Morgunblaðið - 08.07.2008, Síða 17
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 17
Eftir Guðlaug Albertsson
S
érstakt Sjóræningjahús hefur verið opnað á Vatn-
eyri og eiga hjónin Alda Davíðsdóttir og Davíð
Rúnar Gunnarsson heiðurinn af því. En innblást-
urinn fyrir húsið sóttu þau til ruplandi sægarpa
við Íslandsstrendur.
Hugmyndin að Sjóræningjahúsinu kviknaði þegar Alda
var að hefja lokaár sitt í námi í ferðamálafræði við Háskól-
ann á Hólum og var farin að velta fyrir sér hvað hún ætti að
taka sér fyrir hendur að námi loknu. Hún vissi að það vantaði
afþreyingu fyrir ferðamenn á Patreksfirði og fór því að leita í
sögu svæðisins að einhverju spennandi til að byggja á.
Í heimildum reyndist síðan að finna afar spennandi og
dramatískar frásagnir af komum sjóræningja til Vatneyrar
við Patreksfjörð seint á 16. öld og snemma á þeirri 17. Þær
frásagnir urðu kveikjan að Sjóræningjahúsinu.
Líf og fjör fyrir börnin
Gert er ráð fyrir margþættri starfsemi í Sjóræningjahús-
inu, en fyrst og fremst verður þó um sýningu að ræða sem
segir sögur af sjóránum við Íslandsstrendur. Í húsinu verður
þó einnig minjagripa- og handverksverslun, kaffihús og úti-
svæði með leiktækjum fyrir börn. Hugmyndin er sú að fjöl-
skyldur geti eytt þar tíma saman og að allir finni þá eitthvað
spennandi við sitt hæfi. Þau Alda og Davíð eiga sjálfir börn
og kannast vel við að börnunum leiðist á meðan fullorðna
fólkið skoðar söfn og sýningar á ferðalögum og töldu sig því
vita nokkuð vel hvað vantaði fyrir þennan hóp. Fyrir vikið er
mikil áhersla lögð á upplifunarþáttinn við alla hönn-
un, hvort sem það er á sýningunni sjálfri eða
útisvæðinu.
Þar sem verkefnið er stórt verður það unnið
í mörgum skrefum og voru kaffihúsið og
minjagripa- og handverksverslunin opnuð
nú í vor. Á kaffihúsinu er uppi sýning um
sjórán við strendur Íslands, en í framtíð-
inni mun dæmið snúast við og kaffihúsið
verða lítill hluti af heildarstarfseminni.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Á sjóræningjaslóðum Þau Davíð Rúnar og Alda nýta sér sagn-
ir af ruplandi sægörpum við uppsetningu Sjóræningjahússins.
Sjórán og
sjóðheitt kaffi
Patreksfjörður Dramatískar frásagnir
af komum sjóræningja á Vatneyri eru
kveikjan að nýjustu viðbótinni við ferða-
þjónustu á Patreksfirði.
Sjóræningjahúsið er staðsett í gamalli vélsmiðju
nálægt höfninni á Patreksfirði. „Þessi vélsmiðja
var mjög framarlega á sínu sviði um og upp úr
1930,“ útskýrir Alda. „Fyrri hluti hennar var
byggður 1918 en hinn 1920.“
Í stað þess að rífa innviði hússins út með kurt
og pí ákváðu þau hjónin að notfæra sér gróft yfir-
bragð innréttinganna sem þar voru enda hæfa
þær einstaklega vel starfsemi hússins og þeirri
sögu sem því er ætlað að minna á. „Ég veit ekki
hvort þessar hillur eru búnar að vera hér í húsinu
frá upphafi en gamlar eru þær,“ heldur Alda
áfram. „Þær voru notaðar undir „fittings“ sem
mér skilst að sé pípulagningaefni. Þarna voru því
geymd hné og minnkanir og stækkanir og ýmis-
legt fleira sem ég kann ekki að fara með,“ segir
hún hlæjandi.
Innréttingarnar hafa enda vakið verðskuldaða
athygli. „Um daginn komu hingað menn frá Húsa-
friðunarnefnd sem voru virkilega sáttir og ánægð-
ir með hvernig við höfðum haldið í þessar hillur
og sögðu beinlínis að þetta væri til fyrirmyndar.“
Í dag eru hillurnar m.a. nýttar undir vínföng og
veitingar á kaffihúsinu auk bóka sem leika sér-
stakt hlutverk í Sjóræningjahúsinu. „Við erum
með skiptibókamarkað sem heimafólkið er mjög
duglegt að nota,“ segir Alda. „Að auki seljum við
sjálf bækur sem tengjast sjóræningjum og sjófugl-
um sem hér er mýgrútur af í bjarginu.“
ben@mbl.is
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Frá vélsmiðju að veitingastað Gömlu innréttingarn-
ar henta ekki síður vel fyrir vínföng en pípulagnaefni.
Eldgamlar
innréttingar
Ekki verður annað sagt en vorið
og sumarið það sem af er, hafi far-
ið vel með Skagfirðinga, heyskap-
ur bænda gengið vel og svo hefur
hver stóratburðurinn af öðrum rið-
ið yfir með tilheyrandi vopnaburði
og drápum og í framhaldi af því
gríðarlegum tilfinningasveiflum,
stóryfirlýsingum og gráti mishátt-
settra ráðamanna.
Hins vegar er ýmislegt að gerast í
bæjarmálunum, nýtt pósthús er í
byggingu við Ártorgið og verður
vafalítið hin reisulegasta bygging,
en þá er eftir að fá gamla pósthús-
inu, sem er falleg bygging við
Kirkjutorgið í hjarta gamla bæjar-
ins, verðugt framtíðarhlutverk og
ætti það að vera hluti af tillögum
sem Áslaug Árnadóttir arkitekt er
að vinna fyrir sveitarfélagið varð-
andi útlit og uppbyggingu Aðalgöt-
unnar og gamla bæjarins. Það er
svæði sem raunar nær frá Eyrinni
að Faxatorgi.
En einmitt við Faxatorgið hefur
um nokkurt skeið verið áformað að
byggja menningarhús, eitt þeirra
fjölmörgu sem rísa eiga á lands-
byggðinni, í tengslum við Safna-
húsið, sem hefur fram til þessa
hýst Bóka- og Héraðsskjalasafn
Skagfirðinga.
Yrði gamla Safnahúsið ásamt
hinu nýja menningarhúsi glæsi-
legur hornsteinn gamla bæjarins
að sunnan, en auk þess gefa Fax-
atorginu mjög fallega umgjörð.
Í núverandi Safnahúsi er auk
bóka- og skjalasafns einnig ágætur
sýningarsalur þar sem velflestir
bestu listamenn þjóðarinnar hafa
sýnt myndverk sín. Nú hefur hins
vegar í sveitarstjórn komið fram
sú hugmynd að falla frá upphaf-
legum áformun en byggja nýtt
menningarhús í tengslum við Ár-
skóla.
Mjög eru skiptar skoðanir um
ágæti þessarar hugmyndar, og
ljóst að margir telja stigið stórt
skref til baka, ef það fjármagn
sem koma skal í menningarhús
verður nýtt til uppbyggingar
skólamannvirkja, þó sannanlega
blómstri mikil menning innan allra
skólahúsa landsins. Einnig mun, til
þess að gera, nýlega fullgert og
glæsilegt íþróttasvæði lagt undir
byggingar og bílastæði að allt of
stórum hluta.
Þá mun gamla Safnahúsið verða
skilið eftir, óbreytt en í tengibygg-
ingu milli nýja hússins og þess
gamla átti meðal annars að koma
fyrir lyftu til aukins aðgengis fyrir
fatlaða og einnig átti í húsinu að
mæta mjög aðkallandi þörf fyrir
bætta aðstöðu til vinnu og rann-
sókna á héraðsskjalasafninu, sem
er eitt hið besta á landinu, og er
löngu orðið mjög aðþrengt með
rými.
Þá stendur til að hefja nú í næsta
mánuði enduruppbyggingu á
„Sýslumannshúsinu“ svonefnda,
eða Kaffi Krók, sem varð eldi að
bráð í upphafi árs. Er það öllum
mikið fagnaðarefni að brunarúst-
irnar skuli innan tíðar fjarlægðar
og hafist handa við hreinsun og
viðgerðir, en ungt athafnafólk hef-
ur nú keypt húsið og hyggst end-
urgera það í upprunalegri mynd.
Síðar í sumar mun að venju verða
haldin Landbúnaðarsýning í reið-
höllinni við Sauðárkrók, og hafa
forsvarsmenn sýningarinnar látið
hafa eftir sér að í ár verði sýningin
stærri og glæsilegri en á und-
anförnum árum, enda sífellt fleiri
og fleiri fyrirtæki sem sjá sér hag
í að kynna og sýna vörur sínar á
einum stað, þar sem bændur og
fjölmargir hagsmunaaðilar víðs
vegar að af landinu koma og skoða
það sem nýjast er af því sem til-
heyrir búskap og landbúnaði.
SAUÐÁRKRÓKUR
Björn Björnsson fréttaritari
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sumarblíða Vorið og sumarið hafa farið vel með Skagfirðinga.
úr bæjarlífinu
ÞAÐ vita allir Íslendingar að fljótt
skipast veður í lofti, eina stundina
er sólskin og stuttbuxnaveður en
hálftíma síðar er rok og haglél. Í
þessari hverfulu veðráttu okkar Ís-
lendinga lendum við oft í því að
vera of heitt eða of kalt. Lausnin er
þessi sniðugi jakki sem má fylla eða
tæma að vild.
Samkvæmt vefsíðunni merrell-
.com þar sem jakkinn er seldur eru
á honum vasar sem fylla má með
einangrun að eigin vali þegar kuld-
inn sækir að. Jafn auðvelt er síðan
að tæma þá aftur þegar hlýnar í
veðri. Fyllingin getur verið af
hvaða tagi sem er, frá gömlum dag-
blöðum til laufblaða, en hugmynda-
flugið verður að ráða ferðinni í
vafasömum aðstæðum. Sá sem
klæðist jakkanum stjórnar hversu
þægilegur hann er hverju sinni því
hægt er að fylla bara nokkra vasa í
einu og hagræða eftir loftslagi. Af
augljósum ástæðum ætti útivistar-
fólk ekki að láta þennan jakka fram
hjá sér fara, því hægt er að hjóla
eða hlaupa í léttri skelinni og fylla
hana svo þegar kominn er tími til
að tjalda.
Jakkinn er framleiddur úr 100%
endurnýttu efni, er vatnsheldur og
framleiddur fyrir bæði kyn. Hann
kostar 99 dollara á internetinu en
vafasamt er að skjóta á verð í ís-
lenskum krónum vegna geng-
issveiflna. liljath@mbl.is
Nytsamlegur
ruslajakki