð- arlega vinsæll sem predikari, þekk- ur ræðusnillingur, frægur fyrirles- ari, ritstjóri og pistlahöfundur í vinsælasta blaði Norður-Ameríku og þegar hann var sakaður um hórdóm vakti það þvílíka athygli að annað eins hafði ekki sést; blöð um gervöll Bandaríkin voru uppfull af fréttum af dómsmálinu sem spratt í kjölfarið og annað var ekki rætt manna í mill- um. Náðarútvalning og brennisteinseldur Henry Ward Beecher (1813-1887) ólst upp í kalvínisma líkt og flestir samtíðarmenn hans bandarískir, trú á náðarútvalningu og brenni- steinseld helvítis, en faðir hans, Lyman Beecher, var með þekktustu predikurum í þeim afkima trú- arinnar. Henry Ward varð smám saman fráhverfur þessu og tók að boða það sem hann kallaði kærleiks- boðskapinn; lagði höfuðáherslu á elsku drottins til mannkyns en sú trúarsýn hafði mikil áhrif á kristna trú vestanhafs og hefur enn. Frægðarsól Henrys Wards Beecher reis hæst eftir að hann var ráðinn sem predikari við Plymouth- kirkju í Brooklyn, sem var þá sjálf- stæð borg. Þar var hann í essinu sínu sem magnaður predikari, ekki síst eftir að hann hannaði innviði nýrrar kirkju þar sem sérstakt svið var fyrir hann, en ekki bara predik- unarstóll. Því hefur verið haldið fram að systkinin Harriet og Henry Ward hafi haft úrslitaáhrif í að snúa al- menningi í norður- og miðvest- urríkjum Bandaríkjanna á sveif með andstæðingum þrælahalds, hún með bókinni um kofa Tómasar frænda, sem var fyrsta bókin til að seljast í milljón eintökum í Bandaríkjunum (á þeim tíma voru íbúar 24 milljónir), og hann með predikunum, fyr- irlestrum og blaðaskrifum. Þó var Beecher lengi tvístígandi í afstöðu sinni, ekki þó að hann hafi verið fylgjandi þrælahaldi heldur vegna þess að hann vildi ekki styggja valdamikla menn. Það bráði þó af honum, ekki síst þegar hann fann undirtektir hjá safnaðarbörnum sín- um, og eftir það þrumaði hann yfir lýðnum af krafti og íþrótt. Dýrslegur kraftur Eins og sagan hefur leitt í ljós eru framúrskarandi predikarar iðulega svo þrungnir dýrslegum krafti að þeir eru bókstaflega ómótstæðilegir, ekki síst í augum kvenna. Þegar við bætist aðdáun tugþúsunda, frægð og ómælt fé kemur ekki á óvart að þeir falli fyrir freistingunum. Að því leyti var Beecher dæmigerður, reyndar einskonar frumgerð af þeim predik- urum sem á eftir komu og við þekkj- um flest í dag. Hann var kraftmikill og glæsilegur maður þó að ekki hafi hann verið fríður og margt bendir til þess að hann hafi átt nokkrar ást- konur. Það er reyndar erfitt að sanna slíkt svo löngu eftir daga hans, en eitt slíkt mál komst í há- mæli og það var samband hans við eiginkonu síns nánasta samstarfs- manns en sá, Theodore Tilton, brást þannig við að hann sagði öllum sem frétta vildu enda fór málið fyrir dóm- stóla, fyrst fyrir öldungaráð Plymo- uth-kirkju sem komst að þeirri nið- urstöðu að ekkert ósiðlegt hefði átt sér stað og síðan fyrir almenna dóm- stóla þegar Tilton stefndi Beecher fyrir að hafa spillt konu sinni. Frægasti maður Ameríku / The Most Famous Man in America eftir Debby Applegate er sérdeilis vel skrifuð og lífleg ævisaga. Í henni er sögð saga Bandaríkjanna á miklum umbrotatíma þegar grunnur er lagð- ur að Bandaríkjum nútímans, þegar hástemmdar hugsjónir og strangur siðferðisboðskapur víkur fyrir nú- tímanum og að því leyti er Beecher að vissu leyti tákngervingur Banda- ríkjanna; hlýr, ástríkur, óraunsær draumóramaður sem uppfullur er af starfsorku og dugnaði, alþýðumaður sem tekur fagnandi vellystingunum ríkidæmisins. Tákngervingur Bandaríkjanna Prédikarinn lostafulli Henry Ward Beecher.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.