Morgunblaðið - 08.07.2008, Qupperneq 25
því þegar við fengum að koma með
þegar þú fórst með rúgbrauðið í
bökun, fórum svo með þér að ná í al-
veg nýbakað rúgbrauð.
Seinna fluttu þið afi ykkur frá
Laugarvatni og yfir í Selvoginn þar
sem þið bjugguð til æðislegan reit
þar fyrir hjólhýsið ykkar, við eigum
eftir að keyra þangað oft og hugsa
til ykkar afa hvað væri gaman að fá
þessa tíma aftur, en ef við þekkjum
ykkur rétt þá munuð þið gera ykkur
einstakan stað saman þar sem þið
eruð núna.
Alltaf á haustin vorum við systk-
ini vön að hringja og biðja um eitt
par af vettlingum fyrir veturinn sem
var að koma. Þér þótti það svo æð-
islegt að við fengum alltaf aukapar
með, enda varstu alveg einstakalega
lagin og höfum við systurnar alla-
vega það í okkur frá þér amma mín.
Mörg jólin fengum við að njóta
með þér og afa og voru það frábær-
ar stundir enda frábær árstími. Við
fengum að hjálpa þér að skreyta og
gera heimilið hlýlegt fyrir jólin.
Svo fluttu þið afi á Hrafnistu og
áttuð þar góðar stundir saman, ykk-
ur leið bara vel þar og var styttra
fyrir okkur að koma til ykkar. Hlýj-
an var alltaf til staðar og ekki langt í
brosið hjá ykkur. Afi kvaddi svo
þennan heim fyrir tveimur árum og
eru þið búin að bíða allan þennan
tíma eftir að hittast aftur eflaust á
frábærum stað sem þið hefjið sam-
veru ykkar á ný.
Elsku amman, við eigum eftir að
sakna þín svo mikið. Vegir okkar
munu nú skiljast en þeir munu mæt-
ast aftur. Þú munt alltaf vera í
hjarta okkar og allar minningarnar
og hlýjan sem þú gafst okkur.
Blessuð sé minning þín.
Þín barnabörn,
Karen, Jakob og Guðný.
Elsku amma mín, þá ertu loksins
komin til afa. Þú varst stundum að
spyrja um hann, „hvar hann væri“
og „af hverju er hann svona lengi“
þó að það séu rúmlega 2 ár síðan að
hann dó. En nú ertu komin til hans
og ég veit að hann hefur tekið vel á
móti þér eins og hann var vanur að
gera og hugsar vel um þig. Það er
sárt að hugsa til þess að þú sért far-
in frá okkur, amma mín, og það er
skrítið að vita til þess að hitta þig
ekki aftur og síðustu daga hef ég
verið að rifja upp það sem mér er
minnisstætt um þig og það eru
margar góðar minningar um þig og
hef ég verið að hlæja í hljóði því að
þú gast verið svo skemmtileg og
orðheppin og ég tala ekki um hvað
þú gast hlegið og það mun ég ætíð
geyma í hjarta mínu. Ég upplifi
þetta núna í gegnum mömmu mína
sem var nú einkadóttir þín og finnst
mér þið svo líkar í mörgu og við
þurfum að heyra í hvort öðru helst á
hverjum degi og alltaf getum við
hlegið.
Amma, þú ert ein af fyrirmynd-
unum mínum í lífi mínu, þú kenndir
mig svo margt sem ég bý að. Þú
kenndir mér að baka, meðal annars,
og á ég enn uppskriftabókina sem
ég bjó til þegar ég var 12 ára og
fékk ég að skrifa niður þær upp-
skriftir sem mér fannst góðar og
held ég mikið upp á regnbogatert-
una sem ég baka alltaf fyrir jólin.
Ég var svo lánsöm að fá að koma
og dvelja hjá ykkur um jól og ára-
mót í þau 10 ár sem ég bjó í Svíþjóð
og fannst mér ekki jól nema koma til
Íslands og vera hjá ykkur í Grinda-
vík, nema ein jólin, þá komum við
ekki til ykkar og voru þá ekki jól,
fannst okkur. Þá varstu alltaf búin
að baka 7–8 sortir af smákökum og
lagtertur sem biðu eftir okkur í
búrinu þínu.
Amma, ég hugsa oft til þín þegar
ég er að ala upp mín 3 börn og
hugsa um mitt heimili, hvað við nú
til dags höfum það gott, við erum
með þvottavélar, uppþvottavélar,
þurrkara og öll þau þægindi sem
geta hugsast. En ekki voru þau til
þegar þú varst að ala upp þín 8 börn
í litlu húsnæði og afi alltaf á sjó.
Þannig maður getur ekki annað en
dáðst af svona konum eins og þér,
amma.
Ég er mjög þakklát að hafa geta
kvatt þig áður en þú fórst amma og
ég tók Snorra með mér, því að þér
fannst alltaf svo gaman að börnum
og það var eins og þú lifnaðir við
þegar þú sást hann og fórst að tala
og sagðir nokkrum sinnum á meðan
við vorum hjá þér hvað hann væri
sætur og þú vildir alltaf koma við
hann og áður en við kvöddum þig
kyssti hann þig á kinnina. Ég mun
sakna þín, amma mín. Ég vona að þú
hafir það gott þar sem þú ert núna
og að þú hafir fundið verðskuldaðan
frið. Ég elska þig og mun aldrei
gleyma þér. Kysstu afa frá mér.
Þín,
Sandra og fjölskylda.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
(V. Briem.)
Hvíl í friði.
Bryndís Svavarsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 25
Hreinrækt. Silki terrier hvolpar
Til sölu alveg yndislegir hvolpar,
tilbúnir til afhendingar strax, örmerkt-
ir og bólusettir. Silky terrier fer ekki
úr hárum. Verð 120.000. Upplýsingar í
s:664 0120.
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is
Húsnæði í boði
Studíóíbúð til leigu í 101
Reykjavík. Er laus strax.
Einungis reglusamir og reyklausir
koma til greina.
sps@hive.is eða í síma 863 9378.
Íbúð til leigu í Rimahverfi
3 herb. 86 m². Staðsett innst í botn-
langa í litlu og rólegu fjölbýli. Sér-
merkt bílast. fylgir, auk hússj.+ hiti +
rafm.+ þvottavél + þurrkari o.fl.
Þvottah. innan íbúðar. 135 þ. á mán.
Langtímaleiga. Laus 1. ágúst.
Uppl. í síma 696-5717.
Húsnæði óskast
Góð íbúð í Vesturbæ frá 15.8.
4ja manna fjölsk. á leið úr námi leitar
að íbúð í Vesturbænum frá 15.8 í 1-2
ár. Góð meðmæli - 100% reglusemi
og skilvísi. E-mail:
lydiaellertsdottir@gmail.com
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Tölvur
Vantar þig hjálp með tölvur?
Tek að mér val og uppsetningu á
tölvum fyrir lítinn pening. Set upp
helsta nauðsynja hugbúnaðinn og
geri tölvuna tilbúna og þægilega og
sniðna þér. Gunnlaugur í síma
698-8886.
Tómstundir
Plastmódel í miklu úrvali
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Astonish náttúruvænar
hreinlætisvörur.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Til sölu
Ævintýralega létt stígvél
Aðeins 440 g parið. Stærðir 38-46.
S - XL
Einstaklega þægileg til að hafa í
bílnum, sumarbústaðnum eða í
útileguna. Verð 3.710 kr.
Jón Bergsson ehf.
Kletthálsi 15,
110 Rvk.
Sími. 588 8881.
Til sölu vasi eftir Guðmund frá
Miðdal
Þröstur og kuðungur frá sonarsyni
hans. Upplýsingar í síma 821 4756.
Poolborð
5 - 6- 7 og 8 fet til afgreiðslu strax
billiard.is
Suðurlandsbraut 10, 2H
S. 568 3920
www.billiard
Þjónusta
Sólpallar og girðingar
Smíðavinna úti og inni. Parketlagnir.
Þjónusta við sumarbústaðaeigendur.
Íslenskir fagmenn. Vinnusvæði:
Höfuðborgarsvæðið og Suðurland.
Halur og sprund verktakar ehf.,
sími 862 5563, www.lipurta.com
Móðuhreinsun glerja!
Er komin móða eða raki milli
glerja?
Móðuhreinsun Ó.Þ.
Sími 897 9809.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Gæðabón Ármúla 17a,
það besta fyrir bílinn þinn. Alþrif,
mössun, teflon, djúphreinsun.
Opið mán.-fö 8-18. S. 568 4310.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
www.heitirpottar.is
Kleppsvegur 152, sími 554 7755
Tilboð Skeljar 199.000.-
Volare húðvörur
Er að selja frábærar húðvörur frá
Volare. Hringið í síma 662 6560.
Tek líka að mér heimakynningar.
Helga,
sjálfstæður söluráðgjafi
hjá Volare.
Hópstjóri Lydía.
Teg. Daisy - mjög flottur haldari í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,
Teg. Darcy - þunnur og sexí en
haldgóður í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr.
6.990,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18,
Lokað á laugardögum.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
.
Ljósir og léttir.
Sumarskór fyrir herra, úr leðri og
skinnfóðraðir. Verð frá 5.885.- 9.350.-
Misty skór,
Laugavegi 178, sími: 551 2070
opið mán-fös 10-18
Ath. lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta, fagleg ráðgjöf
Bílar
Til sölu Audi quattro 2003,
ný skoðaður. Tilboðsverð vegna
fluttnings 2.3 mill. Áhvílandi lán
1600 þús. Upplýsingar í síma
849 1281 eða bleki@intro.is
Hyundai árg. '96 ek. 130 þús. km
Hyunday elantra green, for sale,
cheap. Inspection ok. 85.000 isk.
Call 867 2273.
Mótorhjól
Til sölu Yamaha WR-250F
Árg. 2004. Mjög lítið notað. Ekið
aðeins 600 km. Dekurhjól. Verð 490
þús. Uppl. í síma 894 6562.
Honda Valkyrie 2000
Valkyrjan er almennt talin besti cruis-
er sem smíðaður hefur verið. Frábært
hjól í toppstandi keyrt 9000 mílur. Til-
boð. Engin skipti. Sími 694 7777.
Einkamál
Stefnumót.is
Nýr stefnumótavefur og tengslanet:
"Þar sem íslendingar kynnast".
Líttu við og tryggðu þér gott notanda-
nafn til frambúðar.
Stefnumót.is
Nýr samskiptavefur: "Þar sem
Íslendingar kynnast". Líttu við og
tryggðu þér gott notandanafn til
frambúðar.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald