Morgunblaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 177. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Hópuppsögn Icelandair
Fastráðnum starfsmönnum Ice-
landair mun fækka um 240 í haust.
Þar af eru 138 flugfreyjur og 64 flug-
menn. Framkvæmdastjóri segir um
að ræða tímabundna ráðstöfun til að
styrkja fyrirtækið, bregðast verði
við breyttu rekstrarumhverfi. » 13
Farþegum mun fækka
Sökum aðhaldsaðgerða Icelandair
má búast við að farþegum, sem eiga
leið sína um flugstöðina í Keflavík,
fækki frá og með haustinu. » 2
Hart deilt á Mugabe
Öryggisráð SÞ gaf út ályktun á
mánudag þar sem ofbeldið í Sim-
babve er fordæmt. Utanríkis-
ráðherrar Norðurlandanna styðja
ályktunina, nauðsynlegt sé að stöðva
ofbeldisölduna. » 14
Eftirlit ekki á dagskrá
Ekki stendur til að setja mynda-
vélar á þilför íslenskra fiskiskipa til
að hafa eftirlit með brottkasti. Dæmi
um þess lags eftirlit þekkjast í Dan-
mörku. » 12
Vinnu ekki lokið
Störfum við Kárahnjúka er langt í
frá lokið. Um 700 manns verða þar
að störfum í sumar. Borunum er lok-
ið en unnið er við frágang og að fjar-
lægja vinnubúðir. » 8
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Playstation-kynslóðin
Staksteinar: Flugstoðir og Birnirnir
Forystugreinar: Harðnar á dalnum?
UMRÆÐAN»
Ég játa sekt mína
Að ljúga með þögninni
Vandi Grensásdeildar – vandi þjóð-
arinnar
$' ' '$ '! '!$
'!!
5 -6(
0 , -
7 " $% $'$
'!
' '$ '! '$$
/
83 (
$' ' ' $' '$
'$
9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(88=EA<
A:=(88=EA<
(FA(88=EA<
(4>((A%G=<A8>
H<B<A(8?H@A
(9=
@4=<
7@A7>(4,(>?<;<
Heitast 17° C | Kaldast 8° C
Fremur hæg norð-
austlæg átt eða breyti-
leg en norðaustan 5-8
m/s með suðurströnd-
inni. Víða bjart. » 10
Árni Matthíasson
segir síðasta fyrir-
lestur hins dauðvona
Randys Pausch alls
ekkert tilfinn-
ingaklám. » 40
BÓKMENNTIR»
Síðasti fyr-
irlesturinn
MYNDASÖGUR»
Arthúr er kominn úr
sumarfríinu. » 38
Hrekkjótt leynifélag
leikur spillta banka-
menn á kaffihúsum
og skylmist á götum
í miðborg Reykja-
víkur. » 39
LEIKLIST»
Spilling og
skylmingar
TÓNLIST»
Undirbúningur kominn
af stað í Laugardal. » 36
BÓKMENNTIR»
Nick Cave gefur út bók
byggða á lagi. » 37
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Hvolpurinn afhentur eiganda
2. „Hann sló mig í andlitið“
3. Reynt að drekkja konu á hátíð
4. Madonna að skilja
Íslenska krónan styrktist um 0,18%
YLFA Guðrún Svafarsdóttir keppir á Landsmóti hestamanna á Gadd-
staðaflötum í næstu viku en hún verður yngsti keppandinn þar, aðeins átta
ára gömul. Mun hún því etja kappi við sér mun eldri knapa. | 17
Átta ára stúlka keppir á landsmóti
Langyngsti keppandinn í ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
„MARGT fer um hugann þegar ég fæ símhringingu og
er beðinn að fara í Svínahraun til að breyta tölum á skilt-
inu þar. Margir eiga um sárt að binda eftir hvert bana-
slys, sem mörgum mætti þó afstýra. Reynslan sýnir okk-
ur að með umfjöllun, fræðslu og öflugu hraðaeftirliti
lögreglu fækkar slysum. Engin forvörn er betri,“ segir
Reynir Sveinsson, skiltagerðarmaður í Garðabæ.
Tuttugu ferðir fyrsta árið
Slysaskiltið, sem er rétt fyrir ofan svonefnda Drauga-
hlíðarbrekku, var sett upp 2001. Þá létust 19 í umferðinni
hér á landi, þar af sjö um sumarmánuðina þrjá. Á þess-
um tímapunkti líðandi árs hafa alls átta látist í umferð-
inni og Reynir var einmitt að breyta merkingum því til
samræmis þegar blaðamaður hitti hann í Svínahrauni.
„Árið 2002, fyrsta heila árið sem skiltið var uppi, fór ég
tuttugu ferðir í Svínahraun og þremur fleiri árið eftir.
Verst var árið 2006 en þá fórst 31, þar af sex í ágúst. Það
var erfiður tími, enda varð í kjölfarið ákveðin vitundar-
vakning meðal þjóðarinnar í umferðarmálum,“ segir
Reynir. Hann lætur senn af störfum sem umsjónar-
maður skiltisins. Telst svo til að á þeim sjö árum sem
hann hefur gegnt starfinu séu ferðir hans í Svínahraun
orðnar 118 talsins.
Reyni finnst mörgu vera ábótavant í umferðarmenn-
ingu landans.
„Ef ökumenn fylgdu settum reglum og ækju í sam-
ræmi við aðstæður myndi slysum fækka að mun,“ segir
Reynir sem starfaði allmörg ár í lögreglunni og síðar við
tryggingar. Hann þekkir umferðarmál því frá ýmsum
hliðum og telur starf Rannsóknarnefndar umferðarslysa
hafa skilað miklum árangri.
118 ferðir í Svínahraun
Reynir Sveinsson, sem haft hefur umsjón með slysaskiltinu við Draugahlíðar-
brekku síðustu sjö árin, segir að slysaárið 2006 hafi verið langverst
Ljósmynd/Sigurður Bogi
Ný tala „Með umfjöllun, fræðslu og
öflugu hraðaeftirliti lögreglu fækk-
ar slysum,“ segir Reynir Sveinsson.
ÞETTA sýnir enn og aftur að þessir
fiskar eru of verðmætir til að rota
þá,“ segir Jón Þór Júlíusson en
hann og faðir hans, Júlíus Jónsson,
veiddu sama laxinn.
Laxveiðin í Grímsá fór afar vel af
stað en opnunarhollið veiddi 18
laxa. Jón Þór veiddi meðal annars
82 cm langan hæng í Strengjunum
og setti plastmerki í fiskinn áður en
honum var sleppt.
„Sólarhring síðar var pabbi að
veiða við efsta Streng og setti í
þennan flotta lax og þegar hann
landaði honum og ætlaði að setja í
hann merki, þá brá honum við að
sjá merkið sem ég setti í hann dag-
inn áður,“ segir Jón Þór. | 9
Feðgar veiddu sama laxinn
með sólarhrings millibili
Tvítekinn Jón Þór Júlísson hampar laxinum er hann veiddist í fyrra skiptið.
STEFÁN Jóhannsson frjálsíþróttaþjálfari segir að
það sé engin tilviljun að Ásdís Hjálmsdóttir spjót-
kastari sé búin að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíu-
leikunum. Hún sé geysilega öguð, vinnusöm og hæfi-
leikarík. „Það skipti engu máli þótt hún færi í
uppskurð. Það var bara hvílst í tvo til þrjá daga og
svo var farið að æfa á nýjan leik,“ sagði Stefán við
Morgunblaðið.
„Þegar þeir opnuðu handlegginn á mér vissu þeir í
raun ekkert hvað var að. Það var bara giskað á það en
síðan sáu þeir hvers kyns var,“ sagði Ásdís Hjálms-
dóttir sem gekkst undir stóra aðgerð á olnboga í vet-
ur en náði samt þessum glæsilega árangri um síðustu
helgi. | Íþróttir
Hún er öguð og vinnusöm
Ásdís
Hjálmsdóttir