Morgunblaðið - 08.07.2008, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er þriðjudagur 8. júlí, 190. dagur
ársins 2008
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Víkverji var í hópi þeirra tugþús-unda ökumanna sem voru á far-
aldsfæti um helgina. Ekki var að sjá
að okurverð á bensíni hefði áhrif á
ferðagleðina. Ekki gat Víkverji held-
ur merkt það að bensínfótur öku-
manna væri eitthvað léttari en áður,
líkt og Blönduóslöggan og hennar
starfsbræður hafa vitnað um. Vík-
verji er tíður gestur á norðurleiðinni
og sér á ferðum sínum mun sjaldnar
til Blönduóslöggunnar en hér á ár-
um áður, og það heyrir orðið til und-
antekninga að mæta lögreglubíl í
Borgarfirðinum eða Skagafirði.
x x x
Á suðurleið á sunnudagskvöldvarð Víkverji vitni að glæfra-
og hraðakstri í nokkrum tilvikum og
hugsaði til þess að vonandi yrðu
þessir ökufantar teknir. Laust þá í
höfuð Víkverja snilldarhugmynd. Af
hverju ekki að taka upp borgaralegt
hraðaeftirlit? Gefa fólki, að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum, heim-
ild til að taka hraðamyndavél með
sér í ferðalagið og leigja af lögregl-
unni. Tæknin til að gera þetta kleift
hlýtur að vera til staðar.
Skilyrðin yrðu að vera m.a. hreint
sakavottorð, háskólapróf og 35 ára
aldurstakmark og að einungis að-
stoðarökumaður gæti tekið myndir á
ferð, annaðhvort af bíl að fara fram
úr eða koma á móti á fleygiferð. Um-
ræddir borgaralegir hraðaeftirlits-
menn fengju síðan ákveðna prósentu
af sektinni til ríkissjóðs, sem umbun
fyrir sitt framlag. Að sjálfsögðu
þyrfti að setja löggjöf um þessa
starfsemi, m.a. til að vernda fólk fyr-
ir árásargjörnum ökumönnum.
Einnig yrði að merkja bíla hinna
borgaralegu eftirlitsmanna með lím-
miðum í aftur- og framrúðum.
x x x
Víkverji er ekki í nokkrum vafaum að þetta mun stuðla að
hægari og öruggari umferð á þjóð-
vegum landsins. Þetta mun einnig
auka tekjur ríkissjóðs og gefa fólki
um leið færi á að vinna sér inn smá-
aukapening í sumarfríinu.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Reykjavík Emelía Eir fædd-
ist 26. febrúar kl. 20.53. Hún
vó 4.140 g og var 52,5 cm
löng. Foreldrar hennar eru
Guðbjörg I. Sigurbjörnsdóttir
og Ragnar Reyr Ragnarsson.
Kaupmannahöfn Hildi Ólafs-
dóttur og Þórhalli I.Halldórs-
syni fæddust tvíburar 17. júní
kl. 16.50 og 16.51. Solveig t.v.
vó 2.730 g, var 47 cm og Ey-
rún t.h. vó 3.180 g, var 48 cm.
Kópavogur Harpa Björg
fæddist á heimili sínu 12. maí
kl. 20.39. Hún vó 4.020 g og
var 53 cm. Foreldrar hennar
eru Ólafía Sólveig Einars-
dóttir og Björn Ásbjörnsson.
Danmörk Aron fæddist 28.
mars síðastliðinn. Hann vó
5.050 g og var 56 cm langur.
Foreldrar hans eru Margrét
Þórunn Stefánsdóttir og
Jesper Cramer Larsen.
Reykjavík Dagur Hrafn
fæddist 19. mars kl. 12.46.
Hann vó 2.975 g og var 48 cm
langur. Foreldrar hans eru
Hulda Björk Guðmundsdóttir
og Ingvar Freyr Guðjónsson.
Reykjavík Ása Melkorka
fæddist 22. mars kl. 9.21.
Hún vó 3.435 g og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru
Daði Kristjánsson og Ída Sig-
ríður Kristjánsdóttir.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 æskilegur, 8
grasflöt, 9 angan, 10
greinir, 11 geil, 13
glaums, 15 fáni, 18 lítið,
21 rödd, 22 munnbita, 23
spilið, 24 heimska.
Lóðrétt | 2 fiskinn, 3
súrefnið, 4 í vafa, 5
mergð, 6 ótta, 7 hól, 12
álygar, 14 snák,15 óða-
goti, 16 áreiti, 17 sori, 18
jurtar, 19 kærleikurinn,
20 þyngdareining.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bukks, 4 bætir, 7 kækur, 8 ólund, 9 tár, 11
riða, 13 hali, 14 græða, 15 vala, 17 láns, 20 vin, 22 neyði,
23 ólíkt, 24 aftra, 25 tjara.
Lórétt: 1 búkur, 2 kákið, 3 sárt, 4 bjór, 5 tauta, 6 ruddi,
10 ámæli, 12 aga, 13 hal,15 vansa, 16 leyst, 18 álíka, 19
setja, 20 vika, 21 nótt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 Rf6 4. e3 e6 5.
Bxc4 c5 6. O–O a6 7. Bb3 b5 8. a4 b4 9.
e4 Bb7 10. Rbd2 Be7 11. e5 Rfd7 12.
Rc4 O–O 13. Rd6 Bxd6 14. exd6 cxd4
15. Rxd4 Rc5 16. Bf4 Df6 17. Bg3 Rbd7
18. Bc2 Hfc8 19. He1 g6 20. Dd2 Bd5
21. Hac1 b3 22. Bb1 Rxa4 23. Hc7 Rab6
24. Hec1 e5 25. Rc6 Hxc7 26. Re7+
Kg7 27. Hxc7 Dxd6 28. Hxd7 Rxd7 29.
Dxd5
Staðan kom upp á ofurmóti sem lauk
fyrir skömmu í Foros í Úkraínu. Alex-
ey Shirov (2740) frá Spáni hafði svart
gegn Alexander Onischuk (2664) frá
Bandaríkjunum. 29… Hc8! og hvítur
gafst upp enda liðstap óumflýjanlegt í
ljósi þess að bæði hrókur svarts og
drottning eru friðhelg. Magnus Carl-
sen (2765) frá Noregi varð einn efstur
á mótinu og nálgast hann nú óðfluga
2800 stigamúrinn.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Stilling.
Norður
♠KD842
♥76
♦Á
♣D10874
Vestur Austur
♠75 ♠Á93
♥9 ♥D104
♦KDG109865 ♦432
♣K9 ♣Á652
Suður
♠G106
♥ÁKG8532
♦7
♣G3
Suður spilar 4♥.
Það þarf mikla stillingu til að segja
aldrei neitt með áttlitinn í vestur. Í leik
Íslands og Englands á EM vakti
Bjarni Einarsson í fyrstu hendi 4♥ og
Paul Hackett kyngdi því, þegjandi og
hljóðalaust. Hackett hitti á að koma út
með ♣K, sem banar spilinu örugglega.
Austur fékk næsta slag á ♣Á, lagði nið-
ur ♠Á, spilaði svo enn laufi og tryggði
vörninni slag á tromp. Hjartanía vest-
urs vinnur vel með ♥D104.
Þessi góða niðurstaða Englending-
anna fór þó fyrir lítið, því á hinu borð-
inu fékk Aðalsteinn Jörgensen að
vinna 5♦ í vestur. Þar voru synir Pauls
í vörninni, Jason og Justin Hackett.
Jason kom út með ♦Á og skipti yfir í
hjarta. Bróðir hans spilaði enn hjarta,
sem Aðalsteinn trompaði og lagði niður
nokkra kílómetra af tíglum. Og viti
menn, norður henti tveimur laufum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú veist hvað þú gerir best og í
dag ættir þú að skara fram úr á því sviði.
Það gefur þér sjálfstraust sem aðrir taka
eftir. Í kvöld geturðu mætt hverju sem
er.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Aðrir hafa þrælað til að þú hafir það
gott. Það er því auðveldara fyrir þig að
launa greiðann og gera það sama fyrir
komandi kynslóðir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú átt í samskiptum við sterkar
persónur, og það finnst þér sérlega
spennandi. Auðvitað er þetta ansi erfitt
en þú vilt hafa það þannig.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert loðin um lófana núna. Það
er mikilvægt halda fjárstreyminu í lagi
svo ekki verði stöðnun. Í kvöld skaltu
ekki reyna að sannfæra þá sannfærðu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þarfnast ástin fórna? Að gera ein-
hvern sem þú elskar hamingjusaman er
stórkostlegt, ekki skelfilegt. En ef þér
finnst leiðinlegt að hjálpa fólki, skaltu
pæla betur í því.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú flaggar þínu besta í dag. Þú ert
ráðríkur en heillandi og það virkar svo vel
að enginn stenst þig. Fólk mun hópast að
til að hjálpa þér og það með bros á vör.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þig langar kannski ekki að hlusta á
það sem ástvinur vill segja þér en þú ert
rausnarlegur og góðhjartaður. Hlustaðu
án þess að dæma.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú getur útvegað það sem
aðrir þarfnast. Þeim finnst þú ómissandi,
en segja það ekki af hræðslu við að þú
viljir fá greitt fyrir.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þegar þú gerir eitthvað fyrir
sjálfan þig í dag þá verðurðu á sama tíma
fulltrúi þeirra sem eiga erfitt með að tjá
sig. Þú munt verða dáður fyrir vikið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú stendur í stórræðum þessa
stundina með öðrum. Þú hefur hugrekki
og það ætti að duga til að þú getir komið
þér á framfæri.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Velgegni í dag reynist þér auð-
veld. Þú heldur þig við reynda formúlu og
ættir að breyta þeim sem ekki virka leng-
ur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Með því að beita sjálfur sama ráði
og þú vanalega gefur öðrum muntu verða
stórstjarna í þínum heimi. Á þennan hátt
mun fordæmi þitt verða fordæmi ann-
arra.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
8. júlí 1361
Bardagi var háður á Grund í
Eyjafirði, Grundarbardagi.
Þetta var aðför Eyfirðinga að
Smiði Andréssyni hirðstjóra
og þrjátíu manna fylgdarliði
hans. Smiður féll og átta af
hans mönnum en fimm Eyfirð-
ingar.
8. júlí 1903
Síldarsöltun hófst á Siglufirði.
Norskt skip, Marsley, kom
með 60-70 tunnur af síld sem
veidd var í reknet nóttina áð-
ur. Þetta var upphaf síldaræv-
intýrisins sem stóð í 65 ár.
8. júlí 1933
Tuttugu kindur af karakúl-
stofni komu til landsins frá
Halle í Þýskalandi, ætlaðar til
kynbóta. Síðar kom í ljós að
þær báru með sér mæðiveiki
og garnaveiki.
8. júlí 1950
Fyrsta Landsmót hestamanna
var sett á Þingvöllum. Gestir
voru um fjögur þúsund og
komu margir þeirra ríðandi úr
öðrum landshlutum. Hreinn
frá Þverá í Blönduhlíð var þá
talinn glæsilegasti hestur á Ís-
landi.
8. júlí 1951
Bjarg lenti á rútu í Óshlíð,
milli Bolungarvíkur og Ísa-
fjarðar. Í bifreiðinni voru
þrjátíu íþróttamenn, tveir
þeirra biðu bana og tveir slös-
uðust mikið.
8. júlí 2006
Björgunarsveitarmennirnir
Haraldur Haraldsson og Sam-
úel Albert Ólafsson sigu niður
Glym, hæsta foss landsins (198
metra), fyrstir manna svo vit-
að sé.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá…
Þóra Björk
Sveinsdóttir og
Skúli Flosason
eiga fimmtíu ára
brúðkaups-
afmæli í dag, 8.
júlí. Þau eru að
heiman.
Gullbrúðkaup
„Það er nú ekki stórvægilegt því að konan mín er í
Síberíu,“ útskýrir Ragnar Arnalds, afmælisbarn
dagsins, inntur eftir því hvað hann hyggist gera í
tilefni dagsins. Í kvöld hyggst hann þó fara út að
borða með dætrum sínum. „Ég hef ekki verið upp-
lýstur nákvæmlega um það hvað til stendur,“ bæt-
ir hann við dularfullur.
Ragnar hefur fengist við margt gegnum tíðina,
m.a. hefur hann gegnt stöðu formanns Alþýðu-
bandalagsins og verið fjármálaráðherra, svo eitt-
hvað sé nefnt. Í dag er hann formaður bæði
Heimssýnar, hreyfingar sjálfsstæðissinna í Evr-
ópumálum, og Félags fyrrverandi alþingismanna.
Ekki vantar svörin þegar Ragnar er spurður hvort einhver afmæl-
isdagur sé honum sérstaklega minnisstæður. Það var 15 ára afmælið,
en þá var hann staddur á Arnarvatnsheiði með þekktum manni, Vil-
hjálmi Þór, en afmælisbarnið var hestastrákurinn hans. „Hann var nú
ekki margmáll maður og sagði ekki nema eina setningu við mig allan
daginn,“ segir Ragnar þegar hann hugsar til baka, „ætli það hafi ekki
verið eigum við að fá okkur að borða?“
Tvö leikrit og ein skáldsaga eru í bígerð, en þar að auki spilar
Ragnar á klarínett og fer í Laugardalslaugina á hverjum degi. „Ég
fer alltaf undir kvöld, það er svo gott fyrir svefninn,“ bætir hann við,
„ég sleppi aldrei degi úr ef ég er í bænum.“ andresth@mbl.is
Ragnar Arnalds, rithöfundur, sjötugur
Fer í laugina á hverjum degi