Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 12

Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR IKEA biður þá sem keypt hafa BARNS- LIG-svefnpoka að skila vörunni aftur til verslunarinnar gegn endur- greiðslu. Þetta kemur fram í til- kynningu frá fyr- irtækinu. Tilkynningar hafa borist erlendis frá þess efnis að botninn á renni- lásnum getur losnað frá. Það getur valdið því að sleðarofinn losni af og orsaki köfnun hjá litlum börnum. Viðskiptavinir sem keypt hafa BARNSLIG-svefnpoka með dag- setningarstimplunum 0745 upp í 0824 eru beðnir um að skila honum til IKEA. Stimpillinn finnst á merkimiða sem saumaður er innan á svefnpokann. Svefnpokar innkallaðir Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is REYKJAVÍKURBORG vill leita eftir samstarfi við aðra um rekstur hjúkrunarheimilisins Droplaug- arstaði, að sögn Jórunnar Frí- mannsdóttur, formanns velferð- arráðs Reykjavíkur. Í dag hyggst hún leggja fram tillögu á fundi ráðs- ins um að óskað verði eftir leyfi heil- brigðisráðuneytisins til þess fá nýj- an aðila til að reka hjúkrunar- heimilið. Samstaða er um málið í meirihluta borgarstjórnar, að sögn Jórunnar. Fáist leyfi ráðuneytisins kvaðst Jórunn búast við að gerður yrði þjónustusamningur um rekstur Droplaugarstaða. „Við [Reykjavík- urborg] verðum áfram ábyrg, nema ríkið sé tilbúið að taka Droplaug- arstaði að sér – sem það hefur ekki verið,“ sagði Jórunn. Grund, Hrafnista og Sóltún Droplaugarstaðir hafa verið rekn- ir með halla í mörg ár. Sagði Jórunn að hann stefndi í að verða 40-50 milljónir króna á þessu ári. Við- ræður hafa staðið yfir við heilbrigð- isráðuneytið því borginni hefur ekki tekist að lækka rekstrarkostnaðinn. Jórunn sagði slæmt að horfa á eftir skattpeningum í hallarekstur. Borg- inni veitti ekki af þeim fjármunum til að veita lögbundna þjónustu, en rekstur hjúkrunarheimilis félli ekki undir hana. Jórunn sagði það hafa verið nefnt m.a. við Grund, Hrafnistu og Sóltún að taka við rekstri Droplaugarstaða. Engar formlegar viðræður hefðu þó farið fram eða neinar tölur verið sýndar um reksturinn. „En við vit- um að það er áhugi á að skoða það,“ sagði Jórunn. Hún segir alls óvíst að nokkur sé tilbúinn að reka Drop- laugarstaði á daggjöldum eða treysti sér til þess. Með því að samræma rekstur Droplaugarstaða annarri skyldri starfsemi megi ef til vill ná fram hagræðingu sem geri það kleift að reka hjúkrunarheimilið á dag- gjöldum. Stærð Droplaugarstaða sé óhagkvæm og ef til vill eigi það stór- an þátt í því að ekki hefur tekist að ná niður hallarekstrinum. Borgin á einnig hjúkrunarheimilið Seljahlíð sem líka hefur verið rekið með tapi. Í Seljahlíð er nú leitað nýrra leiða í rekstrinum og stefnt í auknum mæli að því að fara út í íbúðaform með mikilli heimaþjón- ustu og lofar sú breyting góðu, að sögn Jórunnar. 40-50 milljóna kr. halli  Borgin vill leita nýrra leiða við rekstur Droplaugarstaða  Viðvarandi halli er á heimilinu  Formaður velferðarráðs býst við þjónustusamningi um reksturinn Ljósmynd/Droplaugarstaðir Grillveisla Heimilisfólk á Droplaugarstöðum í grillveislu í garði heimilisins Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „FÆÐINGARORLOFSSJÓÐUR gerði sér ekki grein fyrir þessum [aðstöðu]mun, að það skipti máli hvar tæknifrjóvgunin færi fram en það er alveg ljóst að lögin um fæð- ingarorlof gera kröfu um forsjá,“ segir Hanna Sigríður Gunnsteins- dóttir, lögfræðingur og sviðsstjóri í félagsmálaráðuneytinu, spurð um mál kvenna í staðfestri samvist sem þar sem maki móðurinnar er ekki lagalega séð foreldri barns, þar sem tæknifrjóvgun fór fram erlend- is, en fær samt greitt fæðing- arorlof. „Strangt til tekið þurfa ein- staklingar í þessari stöðu að stjúpættleiða börnin,“ segir Hanna. Skoða þarf framkvæmdina „Við sjáum að það er ekki verið að framkvæma lögin alveg eftir orðanna hljóðan og því þarf að leggjast yfir framkvæmdina.“ Maki móður barns sem hefur orð- ið til í tæknifrjóvgun í útlöndum telst ekki foreldri þess í skilningi barnalaga og þarf því að stjúpætt- leiða barnið sem er ferli sem tekur 6-8 mánuði. Samkvæmt gildandi ákvæðum laga um tæknifrjóvgun má aðeins framkvæma tæknifrjóvgun ef kon- an sem undirgengst aðgerðina er í hjúskap, staðfestri samvist eða óvígðri sambúð sem staðið hefur samfellt í þrjú ár hið skemmsta enda hafi báðir aðilar samþykkt að- gerðina (skál. blaðam.) skriflega og við votta. Sömu lög gera aðeins ráð fyrir tæknifrjóvgun hérlendis. Þarf samþykki makans Þórir Hrafnsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, segir að ætli kona að fara í tæknifrjóvgun þurfi að sýna fram á samþykki makans áður en hún á sér stað. Aðspurður um tilvik þar sem frjóvgun hefur átt sér stað erlendis og maki sýnir fram á samþykki segir Þórir að af- staða ráðuneytisins sé að lögin geri ekki ráð fyrir slíku. Morgunblaðið/Ásdís Orlof Forsjármenn nýfæddra barna eiga rétt á fæðingarorlofi Verða að frjóvgast hérlendis FORSETI bæjarstjórnar Grindavíkur, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, tók fyrstu skóflustungu að nýjum skóla í Hópshverfi í Grindavíkurbæ en áætlað er að hann verði tilbúinn til notkunar að ári. Verða þar 6-8 skólastofur í 1.800 fermetra rými, ætlaðar yngstu stigum grunnskólans. Með Jónu í för var hópur leikskólabarna sem síðar meir munu að öllum líkindum nema ýmis gagnleg fræði í skólanum. skulias@mbl.is Nýr grunnskóli rís í Hópshverfi í Grindavík að ári Ljósmynd/Víkurfréttir Tók fyrstu skóflustunguna að Hópsskóla Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is MYNDAVÉLAR á þilförum íslenskra fiskiskipa til þess að hafa eftirlit með brottkasti eru ekki í skoðun hjá sjávarútvegsráðuneytinu, að sögn Einars K. Guð- finnssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Dönsk stjórnvöld hafa nú gert samning við eigendur nokkurra fiskiskipa um slíkt eftirlit. Hugmyndin kom upp í tíð Árna M. Mathiesen sem sjávarútvegsráðherra, að sögn að frumvæði LÍÚ. Hann lýsti þá yfir vilja til að setja saman starfshóp um málið undir forystu fulltrúa LÍÚ en starfshópurinn var að sögn aldrei skipaður. Aðspurður segir Árni málið hafa strandað á tæknilegum atriðum á sínum tíma. Ekki tókst að ná nothæfu merki um gervihnött frá mynda- vélunum, sérstaklega þegar veður var slæmt og öldugangur mikill. Til- raunir á vegum Tæknivals og Sam- herja fóru fram, en lyktaði með fyrrgreindum hætti. Efnahagshvata framar eftirliti „Nei, þetta er ekki í skoðun af minni hálfu,“ segir Einar K. Guð- finnsson sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra. „Ég er á því að sá brottkastsvandi sem er til staðar verði leystur með efnahagslegum hvötum frekar en með eftirliti. Eftirlitið er bráðnauðsynlegt og þarf að vera til staðar en ég held að því séu takmörk sett hversu langt menn geta gengið í að auka eftirlit á sjó.“ Ekki á dagskrá að setja eftir- litsmyndavélar á þilför skipa Sjávarútvegsráðherra vill frekar efnahagslega hvata gegn brottkasti en eftirlit Í HNOTSKURN »Sjómenn geta látið allt að10% afla, t.d. undirmáls- fisk, teljast í kvóta til hálfs. »Einnig geta þeir látiðandvirði allt að 5% af heildarafla renna í verk- efnasjóð sjávarútvegsins (80%) og til útgerðar og sjó- manna (20%). »Útgerðir nýta sér þetta íauknum mæli. Einar K. Guðfinnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.