Morgunblaðið - 08.07.2008, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÉG VAR mjög nálægt því að klára í fyrra en það
hafðist ekki, straumharkan var mjög mikil,“ segir
Benedikt Hjartarson, 51 árs sundkappi, en hann
kallar ekki allt ömmu sína. Hann hyggst nú reyna í
annað sinn það sem engum Íslendingi hefur tekist
til þessa, að synda yfir Ermarsundið.
Ef veður og sjólag leyfir og allt gengur að óskum
ætti Benedikt að leggja af stað frá nágrenni Dover
á Englandi hinn 13. eða 14. júlí og ætti sundið að
taka 13-15 klukkustundir. Er stefnan sett á Calais í
Frakklandi. Benedikt fór á fimmtugsafmæli sínu í
fyrrasumar en þurfti frá að hverfa. „Það hefur sótt
á mig alla tíð síðan. Ég hef æft 6 daga í viku í allan
vetur, oft allt upp í 3 æfingar á dag,“ segir Bene-
dikt.
Undirbúningsferlið skiptist í þrennt hjá honum,
sund- og tækniæfingar, úthaldsæfingar og kulda-
þolsæfingar. Hann hefur lengt sundtökin sjálf,
fækkað sundtökum til þess að auka rennslið og
sparar þannig orku. „Ég fór of hratt af stað í fyrra
og þess vegna ætla ég að fara rólegar af stað núna
til að eiga meira inni þegar líður á seinni hluta
sundsins,“ segir Benedikt.
Það er margt sem þarf að huga að meðan á sund-
inu stendur. Marglyttur eru í sjónum sem geta
stungið og valdið bráðu ofnæmi, menn hafa lent í
erfiðleikum með að kasta af sér vatni þar sem
óhreinindi hafa safnast saman í þvagrás og sjórinn
er nokkuð kaldur eða á bilinu 10-15 gráður. Sund-
maðurinn getur ekkert hvílst meðan á sundinu
stendur og því eru bara tveir valkostir í stöðunni, að
harka af sér og ljúka sundinu eða hætta.
Benedikt kemur til með að brenna gífurlega
mörgum hitaeiningum og því þarf hann að innbyrða
15.000 kaloríur úr þar til gerðum brúsa meðan á
sundinu stendur, en meðalmaðurinn þarf u.þ.b 2.000
kaloríur á dag alla jafna. Íslenska landsliðið í boð-
sundi mun einnig reyna við Ermarsundið og leggur
hópurinn af stað 15. eða 16. júlí. Í liðinu er valinn
hópur reyndra sundmanna úr Sundfélagi Hafnar-
fjarðar.
„Ermarsundið er ein af stóru ögrununum í heim-
inum sem afreksmenn vilja ná,“ segir Ingþór
Bjarnason, fararstjóri hópsins. Hægt verður að
fylgjast með á heimasíðunni www.ermarsund.com
Hreystimenni reynir
aftur við Ermarsund
Fimmtugur og fær í flestan sjó Var nálægt því í fyrra
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jaxl Benedikt stefnir á að klára sundið á 13-15 klukkustundum. Hann hefur verið við stífar æfingar í vetur.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ALECKSEY Mosquera, orkumála-
ráðherra Ekvadors, og Össur Skarp-
héðinsson iðnaðarráðherra áttu í
gær fund í iðnaðarráðuneytinu um
hugsanlegt samstarf ríkjanna á sviði
jarðhita.
Össur segir að miklir möguleikar
séu á samstarfi á sviði jarðhita milli
íslenskra útrásarfyrirtækja og ríkja
í Suður-Ameríku. Íslensk stjórnvöld
telji fjögur ríki, Mexíkó, Níkaragva,
Ekvador og Chile, skipta mestu máli
og séu æskilegust vegna pólitísks
stöðugleika, innviða og gæða jarð-
hita í viðkomandi ríkjum.
Össur segir að hlutverk ráðuneyt-
isins sé aðeins að ryðja brautina fyr-
ir íslensk einkafyrirtæki. Sá mögu-
leiki sé líka fyrir hendi að Íslend-
ingar komi í gegnum Þróunarsam-
vinnustofnun að því að fjármagna
einhvers konar frumrannsóknir til
að hægt sé að halda áfram. Hins
vegar sé það útrásarfyrirtækjanna
að sjá í þessu viðskiptatækifæri.
„Hugsunin er sú að allri hagnist, að
ávinningurinn sé marghliða,“ segir
Össur.
Verkefni til fimm ára
„Við höfum peningana og orkuna
en þið kunnáttuna til að virkja hana
og það viljum við nýta okkur,“ segir
Alecksey Mosquera um ástæðu Ís-
landsdvalar þessa vikuna.
Alecksey Mosquera segir að sex
jarðhitasvæði séu í Ekvador. Heima-
menn viti ekki hvort hagkvæmt sé
að nýta jarðhitann á þeim öllum, hafi
ekki nauðsynlega þekkingu til að
komast að því og vilji því samstarf
við Íslendinga um rannsóknir og
byggingu hugsanlegra gufuafls-
virkjana. „Íslendingar hafa mesta
þekkingu á sviði jarðhita í heim-
inum,“ segir hann. Mosquera bætir
við að gert sé ráð fyrir að kostnaður
vegna rannsókna á fjórum svæðum
verði um 5,7 milljónir dollara. Pen-
ingarnir séu til en þekkinguna vanti.
Í fyrra var ákveðið að ráðast í þró-
unarverkefni í Níkaragva til að
styðja við þekkingu og þjálfun á veg-
um ráðuneyta orku- og umhverf-
ismála. Verkefnið er til fimm ára og
veita einkum vísindamenn frá Ís-
lenskum orkurannsóknum sér-
fræðiþekkinguna. Alecksey Mos-
quera horfir til þessa samnings og
sér fyrir sér að unnið verði á svip-
uðum nótum í Ekvador en málið ætti
að skýrast í haust.
Miklir möguleikar á sviði jarðhita í Ekvador „Við höfum peningana og orkuna en þið kunnáttuna til
að virkja hana og það viljum við nýta okkur,“ segir Alecksey Mosquera, orkumálaráðherra Ekvadors
Hiti örvar Íslendinga í útrás
Morgunblaðið/Valdís Thor
Útrás Alecksey Mosquera, orkumálaráðherra Ekvadors, og Össur Skarp-
héðinsson iðnaðarráðherra á fundinum í gær þar sem þeir ræddu samvinnu.
SVARIÐ við
ógreiddu reikn-
ingunum frá síð-
ustu mánaðamót-
um kann að
leynast í moldinni
úti í garði. Í
þurrkatíð síðustu
vikna hafa veiði-
menn fyrir sunn-
an átt í mestu erfiðleikum með að
verða sér úti um maðka hjá veiði-
verslunum, og hafa sumir gripið til
þess ráðs að vökva garða sína sem
mest þeir mega, í þeirri von að ána-
maðkar skjóti upp kollinum.
Hafa veiðimenn á höfuðborgar-
svæðinu yfirleitt boðið um 80 krónur
fyrir hvern maðk og hafa heyrst sög-
ur af allt að 100 krónur fyrir stykkið
í einstaka tilviki. Þær veiðibúðir sem
haft var samband við sögðu ástandið
svipað og í fyrra, þegar maðkur var
allt að því ófáanlegur um mitt sum-
ar, en eftir að líða tekur á sumarið
fjölgar þeim yfirleitt með meiri rign-
ingu.
Á Norðurlandi hefur þónokkuð
rignt í sumar og er því nóg framboð
á möðkum. Söluverð þar virðist vera
í kringum 50 krónur stykkið, en
Birgir Ævarsson í RB Veiðibúð í
Reykjavík segir búðina hafa flutt
maðka suður til að selja, en þar voru
þeir seldir á 80 krónur stykkið.
andresth@mbl.is
Maðka-
markaður
á uppleið
SAMNINGUR Sjúkraliðafélags Ís-
lands við Samtök fyrirtækja í heil-
brigðisþjónustu (SFH) var sam-
þykktur með meirihluta atkvæða í
rafrænni atkvæðagreiðslu. Svarhlut-
fall var 37,97%. Já sögðu 97 eða 81%.
Nei sögðu 22 eða 18%. Skrifað var
undir samkomulag við Samtök fyrir-
tækja í heilbrigðisþjónustu mánudag-
inn 23. júní. Samningurinn gengur út
á sömu kjarabætur (afturvirkt frá 1.
maí sl.) og samið var um við fjármála-
ráðuneytið og undirritað 25. maí sl.
Sjúkraliðar
semja við SFH
LANDSPÍTALI og Lýðheilsustöð
hafa gengið til samstarfs um að
vinna gegn tóbaksnotkun sjúklinga
með skipulagðri fræðslu fyrir þá,
viðeigandi meðferð og með gerð
fræðsluefnis fyrir starfsfólk á
sjúkrahúsinu.
Markmiðið er að þeir sem leita til
Landspítala eftir þjónustu fái við-
eigandi meðferð sem styður þá til
tóbaksleysis á meðan legið er inni.
Í samningnum er kveðið á um
samstarf milli Landspítala og Lýð-
heilsustöðvar um stefnumótun er
varðar tóbaksnotkun sjúklinga á
spítalanum.
Samningurinn er til þriggja ára.
Eftir þann tíma er gert ráð fyrir að
komið verði virkt ferli innan Land-
spítala sem tryggi að meðferð við
tóbaksnotkun sé fastur liður í allri
meðferðaráætlun fyrir þá sem
þurfa.
Unnið gegn
tóbaksnotkun
sjúklinga
Hvaða leið er verið að tala um?
Ermarsund er sund í Atlantshafi á milli meginlands
Evrópu og Stóra-Bretlands og tengir Norðursjó við
Atlantshafið. Leiðin sem Benedikt syndir er 34 km á
milli borganna Dover og Calais.
Hvenær syntu menn fyrst yfir sundið og hversu
mörgum hefur tekist það?
Fyrsta Ermarsundið var synt 1875. Fleiri hafa klifið
Everesttind en synt yfir Ermarsund. Um 900 manns
hefur tekist að synda yfir sundið. Þrír Íslendingar
hafa reynt, Eyjólfur Jónsson, Benedikt Lafleur og
Benedikt Hjartarson.
S&S
ÞRÁTT fyrir að
heimsmarkaðs-
verð á hráolíu
hafi lækkað í
gærmorgun er
enn óvíst hvort
það skilar sér til
neytenda hér á
landi í lækkun á
bensínverði, að
sögn Magnúsar
Ásgeirssonar,
innkaupastjóra eldsneytis hjá N1.
„Núna stöndum við á krossgötum.
Við verðum að sjá hvernig markað-
urinn stendur eftir daginn í dag en
ég þori ekki að segja neitt um það á
þessari stundu. Við tökum stöðuna
aftur á morgun og sjáum þá hvernig
þróunin verður,“ segir Magnús.
Lækkunin í gær er rakin til hreyf-
inga í viðræðum um kjarnorkuáætl-
un Írana. Í kjölfarið varð lækkun
þegar markaðir voru opnaðir eftir
helgina, í Bandaríkjunum lækkaði
verð á hráolíu um 1,52 dali tunnan og
í Bretlandi lækkaði verð á Brent
Norðursjávarolíu um 10 sent. Það
virðist þó ekki þýða að bensínið
lækki strax í kjölfarið.
Krónan vó upp á móti
„Málið er að í síðustu viku hækk-
aði heimsmarkaðsverðið mjög mikið,
einmitt vegna yfirlýsinga um Íran og
við erum enn ekki komin í þá stöðu
að geta lækkað aftur,“ segir Magnús
og bætir við að þakka megi styrk-
ingu krónunnar fyrir að verðið hafi
ekki hækkað enn meira.
„Það sem hefur verið að gerast á
liðnum vikum er að heimsmarkaðs-
verð hefur farið hækkandi og krónan
veikst, sem er mjög óvenjuleg staða.
En í síðustu viku hækkaði verðið og
krónan styrktist, að vísu ekki nóg, en
þó til þess að draga úr þessari hækk-
un.“ unas@mbl.is
Olíuverðið
á kross-
götum
Bensín Hann er
dýr, dropinn