Morgunblaðið - 25.06.2008, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 25.06.2008, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI CHRONICLES OF NARNIA kl. 3D - 6D - 9D B.i. 7 ára DIGITAL THE BANK JOB kl. 6 - 9 B.i. 16 ára SEX AND THE CITY kl. 3 - 6 - 9 B.i. 14 ára SPEED RACER kl. 3D LEYFÐ DIGITAL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, SELFOSSI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK ,,Ævintýramynd Sumarsins” - LEONARD MALTIN, ET. ,,Besta spennumynd ársins” - TED BAEHR, MOVIEGUIDE. VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA ,,Stórsigur. Aðdáendur bókanna munu elska þessa” - MEGAN BASHAN, WORLD MAGAZINE. eeee „Orðið augnakonfekt er of væg lýsing, þessi mynd er sjónræn snilld! Ég fílaði hana í tætlur!” Tommi - Kvikmyndir.is eee „Speed Racer er sannarlega sjónræn veisla sem geislar af litadýrð.” L.I.B - Topp5.is/FBL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA / ÁLFABAKKA CHRONICLES OF NARNIA kl. 5D - 8D - 11D B.i. 7 ára DIGITAL CHRONICLES OF NARNIA kl. 5 - 8 B.i. 7 ára LÚXUS VIP THE BANK JOB kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára THE INCREDIBLE HULK kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára INDIANA JONES 4 kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára SPEED RACER kl. 5 LEYFÐ FORBIDDEN KINGDOM kl. 8 SÍÐUSTU SÝNINGAR B.i.12 ára ,,The Bank Job er nettur, spennandi og skemmtilegur glæpaþriller sem er einnig sá besti sem sést hefur í áraraðir.,, - Tommi, kvikmyndir.is ,,EIN AF BESTU MYNDUM ÁRSINS...,, - R. Roeper, ,,The Bank Job er besta kvikmynd sem hefur verið framleidd í þessum kvikmyndaflokk síðan The Italian Job.,, - Michael Sragow, Sun Movie Critic ,SAFARÍK KVIKMYND, BYGGÐ Á SANNSÖGULEGU BANKARÁNI SEM KEMUR SÍFELLT Á ÓVART...,, - Rolling stones eee "The Bank Job er hröð, fyndinn og snúinn..." "Besta mynd Strathams..." - S.V., MBL SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI BETWIXT segir frá þremur ung- mennum, Morgan D’Amici, Ondine Mason og Nix Saint-Michael, sem glíma við sama vanda og ungmenni almennt, brothætta sjálfmynd, fé- lagslegan þrýst- ing, vandræða- lega kynhvöt og ómögulega for- eldra. Til við- bótar við þetta, sem gerir líf hvers ungmennis að helvíti sem löngu er vitað, bætast svo yf- irnáttúrlegar uppákomur; það er því líkast sem þau séu ekki af þessum heimi og ekki bara það heldur virð- ast þau flækt í baráttu milli ólíkra afla, góðs og ills. Þetta er óneitanlega prýðileg und- irstaða forvitnilegrar bókar eða jafn- vel bókaraðar, eins og mér skilst reyndar að standi til með Betwixt. Til að úr verði almennileg skemmt- un þarf þó meira til, bókin sjálf verð- ur að vera vel skrifuð og skipulögð og í því bregst Töru Bray Smith bogalistin. Víst eru skemmtilegir sprettir í bókinni og fínar hug- myndir, til að mynda hvernig eit- urlyf, Dust/duft, er notað til að skilja á milli feigs og ófeigs og eins hvernig rokktónlist, tilfinningaþrungin og ei- lítið tilgerðarleg, þetta eru emo- krakkar, er notuð til að flækja ung- mennin í átökin miklu. Betwixt er fyrsta skáldsaga Töru Bray Smith sem skýrir að nokkru brestina í henni. Helst má líkja henni við vampírubækur Stephenie Meyer, þ.e. hvað varðar yrkisefni, en Smith kemst ekki með tærnar þar sem Meyer hefur hælana. Yfirnátt- úrlegt Betwixt, skáldsaga eftir Töru Bray Smith. Hodder gefur út. 402 bls. innb. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Sail - James Patterson & How- ard Roughan. 2. Nothing to Lose - Lee Child. 3. The Host - Stephenie Meyer 4. Plague Ship - Clive Cussler ásamt Jack Du Brul. 5. Love the One You’re With - Emily Giffin 6. Chasing Harry Winston - Laur- en Weisberger 7. The Broken Window - Jeffery Deaver 8. Odd Hours - Dean R. Koontz 9. Married Lovers - Jackie Collins. 10. Sundays at Tiffany’s - James Patterson & Gabrielle Charbonnet New York Times 1. The Forgotten Garden - Kate Morton 2. Chasing Harry Winston - Laur- en Weisberger 3. Devil May Care - Sebastian Faulks 4. The Road Home - Rose Tremain 5. The End of Mr. Y - Scarlett Thomas 6. The Outcast - Sadie Jones 7. The Reluctant Fundamentalist - Mohsin Hamid 8. The Resurrectionist - James Bradley 9. East of the Sun - Julia Gregson 10. On Chesil Beach - Ian McEwan Waterstone’s 1. Dead Heat - Dick Francis 2. Step on a Crack - James Patter- son 3. Bungalow 2 - Danielle Steel 4. Quest - Wilbur Smith 5. Falling Man - Don Delillo 6. Making Money - Terry Pratc- hett 7. Hollow - Nora Roberts 8. Hide - Lisa Gardner 9. Chameleon’s Shadow - Minette Walters 10. Last Gospel - David Gibbins Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ÞAÐ ER siður vestan hafs að bjóða mönnum að flytja sinn „síðasta fyrirlestur“, þ.e. að fá þá til að setja sig í þær stellingar að þeir séu banvænir og hafi aðeins þennan eina fyrirlestur til að koma lífsspeki sinni og -þekkingu á framfæri. Úr því verður eðlilega oft argasta tilfinningaklám, en líka prýðilegir og jafnvel merkilegir fyrirlestrar, sem sannast á milljónabók Randy Pausch „The Last Lecture“. Randy Pausch er tæplega fimmtugur Bandaríkja- maður, giftur þriggja barna faðir, prófessor í tölv- unarfræði við Carnegie Mellon háskóla og virtur fyrir fræðastarf sitt. Hann hefur þannig hlotið verðlaun fyrir kennslustarf sitt, hefur skrifað fimm bækur um tölv- unarfræði og er félagi í ýmsum vísindaselskap vestan hafs. Krabbamein og aftur krabbamein Pausch greindist með krabbamein í brisi í ágúst 2006 sem er víst eitt það versta sem hent getur menn þegar krabbamein er annars vegar (4% lífslíkur). Pausch gekkst undir harkalega krabbameinsmeðferð í kjölfar greiningarinnar, skurðaðgerðir og geisla- og lyfja- meðferð, en í ágúst sl. varð ljóst að ekki yrði við meinið ráðið. Þá tók við meðferð til að lengja líf hans, enda ljóst að ekki yrði hann læknaður, en að mati lækna ætti hann um sex mánuði eftir ólifaða. Í maí sl. kom svo í ljós að krabbinn væri kominn víðar, meðal annars í lungu og lifur, en meðferðin og meinið hafa gert að verkum að hjarta og nýru eru við það að gefast upp líka. Haustið 2007, áður en ljóst varð að ekki yrði sigrast á krabbameininu, var Pausch beðinn að flytja „síðasta er- indið“ á sérstökum fundi í Carnegie Mellon 8. sept- ember. Síðasta erindið verður síðasta erindið Hann tók verkið að sér, en segir í viðtali að óneit- anlega hafi þar verkefni tekið á sig sérstakan blæ þegar í ljós kom stuttu fyrir erindið að hann væri dauðvona. Erindinu var vel tekið, þótti fjörlega flutt, og sjá má á YouTube að létt var yfir Pausch og hann reytti af sér brandarana. Hann veltir sér ekki upp úr dauðanum sem knýr svo kröftuglega á dyr hjá honum, heldur ræðir hann um það hvernig haga megi lífi sínu sem best, hve mikilvægt það sé að hafa eitthvað til að keppa að og hve nauðsynlegt að sé að missa ekki sjónar á takmarkinu og kryddar með dæmisögum úr lífi sínu. Ein af lykilsetn- ingum hans: Við ráðum ekki spilunum sem við fáum, en getum spilað úr þeim að vild. Milljónabók Úr þessum fyrirlestri varð svo til bókin „Síðasta fyr- irlesturinn“, „The Last Lecture“ sem kom út 8. apríl sl. og selst eins og heitar lummur vestan hafs nú um stund- ir, en hún er meðal annars byggð á fyrirlestrinum. Þess er eflaust ekki langt að bíða að hún komi út á íslensku. Metsölu spáð. Hægt er að lesa meira um Pausch og sjá fyrirlest- urinn á vefsetrinu www.cmu.edu/randyslecture. Forvitnilegar bækur: Síðasta erindi Randy Pausch Merkileg metsölubók Dauðvona Bandaríski vísindamaðurinn Randy Pausch. MERKILEGT hversu oft hugsanir skálda og hugsuða leita í sama far- ið. Ljóðskáld glíma líkt og heim- spekingar ævinlega við tilvist- arlegar spurningar. Jónas Þorbjarnarson gerir það sannarlega og það býsna vel í bók sinni Tíma- bundið ástand. Fyrir meira en einni og hálfri öld þýddi nafni hans, Jón- as Hallgrímsson, kvæði eftir Feu- erbach sem hann nefndi Nihilismi. Þar er verið að velta fyrir sér leift- urskammri tilveru mannsins á jörð- inni: „Eilífð á undan / og eftir söm / orðinn að engu / og ósjölfur!“ Tíma- bundið ástand fjallar um þessa skammlífu veru okkar á jörðinni. Í kvæðinu Óskilgreint kemst Jónas svo að orði: Og lífið hvað boðar það mér annað en mat, konur, hvíld þess á milli lífið segir mér ekkert af viti, maður er bara einhver andskotinn á seyði: loðið tímabundið ástand – Mörg kvæði Jónasar snúast um þessa hugsun. Hann veltir m.a. fyr- ir sér hvort það hefði breytt nokkru ef tíminn hefði rigsað áfram án hans fyrir nokkuð tæpum fimmtíu árum. Einkenni ljóða hans er ákveðinn léttleiki og kát- ína. Í kveðskap sínum fer hann um víðan völl því að mörg ljóðin eru ort í fram- andi löndum þar sem hann fangar augnablik og kenndir. Ljóð hans eru ljóð heimsborgara þótt skáldið neiti að taka sig of hátíðlega. Þetta er samt sjálflægur, huglægur og í reynd al- varlegur kveðskapur byggður á sterkum ljóðsegjanda enda við- fangsefnið ég-ið í tilverunni. Um allnokkurn tíma hefur mér þótt Jónas efnilegt skáld. Kveð- skapur hans í þessari bók er heil- steyptur, myndvís og lipur. Hér er gott skáld á ferð. Eilífð á undan og eftir söm Skafti Þ. Halldórsson Jónas Þorbjarnarson BÆKUR Ljóð eftir Jónas Þorbjarnarson, JPV-útgáfa, 2008 – 61 bls. Tímabundið ástand

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.