Morgunblaðið - 25.06.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 9
FRÉTTIR
STANGVEIÐI
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÞETTA hefur verið ofboðslega gam-
an enda besta byrjunin í Grímsá í
mörg ár,“ sagði Jón Þór Júlíusson
leigutaki í gærkvöldi en þá hafði
fyrsta holl sumarsins lokið veiðum
með 18 laxa. Hann sagði fiskana
mjög vel haldna, mun betur en síð-
ustu ár og meira af stærri fiski, 70 til
80 cm. „Laxinn er þegar orðinn vel
dreifður um ána, fiskur hefur þegar
veiðst í efsta hylnum og víða í ánni.
Það er bara blússandi hamingja.“
Jón Þór og faðir hans Júlíus Jóns-
son lentu í óvæntu ævintýri opn-
unardagana. „Ég veiddi annan lax
sumarsins í Strengjum, á litla Fran-
ces-keilutúpu. Þetta var gullfallegur
82 cm hængur sem ég merkti og
sleppti aftur.
Sólarhring síðar var pabbi að
veiða við efsta Streng og setti í
þennan flotta lax og þegar hann
landaði honum eftir 20 mínútur og
ætlaði að setja í hann merki, þá brá
honum við að sjá merkið sem ég setti
í hann daginn áður.“ Feðgarnir
veiddu því sama laxinn með sólar-
hrings millibili. „Laxinn hefur verið
búinn að jafna sig og verið að leggja
í hann upp ána. Við feðgarnir veidd-
um hann því báðir. Þetta sýnir enn
og aftur að þessir fiskar eru of verð-
mætir til að rota þá,“ sagði Jón Þór.
Besta opnun síðan 1998
Ekki var Pétur Pétursson leigu-
taki Vatnsdalsár síður ánægður með
fyrsta hollið hjá sér en 17 löxum var
landað á þremur dögum. Sá stærsti
var 95 cm og enginn undir 80 cm.
„Þetta er besta opnun síðan 1998,“
sagði Pétur. „Ég hef aldrei séð jafn
mikið af laxi í Hólakvörninni og er
þar núna og þó að aðstæður séu í
raun skelfilegar til veiða, sól og áin
heit, þá er veiðin samt þetta góð! Sjö
af löxunum hafa veiðst fyrir ofan
Flóðið og það er afar góðs viti.“
Ellefu laxar veiddust í opnun
Langár og síðan bættust 19 við, þar
af 15 á mánudaginn. Þá hafa fyrstu
laxarnir veiðst á efsta svæðinu í
Stóru Laxá og í Soginu.
Feðgar veiddu sama laxinn
Tvíveiddur Jón Þór Júlíusson togast á við hænginn í Strengjum í Grímsá.
Daginn eftir veiddi faðir hans fiskinn aftur, aðeins ofar í Strengjunum.
JÓN Ólafsson frá Kirkjulæk í
Fljótshlíð lést aðfaranótt 24.
júní, á Jónsmessunótt. Jón
fæddist á Kirkjulæk 16. septem-
ber 1955. Foreldrar hans voru
María Jónsdóttir og Ólafur
Steinsson
sem er lát-
inn.
Eftirlif-
andi eigin-
kona Jóns er
Ingibjörg
Elfa Sigurð-
ardóttir. Þau
eignuðust
þrjú börn en
áður átti Jón eina dóttur.
Jón lærði húsasmíðar en bú-
skap stundaði hann á Kirkjulæk
III í átján ár. Hann var grjót-
hleðslumaður og smiður eftir að
búskap lauk en árið 2002 opn-
uðu þau hjónin veitingahúsið
Kaffi Langbrók í Fljótshlíð.
Jón var um árabil í Kirkjukór
Fljótshlíðar, Karlakór Rang-
æinga, sönghópnum Öðlingum,
Samkór Rangæinga og söng-
hópnum Saga Singers sem
starfaði í tengslum við Njálu-
setrið. Jón var einnig meðlimur
í Kvæðamannafélaginu Iðunni.
Þá stofnaði hann hina vinsælu
hljómsveit Hjónabandið ásamt
eiginkonu sinni og vinahjónum
og gaf út hljómdisk árið 2006.
Jón starfaði lengi í Ung-
mennafélaginu Þórsmörk og
var þar formaður um langt
skeið.
Hann reisti fyrir réttu ári
meyjarhofið Móður jörð í landi
sínu sem varð strax mikið að-
dráttarafl fyrir ferðafólk.
Jón var hagyrðingur góður og
mikill áhugamaður um rímna-
kveðskap, tónlist, ferðamál og
framfarir í Rangárþingi. Jóni og
Ingibjörgu eiginkonu hans var
veittur afreksbikar Búnaðar-
félags Fljótshlíðar 17. júní sl.
Jón
Ólafsson
Andlát
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Skyrtur og blússur
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Útsalan
er hafin
30%-70%
afsláttur
str. 38-56
Opnunartími mánud. - föstud. kl. 10.00-18.00
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík
sími 568 2870
Útsala!
www.friendtex.is
Nú er bara hægt
að gera góð kaup
Mikið úrval af
fallegum fatnaði
Lokað í dag
Útsalan hefst á morgun kl 10.00
Kringlunni • Simi 568 1822
www.polarnopyret.is
40% afsláttur
STÓRÚTSALA
HAFIN
30%-70%AFSLÁTTUR
Laugavegi 63 • S: 551 4422
25.-27. JÚNÍ
Sólgleraugu, tuskudýr, búsáhöld, kort,
derhúfur, blöðrur, útidót, tennisspaðar,
límmiðar, sjampó, styttur, hárskraut.
Allt á 100 kr. stk.
Opið kl. 12–17.
ÚTIMARKAÐUR
FRÁBÆRT VERÐ
Langholtsvegi 42
mbl.is
smáauglýsingar