Morgunblaðið - 08.07.2008, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf
Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud-
laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Meistara-flokkssúpur
Masterklass
Nýjung
Girnileg nýjung – 2 í pakka.
Tilvalið í ferðalagið.
Tveir dagar til stefnu
Hjúkrunarfræðingar hafa fundað stíft með samninganefnd ríkisins og segja loks
komna hreyfingu á málin Ef ekki semst hefst yfirvinnubann á fimmtudaginn
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
„VIÐ erum að skoða nýjar hugmyndir núna sem
okkur sýnist að gæti verið ávinningur af fyrir báða
aðila og öllum líst vel á,“ segir Elsa B. Friðfinns-
dóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, en samningaviðræðum var slegið á frest í gær
eftir rúmar sex klukkustundir og þykir góðs viti hve
lengi var fundað.
Að sögn Elsu hafa viðræðurnar ávallt gengið vel
en það hafi ekki verið fyrr en í gær sem deiluaðilar
hafi fundið einhvern snertiflöt. „Við höfum svo sem
ekki undan neinu að kvarta í samningaferlinu, allir
hafa komið fram af miklum heilindum, en það er
fyrst núna sem við erum með eitthvað áþreifanlegt
á borðinu til að vinna með og það gefur vonir.“
Ætla má að yfirvofandi yfirvinnubann setji þrýst-
ing á deiluaðila. „Ég held að stjórnvöld sjái að það
er góð samstaða meðal hjúkrunarfræðinga og að
okkur er full alvara með þessu yfirvinnubanni. Svo
auðvitað geri ég ráð fyrir að það ýti á eftir báðum
aðilum, því það er öllum í hag að ná að semja í tíma,“
segir Elsa.
Fundi verður haldið áfram kl. 9.30 í dag og segist
Elsa bjartsýn. „Það er engin ástæða til annars, við
erum komin í ákveðinn farveg og ef ekkert óvænt
kemur upp á ætti þetta að ganga vel.“
LANDEIGENDUR á Bakka og Siglingastofnun hafa
hætt samningaviðræðum vegna landsins sem þarf undir
fyrirhugaða Landeyjahöfn í Bakkafjöru. Ekki tókst að ná
grundvelli til að semja og hefur málið því verið sent til
samgönguráðuneytis, sem fer með heimild til eignarnáms
á landinu samkvæmt lögum sem samþykkt voru á síðustu
dögum þings í vor en sækja þurfti sérstaklega um heim-
ildina á Bakka þar sem í hafnarlögum var ekki að finna
heimild fyrir eignarnámi vegna hafnar.
„Auðvitað vonar maður alltaf að samningar takist, en ef
það er alveg útséð um það munum við nýta okkur eign-
arnámsheimildina, til þess er hún fengin,“ segir Kristján
L. Möller samgönguráðherra. Þegar hefur verið samið
um grjótnám sem nýta á í sjóvarnargarða umhverfis
höfnina. Að sögn Kristjáns er framkvæmdin því komin á
góðan skrið og ekki hefur orðið töf þrátt fyrir að illa gangi
að semja við landeigendur. „Við erum búin að bjóða fram-
kvæmdina um Landeyjahöfn og veginn út og fengum góð
tilboð, eða um 60% af kostnaðaráætlun, svo það stendur
til að skrifa undir núna á næstu dögum.“ unas@mbl.is
Land undir Bakkafjöruhöfn
verður tekið eignarnámi
Samningar milli landeigenda
og Siglingastofnunar í strand
HÆSTIRÉTTUR úrskurðaði í gær
karlmann sem grunaður er um al-
varleg kynferðisbrot gagnvart sjö
stúlkubörnum í áframhaldandi
gæsluvarðhald þar til dómur fellur
í máli hans eða í mesta lagi til 13.
ágúst næstkomandi.
Gæsluvarðhaldi yfir manninum
átti að ljúka í gær, samkvæmt úr-
skurði Héraðsdóms Reykjaness frá
því á fimmtudag, en Hæstiréttur
felldi hann úr gildi. Maðurinn hefur
nú verið ákærður og mál hans verið
þingfest fyrir dómi. Sakarefnin eru
tilefni 22 ákæruliða.
Nægilega sterkur grunur
Maðurinn hefur setið í gæslu-
varðhaldi síðan 3. apríl þegar upp
komst um brot hans. Rannsókn
málsins hefur verið viðamikil en
stúlkurnar sjö sem honum er gefið
að sök að hafa brotið gegn eru
fæddar á tímabilinu 1994 til 1998,
þeirra á meðal er stjúpdóttir hans.
Í dómi Hæstaréttar segir að af
gögnum málsins sé nægilega fram
komið að sterkur grunur sé um að
maðurinn hafi framið þau brot
gegn stjúpdóttur sinni sem honum
eru gefin að sök í ákærunni. Þess
vegna skuli gæsluvarðhaldið fram-
lengt. Fyrst um sinn sat hann í
gæsluvarðhaldi vegna rannsókn-
arhagsmuna en nú vegna almanna-
hagsmuna. Héraðsdómur taldi skil-
yrði fyrir því ekki uppfyllt.
Ragnheiður Harðardóttir vara-
ríkissaksóknari flutti málið fyrir
hönd ákæruvaldsins en Oddgeir
Einarsson hdl. er verjandi manns-
ins. onundur@mbl.is
Ákærður og
varðhaldið
framlengt
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sem
var í æfingaflugi við mynni Hval-
fjarðar sótti í gærkvöldi mann sem
hafði ökklabrotnað í hlíðum Esj-
unnar.
Jeppabifreið var ekið utan í veg-
rið Ölfusárbrúar. Draga varð bif-
reiðina burt en engin meiðsl urðu á
fólki. Brúin var lokuð um tíma.
Innbrot á Suðurnesjum
Tvö innbrot voru tilkynnt lögregl-
unni á Suðurnesjum í gær. Brotist
var inn á vinnusvæði Nesprýði við
Vesturbraut og inn í vinnuskúr á
námusvæði við Stapafell.
Ökklabrotnaði
í Esjunni
TANKBÍLL frá G.G.-Flutningum valt um sex
metra ofan í skurð á vinnusvæði rétt við Vest-
urlandsveg við hlíðar Úlfarsfells í gær, skammt
frá nýbyggingum Bauhaus sem nú rísa.
Ökumaðurinn slapp ómeiddur og engan sak-
aði. Bíllinn var með vatn í tanknum og sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu var því engin
hætta á jarðvegsmengun eða annarri mengun
vegna slyssins.
Bíllinn var að keyra framhjá skurðinum þegar
vegbrún brast undan honum og því fór sem fór.
Tilkynning barst til lögreglu um klukkan 17.20
en að sögn varðstjóra var byrjað að vinna að því
að koma bílnum á réttan kjöl og ná honum upp
að ganga sjö í gærkvöldi.
Vegkantur hrundi undan tankbíl
„ÞAÐ er sorglegt að
þetta skuli þurfa að
enda með þessum
hætti, en við áttum svo
sem von á því,“ segir
Torfi Sigurðsson, lög-
maður landeigenda á
Bakka.
„Við höfum ýmislegt við
framkvæmdina að at-
huga og landeigendur
hefðu viljað fá að segja
meira um hvernig þessu
yrði háttað, þetta er nú
einu sinni þeirra land.
En fyrst að valið er að
fara með þetta í eign-
arnám þá þurfa þeir að
sæta ákveðinni nið-
urstöðu og þiggja bætur
fyrir hana.“ Torfi segir
þó að eignarnámið sé
ekki endilega slæm nið-
urstaða fyrir landeig-
endur fjárhagslega,
þeim hafi verið boðnar
svo lágar upphæðir í
samningaviðræðum að
það geti verið allt eins
gott að fá metnar
skaðabætur. „En þetta
snýst ekki bara um pen-
ingana, heldur að fram-
kvæmdin sé sem hag-
kvæmust fyrir þau sem
landeigendur.“
Torfi segir þó enn ekki
loku fyrir það skotið að
samkomulag náist, af
hálfu landeigenda.
Sorglegt að þetta sé niðurstaðan
Hvað felst í yfirvinnubanni?
Frá og með 10. júlí munu hjúkrunarfræðingar
einungis skila vinnuframlagi í samræmi við um-
samið starfshlutfall. Meðalstarfshlutfallið er
77% og flestir vinna mikla yfirvinnu.
Hvenær var yfirvinnubann ákveðið?
Meðlimir FÍH kusu um miðjan júní og var boðað
til bannsins hinn 25. júní með 95% stuðningi.
S&S