Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KARÓLÍNA AÐALBJÖRG JAKOBSDÓTTIR frá Kollavík, Þistilfirði, lést föstudaginn 27. júní á dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn. Útförin fer fram frá Svalbarðskirkju fimmtudaginn 10. júlí kl. 14.00. Kristjana Vilborg Ketilsdóttir, Skarphéðinn J. Olgeirsson, Jakobína Björg Ketilsdóttir, Hreinn Geirsson, Jón Ketilsson, Jakobína Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, BRYNHILDUR JÓNSDÓTTIR garðyrkjukona, lést sunnudaginn 6. júlí á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði. Björk Snorradóttir, Steingrímur E. Snorrason, Snorri P. Snorrason, Kristján Snorrason. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BEN ÞORBJÖRNSSON vélvirki, Pósthússtræti 1, Keflavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 4. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 10. júlí kl. 14.00 Maja Sigurgeirsdóttir, Ásta Ben Sigurðardóttir, Erlingur Bjarnason, María Ben Erlingsdóttir, Eyjólfur Ben Erlingsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, SIGRÍÐUR EGILSDÓTTIR, Austurbyggð 17, Akureyri, lést fimmtudaginn 3. júlí. Útför hennar verður auglýst síðar. Sigþór Bjarnason, Ingibjörg Bjarnadóttir, Egill Bjarnason, Þórdís Bjarnadóttir, Sigurður Bjarnason. ✝ Elskulegur sonur okkar og bróðir, ANDRI MEYVANTSSON, lést að morgni sunnudagsins 6. júlí. Þórunn Ólafsdóttir, Meyvant Einarsson, Sindri Meyvantsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, MAGNÚS G. JENSSON, Klukkurima 5, Reykjavík, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 6. júlí. Kristín G. H. Sveinbjörnsdóttir, börn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hilmar ÞórBjörnsson fædd- ist á Ísafirði 1. apríl 1929. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi laugardaginn 28. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Björn Eyjólfsson, f. 3. nóvember 1888, d. 31. maí 1951, og Ingibjörg Guð- mundsdóttir, f. 3. apríl 1895, d. 14. mars 1979. Hálf- systkini Hilmars samfeðra eru: Elsa Sigurgeirsdóttir, f. 29.6. 1932, d. 31.8. 1987, Thelma Sig- urgeirsdóttir, f. 5.4. 1934, Sig- urgeir V. Sigurgeirsson, f. 30.7. 1942, Halldór Sigurgeirsson, f. 26.9. 1948. Hilmar Þór kvæntist 1. janúar 1953 Sigurveigu Magnúsdóttur, f. 13. júlí 1928, d. 7. júní 1998. Hilm- ar og Sigurveig eignuðust þrjá syni, þeir eru: 1) Magnús Þór, f. 9. ágúst 1950. Börn hans eru: Ólafur Þór, f. 21. april 1970, Erling Örn, f. 30. apríl 1971, Gunnar Már, f. 30. apríl 1971 og Sigurveig, f. 8. janúar 1981. 2) Björn Ingþór, f. 19. desember 1953, kvæntur Birnu Katrínu Ragnarsdóttur, f. 15. ágúst 1961 börn þeirra eru Ragnar, f. 2. september 1990 og Daði, f. 2. október 1995. Börn Björns eru: Hilmar Þór, f. 18. des- ember 1976, Pálmar Geir, f. 22. mars 1980 og Gunnar Ingi, f. 26. desember 1981. 3) Hilmar Þór, f. 16. júlí 1960, kvæntur Þórunni Arinbjarnardóttur, f. 19. október 1965, sonur Hilmars og Þórunnar er Ar- inbjörn Kristján, f. 6. maí 1995. Dóttir Hilmars er Edda, f. 18. ágúst 1986. Hilmar Þór ólst upp í Hafnarfirði. Hann lauk gagn- fræðaprófi frá Flensborgarskól- anum í Hafnarfirði, síðan lá leið hans í Stýrimannaskólann í Reykjavík, og útskrifaðist þaðan sem stýrimaður. Hann stundaði sjómennsku í nokkur ár, bæði á togurum og við síldveiðar. Hilmar tók síðar við bifreiðarekstri föður síns sem hafði rekið Bifreiðastöð Hafnarfjarðar. Árið 1967 stofnaði Hilmar Þór verktakafyrirtækið Fjarðarvélar, sem hann rak og stjórnaði í nokkur ár. Árið 1973 stofnaði Hilmar Þór ásamt öðrum útgerðarfélagið Portland, sem gerði út skuttogarann Otur HF5 og var framkvæmdastjóri þess. Hilmar Þór var félagi í Odd- fellowreglunni í um 40 ár. Útför Hilmars Þórs verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Í dag kveðjum við Hilmar í hinsta sinn, hans verður sárt saknað. Hilmar var einstaklega ljúfur og góður maður og mikið snyrtimenni. Það var mjög gott að heimsækja Hilmar, settumst niður og fengum okkur kaffi og það var rabbað um daginn og veginn. Og á jóladag var jólaboð hjá honum þar sem öll fjöl- skyldan hittist og gaman að sjá hvað hún stækkaði með hverju árinu sem leið. Sumarið 2004 ákváðum við að fara í sumarfrí til Benidorm og hringdum í Hilmar og vorum eitt- hvað að tala um að við værum að fara til Spánar, hann varð svo spenntur að hann skellti sér bara með okkur. Þar kynntist Arinbjörn afa sínum miklu nánar, var með honum þar í tvær góðar vikur. Við nutum þess að labba um í sólinni, röltum um í bænum eftir matinn, þetta var mjög notaleg ferð. Hilmar hafði ekki komið til Spánar síðan Otur var smíðaður þar 1973, þá hrönnuðust upp gamlar minningar þaðan, sem hann hafði gaman af að segja okkur frá. Við áttum margar góðar stundir saman, bæði hér í bænum og í Skorradalnum, þar sem hann var með sumarbústað. Arinbjörn var bara lítið kornabarn þegar hann fór í sína fyrstu ferð þangað. Þegar hann varð eldri fékk hann að veiða í vatninu og fara út á bátinn hans afa Hilmars. Á seinni árum fannst mér Hilmar hafa meira og meira gaman að því að rifja upp gamla tíma, sög- ur frá því þegar hann var strákur og ungur maður í Hafnarfirði. Hann sagði okkur margar skemmtilegar sögur frá þeim tíma, og ekki má gleyma að sjómennskan fyrr og nú bar oft á góma, og skoðaðar gamlar togaramyndir (tóbaksmyndirnar). Hilmar ljómaði allur þegar gamli tíminn var ræddur, og bersýnilega honum mjög kær. Þetta eru minningar sem við munum aldrei gleyma, og komum til með að rifja upp um ókomna tíð. Hilmar mun alltaf eiga sinn stað í hjörtum okkar, og það er ekki sjálf- gefið að hafa átt svona góðan afa og tengdaföður. Viljum við þakka Hilmari fyrir allt og allt. Þórunn og Arinbjörn Kristján. Það var fallegur og sólbjartur laugardagsmorgun, þegar tengda- faðir minn fékk hvíldina, eftir stutt en erfið veikindi. Það er erfitt að horfa upp á og sjá hvað þú þjáðist og ekkert hægt að gera, en aldrei kvartaðir þú heldur barðist hetju- lega fram á síðasta dag. Það koma margar minningar upp í hugann á stundum sem þessum. Ég kynntist þeim sómahjónum Hilmari og Sísí fyrir um 20 árum, Hilmar Þór Björnsson ✝ Hilmar Jóhann-esson fæddist 29. september 1934 á Akureyri. Hilmar lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 24. júní 2008. Foreldrar hans voru Snjólaug Jó- hannsdóttir og Jó- hannes Guðjónsson. Bræður hans eru Erlingur Guð- mundsson og Svav- ar Jóhannesson. Fyrri kona: Sigurlína Axels- dóttir, f. 11.2.1941 - d. 23. 11. 1975. Synir þeirra: 1) Jóhann Grundtvig, f. 1961, kvæntur Anne Irmeli Turunen. Börn þeirra: Íris Anna Linnea og Markús Hilmar. 2) Haukur, f. 1963. Dætur hans: Berglind og Katrín. Seinni kona: Hrafnhildur Jak- obína Grímsdóttir, f. 3.2. 1937. Hilmar lærði raf- eindavirkjun og vann við það alla tíð. Hann flutti árið 1961 til Ólafs- fjarðar og rak þar verkstæði til dauðadags. Hilmar var mikill félagsmálamaður og lét mikið að sér kveða á þeim vett- vangi. Hann var í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar frá árinu 1962, var stofnfélagi í Golfklúbbi Ólafs- fjarðar og starfaði í áratugi í Norræna félaginu í Ólafsfirði. Hilmar lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 24. júní 2008. Útför hans fer fram frá Ólafs- fjarðarkirkju í dag kl. 14. Elsku Hilmar afi, það voru sorgarfréttir sem okk- ur systkinunum bárust aðfaranótt þriðjudagsins 24. júní. Síðan þá höfum við hugsað mikið um þig. Þegar við vorum pínulítil var það fastur hluti á hverju sumri að heimsækja þig og ömmu á Ólafs- firði. Þrátt fyrir að þar hafi oft verið þröngt á þingi þá var þar ávallt glatt á hjalla. Það var ekki síst þín vegna sem við hlökkuðum alltaf til þess að fara norður. Þú varst alltaf í góðu skapi og það var ekki hægt annað en að smitast af gleði þinni. Það er erfitt að hugsa til þess að næst þegar við förum norður þá verður þú ekki þar, far- inn frá okkur alltof snemma. Við viljum þakka þér fyrir að hafa verið svona mikilvægur hluti af lífi okkar. Við viljum þakka þér fyrir að hafa veitt okkur svona margar góðar minningar. Við vilj- um þakka þér fyrir að hafa verið svona góður maður. Við munum ávallt muna eftir þér, Hilmar afi. Helgi Már, Sigrún og Þórir Hrafn. Óvæntar fregnir af skyndilegu fráfalli fólks fá menn til að leiða hugann að „dauðans óvissa tíma“ eins og sálmaskáldið okkar, Hall- grímur Pétursson, komst að orði. Þetta á ekki síst við þegar lífs- glaður og að því er virtist heil- brigður maður, eins og Hilmar Jó- hannesson, vinur minn, kveður svo snöggt sem raun ber vitni, maður sem virtist eiga eftir að njóta lífs- ins á sinn einstæða hátt í mörg ókomin ár. Mig langar til þess að minnast hans með nokkrum orð- um. Við Hilmar kynntumst fyrst þegar ég kom heim í Ólafsfjörð frá námi og vann þar í nokkur ár. Ég var þá m.a. formaður fræðsluráðs. Stjórnandi gagnfræðaskólans, Kristinn G. Jóhannsson, og fræðsluráð beittu sér fyrir ýmsum nýjungum í skólamálum. Þar á meðal var nemendum gefinn kost- ur á að sækja skipulega verklega fræðslu á verkstæði sem þá voru starfrækt í bænum, t.d. bifvéla- verkstæði, netaverkstæði, radíó- verkstæði o.s.frv. Hilmar tók að sér að leiðbeina þessum ungu nem- endum á síðastnefnda sviðinu. Ég minnist viðræðna sem við áttum um þessa starfsemi og hve hann tók þessu jákvætt og lagði sig fram um að miðla nemendunum af mikilli þekkingu sinni og reynslu á sviði rafeindatækni. Hann var þá tiltölulega nýfluttur til Ólafsfjarð- ar og annaðist þá þegar viðhald á radartækjum, fisksjám, talstöðvum o.s.frv. fyrir bátaflotann. Þetta var auðvitað ómetanlegt fyrir sjávar- pláss sem var í framþróun og ör- um vexti á þeim árum. Hilmar var þar réttur maður á réttum stað eins og mig minnir að ég hafi sagt við hann, þegar við ræddum sam- an. Atvikin höguðu því þannig mörgum árum síðar að Hilmar kvæntist frænku minni Hrafnhildi Grímsdóttur, en við erum systk- inabörn, móðir hennar Guðrún og faðir minn, Jón Ellert voru systk- ini. Þau Hrafnhildur og Hilmar höfðu bæði misst maka sína, kynntust og gengu í hjónaband. Ég kynntist þá Hilmari innan fjöl- skyldunnar og er skemmst frá því að segja að þau samskipti gátu vart verið ljúfari. Við systkinin Guðrún og Þórleifur minnumst þess að við komum alltaf á árum áður í boð á jóladag til Gunnu frænku og Gríms á Brekkugötu 19, foreldra Hrafnhildar. Sama alúðin einkenndi heimsóknir til Hrafn- hildar og Hilmars á Brekkugötuna síðar þótt vík væri milli vina eftir að við bræður fluttumst suður. Okkur Rúnu eru minnisstæðastar tvær ferðir sem við fórum með þeim Hilmari og Hrafnhildi og fleiri vinum úr Ólafsfirði „austur fyrir tjald“ til Rússlands, Póllands, Hilmar Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.