Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 27
MINNINGAR
Ég man eins og það
hafi gerst í gær þegar
þú fæddist, þegar
mamma þín og pabbi
komu með þig nýfædd-
an heim til okkar og við lögðum ykk-
ur saman frændurna og tókum
myndir af ykkur áður en þið fluguð
austur.
Fyrstu skrefin þín og allar þær
góðu stundir sem þið frændsystkinin
áttuð, litlu prakkarastrikin og þína
stóísku ró, það var alveg sama á
hverju gekk, alltaf varst þú pollróleg-
ur og hafðir svo skemmtilegar út-
skýringar á því sem var að gerast
hverju sinni.
Mig langar til þess að þakka þér
fyrir allt, elsku Fannar minn, fyrir
það hvað þú varst góður vinur hans
Snævars og Bergsteins, þú gast
fengið Begga til að fara í klippingu
með einni setningu þegar við vorum
orðin úrkula vonar um að hann færi
nokkurn tímann í klippingu.
Allar minningarnar um þig, Fann-
ar minn, eru góðar og hlýjar og auð-
velt er að brosa og hlæja dátt yfir því
hvað þið brölluðuð saman eða bara
yfir því hvernig húmor þú hafðir. Við
vorum ekki minna spennt yfir því
þegar þú fékkst loksins hið lang-
þráða bílpróf, þú komst hingað í
Hafnarfjörðinn til að sækja Snævar
og við komum öll út til að taka á móti
þér og óska þér til hamingju með
prófið en eins og þú sagðir sjálfur þá
varstu bara búinn að bíða frá því að
þú varst þriggja ára eftir því að fá bíl-
próf.
Okkur fannst gaman að fylgjast
með öllum þeim breytingum sem
urðu á bílnum og það var svo gaman
að sjá hvað bíllinn var alltaf flottur
hjá þér.
Þér fannst ekkert mál að fara með
okkur út og sýna okkur allt það nýja
sem þú varst búinn að kaupa í bílinn.
Rétt fyrir páska rættist svo gamli
draumurinn ykkar Snævars að fara
út til að sjá Man. United leika á
heimavelli.
Mér fannst svo frábært og er svo
þakklát að allt gekk svo flott upp hjá
ykkur og að þið gátuð farið öll saman,
þú, Snævar, mamma þín og pabbi,
Daníel, Bergdís og Maggi, að sjá goð-
in spila.
Því ef ég man rétt þá var það þann-
ig að þegar þú varst lítill og ég spurði
þig hvað þú ætlaðir að verða þegar
þú yrðir stór stóð ekki á svörum: „Ég
ætla sko að vera frægur fótbolta-
kappi og spila með Man. United,“ og
svo sögðuð þið báðir í kór frændur:
„Við ætlum sko líka að fara á Old
Trafford og sjá Man. United leika á
heimavelli,“ og það gerðuð þið svo
sannarlega
Svo ert þú, rétt orðinn 20 ára og líf-
ið allt framundan, tekinn burt frá
okkur.
Það var ekki fyrr en í fyrrasumar
sem fyrsta greiningin kom, að þú
værir með krabbamein. Strax varstu
svo æðrulaus og ákveðinn í því að
sigra og hafa betur í þessari baráttu.
Þetta æðruleysi einkenndi þig allan
tímann svo aðdáun var að. Það var
alltaf svo stutt í húmorinn og svo
gaman að geta fengið að hlæja með
þér og sjá þig brosa þrátt fyrir sárs-
aukann og veikindin.
Ég trúði því alltaf að þú myndir
sigra og hafa betur í baráttunni og
losna alveg við meinið líka. Núna í
vor, þegar læknarnir hættu meðferð-
inni, þá trúði ég því að þú myndir
sigra og standa uppi sem sigurveg-
ari, Fannar minn. En Guð hefur ætl-
að þér aðra sigra en þá sem ég vonaði
að yrðu og hann hefur auðsjáanlega
ætlað þér mun stærra hlutverk sér
við hlið.
Í mínum huga ert þú sigurvegari,
Fannar minn, þú ert og munt alltaf
vera hetja mín og okkar.
Fannar Logi Jóhannsson
✝ Fannar Logi Jó-hannsson fædd-
ist í Reykjavík 25.
nóvember 1987.
Hann lést á heimili
sínu 11. júní síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá
Digraneskirkju 19.
júní.
Kveðjustundin kom
alltof fljótt, elsku
Fannar, við vitum að
nú ert þú með ömmu
og öfum þínum sem
leiða þig og vernda og
að þú lítur yfir til okk-
ar.
Við biðjum góðan
guð um að varðveita
þig og geyma um
ókomna tíð elsku
frændi.
Elsku Þórunn mín,
Jói, Þorsteinn Freyr,
Daníel Ingi, Bergdís
Júlía, Magnús og Sindri Steinn, við
biðjum góðan Guð að varðveita ykkur
og veita ykkur styrk í sorg ykkar.
Minning um yndislegan og góðan
dreng er ljós í lífi okkar.
Veit ekki hvað vakti mig
vill liggja um stund
togar í mig tær birtan
lýsir mína lund
Íslenskt sumar og sólin
syngja þér sitt lag
þú gengur glöð út í hitann
inn í draumbláan dag
(Bubbi Morthens.)
Þórey, Guðmundur Hrafn og
fjölskyldan Þúfubarði 9.
Eins og segir í orðum Bob Dylan
að „The times they are a changing“
finnst mér best að lýsa síðustu dög-
um. Tíminn líður áfram og tímarnir
eru í raun að breytast fyrir framan
okkur í sífellu. Ennfremur ber morg-
undagurinn með sér nýjar þrautir
sem þarf að leysa og nýjar áskoranir
sem þarf að takast á við. Fannar tók
þeim áskorunum og raunum sem
hann lenti í með miklu æðruleysi eins
og flestir vita, með jákvæðu hugar-
fari og einstökum baráttuvilja.
Styrkur Fannars er því miður ekki of
algengur á okkar tímum en hann hef-
ur kennt okkur með því að gefast
ekki upp og halda áfram þótt bar-
áttan sýnist vonlaus. Ég er svo hepp-
inn að ég kynntist Fannari á annan
hátt en margir aðrir og mig langar að
veita smáinnsýn í minningarnar sem
ég á um hann.
Það var einstök upplifun að fara út
til Manchester í marsmánuði með
Fannari, foreldrum hans, Bergdísi
systur hans, Magga kærasta hennar
og Daníel bróður hans. Langþráður
draumur hans um að komast á Unit-
ed-leik í Leikhúsi draumanna myndi
loks verða að veruleika. Það sem
gerði ferðina svo einstaka upplifun er
að það fyrirfinnst varla annar stuðn-
ingsmaður Man. Utd á landinu sem
styður við bakið á sínum mönnum af
jafn miklum eldmóði og Fannar.
Ferðin var stórkostleg og að sjálf-
sögðu sigur okkar manna við mikinn
fögnuð okkar. Fannar kom svo að
sjálfsögðu drekkhlaðinn minjagrip-
um og varningi tengdum liðinu.
Heimsóknin hafði góð áhrif á liðið því
að leið þess lá upp á við að leik lokn-
um og þeir unnu svo að endingu
meistaratitilinn í Englandi eins og
allir vita og einnig meistaradeildina.
En það var margt annað sem átti
hug Fannars og meðal annars var
það Corollan sem hann keypti sér
skömmu eftir að hann fékk bílpróf.
Það var ást við fyrstu sýn eins og
skáldið sagði. Þessi bifreið er ein sú
glæsilegasta sinnar tegundar á Ís-
landi og þótt víðar væri leitað. Það
sást aldrei blettur á bílnum og alltaf
var hægt að spegla sig á húddinu
enda var það mjög þægilegur kostur
því hárið var alltaf fullkomið áður en
við fórum á rúntinn niður Laugaveg-
inn. Bíllinn vakti svo mikla lukku að
Fannar var stoppaður á ljósum og
var boðið gull og grænir skógar en
allt kom fyrir ekki, Rollan átti hjarta
hans. Það var sama hvort maður átti
slæman dag, ekkert var að gerast eða
við fórum að kíkja í bíó, alltaf var
Fannar til í að gera eitthvað og kom
að sjálfsögðu alltaf í nýbónuðum og
tandurhreinum bíl. Fannar fór alltaf
sínar leiðir en samt var alltaf hægt að
fá hann til að gera einhverja vitleysu
eins og þegar ég fékk hann til að
bakka yfir hraðahindrun og bíll kom
fyrir „framan“ okkur og horfði illi-
lega á okkur, en þó hafði hann samt
alltaf sín mörk sem enginn fékk að
fara yfir og forðaði oft vinum sínum
frá því að gera allskonar vitleysu.
Það er endalaust hægt að halda
áfram en að lokum vil ég fá að þakka
þér fyrir allt sem við fengum að upp-
lifa saman og það sem við gengum
saman í gegnum. Þótt lífi þ́nu hér á
meðal oss á jörðinni sé lokið hefur þú
fengið eilífan sess í hjörtum okkar og
minningarnar sem við eigum munu
aldrei hverfa og þær eru ófáar. Ég tel
það minn æðsta heiður að geta kallað
þig vin minn og félaga.
Þín verður afar sárt saknað en
minningarnar eru hins vegar ein-
staklega hlýjar. Með orðum Bubba:
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
Þinn vinur og frændi,
Snævar.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason
ÞAÐ ríkir hörð sam-
keppni um flugfarþega
á Íslandi og ekki hvað
síst núna þegar virðist
kreppa að í fjárhagi al-
mennings og hátt elds-
neytisverð að sliga fólk
og fyrirtæki. Það er
mikilvægt að fólk geri
sér grein fyrir hvað
flugfarþegar eru að
kaupa í farmiða og
hvað þau fyrirtæki sem
selja miðann standa
fyrir. Fyrirtækið Ice-
land Express kallar sig
lágfargjaldaflugfélag,
en er ekki flugrekandi,
sem sagt handhafi flug-
rekstrarleyfis frá Flug-
málastjórn Íslands.
Það þýðir að Iceland
Express býr ekki við
þær kvaðir eða skyldur
sem almennt tíðkast
um þau fyrirtæki sem
kalla sig flugfélög. Þeg-
ar þú kaupir farmiða með Iceland Ex-
press ertu í raun að kaupa farmiða
með erlendum flugfélögum. Flugfélög
sem fljúga undir merkjum Iceland Ex-
press eru t.d. svissneska flugfélagið
FlyHello og breska félagið Astreus.
Þau eru bæði með útgefin flugrekstr-
arleyfi í sínu heimalandi, FlyHello í
Sviss og Astreus í Bretlandi. Engir
flugmenn sem vinna hjá þessum fé-
lögum starfa samkvæmt íslenskum
kjarasamningi.
Á síðustu árum hefur orðið vakning í
umræðu um starfsmannaleigur og kjör
manna sem starfa á þeirra vegum. Um
margra ára skeið hafa ýmis flugfélög
nýtt sér slíkar leigur, enda sparar það
fyrirtækjunum oftar en ekki ómakið að
skila lögbundnum sköttum og gjöldum
til okkar sameiginlega
sjóðs, ríkissjóðs. Með
verktakasamningi fellur
það í hlut viðkomandi
verktaka, flugmanns í
tilviki flugfélaga, að
skila lögbundnum gjöld-
um af sínum tekjum,
eins og lífeyrissjóðs-
gjöldum, trygg-
ingagjöldum og tekju-
skatti.
Hjá fyrirtækjum sem
selja flugsæti til og frá
Íslandi starfa a.m.k.
tugir jafnvel hundruð
flugmanna sem fyr-
irtækin og viðkomandi
flugmenn kalla verktaka
en eru í raun launþegar.
Þarna er brotalöm sem
verður að laga, því það
kemur á endanum niður
á samkeppnishæfni fyr-
irtækjanna. Þau fyr-
irtæki sem hafa allt sitt
uppi á borðinu og leggja
sig fram við að greiða
það sem þeim ber verða
á endanum undir í
ósanngjarnri sam-
keppni. Stéttarfélag
flugmanna á Íslandi (FÍA) hefur sent
tekju- og lagaskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins formlegt erindi
þar sem óskað er svara um fram-
kvæmd skattalöggjafarinnar hvað
þessi mál varðar. Stjórnvöld þurfa að
svara því hverjar eru skattalegar
skyldur íslenskra flugfélaga og ann-
arra þeirra sem standa að slíkum
rekstri. Þ.e. fyrirtækja sem eiga,
leigja eða reka loftför skráð á Íslandi
eða utan lands, eða þau sem leigja
loftför til verkefna fyrir íslenska aðila
með eða án flugmanna.
Með von um betri tíð.
Flugfélög án
flugmanna
Jóhannes Bjarni
Guðmundsson
skrifar um rekstur
flugfélaga
Jóhannes Bjarni
Guðmundsson»Hjá fyr-
irtækjum
sem selja flug-
sæti starfar
fjöldi flugmanna
sem kallaðir eru
verktakar en
eru í raun laun-
þegar. Þarna er
brotalöm sem
verður að laga.
Höfundur er atvinnuflugmaður og
formaður Félags íslenzkra atvinnu-
flugmanna.
Einstaklingur sem
eftir dráp hvítabjarn-
ar fyrir 34 árum
stakk upp á því og
síðan ítrekað, að leit-
ast yrði við að fanga
birni, sem hingað
rækjust og kynnt sér
sérstaklega björg-
unaraðgerðir, mætti
vera ánægður að
þetta sé reynt, þó
fyrst 5 björnum síð-
ar. Aðferðir við að
fanga dýr eru vel
þekktar og t.d. alger
rútína í þjóðgörðum
Bandaríkjanna. Það
sem fyrst og fremst
þarf er vilji, byssa og
búr. Þetta hefur allt
vantað sérstaklega
viljann.
Aðgerðin á Skaga
má um margt gagn-
rýna en virtist einkennast af þeim
viðhorfum að við ferfætta mann-
ætu væri að ræða. Afsakanir voru,
mótsagnakenndar og skýringar
ótrúverðar, sama hvað kurteis
Dani segir. Reynt er að smala dýr-
inu með bíl í átt til byssumanns
eins og getur gengið með búfénað
til sveita. Dýr sem aldrei áður hef-
ur bíl séð eða í bílvél heyrt, fælist
eðlilega og er síðan skotið áður en
byssumaður sem er fluttur hingað
með miklum tilkostn-
aði kemst í færi.
Ísland þráir mjög að
komast í heimsfrétt-
irnar og tekst það.
Tvö alfriðuð dýr
(nema á Íslandi!) eru
drepin á tveimur vik-
um. Alls hafa 9 birnir
verið drepnir á Íslandi
á sl. 45 árum.
Kannski vinnst við
þessi 2 síðustu dýr að
menn skilji, einkum
lögreglan og nátt-
úrufræðistofnanir að
dýrin eru ekki hingað
komin gagngert til að
leita uppi og éta Ís-
lendinga þrátt fyrir
tóman maga og því
eitthvað hægt að halda
ró sinni. Óþarfi er að
læsa alla Skagabúa
inni.
Umhverfisstofnun
hefur nú sennileg
lærst að Hvítabirnir
munu koma hingað
öðru hvoru og Um-
hverfisráðuneyti skil-
ist að við höfum einhverjum al-
þjóðlegum skyldum að gegna.
Það er þó glæta í þessu en dauf,
ráðherra hefur skipað nefnd til að
kanna möguleika á fanga dýr en
verkefnið því miður falið þeim sem
til þessa hafa talið öll tormerki á
því og hvað mest hvatt til dráps.
Vonandi lærist eitthvað fyrir
næstu bjarndýrsheimsókn.
Enn um
hvítabjarnardráp
Birgir Guðjónsson
skrifar
um viðbúnað við
komu hvítabjarna
hingað til lands
Birgir Guðjónsson
»Dýrin eru
ekki hingað
komin gagngert
til að leita uppi
og éta Íslend-
inga þrátt fyrir
tóman maga og
því eitthvað
hægt að halda
ró sinni.
Höfundur er læknir.