Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 21

Morgunblaðið - 25.06.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 21 Sólarsýn Segja má, að hann hafi verið sólarmegin í lífinu þessi áhorfandi á leik Fram og Breiðabliks en flestir völdu hina stúkuna, sem sneri undan sól. Kristinn Blog.is Ármann Kr. Ólafsson | 21. júní Lengri sólardaga og lengri helgarfrí … Ef tekinn er upp sum- artími færist hið nátt- úrulega hádegi frá um hálf tvö til um hálf þrjú á daginn. Þetta þýðir að í raun mundi þjóðin vakna fyrr á sumrin og byrja daginn fyrr. Það þýðir líka að sólarinnar nýtur lengur þegar fólk kemur úr vinnu og það verður hlýrra fram eftir deginum yfir sumarið. Þetta gæfi okkur því betra tækifæri til þess að njóta sumarsins og skapaði án efa betri sumarstemningu með öllu sem því fylgir, svo sem auknum möguleikum á frekari samverustundum með fjölskyldunni. Þessu til viðbótar hafa landsmenn verið minntir á það síðustu daga að breyting á sumartíma er mikilvægari fyr- ir suma íbúa þessa lands en aðra … … Ég hef alltaf verið fylgjandi því að gera breytingar í þessa veru og því mun ég fylgja málinu eftir strax eftir að þing kemur saman í haust. … Meira: armannkr.blog.is Hallur Magnússon | 24. júní Er hugur Geirs Haarde á Íslandi? Ég er ekki viss um að hugur Geirs Haarde for- sætisráðherra sé alltaf á Íslandi frekar en hugur Seðlabanka Evrópu. Þótt Geir hafi hrokkið í gírinn í síðustu viku með rík- isstjórnina og gripið til jákvæðra að- gerða gagnvart Íbúðalánasjóði og fast- eignamarkaðnum þá hefur doðinn og aðgerðarleysið undanfarna mánuði bent til þess að hugur hans hafi verið ann- ars staðar. Geir Haarde þykist ekki bera neina ábyrgð á efnahagsástandinu á Íslandi. Hugur hans er annars staðar. Hugur hans er erlendis því hann sér engar aðrar ástæður fyrir ástandinu á Íslandi en aðstæður erlendis. Einu skiptin sem hugur Geirs virðist vera á Íslandi er þegar hann er í útlöndum að tjá sig um málefni Íslands – eins og núna í Lundúnum. Ekki einu sinni viss um að hugurinn sá á Íslandi heldur frekar í Lundúnum … Meira: hallurmagg.blog.is Jón Guðmundsson | 24. júní Alls ekki slæmar fréttir Af umræðu undanfarinna mánaða má telja að ýmsir telji verðhækkanir elds- neytis vera slæmar frétt- ir. Svo er þó ekki. Sjálfur man ég vel eftir olíukreppunni á áttunda áratugnum. Þá fór olíuverð einnig upp úr öllu valdi, og þó að fjölmiðlar telji verð nú vera met- hátt þá skortir þá augljóslega þekkingu og vilja til að uppfæra verð áttunda ára- tugarins til verðlags dagsins í dag. Ég er hræddur um að yrði það gert myndi nú heyrast hljóð úr horni … Meira: mannvitsbrekka.blog.is ÉG HEF nú næstum lokið öðru embættistímabili mínu í þessu óvenjulega og fagra landi eftir að hafa verið sendiherra Breta á Íslandi síðan árið 2004. Alls hef ég búið hér í átta ár, og tel mig því færan um að segjast skilja land og þjóð. Sambandið milli Bretlands og Íslands hefur eflst og ég tel það nú betra en nokkru sinni. Eini skugginn sem borið hefur á vin- áttuna er hvalveiðarnar. Ég skil sjónarmið Einar K. Guðfinnssonar, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, og Kristjáns Loftssonar, og mér er ljóst hversu mjög mál- ið brennur á sumum Íslendingum, einkum íbúum einangraðra fiskveiðisamfélaga sem kvótaskerðing kom verst niður á. En ég skil ekki hvernig nokkur maður getur trúað því að hvalveiðar þjóni hagsmunum Íslands þegar upp er staðið, eða hvernig nokkrum getur yf- irsést álitshnekkirinn sem ímynd Íslands bíð- ur erlendis af völdum hvalveiða. Mér þykir lítið vit í þeirri ákvörðun að veiða 40 hrefnur í atvinnuskyni þrátt fyrir bann Alþjóðahvalveiðiráðsins og það jafnvel þótt fáir snæði hvalkjöt reglulega, eða yf- irhöfuð. Það þarf engan snilling til að sjá að úti í heimi líta menn svo á að hvalveiðar geti skað- að orðspor Íslendinga sem þjóðar sem stend- ur ekki á sama um umhverfi sitt. Og ekki að- eins ríkisstjórnir og erindrekar hafa gefið í skyn andstöðu við hvalveiðar. Þegar Ísland tilkynnti árið 2006 áform um að veiða hrefnu og langreyði í atvinnuskyni vakti það sterk viðbrögð í mínu heimalandi, sem leiddu til mótmæla um alla heimsbyggðina með Breta í fararbroddi, en alls tók meira en milljarður manna þátt í mótmælunum. Varla höfðum við öll rangt fyrir okkur. Ég spjallaði nýlega við tuttugu námsmenn á aldrinum nítján til tuttugu ára. Þau vöktu máls á hvalveiðum og spurðu mig álits. Ég spurði þau þá hvort eitthvert þeirra hefði ný- lega borðað hvalkjöt. Ekkert þeirra hafði gert það, og ekkert þeirra hafði hugsað sér það í framtíðinni. Ég sagðist hafa fengið svipuð viðbrögð frá 50 eða 60 námsmönnum á síðasta ári (einn þeirra sagðist borða hval- kjöt reglulega). Yfirgnæfandi meirihluti unga fólksins sem ég talaði við skilur ekki hvers vegna nokkurn skyldi langa að borða hvalkjöt. Eftir því sem ég best veit er það ekki einu sinni á mat- seðli eldra fólks. Stuðningsmenn hvalveiða veifa við og við að mér tölfræði og töl- um og vitna í vísindalegar heim- ildir sem eiga að sanna að hvalir hafi minnkað fiskistofna. En engum hefur enn tekist að útskýra fyrir mér hvers vegna fiski- stofnar heimsins voru í mestum blóma þegar mest var af hvölum. Er það mögulegt að í það minnsta einhver hluti fisksins sem hvalir nærast á séu teg- undir sem menn borða ekki? Ákveðnar teg- undir sem hvalir éta gætu jafnvel verið þær sem mest éta af tegundunum sem við viljum veiða. Hvalveiðar gætu þannig jafnvel skaðað suma fiskistofna. Íslenskir sjávarlíffræðingar eru með þeim bestu í heiminum og ég þarf ekki að predika yfir þeim um það hversu flókið vistkerfið er. Samt þrjóskast þeir við að halda fram þeim einfölduðu og meingölluðu rökum að hvalir éti fiskinn okkar og þess vegna þurfi að veiða þá, ef ekki út af einhverju öðru. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til- kynnti á síðasta ári að hann myndi ekki út- deila kvóta fyrir hvalveiðar þar til ljóst væri hvort markaður sé til staðar fyrir kjötið og útflutningsmál komin á hreint. Ákvörðun hans var fagnað víðs vegar um heiminn. Framsýni hans og viska voru lofuð og Ísland fékk gríðarmikla jákvæða umfjöllun alls stað- ar að. Sendiráð mitt fékk mikið af bréfum og tölvupósti þar sem menn tjáðu gleði sína og létti yfir þessum fréttum, og ég ímynda mér að það hafi sendiráð Íslands víða um heim líka fengið. Sumir gætu jafnvel hafa bókað sumarfrí á Íslandi í kjölfar þessara frétta, en 70.000 þeirra ferðamanna sem heimsóttu Ís- land á síðasta ári voru breskir. Að auki fóru 104.000 manns, eða um fjórð- ungur þeirra sem heimsóttu Ísland, í hvala- skoðun á síðasta ári. Hvalaskoðunariðnaður- inn hefur blásið nýju lífi í svæði sem hafa barist í bökkum árum saman. Húsavík er af- bragðsdæmi um það sem hvalaskoðun getur gert fyrir svæði á landsbyggðinni. Þegar ég heimsótti bæinn fyrir nokkrum vikum varð ekki á vegi mínum neinn sem hugðist vinna fyrir sér með hvalveiðum. Þetta leiðir mig að þeirri niðurstöðu að lítið fjárhagslegt gagn sé í hvalveiðum í atvinnu- skyni, ef nokkuð, og erfitt er að líta framhjá því hvernig þær ógna velgengni hvalaskoð- unar og vistvænnar ferðamennsku á Íslandi. Hins vegar er byggðinni meðfram strand- lengjunni hagur í heilbrigðum hvalaskoðunar- iðnaði og hann getur greinilega séð henni fyr- ir öruggum tekjum til lengri tíma. Því var nýlega haldið fram að kjöt af lang- reyðum sem veiddar voru árið 2006 hefði rat- að til Japans, þrátt fyrir að japönsk stjórn- völd hafi ekki virst meðvituð um það. Þetta átti að sanna að það væri markaður fyrir kjötið. Ég tel það fremur örugga sönnun fyrir því að markaður sé ekki til staðar að það skuli líða tvö ár frá því að dýrið er veitt og þangað til kjötið er sent af stað, og enn eigi eftir að votta að það sé hæft til manneldis. Það er í fullri vinsemd sem ríkisstjórn mín segist enga réttlætingu sjá fyrir þeirri ákvörðun að veiða 40 hrefnur. Sú ákvörðun hefur valdið mörgum vonbrigðum, bæði Bret- um og Íslendingum, þar með talið meðlimum ríkisstjórnar ykkar. Margir ungir Íslendingar furða sig á þessari ákvörðun. Í þeirra augum er hún róttæk stefnubreyting sem getur að- eins skaðað ferðamannaiðnaðinn, hvalastofn- inn, alþjóðlega hagsmuni Íslands og orðspor. Ég er sammála þeim. Eftir Alp Mehmet » „...ég skil ekki hvernig nokkur maður getur trúað því að hvalveiðar þjóni hagsmunum Ís- lands þegar upp er staðið...“ Alp Mehmet Höfundur er sendiherra Bretlands á Íslandi. Hví í ósköpunum að veiða hvali? Sigurður Hreiðar | 24. júní 2008 Einbýlishús með tvær aukaíbúðir er þríbýlishús Í Fasteignaauglýsinga- blaði Morgunblaðsins var textaauglýsing um fast- eignir á Kýpur og sagt m.a. að „allir tala ensku á Kýpur“. – Öllu má nú að manni ljúga, sosum. Ég staldraði við á téðri eyju fyrir tæpum áratug og mikið rétt og víst, í því þéttbýli þar sem ég hafði svefnstað komst maður jú býsna vel af með því að nota ensku, en um leið og komið var út í dreifðari byggð- ir dugði ekkert mælt mál nema gríska. Fasteignaauglýsingablað Fréttablaðs- ins sló því upp á forsíðu að til sölu væri einbýlishús með tvær aukaíbúðir. Mér er spurn: Vita fasteignasalar ekki hvað ein- býli þýðir? … Einbýlishús er ekki lengur einbýlishús þegar búið er að innrétta í því fleiri íbúðir. Einbýlishús með þremur íbúðum er ekki lengur einbýlishús, það er orðið þríbýlishús og hananú! Meira: auto.blog.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.