Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 17

Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 17
|miðvikudagur|25. 6. 2008| mbl.is daglegtlíf Ég ætla að keppa á honumGammi, sem er hestur frápabba mínum, en ég er aðvinna í því að eignast svo- lítið í honum. Annars á ég hest með ömmu minni sem heitir Vinur og hann er í mesta uppáhaldi hjá mér. Svo á ég líka veturgamla hryssu sem heitir Alma en ég skírði hana eftir tuskuhestinum mínum,“ segir Ylfa Guðrún Svafarsdóttir sem verður yngsti keppandinn á Landsmóti hestamanna á Hellu í næstu viku. Þar mun hún etja kappi við sér mun eldri krakka því þau elstu í þeim flokki verða þrettán ára á þessu ári. „Ég var harðákveðin í því í vor að keppa á Landsmótinu og ég er auð- vitað mjög ánægð með að hafa kom- ist inn í úrtökukeppninni fyrir barna- flokkinn. Það er eiginlega mesti sigurinn,“ segir Ylfa sem keppir fyrir Fák. „Við Gammur ætlum að gera okk- ar besta en tamningamaðurinn Auð- unn Kristjáns sem er vinur okkar, hefur verið að leiðbeina mér svo ég verði sem best undirbúin. Ég þarf að sýna fet, tölt, brokk og stökk.“ Þó þetta sé fyrsta alvöru keppnin hjá Ylfu tók hún þátt í firmakeppni í fyrra og öðrum smærri mótum. Fyrir fjórum árum þegar Lands- mótið var á Hellu og Ylfa aðeins fjög- urra ára, mætti hún þangað klædd í búning sem breytti henni í hestinn Jarp, enda segir Ásta Björnsdóttir móðir hennar að hún hafi sífellt verið að bregða sér í hestlíki. Ylfa er ekki aðeins hrifin af hestum heldur nánast öllum dýrum, enda ber hún nafn úlfynju. „Við eigum tvo hunda, eina kisu og fullt af hestum. Bráðum fáum við kanínur, en mig langar ekki í hæn- ur,“ segir þessi unga og efnilega hestakona sem veit alveg hvað hún vill í framtíðinni. „Ég ætla að verða tamningakona og dýralæknir.“ khk@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Úti í guðsgrænni Ylfa í veðurblíðunni með tuskuhestinn Ölmu í félagsskap tveggja reiðskólahesta í Fáki. Harðákveðin í að keppa á Landsmótinu Hún er dýrasjúk og hefur verið á hestbaki frá því hún man eftir sér. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti metnað- arfulla stelpu sem er á leið inn á keppnisvöllinn á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu. YLFA er svo heppin að þó hún búi í Reykjavík er hesthús við hlið íbúðar- hússins. Hún ólst því upp með hestunum í garðinum og getur farið á hest- bak nánast hvenær sem henni hentar yfir veturinn. Móðir hennar segir Ylfu sjá um að halda heimilisfólkinu við efnið, hún reki þau á bak með sér nánast daglega, sama hvernig viðrar. Hún hefur riðið út frá því hún var sex ára og er sífellt að sækja í sig veðrið og prófa betri og betri hesta. Og hún hefur heilmikið skap, eins og góðri hestakonu sæmir. „Ég datt einu sinni af baki á honum Gammi af því að hann fældist. Ég varð mjög reið og ætlaði aldrei aftur á hestbak, alla vega ekki aftur á hann. En mér var runnin reiðin seinna um daginn.“ Heldur fjölskyldunni við efnið „KONUR eiga að vera náttúrulegar í sumar og draga fram það fallega í andlitinu,“ segir Sigríður Þóra Ívarsdóttir, förðunarmeistari hjá Snyrtiakademíunni. „Gott er að undirstrika umgjörðina á augunum, nota ljósa og matta augnskugga. Svo er mik- ið um bleika liti eins og í fyrra.“ Snyrtiakademían kynnti nýlega förð- unarlínuna GloMinerals sem að sögn Sigríðar Þóru hefur tröllriðið förðunarheiminum und- anfarið. „Minerals-vörur eru unnar úr stein- efnum sem brotin hafa verið niður í smæstu agnir. Vörurnar innihalda fjölda vítamína og grænt te og sólarvörn.“ Hún segir þær því sefandi og græðandi fyrir húðina og að lýta- læknar noti þessar vörur til að vinna á örum og öðrum ummerkjum lýtaaðgerða. „Mun- urinn á Minerals-vörum og öðrum er að ekkert talkúm er notað í vörurnar en það stíflar húðholur og þurrkar upp húðina.“ Sigríður Þóra sýndi dæmi um létta dag- förðun fyrir sumarið. „Farðinn sem ég nota er laus og heldur því húðholum opnum. Hydration mist sem ég spreyja á eftir förð- unina er undravara sem ætti að vera í hverri snyrtibuddu í sumar því með því að spreyja örlitlu misti öðru hverju yfir daginn helst andlitið frísklegt.“ gudrunhulda@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Bleikt og frísklegt Dagförðun Í sumar eiga konur að draga fram náttúrulega fegurð sína segir Sigríður Þóra. Sigríður Þóra Ívarsdóttir  Hyljari notaður eftir þörfum. Laus Mine- ral farði, GloLoose base, er byggður upp á húðina. Brúnn augnskuggi settur á augabrúnir.  Delight augnskuggi settur yfir augnlok og að augabrúnum og Charming augn- skuggi notaður til að skyggja. Brúnn eye-liner dregin meðfram efri og neðri augnháralínu. Ein umferð af svörtum maskara sett á augnhárin.  Paradise kinnalitur settur á kinnarnar. Ljósbleikur varalitablýantur og Pink gin- ger gloss látin á varirnar.  Að lokum er Hydration mist úðað á and- litið sem verður til þess að efni farðans virkjast, förðunin helst lengur á og verð- ur vatnsheld. Dagförðun að hætti Sigríðar Þóru

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.