Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Mér er minnisstætt þegarflautuleikarinn snjalliJames Galway kom hing- að til lands til að leika á listahátíð fyrir nokkrum árum og blaðakona af Morgunblaðinu fór spennt til að taka við hann viðtal. Hún sneri aftur úr því viðtali miður sín yfir því hver mikill dóni Galway hefði verið, frekur og afundinn, snúið út úr öllu og ef hann svaraði ekki með svívirðingum þá svaraði hann út í hött.    Hún varð svo vitni að því aðþegar sjónvarpsmenn mættu með sínar upptökugræjur birti yf- ir honum, heillandi brosið braust fram og hann skrúfaði frá sjarm- anum. Af hverju, spyr kannski ein- hver, en það gefur augaleið: Galway vissi að blaðamaðurinn myndi gera hið besta úr textanum en sjónvarpsvélarnar myndu sýna hann eins og hann er og því kaus hann að vera annar.    Ekki er þó bara að stjarnansem maður hefur mænt á úr fjarska getur verið óuppdreginn dóni, heldur getur líka komið í ljós að snilligáfa á einu sviði hefur úti- lokað gáfur á öðrum sviðum. Dæmi um það er rithöfundurinn mikli Victor Hugo (1802-1885), höfundur Vesalinganna og Mar- íukirkjunnar í París (Notre-Dame de Paris). Ég hef séð þá samantekt að hann hafi skrifað tíu milljón orð, 10.000.000 orð (orðið sem þú varst að lesa (orð) var 217. orð þessarar greinar, fyrirsögn ekki meðtalin – margfaldaðu með 46.083).    Þessi afkastamikli maður vareinn helsti andans jöfur Frakka á sinni tíð, eða í það minnsta þar til hann opnaði munn- inn, því samtímamenn hans eru á einu máli um að hann hafi ekki bara verið illa máli farinn, heldur var hann líka grunnhygginn í samræðum, nískur og eigingjarn, smámunasamur tækisfærissinni.    Hugo og Galway eru dæmi-gerðir fyrir listamennina sem við viljum ekki hitta en eins getur verið óviðkunnanlegt að hitta mis-lubbalega lúða, illa til hafða, órakað og illa lyktandi. Mér fannst það því frábærlega til fund- ið þegar leikari mætti til að lesa upp úr nýrri bók rithöfundar (nú- lifandi og við góða heilsu) síðasta haust og mín tillaga er sú að menn geri miklu meira af því, þ.e. að fá leikara til að leika rithöfunda. Það myndi til að mynda gefa krassandi sakamálasögu meiri vigt ef Ingvar E. Sigurðsson myndi mæta á blaðamannafundi með sína yggli- brún, nú eða ef Margrét Vil- hjálmsdóttir myndi kynna sig sem höfund erótískrar ættarsögu.    Þessa hugmynd má síðan þróaáfram og fá leikara í hverju landi þar sem bókin er gefin út til að leika rithöfundinn. Ég sé í anda spænska blaðamenn taka andköf af hrifningu þegar „Arnaldur Indriðason“ svarar spurningum þeirra á reiprennandi spænsku, þegar „Einar Már Guðmundsson“ les upp úr Englum alheimsins á tærri frönsku eða „Kristín Marja“ formælir karlaveldinu á lýtalausri rússnesku. Þó að það kosti vissu- lega sitt að ráða góða leikara sparast vitanlega mikið fé í flug- fargjöldum og gistingu (míníb- arirnir!).    Svo geta menn alltaf gert þaðsama og ég mun gera næst þegar sendur er leikari að lesa upp fyrir rithöfund – senda leik- ara til að hlusta. arnim@mbl.is Höfundurinn sem óuppdreginn dóni AF LISTUM Árni Matthíasson »Ég sé í anda blaða-menn taka andköf af hrifningu þegar „Arn- aldur Indriðason“ svar- ar spurningum þeirra á reiprennandi spænsku. Dóni James Galway kann ekki að koma fram við blaða- konur Morgunblaðsins af eðlilegri smekkvísi. Nískur Victor Hugo var ekki vinsæll meðal franskra samtíðarmanna sinna, þótt bækurnar hans væru það. / ÁLFABAKKA KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 4D - 6D LEYFÐ DIGITAL KUNG FU PANDA M/ENS. TALI kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ HANCOCK kl. 4 - 6 - 8D - 10:10D B.i. 12 ára DIGITAL HANCOCK kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára LÚXUS VIP WANTED kl. 5:30 - 8 - 10:20 - 10:40 B.i. 16 ára CHRONICLES OF NARNIA kl. 5 - 8 B.i. 7 ára INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára WANTED kl. 8:30D - 10:50D B.i. 16 ára DIGITAL KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 6:30D LEYFÐ DIGITAL CHRONICLES OF NARNIA kl. 6D B.i. 7 ára DIGITAL SEX AND THE CITY kl. 6 - 9 B.i. 14 ára THE BANK JOB kl. 9 - 11:10 B.i. 16 ára / KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, SELFOSSI OG KEFLAVÍK FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI JACK BLACK SANNAR AF HVERJU HANN ERTALINN EINN AF FYNDNUSTU GRÍNLEIKURUNUM Í HEIMINUM Í DAG. HEITASTA BÍÓMYNDIN Í SUMAR ER KOMIN! SVALASTA BÍÓMYND SÍÐAN THE MATRIX VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG ,,Mörg hasaratriðin eru afar vel útfærð og leynast inn á milli góð gamanatriði...” - V.J.V., topp5.is/Fréttablaðið eee ,,Brjálaður hasar, brútal ofbeldi, skemmtilegir leikarar og góður húmor. Þarf meira?” - Tommi, kvikmyndir.is eee AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI, ÁLFABAKKA, SÝND Í ÁLFABAKKA ,,Ljúfir endurfundir” - Þ.Þ., DV SÝND Í KRINGLUNNI eeeee K.H. - DV eeee 24 stundir eee H.J. - MBL STELPURN Falleg og sjarmerandi 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í 7 íbúða húsi á ein- stökum stað í gamla vesturbænum. Íbúðin skiptist í flísalagðan gang, eld- hús með fallegri eldri innréttingu og borðkrók, (nýlegar borðplötur og eldavél), 2 rúmgóð herbergi og stofu. Endurnýjað flísalagt baðherbergi Parket á gólfum. Tvöfalt verksmiðjugler. Sérlega falleg og björt íbúð. Verð 24,9 m. Íbúðin verður sýnd milli kl. 18-19 í dag. Allir velkomnir. Ljósvallagata 8 Opið hús EINS og bent er á í pistlinum hér að ofan þá borgar sig ekki að treysta því að eftirlætislistamennirnir þínir séu sérstaklega vinalegir í eigin persónu. Því fékk Miad Jarbou að finna á eigin fési fyrir tæpum tveimur árum þegar hann deildi klósettskálaröð með rapparanum Em- inem og lífverði hans á skemmtistað einum. Vinur Jarbou heilsaði Eminem og þegar lífvörðurinn bað hann að láta stjörnuna í friði þá svaraði Jarbou því til að þeir væru ekki að stofna til illinda, það væri bara svalt að hitta Eminem. Að svo búnu steig Eminem fram og „rak hnefa sinn á ofbeldisfullan hátt“ í andlit Jarbou. Orðin innan gæsalappa eru úr stefnu ákæruvaldsins á hendur rapparanum (á ensku eru þau „drove his fist in a violent punching manner“, orðalag sem hlýtur að teljast glæpur gegn enskri tungu) sem loks nú, tveimur árum síðar, er lögð fram á hendur rapparanum, sem gæti loks þurft að taka út refsingu fyrir höggið ef saga Jarbou reynist sönn. Ekki kom þó fram hvort Eminem hafi verið búinn að þvo sér um hendurnar. asgeirhi@mbl.is Eminem ákærður Ofbeldisfullur? Eminem kemst í kast við lögin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.