Morgunblaðið - 08.07.2008, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 29
Þrátt fyrir að tónlistarhátíð-inni í Hróarskeldu sé lokiðer ekki þar með sagt að há-
tíðarhöld séu að baki. Komið var til
Kaupmannahafnar þar sem
djasshátíðin er í fullum gangi. Þó
svo að gestir djasshátíðarinnar séu
töluvert eldri en á Hróarskeldu er
fjörið engu minna. Og tilvalið að
hvíla lúinn líkama, liggjandi á torg-
um, með seiðandi djassinn í eyr-
unum.
Ef farið er yfir Hróars-kelduhátíðina á hundavaði má
segja að upp úr hafi staðið tón-
leikar Kings of Leon, Neil Young
og jafnvel Radiohead. Sárt var að
missa af Hot Chip, en hún fór víst á
kostum. Og þá fékk My Bloody Val-
entine fullt hús tjalda í Hróars-
keldupóstinum. En eins og gengur
og gerist á slíkri hátíð verður ein-
hverju að fórna.
Ekkert atriði olli þó verulegum
vonbrigðum. Nema kannski Judas
Priest. Gengi krónunnar olli frekar
vonbrigðum. Bjór á tónleikasvæð-
inu kostaði rúmar sex hundruð ís-
lenskar krónur, og greiða þurfti
um þúsund krónur fyrir sæmilega
sveitta samloku.
Gestirnir komu lítið á óvart.Flestir á þrítugsaldri og til í
hvað sem er. Væg vannæring var
einkennandi og ljóst að heróínlúkk-
ið er enn geysivinsælt. Þá setti sól-
in svip á fatatískuna, en karlmenn
voru flestir í rifnum (stutt)buxum
og Converse-skóm. Stúlkurnar í
sandölum og stuttum pilsum.
Sígaunar voru nokkuð áberandi
á hátíðinni að þessu sinni. Gengi
þeirra herjuðu á tjaldsvæðin á
meðan stærstu tónleikarnir voru. Í
kjölfarið seldust tjaldlásar upp.
Sígaunarnir voru einnig skæðir
á tónleikasvæðunum. Heilu fjöl-
skyldurnar voru í fullri vinnu við
að tína upp tóm ílát. Á hverjum
tónleikum mátti sjá fjölda fólks
skríðandi eftir jörðinni, í leit að
ílátum. Nokkrum sinnum kom til
átaka.
Glasabörnin voru svo áköf að
upp úr sauð milli þeirra. Minnti
það um margt á barnaleikinn
Hundabein.
Önnur átök sáust ekki á hátíð-inni. Einna næstur því að
lenda í reiðum tjaldgestum var
svefnvana Dani sem ákvað að
klifra út fyrir svæðið til að reka
nokkrar kýr sem voru í grennd.
Það gramdist öðrum enda aðferð-
irnar vægast sagt ómannúðlegar.
En úr þeim ágreiningi leystist og
Daninn fór fljótlega sjálfviljugur
að sofa. Þó ekki fyrr en nokkur
tjöld voru jöfnuð við jörðu.
Nokkrar nýjungar voru kynntartil leiks. Meðal þeirra litla
forritið í símann til að finna félaga
sína. Íslendingar eru gjarnir á að
gleyma hleðslutækjum heima þeg-
ar þeir fara til útlanda og því
reyndi ekki á tæknina.
Í stað þess var treyst á öruggt
kerfi. Að vera alltaf á sama stað á
tónleikum. Það virkaði full-
komlega.
Hátíðin heppnaðist því allvel. Áeinum degi djasshátíðarinnar
var blaðamaður hræddari við vasa-
þjófa en á fimm dögum meðal skít-
ugra ungmenna. Ef stefnir í sólríka
hátíð mun ég eflaust snúa aftur.
andri@mbl.is
Úr rokkinu yfir í djassinn
Á HRÓARSKELDU
Andri Karl
» Væg vannæringvar einkennandi og
ljóst að heróínlúkkið
er enn geysivinsælt.
Ljósmynd/Íris Ann
Smá hvíld Að sækja tónleika getur verið lýjandi til lengdar og því nauðsynlegt að hvíla sig vel á milli.
ÍS
LE
N
S
ÍS
LE
ÍS
LE
ÍS
LE
K
A
SI
AA.
IS
M
S
ISI
A
40
989
4
8
05
/0
8
05
/0
8
05
/0
8
05
/
8