Morgunblaðið - 08.07.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 13
ERLENT
VERÐHÆKKANIR á matvælum
og olíu eru efst á baugi á leiðtoga-
fundi G-8-ríkjanna sem hófst í bæn-
um Toyako á Hokkaido-eyju í Japan
í gær.
Leiðtogar G-8-ríkjanna ræddu í
gær við leiðtoga sjö landa Afríku um
þróunaraðstoð iðnríkjanna. Afrísku
leiðtogarnir hvöttu iðnveldin til að
gera þegar í stað ráðstafanir til að
stemma stigu við hækkunum á olíu-
og matvælaverði sem þeir sögðu
koma harðast niður á fátæku fólki í
Afríku.
Samtök sem berjast fyrir aukinni
aðstoð við Afríku gagnrýndu G-8-
ríkin – einkum Frakkland, Ítalíu
Japan og Kanada – fyrir að hafa ekki
staðið við loforð um að auka aðstoð-
ina. Leiðtogar G-8-ríkjanna sam-
þykktu fyrir þremur árum að auka
aðstoðina við Afríku um 25 milljarða
dollara, sem svarar tæpum 2.000
milljörðum króna. Samtökin segja að
G-8-ríkin séu langt frá því að ná því
markmiði og til þessa hafi þau aðeins
aukið aðstoðina um þrjá milljarða
dollara, eða 230 milljarða króna.
Leiðtogarnir ræddu fátæktina og
matvælakreppuna á hádegisverð-
arfundi með afrísku leiðtogunum.
Þeir urðu þá að gera sér að góðu
fjóra rétti en þegar komið var að
kvöldverðinum var kreppan orðin
svo mikil að „voldugustu magar
heims neyddust til að afstýra hung-
ursneyðinni miklu á Hokkaido með
því að troða í sig átta réttum sem 25
matreiðslumeistarar sáu um að
elda“, að sögn fréttavefjar breska
dagblaðsins Guardian. bogi@mbl.is
"
,
!,
#,
"",
-+
(
.
/0012*34*056'7768326/ 5&54
4 7 9
!"#$
#
%&'##("
)
)
*$!"
+
#
+
,
+
-"
"$)
."
&++
/.!
&0.
%!
%
"1" !1
,
: 9+
$#
2
,
3 (
3)
"
"
(""*,
4+: 9+ ( 4 +
*
9 7)+
: +
;&
4
5
4
66 6 6 65 6 64 6 6 6 6 6
+<. =
-+ >+
!"#
$
+
%!
71$
8*
.."
!!
1!
"
1$
9"
$
$)
:")
*$! 0
$'
1$
'#
+
?@
?
.
-'A5&-0 5&BC7>ADE227 !"#
$
7 +
%!""
4 7 9
.%
;% -
+
="
*
4 7(+
"%$!
="
& 7(+
"% $
>$?0
9
: 9+ ; 0
$
0$ 7+ F "%$$$
="
G 3H3+
%
2; 9
D 9
A+
: 9;.%
I 9
="
9 9>+ +
GH +J%B 9 ( ( (( (
7 ++
(
K( )
J 9 +
5
6
$%;+
,
,
A&LEM$"" ?
:
+M$.!?
: 9+ G 2; 9
I 9
9
D 9
A+
: 9
%.!
"% "
%.!!
%!
%
%!!
%#$"
%.!.
Matvælakreppa
á nægtaborði G-8-ríkja
Leiðtogafundur Dmítrí Medvedev
Rússaforseti með George W. Bush.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
BRAKIÐ lá eins og hráviði umhverfis ind-
verska sendiráðið í Kabúl eftir að sjálfsmorðs-
árásarmaður ók bíl hlöðnum sprengiefni að
hliði sendiráðsins í gær, í sprengingu sem
heyrðist þvert um höfuðborg Afganistans.
Óttast er að tala látinna eigi enn eftir að
hækka en minnst 41 týndi lífi og um 150 særð-
ust í ódæðinu, verstu árásinni í borginni frá því
stjórn talibana var steypt haustið 2001.
Talibanar sverja af sér tilræðið sem afgönsk
stjórnvöld telja erlenda aðila hafa átt hlut að.
Sendiráðið er í þeim hluta borgarinnar sem á
að vera hvað öruggastur og er árásin því talin
mikið áfall fyrir stjórnina, sem hefur í gegnum
tíðina sakað liðsmenn í her og leyniþjónustu
Pakistans um að styðja öfgamenn, m.a. hópa
sem hafa horn í síðu Indverja á svæðinu.
Vígamönnum vex ásmegin
Hundruð manna hafa fallið í árásum í Afgan-
istan síðustu mánuðina. Þykja þær merki um
að vígamönnum á landamærunum að Pakistan
vaxi ásmegin, og að hluti pakistönsku leyni-
þjónustunnar leggi liðsmönnum al-Qaeda
hryðjuverkanetsins og annarra vígahópa lið.
Ótti og ringulreið í Kabúl
Á fimmta tug lét lífið og um hundrað og fimmtíu særðust, margir alvarlega,
þegar öfgamaður ók bíl hlöðnum sprengiefni að hliði indverska sendiráðsins
Í HNOTSKURN
»Ódæðið nú og árásir síðustu mán-aða, ásamt mannfalli í röðum Banda-
ríkjahers, hafa dregið athyglina að bar-
áttunni gegn hryðjuverkum í landinu.
»Djúp skörð voru höggvin í hersveitirá vegum Atlantshafsbandalagsins,
NATO, og Bandaríkjahers í júní þegar
49 hermenn féllu, í blóðugasta mán-
uðinum fyrir sveitirnar frá árinu 2001.
Reuters
Skelfing Afganskur lögregluþjónn ber slas-
aðan mann frá vettvangi ódæðisins í gær.
BRETAR verða að bregðast við
hækkandi verðlagi á nauðsynjum
með því að hætta að bruðla með mat,
segir Gordon Brown forsætisráð-
herra. Hann ræddi að sögn BBC við
fréttamenn á leið sinni til G-8-
fundarins í Japan og sagði að menn
yrðu að ná saman um hnattræna
áætlun vegna hækkandi verðlags.
En Bretar yrðu að taka sig á.
„Ef við ætlum að ná matarverði
niður … verðum við öll að gera
minna af því að fleygja mat sem
kostar meðalheimilið í Bretlandi um
átta pund á viku.“
Steve Webb, talsmaður flokks
frjálslyndra demókrata í umhverf-
ismálum, sagði að vandinn vegna
bruðls með mat
hefði orðið verri
en ella vegna þess
að stjórn Browns
neitaði að sýna
stórmörkuðunum
nægilega hörku,
þeir stýrðu
birgðahaldi sínu
illa og mikið af
ætum mat færi í
súginn. „Þeir neita að hafa á boð-
stólum litlar pakkningar sem skipta
öllu máli fyrir þann vaxandi fjölda
sem býr einn og gera of mikið af því
að bjóða fólki að kaupa eitt stykki af
viðkvæmri vöru og fá eitt að auki í
kaupbæti.“ kjon@mbl.is
Ætur matur
í súginn
Gordon Brown
Brown vill að fólk klári matinn sinn
GESTIR San Fermin-hátíðarinnar sem sett var á sunnudag í Pamplónu á
Spáni búa sig undir að grípa vin sinn sem hefur stokkið niður af brunni.
Hátíðin var fyrst haldin árið 1591 og í ár eru tugþúsundir ferðamanna
staddar í Pamplónu til að hlaupa undan nautum og fylgjast með nautaati.
AP
Partístuð í Pamplónu