Morgunblaðið - 19.07.2008, Side 1

Morgunblaðið - 19.07.2008, Side 1
L A U G A R D A G U R 1 9. J Ú L Í 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 196. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er DAGLEGTLÍF TAKTFAST HÓPEFLI Á ÞRIÐJUDAGSÞRUSKI AF LISTUM Neyðast til að borða fiskisúpu LESBÓK Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson hafa um árabil fengist við að þýða verk Franz Kafka á ís- lensku. Lesbók birtir í fyrsta sinn þýðingar á sjö örsögum Kafka og úrval kjarnyrða hans. Sjö örsögur eftir Franz Kafka „Fyrst þegar ég byrjaði að vinna svona verk með myndböndum fannst mér einhvern veginn að verk unnin með minni aðferð væru betri en þau sem voru úthugsuð,“ segir Steina Vasulka í viðtali við Einar Fal. Einar Falur talar við Steinu Vasulku Ari Trausti Guðmundsson og Ragn- ar Th. Sigurðsson lýsa því sem fyrir augu bar á ferð þeirra um hið „gleymda horn Síberíu“ þar sem gríðarlegar framfarir hafa orðið síðustu átta árin. Sól skín lágt á himni og gola bítur kinn Eftir Grétar Júníus Guðmundsson og Guðna Einarsson GEIR H. Haarde forsætisráðherra segir að með því að ráða Tryggva Þór Herbertsson, forstjóra fjárfest- ingabankans Askar Capital, sem efnahagsráðgjafa forsætisráðherra til sex mánaða sé ætlunin að styrkja forsætisráðuneytið enn frekar í bar- áttunni við aðsteðjandi efnahags- vanda. Staða efnahags- og fjármála hér heima og erlendis hefur valdið miklu álagi í forsætisráðuneytinu, að sögn Geirs. Hann telur að Tryggvi verði mjög öflugur liðsauki og er ánægður með að hafa fengið hann til starfa. Geir telur að Tryggvi henti ákaflega vel til starfans og bendir á að hann hafi verið prófessor í hagfræði og forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ, auk þess að vinna í bankaheim- inum. „Mitt hlutverk verður að aðstoða forsætisráðherra við að leiða saman fólk til að koma með lausnir,“ segir Tryggvi Þór. „Ég er ekki töframaður frekar en aðrir, en ég ætla að leggja mitt ýtrasta af mörkum til þess að aðstoða við að hrinda í framkvæmd því sem er í undirbúningi, koma með nýjar hugmyndir og almennt að að- stoða forsætisráðherra í því hlut- verki hans að vera ráðherra efna- hagsmálanna.“ Verðbólgu verður að ná niður Hann segist hafa mestar áhyggjur af fjármálastöðugleikanum, en af þeim þjóðhagsstærðum sem oftast er fjallað um í fréttum hafi hann mestar áhyggjur af verðbólgunni. „Henni verður að ná niður, því ef hún nær að grafa um sig þá mun það leiða til mikillar kjararýrnunar fyrir al- menning.“ Þá segir hann að það þurfi að koma hagvextinum af stað aftur. Liðsstyrkur í baráttuna Tryggvi Þór Herbertsson skipaður efnahagsráðgjafi forsætisráðherra Í HNOTSKURN »Efnahagsráðgjafi starfaðií forsætisráðuneytinu á ár- um áður, en svo hefur ekki verið í nokkur ár. »Verkefni nýráðins efna-hagsráðgjafa verða m.a. að veita almenna ráðgjöf í efnahagsmálum, ekki síst varðandi alþjóðlegt efnahags- umhverfi og áhrif þess hér. »Tryggvi Þór Herbertssoner frá Neskaupsstað. Hann er doktor í þjóðhagfræði. »Tryggvi hefur verið for-stjóri Askar Capital og var áður forstöðumaður Hag- fræðistofnunar og prófessor við Háskóla Íslands.  Betri maður | 11 Tryggvi Þór Herbertsson Geir H. Haarde STÓRT lón er að myndast við Brúarjökul sem gengur norður úr Vatna- jökli. Ómar Ragnarsson flaug yfir lónið í síðustu viku og þótti það hafa stækkað mikið í sumar. Hann áætlaði að lónið væri orðið um tveir fer- kílómetrar. Það liggur með jökuljaðrinum á 1,5 km kafla og teygir sig allt að tvo km til norðurs frá jöklinum. Oddur Benediktsson jarðfræðingur hjá Orkustofnun bendir á að Brú- arjökull sé framhlaupsjökull. Mælingar hafi sýnt að undirlag jökulsins sé lægra en landið fyrir framan og því var vitað að lón yrði til þegar hann hopaði. Margir jöklar hopi og skilji eftir sig lón um þessar mundir. Kringilsárrani, Hálslón og Snæfell sjást í fjarska. gudni@mbl.is Ljósmynd/Ómar Ragnarsson Stórt jökullón að verða til í Vatnajökulsþjóðgarði Lón við rætur Brúarjökuls stækkar því meir sem jökullinn hopar lengra  Hundrað ára gamlar konur munu innan þriggja áratuga geta eignast börn, að því er vísindamenn sjá fyrir sér að verði raunin með hjálp erfðatækni. Framfarir í erfðavísindum eru forsenda hinnar djörfu spár sem byggist á að hægt verði að framleiða sæði og egg- frumur úr húðfrumum. Tilefni þessarar framtíðarsýnar, sem fjallað er um í vísindaritinu Nature, er að nú eru 30 ár liðin frá fæðingu Louise Brown, með hjálp tækni- frjóvgunar. Indverska amman Omkari Panw- ar, elsta móðir sögunnar sem ný- lega eignaðist tvíbura sjötug, væri því í yngra lagi miðað við þessar mæður næstu alda. baldura@mbl.is Hundrað ára mæður Omkari Panwar  Það er misjafnt mávalífið. Í Reykjavík er litið á mávinn sem plágu og vopn- aðir menn gerðir út af örkinni til að halda honum í skefjum. Ekki í bænum Bridge- water í Somerset í Bretlandi. Þar fara menn þveröfugt að. Þetta kom berlega í ljós á dögunum þegar sjö slökkviliðsmenn á tveimur slökkvi- bílum lögðu sig alla fram í á aðra klukkustund við að bjarga mávi sem hafði fest sig í þaki verksmiðju einnar. Fjölförnum vegi var lokað í alls sjötíu og fimm mínútur og um- ferð beint annað, meðan á björg- uninni stóð. Er nú hlúð að sárum mávsins. baldura@mbl.is Hetjuleg mávabjörgun  Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, fór í loftið skömmu fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi til móts við tveggja hreyfla bandaríska flugvél með bilaðan hreyfil. Hafði flugmaður óskað eftir aðstoð gæsl- unnar og rofnaði samband við vél- ina um tíma. Vélin lenti heilu og höldnu á Reykjavíkurflugvelli klukkan 23:29. Vélin var af gerð- inni Beachcraft 18 og var hún á leið frá Syðri-Straumsfirði á Grænlandi til Reykjavíkur. | andresth@mbl.is Lítil flugvél í vanda Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is EVRÓPUPÓLITÍKIN verður mjög fyrirferðarmikil innan Sjálfstæðis- flokksins á næstunni. Rótfastri stefnu flokksins gegn ESB-aðild verður ekki breytt á milli landsfunda en margt bendir til að þessi mál verði eitt stærsta viðfangsefni og væntanlega átakamál næsta lands- fundar flokksins, sem haldinn verður haustið 2009. Þetta er skoðun fjölmargra við- mælenda Morgunblaðsins innan Sjálfstæðisflokksins. Að mati sjálf- stæðismanna sem talað var við er Evrópuumræðan öll að breytast og kaflaskil að verða í Evrópumálunum innan flokksins. Andstaða við aðild að ESB er áberandi á landsbyggðinni og innan sjávarútvegsins en í fréttaskýringu í blaðinu kemur fram að innan sjáv- arútvegsins séu menn farnir að skoða gaumgæfilega hvaða áhrif það hefði í sjávarútvegi ef evran yrði ráð- andi. | 24 Tekist á um ESB á næsta landsfundi SÖFNIN Í LANDINU síða 15 í Lesbók

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.