Morgunblaðið - 08.07.2008, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 11
FRÉTTIR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
42
97
9
07
.2
00
8
www.toyota.is
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
BNB-sölugreining
Bílarnir ganga í gegnum strangt gæðamat sem tekur mið af aldri, akstri
og viðhaldssögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort
í flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur okkar
bjóðum við þér hann ekki.
Núna bjóðum við 6 betri notaða bíla
á sannkölluðum úrvalskjörum.
Subaru Tribeca B-9
3000 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 08.06 Ekinn: 13.000 km
Verð: 4.690.000 kr. Skr.nr. VJ-912
Tilboðsverð: 3.990.000 kr.
Range Rover HSE
4400 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 07.04 Ekinn: 59.000 km
Verð: 5.990.000 kr. Skr.nr. LS-233
Tilboðsverð: 5.490.000 kr.
Toyota Yaris T-Sport
1800 Bensín 5 gíra
Á götuna: 11.07 Ekinn: 3.000 km
Verð: 2.850.000 kr. Skr.nr. UM-563
Toyota Auris Sol
1600 Bensín MM skipting
Á götuna: 04.07 Ekinn: 19.000 km
Verð: 2.710.000 kr. Skr.nr. KH-564
SUMIR NOTAÐIR BÍLAR ERU
EINFALDLEGA Á BETRA VERÐI EN AÐRIR
Toyota Yaris
1000 Bensín 5 gíra
Álfelgur, vindskeið, filmur og aurhlífar
Á götuna: 06.06 Ekinn: 75.000 km
Verð: 1.480.000 kr. Skr.nr. NY-863
Mazda CX7 Luxury
2300 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 07.07 Ekinn: 14.000 km
Verð: 4.890.000 kr. Skr.nr. AZ-467
Tilboðsverð: 4.390.000 kr.
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
Akureyri | Á heimasíðu félagsins
24x24 er talið niður fyrir mikla
þrekgöngu, rétt eins og jólin séu á
næsta leiti.
Þetta er í fjórða sinn sem fjalla-
hringurinn er sigraður og hefur
Ragnar Sverrisson kaupmaður,
réttu nafni Raggi Sverris, verið
með í öllum ferðunum: „Ég hef
það eftir mjög nákvæmum og
áreiðanlegum útreikningum að
þetta er eins og tvöföld leiðin upp
á Hvannadalshnúk.“
Í ferðinni er lagt upp frá Skíða-
hótelinu í Hlíðarfjalli, þaðan er
gengið hringinn í kringum Gler-
árdal og að lokum komið niður
Súlur. Þótt gangan virðist af lýs-
ingum vera heljarinnar þrekraun
er göngufólkið sem tekur þátt
ungt fólk á öllum aldri, sumir
komnir á sjötugsaldurinn.
„Það er gengið í þremur hóp-
um,“ segir Raggi, „og á föstudags-
kvöldið hittumst við og athugum
hvaða hópur hæfir þátttakendum
best. Í fyrra var nokkuð um það
að fólk ætlaði sér of mikið og færi
í hóp sem var ofan við það sem
það hefði betur valið.“
Á þeim fjórum árum sem liðin
eru hafa göngurnar verið lausar
við stóráföll og slys: „Það er ekk-
ert sem tekur að nefna,“ segir
Raggi, „sem betur fer; 7 - 9 - 13.“
Svefnlaus í sólarhring
Leikmaður sem heyrir af fjall-
göngumönnum sem ætla að ganga
í heilan sólarhring gæti ímyndað
sér að einhver hvíld yrði þar inni-
falin. Raggi segir svo vera, en það
sé þó alls ekki gert ráð fyrir nein-
um svefni: „Nei, nei. Þegar maður
er á göngunni er það bara þannig
að það er ekki til þreyta. Eftir
gönguna kemur hins vegar mikil
þreyta. Maður á eftir að sofa afar
vel aðfaranótt mánudags.
En þar sem þetta er einhver
mesta kraftganga sem er auglýst
á Íslandi tekur þátt í henni fólk
sem er vant fjallaferðum og veit
að það þýðir ekki að mæta óund-
irbúið. Það veit vel af því hvað
felst í göngunni.“
Þótt þátttakendur mæti ekki
óundirbúnir er skráningin, sem
enn stendur yfir, opin öllum sem
hafa áhuga.
Þátttaka í Glerárdalshringnum
hefur aukist undanfarin ár og að
sögn Ragga eru uppi stórar hug-
myndir um að byggja utan um
þessa hugmynd: „Við höfum átt í
viðræðum um að Landsbjörg haldi
í framtíðinni æfingar í Gler-
árdalnum helgina sem hringurinn
er farinn. Við viljum að Lands-
björg komi í samstarf við okkur
og hefur verið tekið vel í það.
Við viljum koma Glerárdalnum
og Akureyri á kortið, þannig að
svona helgi verði á Akureyri í
byrjun júlí á hverju ári.“
Á Hraundranga um versló
Um þessar mundir eru 5 ár liðin
frá því að Raggi byrjaði að hella
sér af krafti í fjallgöngur og úti-
vist. Það veltur þó yfirleitt á starf-
inu hvenær hann kemst í að sinna
áhugamálinu. Hann á þó í vænd-
um draumaferð um versl-
unarmannahelgina:
„Um versló ætlar félagið 24x24
á Hraundranga og hátindahöfðing-
inn Þorvaldur Þórsson hefur lofað
að koma mér, gamla manninum,
upp á tindinn, þannig að maður
geti sagt við barnabörnin eftir 20
ár: „Þarna fór ég.“ Það verður
gaman að geta sagt það án þess
að plata,“ segir Raggi að lokum.
&
!
"
!
#
$
%
!
'()
&
' (
')
*
+
)
(
,
-
-)
, -)
!"
#
$
. %
&'
(
/ )
.
')
. 0
,) '
-)
,
'
(
1
*
'
2 0 -)
)
) !)"
-)
* 3
'
(
-)
3
-)
*++
!,-
!"!
)-,
!,!
!./
!+
),*
.//
/"-
/-!
,/-
/,)
/+.
+ /
!
*+ )
+
/
!
,
)
- Ein mesta þrek-
ganga á Íslandi
Sigra 24 tinda á sólarhring
Klífa 4 kílómetra upp á við og
ganga samtals 50 kílómetra
Göngugarpur „Þetta er eins og tvö-
föld leiðin upp á Hvannadalshnúk,“
segir Raggi Sverris um þrekgöng-
una um Glerárdalshringinn.
Hverjir standa að göngunni?
Hópurinn sem stendur að baki göng-
unni er félagið 24x24.
Hvar er gengið?
Genginn er fjallahringur sem myndar
Glerárdal í Eyjafirði. 24 tindar eru
sigraðir á leiðinni. Samanlögð hækk-
un er um 4.000 metrar og heild-
arvegalengd leiðarinnar er rétt tæpir
50 km.
Þarf að fara allan hringinn?
Nei, það er bæði hægt að fara út af
leiðinni á nokkrum stöðum og líka
koma inn á hringinn.
Hvert er hæsta fjallið í göngunni?
Hæsta fjall á leiðinni er Kerling,
1.538 m.y.s., en það lægsta er Hlíð-
arhryggur, 1.100 m.y.s. 10 af fjöll-
unum eru yfir 1.400 m. Fjalls-
hryggjum er fylgt eins og kostur er.
Hvað þarf að hafa í gönguna?
Nesti og nýja skó, eins og segir. Þar
sem gengið er í góðu landi eru góðir
skór nauðsyn. Aukapar, aukahlífð-
arfatnaður og legghlífar hafa reynst
vel. Einnig bendir félagið á að það
getur verið gott að hafa með göngu-
stafi, prímusa og slíkan búnað,
sjúkrabúnað og síðast en ekki síst
hælsærisplástra!
S&S