Morgunblaðið - 08.07.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 33
Eftir Rut Sigurðardóttur
rutsig@gmail.com
MUGISON mætti galvaskur til
Berlínar á laugardaginn eftir sann-
kallaða landsleikjastemmningu á
Hróarskelduhátíðinni daginn áður,
þar sem íslenskir áhorfendur létu
vel í sér heyra. Það fór ekki jafn-
mikið fyrir Íslendingum á tónleik-
unum í Admiralspalast á laug-
ardaginn, en stemmningin var
þrátt fyrir það feikigóð, þar sem
þýskir Mugison-aðdáendur fjöl-
menntu. Pétur Ben hitaði upp með
lögum af plötunni sinni ásamt „co-
ver“-útgáfu af Michael Jackson-
laginu „Billy Jean“. Hann lét það
ekki á sig fá þótt hann hafi spilað
með opna buxnaklauf, en hann hló
bara að atvikinu eftir á og furðaði
sig á því hvers vegna enginn hafi
látið hann vita. Áhorfendur tóku
svo vel undir þegar Mugison sjálfur
steig á svið ásamt hljómsveit-
.Stemmningin sem myndaðist var
gríðarleg og hitinn í húsinu eftir
því. Oft og tíðum var mikill hama-
gangur á sviðinu, svo mikill að
hljómborð Davíðs Þórs flaug eitt
sinn af standinum og nærri út í sal.
Lagið var þó klárað, þar sem Davíð
Þór sat á sviðinu með hljómborðið í
kjöltunni. Ekkert skyldi stöðva
rokkið og það kunnu áhorfendur
vel að meta. Að tónleikunum lokn-
um voru strákarnir sammála um að
vel hefði til tekist og orkan á sviði
og í sal hafi verið mikil. „The best
crowd in Germany,“ sagði Mugison
áður en þeir runnu í síðasta lagið,
„Murr Murr“, en þá ætlaði allt um
koll að keyra. Það er spurning
hvort þeir lýsi þessu yfir í hverri
borg.
Mugiboogie í Berlín
Vestfjarðarokk Mugison tryllir lýðinn á meðan Pétur Ben spilar undir.
Mugifans Davíð Kristinsson, heimsspekingur, og sýningarstjórarnir Dorot-
hée Kirch og Markús Þór Andrésson mættu til að sjá Mugison.
Íslenskir gestir Kristína Aðalsteinsdóttir, Björn Halldór Helgason (Björns-
sonar), Margrét Lára Sigurðardóttir og Halla Björg Randversdóttir (Þor-
lákssonar) skemmtu sér vel á tónleikunum.
Fall Davíð Þór lætur það ekki á sig fá að
hljómborðið hafi fallið af standi sínum.
Káf Mugison sést hér ásamt hljómsveitinni, hljóðmönnum og róturum
og greinilegt er að mikil ást er í hópnum eftir vel heppnaða tónleika.
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 6 LEYFÐ
WANTED kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
CHRONICLES OF NARNIA kl. 6 B.i. 7 ára
THE BANK JOB kl. 9 B.i. 16 ára
HANCOCK kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 8 LEYFÐ
THE INCREDIBLE HULK kl. 10 B.i. 12 ára
HANCOCK kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 8 LEYFÐ
WANTED kl. 10:10 B.i. 16 ára
JACK BLACK SANNAR AFHVERJU HANN ER TALINN EINN
SÁ FYNDNASTI GRÍNLEIKARI Í HEIMINUM Í DAG
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
STEVE CARELL ÁSAMT ÚRVALSLIÐI GRÍNLEIKARA SEM
SANNA MEÐ ÞESSARI MYND AÐ HLÁTURINN LENGIR LÍFIÐ
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
NAR ERU MÆTTAR Á HVÍTA TJALDIÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI VIPSALURINNER BARA LÚXUSER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
,,Ævintýramynd Sumarsins”
- LEONARD MALTIN, ET.
,,Besta spennumynd ársins”
- TED BAEHR, MOVIEGUIDE.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
SÝND Í KEFLAVÍK
EDWARD NORTON ER HULK Í EINNI FLOTTUSTU HASARMYND SUMARSINS.
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
,SAFARÍK KVIKMYND, BYGGÐ Á SANNSÖGULEGU
BANKARÁNI SEM KEMUR SÍFELLT Á ÓVART...,,
- Rolling stones
eee