Morgunblaðið - 25.06.2008, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 25.06.2008, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 37 RITHÖFUNDURINN Nick Cave hefur hingað til verið nokkuð í skugganum á tónlistarsjálfi ástr- alska söngvaskáldsins, en þessir tveir heimar sköruðust þó töluvert í fyrstu skáldsögu Cave, When the Ass Saw the Angel, þar sem mörg stef og jafnvel sum nöfnin voru kunnugleg þeim sem höfðu hlustað á plötur hans frá Birthday Party- árunum. Í sumar gengur skörunin hins vegar enn lengra þegar út kemur 40 síðna smásaga í harð- spjalda útgáfu byggð á titillagi nýj- ustu plötu Cave, Dig, Lazaruz, Dig!!! Nafn smásögunnar er hið sama og Cave hefur lýst því yfir að lesendur muni læra ýmislegt um til- urð lagsins og dularfulla söguna þar á bak við. Með fylgja ljós- myndir, handskrifaðir lagatextar og lítil geislaplata. Cave er vitaskuld lítillætið upp- málað þegar hann kynnir verkið: „Þessi bók er forvitnilegur grip- ur sem fjallar um undirbúning og stórfenglega lokaútgáfu verkefnis sem hóf líf sitt á bakhlið umslags, örlítið brot af hugmynd sem endaði sem klassískt rokklag og sann- kölluð menningargersemi.“ Lítillátur Nick Cave fylgir einni menningargerseminni eftir með annarri klassík. Rokklag verður að bók HJÓNABAND söngkonunnar nýgiftu Mariuh Carey er nú þegar um það bil að slitna, eftir því sem heimildarmenn tímaritsins Life and Style halda fram. Segja þeir að hún og eiginmaður henn- ar, rapparinn Nick Cannon, muni ekki endast saman lengur en í hálft ár en þau giftu sig í apríl. Ástæðan mun vera sú að Cannon á erfitt með að uppfylla allar kröfurnar sem söngdívan gerir til hans, en hún mun vera vön því að öllum óskum hennar sé sinnt samstundis. Eig- inmaður hennar er orðinn að athlægi meðal vina hennar og samstarfsfólks og einn þeirra sagði í samtali við tíma- ritið: „Nick gerir allt sem Mariah segir honum að gera, hann er eins og hund- urinn hennar.“ Eiginmaður eða hundur? Ósátt Eitthvað er farið að slá í hjónabandssæluna. BOY George hefur verið neitað um vega- bréfsáritun í tengslum við fyrirhugaða tón- leikaferð kappans um Bandaríkin. George var eins og frægt er orðið gert að sinna sam- félagsþjónustu í New York eftir að hafa logið til um innbrot árið 2006 og líkast til er það þetta brot tónlistarmannsins sem réð því að honum var meinað um áritun. „Ég er í öngum mínum yfir þessu og nú lítur út fyrir að ekk- ert verði af tónleikaferðinni. Ég gerðist sek- ur um glæp en ég galt fyrir hann með því að sópa götur New York-borgar. Ég ætti að fá að vinna mína vinnu óáreittur.“ Boy George sem heitir réttu nafni George O’Dowd hafði meira að segja í hyggju að spila á tónleikum tileinkuðum hreins- unardeild New York-borgar. „Fólkið sem ég kynntist á meðan ég sinnti minni samfélags- skyldu sýndi mér mikla hlýju og mig langaði bara að sýna þeim þakklæti mitt.“ Tónleika- ferð George átti að hefjast í Aspen hinn 10. júlí næstkomandi. Fær ekki vegabréfsáritun Svekktur Boy George heldur ekki tónleika í Bandaríkjunum á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.