Morgunblaðið - 21.05.2008, Page 11

Morgunblaðið - 21.05.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 11 FRÉTTIR Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráð- herra vék að framtíð Íbúðalánasjóðs á morgunverðarfundi sem Samtök iðnaðarins boðuðu til í gær um ástand og horfur í bygginga- og mannvirkjagreinum. „Það þarf ekki að orðlengja að ríkið hefur á undan- förnum árum verið að losa sig út úr hvers konar atvinnu- og fjármála- starfsemi á þeirri forsendu að einka- aðilar sem eiga beinna hagsmuna að gæta geta oftast gert hlutina betur en hið opinbera,“ sagði hann. „Íbúða- lánasjóður er nánast eina fjármála- stofnunin sem eftir situr í eigu rík- isins. Stjórnarflokkarnir, bæði í fyrri ríkisstjórn og þessari, hafa haft framtíð sjóðsins í umræðu, auk þess sem alþjóðastofnanir svo sem Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn og OECD hafa gagnrýnt það að sjóðurinn sé enn í ríkisforsjá og vinni oft og tíðum gegn peningamálastefnu Seðlabank- ans þegar síst skyldi. Þá hefur Eft- irlitsstofnun EFTA haft umfang og starfsemi sjóðsins til nánari skoðun- ar og er þess að vænta að þaðan ber- ist álit sem muni gera athugasemdir við núverandi starfsramma sjóðsins. Til að bregðast við því má telja eðli- legt að farið verði út í það að skipta sjóðnum upp í tvo hluta. Annars veg- ar þann hluta sem lýtur að félagslegu húsnæði og skyldum málum og hins vegar hinn almenna hluta sem rekinn verður að fullu á markaðsgrundvelli. Með þessu er mætt því sjónarmiði að ríkið hefur tilteknum félagslegum skyldum að gegna í húsnæðismálum og að skýr mörk verði dregin milli fé- lagslega hlutans og almenna hlutans. Sú grunnregla yrði þá í heiðri höfð að ríkið væri ekki í samkeppni við einkaaðila á markaði,“ sagði fjár- málaráðherra. Fram kom í máli Árna að fjármála- ráðuneytið spáir að íbúðaverð muni lækka um 15% að raunvirði á næstu þremur árum. Hann sagði ljóst að stjórnvöld gætu gert ýmislegt til að styrkja fasteignamarkaðinn og að þau hefðu hlutverki að gegna hvað varðaði félagsleg úrræði á markaðn- um. Reikna mætti með verulegum stuðningi við byggingu leiguíbúða á næstu árum sem koma ætti bygging- ariðnaðinum til góða, auk þess sem þar með yrði mætt húsnæðiseftir- spurn ýmissa tekjuhópa í þjóðfélag- inu sem ekki geta staðist þær kröfur sem gerðar eru til eignakaupa. „Því verður að telja að félagslegar ráð- stafanir í húsnæðismálum hafi ein- hver mildandi áhrif á niðursveifluna sem gengur yfir markaðinn um þess- ar mundir,“ sagði hann. Bregðast við ef ástandið verður mjög óvenjulegt Hann sagði að framboð og eftir- spurn ættu eftir að vinna úr hverju því misvægi sem skapast á fasteigna- markaði á næstu misserum á eigin forsendum. Vissulega muni aðgerðir stjórnvalda mótast af því ástandi sem stefnir í. „Ef ástandið verður mjög óvenjulegt er viðbúið að ríkið þurfi að bregðast við með einhverj- um hætti sem hugsanlega mætti gera með sérstökum aðgerðum um- fram þær sem nú þegar hafa verið ákveðnar, þ.e. með afnámi stimpil- gjalda á fyrstu íbúðakaup eða með því að setja aukna fjármuni í sérstök lán vegna leiguíbúða. Ef ástandið á markaði helst hins vegar innan eðlilegra marka og stefnir í jafnvægi, þó svo að það geti tekið einhvern tíma, væri betra að láta markaðinn jafna sig án sér- stakra aðgerða af hálfu hins opinbera fyrir utan þær sem þegar hafa verið ákveðnar eða boðaðar samkvæmt stjórnarsáttmálanum eða öðrum yf- irlýsingum ríkisstjórnarinnar,“ sagði Árni. Fram kom í máli Bjarna Más Gylfasonar, hagfræðings SI, að byggingariðnaðurinn og mann- virkjagerðin stæðu á krossgötum um þessar mundir. Um 16 til 17 þúsund manns störfuðu á þessum sviðum. Atvinnugreinin stæði augljóslega frammi fyrir breyttum aðstæðum og „frosthörkum“ á markaði, sem hefði áhrif á fyrirtæki í greininni og í skyldum greinum og gæti ekki síður haft áhrif á fjárhag ríkissjóðs til lengri tíma litið. „Síðast en ekki síst er þetta upp á líf og dauða að tefla fyrir ýmsa sem reka fyrirtæki í þess- ari grein,“ sagði hann. Bjarni birti upplýsingar um samanlagða skulda- stöðu fyrirtækja í mannvirkjagerð í lok mars sl., sem var þá um 140 millj- arðar. Sagði hann ljóst að fyrirtækin í byggingariðnaðinum hefðu kosið að fjármagna sig að miklu leyti í er- lendri mynt. Gengisbundin skulda- bréf eru 47% af heildarskuldunum eða rúmlega 66 milljarðar og yfir- dráttarlán 15% eða rúmir 22 millj- arðar. Á síðustu 5 árum hafi greinin verið að sækja sér tæpa 2 milljarða á mánuði til bankanna en líklegt sé að sú sókn stöðvist nú, a.m.k. tímabund- ið. Bjarni sagði að samdrátturinn um þessar mundir skýrðist af skorti á lánsfé, háum vöxtum, lokum um- fangsmikilla framkvæmda og mettun á fasteignamarkaði. Fram kom í máli hans að miðað við þær upplýsingar sem lægju fyrir og athuganir SI væri líklegast að mann- virkjagerð í heild sinni dytti niður á svipað stig og var fyrir 2004. Íbúða- byggingar drægjust hratt saman á þessu og næsta ári en síðan myndi markaðurinn jafna sig eftir það. Bú- ast mætti við að mörg fyrirtæki lentu í alvarlegum vanda og atvinnuleysi ykist í greininni, en það réðist þó að umtalsverðu leyti af því hversu hreyfanlegt erlenda vinnuaflið verð- ur. Rétti tíminn til að afnema stimpilgjöld Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri BM Vallár, sagði enga ástæðu enn til að örvænta. Ef litið væri upp úr vandamálum dagsins í dag mætti sjá fjöldann allan af tæki- færum. Fjölmörg verkefni væru í gangi og önnur í uppsiglingu. „Íbúðamarkaðurinn er í harka- legri niðursveiflu og þennan markað þarf að örva en ekki tala niður“ sagði Þorsteinn og sagði að grípa ætti til aðgerða strax. Núna væri rétti tím- inn til að afnema stimpilgjöld og styrkja þyrfti Íbúðalánasjóð, a.m.k. tímabundið, hækka lágmarkslán verulega, t.d. í 25 milljónir, og að sjóðurinn gæti boðið 80% lánshlutfall af markaðsvirði eigna. Ingólfur Bender hjá Greiningar- deild Glitnis sagði að niðursveiflan yrði ekki langvarandi. ,,Hagkerfið nær jafnvægi, betra aðgengi verður að lánsfé og aukin bjartsýni um þró- un íbúðaverðs með aukinni veltu.“ „Upp á líf og dauða að tefla fyrir ýmsa“ Fjármálaráðherra segir eðlilegt að almennur hluti Íbúðalánasjóðs verði rekinn að fullu á markaðsgrundvelli Í HNOTSKURN »Hagfræðingur Samtaka iðn-aðarins telur að mikið fram- boð af ódýru lánsfé hafi sett í gang verkefni sem undir eðlileg- um kringumstæðum hefðu ekki átt að fara í gang. »Á síðustu 5 árum hefurmannvirkjageirinn sótt sér tæpa 2 milljarða á mánuði til bankakerfisins. Líklegt er talið að sú sókn stöðvist nú, a.m.k. tímabundið. Morgunblaðið/Valdís Thor Erfitt ástand Framsögumenn á fundi Samtaka iðnaðarins ræddu dökkt út- lit í mannvirkjaiðnaði en því var einnig haldið fram að ljós væri í myrkrinu. ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 42 47 9 05 /0 8 Landsbanki Íslands hf. Landsbanki Íslands hf, kt. 540291-2259, hefur birt lýsingar vegna töku skuldabréfa til viðskipta á OMX Nordic Exchange Iceland hf. (OMX ICE) og gert aðgengilegar almenningi frá og með 21. maí 2008. Eftirfarandi skuldabréfaflokkar hafa verið teknir til viðskipta: • Flokkur að heildarfjárhæð ISK 50.000.000.000. Skuldabréf að fjárhæð ISK 1.000.000.000 voru gefin út þann 7. maí sl. og verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 21. maí 2008. Auðkenni flokksins á OMX ICE er LAIS 09 0504. Skuldabréfin eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum með lokagjalddaga þann 4. maí 2009. Skuldabréfin bera breytilega 3. mánaða REIBOR vexti að viðbættu 50 punkta álagi. • Flokkur að heildarfjárhæð ISK 50.000.000.000. Skuldabréf að fjárhæð ISK 1.000.000.000 voru gefin út þann 7. maí sl. og verða tekin til viðskipta á OMX ICE þann 21. maí 2008. Auðkenni flokksins á OMX ICE er LAIS 10 0503. Skuldabréfin eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum með lokagjalddaga þann 3. maí 2010. Skuldabréfin bera breytilega 3. mánaða REIBOR vexti að viðbættu 50 punkta álagi. Lýsingarnar er hægt að nálgast hjá útgefanda Landsbanka Íslands hf., Austurstræti 11, 155 Reykjavík eða á vefsetri útgefanda, www.landsbanki.is, fram til lokadags skuldabréfaflokkanna. Reykjavík, 21. maí 2008 P IPA R • S ÍA • 810 52 Í tengslum við fyrirhugaðan könnunarleiðangur til Brasilíu í júní verður haldinn kynningarfundur á skrifstofu Útflutningsráðs, Borgartúni 35. Fundurinn er ætlaður öllum sem hafa hug á að stunda viðskipti á þessum ört vaxandi markaði og vilja fræðast nánar um bæði markaðinn og fyrirkomulag ferðarinnar. Dagskrá: Kl. 08:15 Morgunverður Kl. 09:30 Fundarlok Skráning fer fram í gegnum netfangið utflutningsrad@utflutningsrad.is en allar nánari upplýsingar veitir Andri Marteinsson,andri@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000. www.utflutningsrad.is www.utn.stjr.is Viðskiptatækifæri í Brasilíu PAULO Roberto Ribeiro GUIMARÃES, viðskiptafulltrúi sendiráðs Brasilíu fyrir Ísland, með aðsetur í Osló. Að stunda viðskipti í Brasilíu – séð frá sjónarhorni íslenskra fjárfesta Eiríkur Bragason, framkvæmdastjóri Salt Properties ehf. Fyrirkomulag vegna ferðarinnar Guðjón Svansson, forstöðumaður hjá Útflutningsráði Íslands. Brasilía Heitur markaður í Brasilíu Morgunverðarfundur fimmtudaginn 22. maí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.