Morgunblaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 128. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Allt að milljón manns varð heimilislaus  Talið er að allt að milljón manns hafi orðið heimilislaus í fellibylnum í Búrma um helgina og tala látinna var komin í 22.000 í gær. Um 41.000 manna til viðbótar var saknað og ótt- ast er því að yfir 60.000 manns hafi farist. » Forsíða Mikilvægar viðræður  Forseti ASÍ telur að fundur for- svarsmanna ríkisstjórnarinnar með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaga í gær hafi verið mjög mikilvægur og kveðst binda miklar vonir við framhaldið. Forsætisráð- herra sagði að sérfræðingar yrðu fengnir til að greina efnahagsvand- ann sem nú blasir við og leggja fram tillögur um aðgerðir. » 2 Kennari í gæsluvarðhaldi  Kennari við Háskólann í Reykja- vík hefur verið leystur frá störfum vegna rannsóknar lögreglu á meint- um kynferðisbrotum. Maðurinn hef- ur verið úrskurðaður í gæslu- varðhald til 14. maí. » 4 Þriðja olíukreppan hafin  Þriðja olíukreppan er hafin og ólíkt þeim fyrri er hún ekki vegna röskunar á framboði, heldur stór- aukinnar eftirspurnar í Asíu, að mati sérfræðings Alþjóðabankans. » 9 SKOÐANIR» Śtaksteinar: Atvinnuleysi á evru… Forystugreinar: Hörmungar í Búrma | Frelsi eins til athafna á ekki að skerða frelsi annars Ljósvaki: Kolbrún og Páll! Sýna! UMRÆÐAN» Hjálp til sjálfshjálpar er … Opið bréf til SA og ASÍ Allt á hvolfi Hver skal aðlagast hverjum?  4   4   4 4  4 5 %6'( /# ', #% 7#"  ##"'' &''  4  4  4  4  4 4  4  4 .82 (  4  4  4  4  4 4  4  4 9:;;<=> (?@=;>A7(BCA9 8<A<9<9:;;<=> 9DA(8'8=EA< A:=(8'8=EA< (FA(8'8=EA< (3>((A&'G=<A8> H<B<A(8?'H@A (9= @3=< 7@A7>(3,(>?<;< Heitast 16°C | Kaldast 6°C  Sunnan 3-8 m/s og dálítil súld með köflum en bjartviðri norðaust- anlands. Hlýjast norð- austan til. » 10 Er breski rithöfund- urinn Ian McEwan búinn að skrifa sig frá möguleikum á að hreppa helstu heið- ursverðlaunin? » 41 BÓKMENNTIR» Ókrýndur meistari SVIÐSLJÓSIл Óvenjulegur dagur hjá prins og prinsessu. » 43 Henry Ward Beech- er þótti einstakur prédikari. Hann var einnig kvennaljómi og óraunsær draum- óramaður. » 40 BÆKUR» Frumgerð prédikara TÓNLIST» McCartney leitar ráða hjá Mick vini sínum. » 37 FÓLK » Suri finnst gaman í naglasnyrtingu. » 42 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Nauðgað á götu í Danmörku 2. Grunaður um kynferðisbrot … 3. Íslendingur var í Búrma 4. Bankaáhlaup hafið?  Íslenska krónan veiktist um 0,4% HELGA Finns- dóttir dýra- læknir hefur sett á fót sæð- isbanka fyrir frosið hunda- sæði á stofu sinni í Skipa- sundi. Sæðis- bankinn er sá fyrsti sinnar tegundar á landinu þó að nokkuð sé um liðið síðan leyft var að flytja inn frosið hundasæði. Helga segir að töluverð þörf hafi verið fyrir aðstöðu til að geyma sæði eftir að héraðsdýralæknir hætti að annast móttöku þess. Mikilvægt er að rétt sé staðið að geymslunni á frosnu sæði. „Margir þættir þurfa að vera fyrir hendi ef sæðing á að geta borið árangur,“ seg- ir Helga. „Sæðið þarf að vera gott, sæðingin þarf að fara fram á réttum tíma á lóðaríinu og síðan þarf ákveðna þjálfun og æfingu til að koma sæðinu inn í leg.“ Helga segir notkun frosins sæðis vera áhugaverðan valkost fyrir rækt- endur hérlendis þar sem stofnar margra hundategunda séu smáir og því geti reynst erfitt að bæta rækt- unina með innlendum hundum. | 6 Frosið hundasæði í banka SAMNINGAR hafa náðst í deilu- máli Skífunnar og Senu sem staðið hefur yfir síðustu tvo mánuði. Deilan snerist um verð á geisladiskum, mynddiskum og tölvuleikjum sem Sena gefur út eða dreifir, en for- svarsmenn Skífunnar neituðu að borga það verð sem forsvarsmenn Senu buðu. Hefur þetta meðal ann- ars valdið því að fjöldi titla hefur verið ófáanlegur í verslunum Skíf- unnar að undanförnu, en þar á meðal eru geisladiskar með sumum af vin- sælustu tónlistarmönnum landsins. Forsvarsmenn beggja fyrirtækj- anna segjast ánægðir með að samn- ingar í málinu hafi náðst. | 38 Skífan og Sena hafa náð saman Úrval Skífan í Kringlunni. „ÞETTA var alveg ótrúlegt,“ segir Einar Á.E. Sæ- mundsen sem tókst að festa fallegt augnablik á filmu í vikunni sem leið. Svo heppilega vildi til að hryssan Randalín var að kasta fyrsta folaldinu sínu, hesti undan Krafti frá Efri-Þverá, þegar Einar var að vitja hrossanna á Bergsstöðum í Biskupstungum – með myndavél í fórum sínum. Hryssur kasta helst að nóttu til og því hafa ófáir hestamenn farið á mis við þessa gleðistund. Svo var einnig um eiganda hryssunnar og frænku myndasmiðsins, Guðbjörgu Ólafsdóttur, sem rétt missti af köstuninni. Bót var þó í máli að hestinn fékk hún í afmælisgjöf. Fyrsti kossinn í Tungunum Ófáir hestamenn fara á mis við slíka gleðistund Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is STÆRSTA yfirlitssýning sem haldin hefur verið á kínverskri list hér á landi verður opnuð í Listasafninu á Akureyri á listahátíð 17. maí. „Þetta er verðmætasta sýningin sem Lista- safnið hefur sett upp. Listaverkin verða send hingað í hita- og rakastillt- um risagámi búnum GPS-staðsetn- ingartæki og innri stafrænum lás, vegna þess að tryggingaverðmæti sýningarinnar eru rúmir 1,7 milljarð- ar íslenskra króna,“ segir Hannes Sigurðsson, listfræðingur og safn- stjóri. Hann segir að meðal lista- mannanna séu flest stærstu nöfnin í kínverskri myndlist í dag. Undanfarin ár hefur athygli listheimsins beinst meir að Kína en áður og verð á verk- um rokið upp úr öllu valdi. Hannes hefur notið liðsinnis virts hollensks safnara við undirbúning sýningarinnar og farið með honum til Peking til að hitta listamenn og velja verk á sýninguna. „Sýningin er hönn- uð hér á landi og gerð út af örkinni sem alþjóðleg farandsýning en héðan fer hún til Austurríkis, Noregs, Finn- lands, Svíþjóðar, Þýskalands og Kína. Gefið verður út dagblað á íslensku, sem dreift verður ókeypis, og 250 síðna bók á kínversku og ensku.“ Kínversk list á Akureyri  Listaverkin eru send hingað í hita- og rakastilltum gámi með GPS-búnaði og innri lás  Tryggð fyrir 1,7 milljarða Kína Zhang Xiaogang, einn kínversku listamannanna sem eiga verk á sýn- ingunni, og Hannes Sigurðsson, safnstjóri Listasafns Akureyrar.  List brautryðjenda | 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.