Morgunblaðið - 08.07.2008, Síða 16

Morgunblaðið - 08.07.2008, Síða 16
|þriðjudagur|8. 7. 2008| mbl.is daglegtlíf H lutir sem maður býr til sjálfur hafa oftar en ekki meira tilfinn- ingalegt gildi en hlutir sem maður kaupir úti í búð. Þeir sem sóttu námskeið í rafmagnsgítarsmíð hjá Gunnari Erni Sigurðssyni geta örugglega staðfest þetta, en þeir smíðuðu sér Fender Stratocaster eða Telecaster rafmagnsgítara í vetur undir handleiðslu Gunnars. „Ég lærði að smíða rafmagnsgít- ara hjá Þjóðverjanum Eki Hoffman á eyjunni Formentera, svo fór ég líka til Svíþjóðar og smíðaði kassa- gítar hjá manni að nafni Michael Sanden,“ segir Gunnar Örn sem kenndi fjölbreyttum hópi fólks að smíða rafmagnsgítara. „Kunningi minn hjá Tækniskólanum hafði samband við mig en hugmyndin var búin að gerjast í upp undir ár. Við renndum hálfpartinn blint í sjó- inn, auglýstum námskeiðið í fjöl- miðlum og byrjuðum að kenna í febrúar. Ég var ekki viss hver að- sóknin yrði en endaði með tíu nem- endur. Þetta er fyrsta námskeiðið í rafmagnsgítarsmíð sem haldið er á Íslandi, ég fékk góða reynslu og veit hvernig næsta námskeið verð- ur byggt upp.“ Gunnar Örn segir námskeiðið hafa gengið vonum framar. „Hand- verkfærin voru aðeins af skornum skammti en þetta gekk samt allt vel því fólk var mjög jákvætt. Það komu mjög góð hljóðfæri út úr námskeiðinu og ég veit að allir nemendurnir voru ánægðir með sína gítara.“ Settum reglum fylgt Það er nákvæmnisvinna að smíða gítar og fara þarf eftir ströngustu lögmálum til að gítarinn verði hljómfagur. „Nemendurnir smíð- uðu þetta allt frá grunni, þeir byrj- uðu með fjórar spýtur og smíðuðu búkinn, hálsinn, fingraborð og ann- að. Öll smíðavinnan var í þeirra höndum, þeir hefluðu, þjöluðu, fræstu, pússuðu, sprautuðu, söguðu og unnu alla bandavinnu á frum- stæðan hátt. Böndin voru lamin í með hamri eins og var gert hér áð- ur fyrr í stað þess að pressa þau eins og er oftast gert í dag. Það þarf að fylgja ákveðnum ófrávíkj- anlegum reglum þegar rafmagns- gítar er smíðaður og nemendurnir notuðu skapalón til að auðvelda sér vinnuna. Það fór ekki mikill tími í að útskýra hlutina uppi á töflu eins í venjulegri kennslustund heldur var meira rabbað saman á meðan smíðinni stóð og þetta var mjög skemmtilegt.“ Gunnar Örn segist hafa fengið ótrúlega góð viðbrögð við nám- skeiðinu. „Þetta gekk allt mjög vel og aðstaðan var til sóma hjá Iðn- skólanum. Það verður örugglega námskeið í haust og annað eftir jól því það er mikill áhugi fyrir þessu, síminn hefur ekki stoppað. Þó fólk ætli ekki endilega að leggja fyrir sig gítarsmíð þá er stemning að smíða einn gítar, ég tala nú ekki um ef menn eru í hljómsveit að nota handsmíðaðan gítar. Fyrir mig persónulega er ótrúlega skemmtilegt að upplifa að góðir tónlistarmenn eru að spila á gítar sem ég smíðaði.“ Smíðaði gítar fyrir Björgvin Halldórsson Hendur ófárra íslenskra tónlist- armanna hafa handleikið gítara sem Gunnar Örn hefur smíðað. „Ég sé bæði um að gera við hljóðfæri og smíða þau, ég hef gert gítara fyrir til dæmis Ómar Guðjónsson í Jagúar og Björgvin Halldórsson. Svo hef ég gert við hljóðfæri fyrir Fræbbblana og fleiri,“ segir Gunn- ar Örn. Hann segir að lokum að allir séu velkomnir á námskeið til sín í raf- magnsgítarsmíð. „Það þarf ekki sérstaklega mikla smíðareynslu þegar menn eru að gera svona und- ir handleiðslu, það hafa flestir reynslu frá grunnskóla og það er í sjálfu sér nóg. Í vetur var hér fólk á öllum aldri, alveg niður í 18 ára og upp í um fimmtugt.“ Kennir galdurinn að baki rafmagnsgítar rokkhetjanna Sagið fauk og lakklykt lá í loftinu þegar tíu manns tóku sig saman og lærðu rafmagnsgítarsmíð undir handleiðslu Gunnars Arnar Sigurðssonar. Lilja Þorsteinsdóttir spjallaði við gítarsmið- inn og Pál Ólafsson, einn nemendanna á nám- skeiðinu. Morgunblaðið/G.Rúnar Gítarsmiðurinn Gunnar Örn Sigurðsson hefur smíðað ófáa rafmagnsgítara eftir að hann lærði fræðin. www.luthier.is http://web.mac.com/pallolafs- son/stratocaster/Heim/ Heim.html Ljósmynd/ Páll Ólafsson Byrjað með fjórar spítur Þau eru mörg handtökin að baki rafmagns- gítarsmíðinni, en allir byrjuðu nem- endurnir með fjórar spítur. Við smíðina þarf síðan að fylgja ófrá- víkjanlegum reglum og ströngum lögmálum til að gripurinn verði hljómfagur. „Ég hef lært gítarleik og mig hefur alltaf langað í Fender Stratocaster,“ segir Páll Ólafsson sem smíðaði sér rafmagnsgítar á námskeiðinu í vetur. „Ég sá fyrir tilviljun auglýsingu frá Iðnskólanum þar sem bauðst að handsmíða svoleiðis grip og ég stökk á tækifærið. Þetta var frábær tími og ég var alveg ómögulegur ef ég missti af einni kennslustund.“ Páll segir að Gunnar Örn hafi lagt sig allan fram við að gera námskeiðið skemmtilegt. „Gunnar kom því í kring að ýmsir hljóðfæraleikarar komu í tímana og spiluðu fyrir okkur á gítara sem hann hafði sjálfur smíðað, svo kom hann sjálfur með mismunandi gítara til að sýna okkur.“ Páll segir námskeiðið hafa verið fróðlegt og hann er mjög sáttur við útkom- una. „Það var gríðarlega skemmtilegur hópur á námskeiðinu, allir unnu vel saman og hjálpuðust að. Ég lærði mikið á verkfæri og hvaða aðferðir eru not- aðar en mér fannst eiginlega erfiðast að velja litinn,“ segir Páll og hlær. „Ég er rosalega ánægður með útkomuna, ég ákvað að hafa litinn „sunburst tobacco“ til að gefa honum skítugt útlit og hann lítur út fyrir að hafa verið á einhverri búllu í 20 ár.“ Stökk á tækifærið Morgunblaðið/G.Rúnar Neminn Pál Ólafsson hafði lengi langað í Fender Stratocaster.  Rafmagnsgítarar eru með nema (pickup) sem breytir titr- ingi frá strengjunum í raf- straum, sem er svo hækkaður með magnara og hátalara.  Flestir rafmagnsgítarar hafa sex strengi en djassgítarleik- arar og þeir sem spila harðari rokktónlist nota sumir sjö strengi.  Fyrstu rafmagnsgítararnir voru notaðir af djassgítarleik- urum á fjórða áratug 20. aldar. Gítarmolar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.