Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
HALDI einhver að framkvæmdum
sé að mestu lokið við Kárahnjúka-
virkjun þá er það hinn mesti mis-
skilningur. Lætur nærri að um 700
manns verði þar að störfum í sumar.
Það er vissulega langt frá fjöldanum
þegar mest lét, hátt í 1.800 manns
fyrir um tveimur árum, en engu að
síður töluverður mannafli miðað við
aðrar framkvæmdir á landinu þetta
sumarið.
Aðalverktakinn, Impregilo, er enn
með um 350 manns á sínum vegum.
Borun lauk sem kunnugt er í apríl sl.
og eru risaborarnir þrír farnir úr
landi. Tveir eru þegar komnir í önn-
ur verk hjá Impregilo, annar í Kína
og hinn í Sviss.
Unnið er við frágang á Jökulsár-
göngum, að taka niður tæki og
mannvirki og fjarlægja vinnubúðir
við aðgöng 1, 2 og 3, sem og aðalbúð-
irnar við Laugarás. Búist er við því
að síðasti mannskapur Ítalanna ljúki
sér af seint í haust.
Helstu virkjanaframkvæmdir við
Kárahnjúka eru vegna Hrauna- og
Jökulsárveitu austan Snæfells.
Vegna gjaldþrots Arnarfells tók
Landsvirkjun það verk yfir fyrr á
árinu og bauð það síðan út. Ístak var
ráðið til verksins og er þar nú með
um 200 manns. Fljótlega verður
fjölgað upp í um 250 manns. Verið er
að klára að steypa inntak, sprengja
jarðgöng við Kelduá og gera jarð-
vegsstíflur þar og við Grjótá. Reikn-
að er með að þessum framkvæmdum
ljúki ekki fyrr en á næsta ári.
Að sögn Sigurðar St. Arnalds,
talsmanns Kárahnjúkavirkjunar, er
Hálslónið að fyllast á ný, eftir að
hafa lækkað um eina 27 metra í vet-
ur. Þar er búist við að lónið fyllist og
ekki verði þörf á að veita vatni úr
nærliggjandi veitum í ár.
Ekið yfir stífluna í sumar
Ístak er einnig í margs konar frá-
gangsvinnu á og við Kárahnjúka-
stíflu. Í þeim störfum og ef eftirlits-
aðilar eru taldir með eru þar um 60
manns. Verið er að leggja öryggis-
net á barma Hafrahvammagljúfurs
til að forða starfsmönnum frá grjót-
hruni en í gilinu er verið að steypa
þró til að taka við vatni úr yfirfalli
Hálslóns. Þar sem búist er við því að
lónið fyllist síðar í sumar getur þess-
ari vinnu ekki lokið fyrr en næsta
sumar.
Einnig stendur yfir vinna við
handrið á stífluveggnum og lagningu
slitlags á veginum yfir stífluna. Til
stendur að hleypa á almennri um-
ferð yfir stífluvegginn frá 15. júlí til
15. ágúst í sumar.
Um 700 manns við Kárahnjúka
Impregilo með um 350 manns við frágang á aðgöngum og vinnusvæði við Kára-
hnjúka Um 1.800 manns þegar mest lét en framkvæmdum lýkur á næsta ári
Ljósmynd/Helgi Haraldsson
Netavinna Unnið er við að klæða Hafrahvammagljúfur með öryggisnetum.
„ÉG var bara að flýta mér of mik-
ið,“ segir Kristinn Óskarsson,
sautján ára nemi á Hofsósi, sem
flaug af hestbaki um síðustu helgi.
„Ég ætlaði að skutla mér af baki
en hesturinn stökk í vitlausa átt og
tók fæturna undan mér,“ segir
knapinn, sem hljóp um of kapp í
kinn í smalakeppni hestamanna-
félagsins Svaða á Hofsósi á Jóns-
messuhátíðinni þar.
Smalakeppnin er liðakeppni þar
sem keppendur fara ríðandi í
gegnum þrautabraut og enda á því
að stökkva af baki og hoppa sjálfir
upp á stafla af brettum. Það lið
sem fer í gegnum brautina á
skemmstum tíma sigrar, og þarf
kannski engum að koma á óvart að
knapinn á þessum myndum var
ekki í sigurliðinu þetta árið.
„Ég tók ekki eftir hversu mikil
bylta þetta var fyrr en ég sá mynd-
irnar,“ útskýrir Kristinn, en að-
spurður segist hann ískaldur ætla
að halda áfram að ríða út sér til
skemmtunar og temja fyrir sjálfan
sig. Kristinn getur þakkað fyrir að
ekki fór verr, en hann hlaut ekki
svo mikið sem marblett við bylt-
una. Þó má ætla að hann hafi lært
af atburðinum að kapp er best með
forsjá.
andresth@mbl.is
Kristinn Óskarsson, sautján ára knapi, slapp ómeiddur eftir byltu
Æsingur Kristinn Óskarsson tók þátt í keppni á Hofsósi um helgina. Keppnin gekk út á að ríða þrautabraut og kasta sér af baki á brautarenda, með þessum afleiðingum fyrir Kristin.
Ljósmynd/Linda Fanney Valgeirsdóttir
Ómeiddur Hinn sautján ára knapi fékk ekki svo mikið sem marblett. Hann telur að hæð sín geti hafa haft áhrif,
en hann er um tveir metrar en hesturinn smávaxinn. Gráni litli er tíu vetra og í eigu fjölskyldu hestamannsins.
Kapp er best
með forsjá
VIRKJUNIN sem slík er komin á
fullt við framleiðslu á rafmagni til
álversins á Reyðarfirði. Fljótsdals-
stöðin er í fullum rekstri síðan fyr-
ir áramót og þar snúast allar vélar.
Framkvæmdum í Fljótsdal er að
mestu lokið, fyrir utan einhverja
frágangsvinnu. Að sögn Sigurðar
Arnalds hefur vélbúnaðurinn
reynst mjög vel. Nú styttist í að
Sigurður ljúki einnig sínum störf-
um vegna Kárahnjúkavirkjunar, en
hann hefur verið viðloðandi verk-
efnið frá upphafi, hátt í níu ár, al-
veg frá því að vinna við hönnun og
umhverfismat hófst. Lengst af
hefur hann verið talsmaður Lands-
virkjunar á virkjunarsvæðinu og
séð m.a. um að upplýsa fjölmiðla
og gesti virkjunarinnar.
Allar vélar virkjunarinnar á fullu
Myndin
blekkti
Leit hætt að ísbirni
„MYNDIN blekkir svolítið. Við
mynduðum mann á nákvæmlega
sama stað og skeyttum saman
myndum. Svo það sést að þetta er
ekkert óvenjulega stór skepna á
myndinni,“ segir Stefán Vagn Stef-
ánsson, yfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á Sauðárkróki, um mynd-
ina sem ferðamenn tóku af meintu
bjarndýri við Bjarnafell á Skaga.
„Við vitum í rauninni ekki fyrir
víst hvað er á myndinni. Það eru
engin önnur spor þarna en eftir
kindur,“ segir Stefán. Hann segir
að lögreglan hafi getað staðsett
nákvæmlega hvar dýrið átti að
vera. Þar hafi jarðvegurinn verið
mjög blautur og engin ummerki
um bjarndýr fundist en þar hafi
hins vegar verið spor eftir kindur.
Einnig fundust sporin eftir ferða-
mennina sem töldu sig hafa séð
bjarndýrið. Uppi á „háfellinu“ var
snjór og þar voru heldur engin
spor. Mikil leit var gerð úr lofti í
fyrrakvöld að dýrinu. Stefán segir
að þegar þær upplýsingar sem að
framan greinir hafi legið fyrir hafi
leit verið hætt. thorbjorn@mbl.is
Rolla? Myndin mikið stækkuð