Morgunblaðið - 08.07.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 15
MENNING
ANH D. Stack, verkefnastjóri hjá
hinni virtu ljósmyndaraumboðs-
skrifstofu Black Star í New York,
segir Flickr-ljósmyndavefinn vega
sífellt þyngra þegar kemur að
kaupum fyrirtækja á ljósmyndum
og tekur sem dæmi íslenska ljós-
myndarann Rebekku Guðleifs-
dóttur, ljósmyndir sem Toyota-
umboðið á Íslandi keypti af henni
fyrir auglýsingar á Toyota Prius.
Stack nefnir einnig sem dæmi að
Microsoft hafi keypt myndir af
Flickr-ljósmyndurum til að nota í
Vista-stýrikerfið og að BBC og
tímaritið Economist hafi einnig not-
ast við ljósmyndir þaðan.
Stack segir Black Star þó ekki
hafa trú á því að Flickr nái svipaðri
stöðu og umboðsskrifstofan hefur
því viðskiptavinir hennar gangi
alltaf að fagmennskunni vísri. Stof-
an þekki verk ljósmyndara sinna í
þaula og geti ábyrgst að jafnvel erf-
iðustu og flóknustu verkefnum
verði lokið almennilega og innan
settra tímamarka. Stack segir
Flickr bjóða, engu að síður, upp á
mikla möguleika fyrir ljósmyndara,
bæði atvinnu- og áhugamenn. At-
vinnumenn eigi hiklaust að íhuga
Flickr-vefinn vilji þeir koma sér
betur á framfæri, geti t.d. samein-
ast og myndað hóp á vefnum og
veitt áhugaljósmyndurum góð ráð.
Um leið sýni þeir hversu færir þeir
séu í sínu fagi og sérhæfðir. Ljós-
myndarar geta ekki lengur hunsað
vefinn.
Mikilvæg-
ur vefur
Fyrirtæki kaupa
myndir af not-
endum Flickr
Flickr Frá sýningu LR á ljós-
myndum Íslendinga á Flickr.
ÞAÐ sætir tíðindum á krepputím-
um að eitthvað fáist ókeypis. Í al-
menningsgörðum New York-
borgar stendur nú yfir listahátíð
með stórviðburðum á hverju
fimmtudagssíðdegi kl. 17.30. Meðal
viðburða í Central Park eru sýn-
ingar New York Classical Theatre
á leikritinu Misalliance eftir
George Bernard Shaw og Gorilla
Repertory Theatre sýnir Hamlet
eftir Shakespeare við Cloisters í
Fort Tryon-garðinum í Inwood.
Næsti viðburður á fimmtudaginn
kemur verður í Union Square-
garðinum en þar halda leikarar og
söngvarar úr „off“ Broadway-
leikhúsunum tónleika, þar á meðal
leikarar úr sýningunum Altar Boyz
og Blue Man Group, og er búist við
miklu fjölmenni.
Frítt er á allar sýningarnar.
Altaris-
drengir
rokka frítt
Leikrit Altarisdrengirnir á sviði.
Einleikshátíðinni Act
Alone lauk vestur á Ísa-
firði um helgina en í
kvöld geta þeir höf-
uðborgarbúar sem ekki
sáu sér fært að fara
vestur fengið smásýnis-
horn af réttunum í
Iðnó.
Þar verða erlendu sýningarnar þrjár sem
voru á hátíðinni og hefjast þær kl. 18. Þá er
sýnd búlgarska fjölskyldusýningin Chick With
a Stick en kl. 20 er komið að rússneskri útgáfu
Völuspár. Dagskránni lýkur svo með sýningu
tékkneska einleiksins Fragile kl. 22.
Miðaverð á allar sýningarnar er 3.500 kr. en
miðaverð á staka sýningu er 1.500 kr.
Leiklist
Austurevrópskir
einleikir
Úr Chick With a Stick.
KINOWELT Home Enterta-
inment-útgáfan í Þýskalandi
hefur boðað nýja DVD-útgáfu
25. júlí, á víðfrægri gerð Ing-
mars Bergmans af Töfraflaut-
unni eftir Mozart, frá árinu
1975. Meðal ítarefnisins sem
fylgir útgáfunni verður viðtal
sem Hrafn Gunnlaugsson tók
við kvikmyndaleikstjórann
sænska sumarið 1987 á Íslandi.
Í viðtalinu sagði Bergman frá því hvaða þýðingu
það hafði fyrir hann persónulega að vera kvik-
myndaleikstjóri. Hann lýsti því einnig hvernig
myndir hans urðu til, með því að hann hafði sjálf-
ur fulla stjórn á öllum þáttum sköpunarinnar frá
upphafi til enda.
Kvikmyndir
Viðtal Hrafns
við Bergman á DVD
Ingmar Bergman
KVÖLDGANGA hefst í Kvos-
inni kl. 20 á fimmtudagskvöld, í
leiðsögn menningarstofnana
Reykjavíkurborgar. Menning-
arlífið í miðborginni verður
kynnt fyrir innflytjendum og
öllum öðrum sem áhuga hafa á
samskiptum milli menningar-
heima. Hvar eru bókasöfnin og
söfnin, leikhúsin, frægar stytt-
ur og skemmtilegir staðir?
Hvað kostar inn? Leiðsögn verður á spænsku,
pólsku og ensku en hóparnir þrír hittast í göngu-
lok í Hafnarhúsinu þar sem Sverrir Norland, hirð-
skáld Hins hússins nú í sumar, tekur lagið fyrir
gestina. Lagt er af stað frá Grófarhúsi, gangan er
ókeypis og allir velkomnir.
Menning
Reykjavík safarí
á fimmtudagskvöld
Þjóðleikhúsið.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞETTA er sígaunatónlist. Sígaun-
arnir trúðu því samt að það væri
ekki hægt að skrifa laglínurnar
þeirra niður, því þær höfðu gengið
mann fram af manni í hundruð
ára,“ segir Freyja Gunnlaugsdóttir
klarinettuleikari, en hún heldur
fyrstu tónleika sumarsins í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar ásamt
píanóleikaranum Siiri Schütz. Þær
spila ungverska tónlist, eftir Jó-
hannes Brahms, Leo Weiner og
Rezsö Kokai. Tónskáldin gerðu
það sem sígaunarnir töldu ómögu-
legt, auðvitað á sinn hátt, en andi
súrrandi hringdansa og ang-
urværra þjóðlaga verður allt um
kring í Sigurjónssafni í kvöld kl.
20.30.
„Svo hefur mér alltaf þótt mjög
vænt um sónötuna eftir Brahms
sem við ætlum líka að spila. Það er
Es-dúr-sónatan, sem er síðasta
kammerverkið sem hann samdi.“
Freyja segir að einfalt mál hafi
verið að tengja saman þýska róm-
antíkerinn Brahms og Ungverjana
Weiner og Kokai. „Brahms var
fyrsta klassíska tónskáldið sem
notaði ungverska dansa í sinni tón-
list,“ segir hún, en fleira kemur til:
„Ég hef sjálf verið að spila mikið í
Austur-Evrópu síðustu tvö ár og
hef ferðast mikið um Tékkland og
Ungverjaland. Þar hef ég komist í
kynni við þjóðlaga-klarinettuleik-
ara sem hafa kynnt mig fyrir ung-
versku tónlistinni. Ég hef verið að
hugsa mikið um hana í vetur.“
Freyja segir að klarinettan sé
mikið notuð í ungverskri tónlist,
en að þar í landi sé líka til
„frænka“ klarinettunnar, eins-
konar þjóðlagafrænka. „Tónstig-
arnir sem þeir nota komu með
Tyrkjum á 14. öld, en sígaunarnir
gerðu tóntegundirnar og laglín-
urnar að sínum.“
Sígaunar í Laugarnesinu
Ungverskt fjör þegar sumartónleikar hefjast í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Morgunblaðið/G.Rúnar
Listilegar Freyja Gunnlaugsdóttir, Siiri Schütz og Þorbjörg Jónsdóttir, en
myndbandsverk eftir hana verður fléttað inn í tónlistina.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Á HVERJU ári streyma hugmyndir inn frá skap-
andi og skemmtilegum Reykvíkingum sem vilja
setja svip sinn á Menningarnótt. Landsbankinn
og Menningarnótt hafa tekið höndum saman um
að veita frumlegum og sérstökum hugmyndum
brautargengi á Menningarnótt með styrkjum úr
Menningarnæturpotti Landsbankans. Nýjungin
er liður í nýundirrituðum þriggja ára samstarfs-
samningi Höfuðborgarstofu við bankann.
Sif Gunnarsdóttir forstöðumaður höfuðborg-
arstofu segir að hugmyndin að Menningarnæt-
urpottinum sé komin frá Landsbankanum sem
hafi frá upphafi verið bakhjarl Menningarnætur.
„Það urðu vatnaskil í okkar samstarfi fyrir þrem-
ur árum þegar bankinn fór að taka öflugri og hug-
myndaríkari þátt í Menningarnótt. Nú vildi bank-
inn koma betur til móts við grasrótina. Það kemur
fyrir að með hugmyndir sem krefjast mikillar
hugdirfsku þurfi að róta vel í landslaginu til að
þær geti orðið að veruleika. Í þeim tilfellum höf-
um við verið varfærnari. Við ákváðum að við
myndum leggja okkur vel fram við að koma til
móts við þá sem hafa lagt fram skapandi hug-
myndir út frá þemanu í ár – Torg í borg – og þar
erum við að tala um litlu „ósýnilegu“ torgin jafnt
og þau stóru. Þær hugmyndir sem komnar eru inn
koma allar til greina til að fá styrk úr Menning-
arnæturpotti Landsbankans, en við viljum gefa
aukafrest fyrir þá sem enn liggja á hugmyndum
sínum. Það er hugmyndaríkt fólk út um allan bæ.“
Sif segir að atriðin sem styrkt verða úr Menn-
ingarnæturpotti Landsbankans verði merkt sér-
staklega í dagskrá hátíðarinnar.
Hugmyndir skulu sendar á netfangið menning-
arnott@reykjavik.is eigi síðar en 18. júlí.
Landsbankinn kyndir pottinn
Morgunblaðið/Frikki
Kindugar Listrænn búfénaður á Menningarnótt.
Samstarf um styrki til verkefna á Menningarnótt um þemað Torg í borg
Hvað er Listasafn Sigurjóns Ólafssonar?
Safnið er sjálfseignarstofnun og á og varðveitir frumverk Sigurjóns Ólafs-
sonar myndhöggvara, vinnuskissur, teikningar, gögn og greinar um Sig-
urjón, verkfæri listamannsins og eignir. Safnið er til húsa í fyrrum vinnu-
stofu hans á Laugarnestanga.
Hver var Sigurjón Ólafsson?
Sigurjón naut tilsagnar Ásgríms Jónssonar listmálara og Einars Jónssonar
myndhöggvara en nam frá 1928 í Konunglegu Akademíunni í Kaupmanna-
höfn og síðar í Róm. Hann var á sínum tíma talinn meðal efnilegustu
myndhöggvara yngri kynslóðarinnar í Danmörku. Hann sneri heim að stríði
loknu og var meðal brautryðjenda abstraktlistarinnar á Íslandi. Sigurjón
lést 1982.
S&S
Leirlist Sigurjón Ólafsson mótar í leir.
5. júlí Sebastiano Brusco leikur pí-
anóverk eftir Schubert og Chopin.
22. júlí Steinunn Skjenstad og Sofia
Wilkman flytja ljóð eftir Mahler,
Webern og Strauss.
29. júlí Anna Áslaug Ragnarsdóttir
spilar Bach, Beethoven og Chopin.
5. ágúst Lög um börn, fyrir börn.
Þórunn Elín Pétursdóttir og Anna
Rún Atladóttir flytja.
12. ágúst Guðrún Ingimarsdóttir og
Jónína Erna Arnardóttir flytja ís-
lensk leikhússlög.
19. ágúst Guðný Guðmundsdóttir
og Gunnar Kvaran spila verk eftir
Bach, Karólínu Eiríksdóttur o.fl.
26. ágúst Íslenski saxófónkvartett-
inn spilar verk eftir Bozza, Piaz-
zolla, Frescobaldi o.fl.
2. september Söngur, flauta, harpa.
Gerður Bolladóttir, Pamela De
Sensi og Sophie Schoonjans flytja
m.a. Almanaksljóð Önnu Þor-
valdsdóttur við kvæði Bolla Gúst-
afssonar.
Sumartónleikar
Þriðjudaga, kl. 20.30.
Kaffistofan er opin eftir tónleika.