Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 28
GLÖGGIR lesendur Morgunblaðsins hafa ef til vill tekið eftir því, við lestur greinar um myndlistarsýninguna Listamenn á barmi einhvers II í Kling- &Bang galleríinu, sem birtist 4. júlí sl., að á mynd með greininni var einn myndlistarmannanna sem að sýning- unni standa ekki hann sjálfur. Nei, þarna var stytta á ferð, nákvæm eft- irmynd Erlings T.V. Klingenberg, en með honum lifandi listamenn, þeir Ás- mundur Ásmundsson og Magnús Sig- urðarson. Svo raunveruleg er styttan að blaðamaður hélt þar Erling sjálfan á ferð. Ekki nóg með að styttan rugli aðra í ríminu heldur einnig fyrirmynd- ina, höfundinn sjálfan. Erling bað styttuna að rétta sér hallamál á dög- unum og e.t.v. er það í fyrsta sinn í listasögunni sem listamaður ruglast á sjálfsmynd og annarri manneskju. Blaðamaður sló á þráðinn til Klingen- berg og spurði hann, í ljósi frétta af því að höfuð á styttu af Adolfi Hitler hefði verið snúið af búknum í vaxmyndasafni í Berlín, hvort nokkur hefði ráðist á Klingenberg-styttuna og snúið af henni höfuðið. Erling hló og sagði svo ekki vera, a.m.k. ekki enn. Hann hafi klippt fréttina út. Rándýr og flókin stytta Það er enginn hægðarleikur að búa til slíka styttu og naut Erling aðstoðar Ernst Bachmann við það, en hann gerði stytturnar fyrir sögusafnið í Perlunni. „Ég var með innilok- unarkennd,“ segir Erling um ferlið en hann þurfti að standa og benda í dá- góðan tíma á meðan Ernst tók af hon- um sérstök plastmót sem styttan var síðan steypt í með sílikoni. Sílikonið var svo málað og hvert hár stungið sér- staklega í, skeggrót og allt heila klabb- ið. Erling segir efnin sem notuð eru í styttugerðina rándýr og auk þess liggi mánaðavinna að baki. Styttur Ernst séu jafnvel betri en þær sem sjá má á Madame Tussauds söfnunum. „Ég er kominn á hausinn,“ segir Erling kím- inn þegar hann er spurður út í kostn- aðinn. Styttan er til sölu, hafi einhver áhuga á því að hafa Klingenberg í stof- unni heima hjá sér. helgisnaer@mbl.is Höfuðið enn á Klingenberg  Styttan af Erling Klingenberg er jafnvel betri en fyrirmyndin  Enginn hefur ráðist á styttuna ennþá, ólíkt styttunni af Hitler Klingenberg Styttan horfir fram yfir brúnina og bendir. Að neðan má sjá vaxmyndina umdeildu af Adolf Hitler. Hann lét það ekki á sig fá þótt hann hefði spilað með opna buxnaklauf … 33 » reykjavíkreykjavík  Eric Brevig leikstjóri Journey to the Center of the Earth 3D segir í viðtali við kvikmyndavefsíð- una com- ingsoon.net að Anita Briem hafi verið sannkallaður happafundur. Brevig hafði lengi leitað að leik- konu sem gæti talað með íslensk- um hreim en þegar Anita Briem mætti í prufu fyrir myndina hafi hann um leið vitað að hún væri hin rétta í hlutverkið. „Frábært, þá er það afgreitt,“ sagði Brevig við sjálfan sig og taldi að þar með væri málið afgreitt, en svo var þó ekki. Töluverðan tíma tók að sannfæra kvikmyndaverið um að Anita væri heppileg í hlutverkið, en prufusýningarnar fyrir mynd- ina hafi sannfært hann og fram- leiðendurna um að Anita væri hin eina rétta. „Í hvert skipti sem við spurðum áhorfendur hver væri þeirra uppáhaldspersóna sögðu allar stelpurnar „Hannah (Anita) … og sömu sögu var að segja um strákana.“ Íslenski hreimurinn bjargaði Anitu  Hnakkavöðvarnir í Merzedes Club héldu söngprufur fyrir lausa stöðu bakraddasöngkonu á Tungl- inu á laugardag og þrátt fyrir að um mikla ferðahelgi hafi verið um að ræða mættu um 30 söngkonur í prufuna. Af frétt Fbl. að dæma má leiða að því líkum að Margrét Edda Jónsdóttir verði fyrir valinu en Morgunblaðið ræddi einmitt við Margréti Eddu í apríl sl. eftir að hafa komist á snoðir um af- burðasönghæfileika stúlkunnar. Þá var öllum ljóst að Margrét ætti eftir að ná langt á söngsviðinu og stutt í að eitthvert plötufyrirtækjanna myndi gefa út með henni plötu inn- an tíðar. Við bíðum enn átekta. Gæfulegt hliðarspor? Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is „ÞETTA verður rosalegt prógramm. Ég hef sjaldan séð það eins knappt,“ segir Björn Thor- oddsen um tónleikaferð sína um austurhéruð Kanada. Blaðamaður náði tali af Birni í gær þar sem hann var að ganga frá föggum sínum fyrir ferðalagið. Framundan er reisa frá St. Johns til bæjanna Gander, Corner Brook og Margarets- ville, svo til Halifax og loks aftur til St. Johns. Heitur djass á köldum slóðum Björn segir Kanadamenn góðu vana þegar kemur að djassi. „Staðan á djassinum þarna er mjög góð og hár standard á þeim stöðum þar sem ég hef verið,“ segir hann en Björn hefur síð- ustu ár verið duglegur að spila á Manitoba- svæðinu og í Toronto með hljómsveit sinni Cold Front. „Hljómsveitin er skipuð Kanadamönnum fyrir utan einn Íslending sem fær að ráða ansi miklu,“ gantast hann. En félagar Björns úr Cold Front verða fjarri góðu gamni að þessu sinni. „Ég spila dúett með gítarleikaranum Duane Andrews og leik með hljómsveit sem hann er tengdur,“ segir Björn sem einnig heldur einleikstónleika og námskeið um gítarleik. Í eina sæng með Bjögga Halldórs En Björn fær ekki að sitja á rassinum þegar hann snýr til baka úr Kanadaförinni. Djasshátíð verður í Reykjavík í lok ágúst. „Þangað hef ég fengið einn fremsta gítarleikara Japana, Kazumi Watanabe, og svo Philip Chatharine sem nýlega var valinn djasstónlistarmaður Evrópu. Þessum gæjum ætla ég að flagga á hinu árlega gít- arsjói,“ segir Björn. Annað spennandi verkefni er samstarf Björns og Björgvins Halldórssonar. „Við förum að hljóðrita strax og ég kem aftur heim,“ segir Björn og játar það á sig að ætla að djassa Björg- vin svolítið upp. „Við leikum okkur með músík frá 1940-50. Við erum báðir miklir aðdáendur Django Reinhardt og gömlu músíkantanna og ætlum að föndra á því sviði,“ bætir Björn við og ljóstrar upp að vonir standi til að afrakstur sam- starfsins verði klár fyrir jólin. „Rosalegt prógramm“  Björn Thoroddsen í tónleikaferð um A-Kanada  Vinnur að diski með Bó Morgunblaðið/Valdís Thor Ferðbúinn Björn þarf ekki meira en eina tösku af fötum til skiptana og svo auðvitað gítarinn góða. 01     ( 4 /5 2 3 4 # 4 5 , $ 6 $ # $ #06 "#$ %&' (  ' 7      0 7 &8  www.bjornthoroddsen.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.