Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 41
Einkalíf Madonnu og kynferðislegt hispursleysi hafa mótað stóran hluta af ímynd söngkonunnar hæfileikaríku og margi telja hana hafa lagt sín lóð á vogarskálarnar til að vinna bug á fordómum samfélagsins í garð þeirra sem ekki halda sig innan þrengstu siðgæðisramma. Veik fyrir listamönnum Í upphafi ferils síns átti Madonna Dan Gilroy fyrir kærasta en þau stofnuðu saman hljómsveit- ina Breakfast Club. Í byrjun 9. áratugarins átti hún í ástarsamböndum við Stephen Bray laga- höfund og hljómplötuframleiðanda, listamanninn Jean-Michel Basquiat, útgáfumanninn Mark Kamins og tónlistarmanninn John „Jellybean“ Benitez. Fyrsta hjónabandið Madonna byrjaði samband með leikaranum Sean Penn árið 1985 og giftist honum seint sama ár. Lá við skilnaði hjá þeim árið 1987 en í lok árs 1988 skildu þau loks að borði og sæng og fengu lögskilnað 1989. Um endalok hjónabandsins á Madonna að hafa sagt að á þessum tíma hafi fátt annað komist að hjá henni en listamannsferillinn. Kvennagull og klámstjörnur Næstur í röðinni var það alræmda kvennagull Warren Beatty sem Madonna kynntist við tökur á myndinni um Dick Tracy árið 1989. Árin 1990 og 1991 var Madonna í tygjum við Tony Ward, tvíkynhneigða fyrirsætu og klámmyndastjörnu og síðar tók við 8 mánaða samband við tónlistar- manninn sem er best er þekktur undir nafninu Vanilla Ice. Barn með einkaþjálfaranum Körfuboltakempan fjölhæfa Dennis Rodman var unnusti Madonnu um miðjan 10. áratuginn og í september 1994 lágu leiðir Madonnu og lík- amsræktarþjálfarans Carlos Leon saman í Mið- garði í Nýju Jórvík. Varð Carlos bæði einkaþjálf- ari Madonnu og unnusti um skeið. Með honum eignaðist Madonna sitt fyrsta barn, dótturina Lourdes Mariu Ciccone Leon sem fæddist í októ- ber 1996. Seinna hjónaband Guy Ritchie kynntist Madonna árið 2000 gegnum sameiginlegan vinskap þeirra við söngv- arann Sting og konu hans, leikkonuna Trudie Styler. Þau Guy og Madonna eignuðust soninn Rocco í ágúst 2000 og giftust í desember sama ár. Árið 2006 ættleiddu þau drenginn David Banda frá Malawi. Og stelpurnar Þá eru ótalin ástarsambönd Madonnu við kvenfólk en hún hefur verið orðuð við bombur á borð við fyrirsætuna Naomi Campbell og leik- konuna Söndru Bernhard. Allar fréttir um þessi sambönd hafa hins vegar verið hálfpartinn undir rós og kannski að megn- inu til getgátur æsifjölmiðla. Þá hafa ýmsar litríkar persónur, bæði kven- kyns og karlkyns, tekið upp á að halda því fram að hafa átt í lengri eða styttri ástarsamböndum við Madonnu. Líflegt einkalíf Dennis Rodman Naomi Campbell Warren Beatty Vanilla Ice Sandra BernhardSean Penn / SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI CHRONICLES OF NARNIA kl. 8 - 10 B.i. 7 ára SPEED RACER kl. 5:40 LEYFÐ PROM NIGHT kl. 8 B.i. 16 ára CHORNICLES OF NARNIA kl. 8 B.i. 7 ára HAROLD & KUMAR kl. 8 LEYFÐ NEVER BACK DOWN kl. 10:10 B.i. 14 ára CHRONICLES OF NARNIA kl. 8-10:50 B.i. 7 ára ZOHAN kl. 8 B.i. 10 ára THE INCREDIBLE HULK kl. 10:20 B.i. 12 ára ,,Biðin var þess virði” - J.I.S., film.is ,,Ljúfir endurfundir” - Þ.Þ., DV SÝND Í ÁLFABAKKA STELPURNAR ERU MÆTTAR Á HVÍTA TJALDIÐ SÝND Í KRINGLUNNI eeeee K.H. - DV eeee 24 stundir eee H.J. - MBL EDWARD NORTON ER HULK Í EINNI FLOTTUSTU HASARMYND SUMARSINS. eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL - Viggó, 24stundir SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍK - S.V., MBL eee SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 41 NÝR íslenskur einleikur, Kinkir– Skemmtikraftur að sunnan verður frumsýndur á föstudaginn í Herðu- breið á Egilsstöðum. Verkið er hug- arsmíð Benónýs Ægissonar, fjöl- listamanns og fjallar um Kinki Geir Ólafsson söngvara og mannkyns- fræðara sem á milli rómantískra kertaljósalaga er umhugað um að leiðrétta ranghugmyndir lands- byggðarfólks um póstnúmerið 101. Af augljósum ástæðum er Benóný spurður hvort fyrirmyndina að Kinki sé ekki að finna í krúner- söngvara Íslands, hinum eina og sanna Geir Ólafs en því neitar Ben- óný alfarið. Þráir að hitta allar landsbyggðarkonur „Það skaltu aldrei fá mig til að viðurkenna. Kinkir er frumgerðin sjálf en er að vísu krúner eins og Raggi Bjarna og fleiri og sver sig í ætt við þá. Hann myndi til dæmis aldrei troða upp í gallabuxum.“ Benóný segir að hugmyndin að einleiknum hafi flögrað um hann um nokkurt skeið en hann líti nú á sjálfan sig frekar eins og umboðs- mann söngvarans og nú sé hann einfaldlega að koma honum á fram- færi við landsbyggðina. „Þetta er blanda af einleik, uppistandi og tón- leikum og tekur um 70 mínútur í flutningi. Kinki flytur nýja slagara eftir mig en svo fá eldri perlur að fljóta með“. Önnur sýning á einleiknum verð- ur á Hótel Héraði á Egilsstöðum 28. júní en þá liggur leiðin til Ísafjarðar á einleikjahátíðina Act Alone. Ég hvet allar landsbyggðarkonur að taka vel á móti Kinki. Hann þráir mikið að hitta þær allar, segir Ben- óný að lokum. hoskuldur@mbl.is Kinkir? Annar listhneigður en öllu alræmdari maður kemur í hug. Kinkir Geir Ólafsson Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is HÁVÆR orðrómur er farinn á kreik um að hjónaband þeirra Madonnu og Guys Ritchies sé á enda. Götublaðið Daily Mirror, tímaritið Now og slúðurfréttamiðillinn BANG Showbiz hafa flutt fréttir þessa efnis og vitna í heimildamenn í innsta hring í lífi þeirra hjóna. Samkvæmt BANG hafa söngkonan og kvikmyndaleik- stjórinn ákveðið að enda sjö ára hjónaband sitt eftir að Madonna lýkur tónleikaferðalaginu Sticky and Sweet í nóvembermánuði. Heimildarmaður segir þau hafa „vaxið í sundur“ og að nóg sé komið, en að þau muni skilja í góðu. Það er auðvitað óskandi að ekkert sé til í fréttum af vand- ræðum þeirra Madonnu og Guys og allt í lukkunnar velts- andi hjá þeim hjónum. Hins vegar hefur það loðað við Madonnu að hún hefur átt frekar litríkt einkalíf. Búið spil hjá Madonnu og Guy? Reuters Allt búið? Leikstjórinn og poppsöngkonan munu vera að undirbúa skilnað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.