Morgunblaðið - 08.07.2008, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Helga Haralds-dóttir fæddist í
(Vestur-)Hamri í
Hafnarfirði 6. jan-
úar 1927. Hún lést á
hjúkrunardeild
Hrafnistu í Hafnar-
firði 25. júní síðast-
liðinn. Helga var
dóttir hjónanna
Guðmundínu Sig-
urborgar Guð-
mundsdóttur frá
Breiðuvík í Rauða-
sandshreppi f. 21.7.
1899, d. 14.6. 1981
og Haraldar Þórðarsonar sjó-
manns frá Kröggólfsstöðum í Ölf-
usi f. 12.3. 1897, d. 2.12. 1941, en
hann fórst með togaranum Sviða.
Systkini Helgu eru Ólöf (1923),
Ragnhildur (1923), Ingveldur
(1924–1988), Guðbjörg (1928–
1992) og Guðbjartur (1930).
Bryndís Svavarsdóttir, eiga þau
fjögur börn og fimm barnabörn.
Fyrir átti Lúther tvö börn, sem
eiga átta börn og tvö barnabörn.
2) Ragnhildur Jóna, f. 23.3. 1948, á
þrjú börn og fimm barnabörn. 3)
Ragnar Rúnar, f. 15.11. 1950, kona
hans er Penkhae Phiubaikham.
Ragnar á eina dóttur, fósturson og
eitt barnabarn og Penkhae á fjög-
ur börn. 4) Haraldur, f. 30.9. 1952,
kona hans er Helga Haraldsdóttir.
Þau eiga fjóra syni og fjögur
barnabörn. Fyrir átti Haraldur
tvær dætur sem eiga fjögur börn.
5) Sigurboði, f. 28.7. 1956, d. 19.2.
1974. 6) Hafsteinn, f. 7.11. 1958,
kona hans er Áslaug Jakobsdóttir.
Þau eiga þrjú börn. 7) Sverrir, f.
10.9. 1960, kona hans er Birna Rut
Þorbjörnsdóttir. Þau eiga fjögur
börn og eitt barnabarn. 8) Grétar,
f. 23.4. 1963, kona hans er Díana
Von Anken. Þau eiga tvo syni, fyr-
ir átti Díana tvö börn.
Helga verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Helga giftist Þor-
geiri Þórarinssyni úr
Selvogi f. 4.11. 1922,
d. 22.3. 2006. For-
eldrar hans voru
Þórarinn Snorrason
úr Selvogi, f. 27.12.
1875, d. 7.11. 1970,
og seinni kona hans
Ragnhildur Jóns-
dóttir úr Stíflisdal í
Þingvallasveit, f.
6.11. 1885, d. 14.7.
1935. Helga og Geiri,
eins og hann var allt-
af kallaður, byrjuðu
sinn búskap á Garðaveginum í
Hafnarfirði en fluttu á Maragötu 1
í Grindavík haustið 1974. Þau
bjuggu í Grindavík þar til þau
fluttu á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Helga og Geiri eignuðust átta
börn, sjö syni og eina dóttur. 1)
Lúther, f. 25.7. 1946, kona hans er
Nú ertu, elsku mamma mín, farin
heim í dýrð Drottins. Sakna þín! Við
vorum alltaf svo góðar vinkonur.
Húmorinn þinn var einstakur,
hvað við gátum hlegið mikið saman,
og sáum oft skemmtilegar hliðar á
hinu mannlega striti lífsins, takk
fyrir allt, elsku mamma.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Hvíl í friði.
Þín dóttir,
Jóna.
Nú ertu farin frá okkur, elsku
amma okkar, en á góðan stað ertu
komin og afi hefur tekið vel á móti
þér, eflaust boðið þér upp í einn
dans.
Minningarnar alveg streyma hjá
okkur enda var alltaf svo æðislegt
að koma til ykkar afa í Grindavík,
alltaf fullt borð af kræsingum og
umhyggjan til okkar sást langar
leiðir. Þið afi höfðuð sko mótað ykk-
ur frábært líf þarna í Grindavík og
einnig á Laugarvatni sem við systk-
inin vorum óspart hjá ykkur og allt-
af með nýbakaðar kleinur og mjólk
með.Við munum sérstaklega eftir
Helga Haraldsdóttir
Atvinnuauglýsingar
Blaðbera vantar
strax í júlí og
ágúst í Keflavík
• í afleysingar
• í sumarafleysingar
• í fasta stöðu
Upplýsingar
gefur Elínborg í
síma 421 3463
Blaðbera
Raðauglýsingar 569 1100
Húsnæði í boði
Til leigu íbúðir og bílskúrar
Til leigu 3ja herb. íbúð í lyftuhúsi við Sóleyja-
rima ásamt stæði í bílageymslu. 4ra herb. íbúð
í lyftuhúsi við Krummahóla. Einnig tveir sam-
liggjandi bílskúrar við Krummahóla. Framan-
greindar eignir eru lausar strax.
Uppl. veitir Ásbyrgi fasteignasala ehf.
Suðurlandsbraut 54, Rvk. s. 568-2444
Tilboð/Útboð
Útboð
Gervigrasvöllur
Línuhönnun hf. f.h. Knattspyrnufélagsins Vals
óskar eftir tilboðum í verkið:
Knattspyrnufélagið Valur - lagning „þriðju
kynslóðar“ gervigrass Hlíðarenda.
Verkið felst í útvegun og lagningu „þriðju
kynslóðar“gervigrass á æfingavelli Hlíðarenda.
Helstu verkþættir eru útvegun og niðurlagning
gervigrass (stærð 72x109m). Auk þess skal
útvega fótboltamörk, hornstangir og vallar-
merkingar.
Verkinu skal að fullu lokið 5. september 2008.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Línu-
hönnunar hf., Suðurlandsbraut 4a, 108 Reykja-
vík frá og með þriðjudeginum 8. júlí 2008, kl.
14.00.
Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn
18. júlí nk. kl. 10.00.
Ýmislegt
Vilji skiptir mestu!
Auðvitað er fyrirvaralítil brottvísun Kenýu-
manns úr landi opinber aðgerð, sem margir
láta sig varða, þar eð hann telur lífi sínu ógnað
í heimalandinu. Sé ógnin raunveruleg er
brottvísunin risamál fyrir hann og lýðveldið.
Liggi líf við, hljóta Útlendingastofnun, lög-
regluyfirvöld og þjóðin að krefjast, að traustra
gagna verði aflað fyrir dómi og að opinbert
íslenskt vald verði ekki framselt einhverjum,
sem þjóðin hefur ekkert yfir að segja. Stjórnar-
skrá okkar skyldar dómendur til að fara með
dómsvaldið og þá og aðra valdhafa til að virða
mannréttindi.Tilvísun í Dýflínarsáttmála
breytir því ekki. Áður var unnt að ljúka hér
landhelgisbrotamálum erlendra togara á fáum
dægrum fyrir dómi.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐNA STEFÁNSSONAR,
Skógarlundi 19,
Garðabæ.
Sigrún Vilbergsdóttir,
Guðný Guðnadóttir, Jóhann Örn Ásgeirsson,
Gréta Guðnadóttir, Róbert Ólafsson,
Aron, Birna, Vilberg og Guðni.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓHANNES ÞORBERG KRISTINSSON,
Víðihvammi 15,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt
þriðjudagsins 1. júlí.
Honum verður sungin sálumessa í Kristskirkju í
Landakoti fimmtudaginn 10. júlí kl. 13.00.
Anna Jóhannsdóttir,
Jóhann Þ. Jóhannesson,
Svanhildur I. Jóhannesdóttir, Guðmundur G. Kristinsson,
Kristinn Jóhannesson, Guðrún F. Guðmundsdóttir,
Ólafur Jóhannesson, Ingibjörg G. Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, amma okkar og langamma,
HELGA SIGURLÍNA MAGNÚSDÓTTIR,
Faxabraut 13,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi, mánudaginn
30. júní.
Helga verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju í dag,
þriðjudaginn 8. júlí kl. 14.00.
Elín Ólöf Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
JÓN SIGURGRÍMSSON
frá Holti,
Seftjörn 12,
Selfossi,
sem lést sunnudaginn 29. júní á hjúkrunarheimilinu
Ljósheimum, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 10. júlí kl. 14.00.
Jóna Ásmundsdóttir,
Unnur Jónsdóttir, Guðmundur S. Halldórsson,
Ásmundur Jónsson, Ufuoma Overo Tarimo,
Guðlín Katrín Jónsdóttir,
Ingveldur Björg Jónsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir, Ólafur Unnarsson,
Sigurgrímur Jónsson
og barnabörn.