Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞARNA er veikt og frelsissvipt fólk, sem þarf svo sannarlega á meðferð að halda og við metum svo að ekki sé verið að vinna að úr- bótum fyrir. Þetta er í salti þarna, bæði á Litla-Hrauni og á Sogni,“ segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Honum finnst sárt að vita af veiku fólki sem ekki fái næga aðstoð, hver svo sem ástæðan sé. Séu það deilur í kerfinu um hverjir eigi að stjórna eða ráða þurfi að leysa þær. „Heil- brigðisráðherra verður þá að höggva á hnútinn,“ segir Sveinn. Fáist ekki læknir til starfa verði líklega að færa réttargeðdeildina nær Reykjavík. Staðsetningin fæli fagfólk frá því að vinna þar. FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is HAFNAR eru viðræður milli Heil- brigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Landlæknisembættisins um hvernig megi manna stöðu geðlækn- is við stofnunina, að sögn Óskars Reykdalssonar, lækningaforstjóra HSu. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær hefur staðan verið auglýst um langa hríð en enginn sótt um. Óskar segir hafa verið hringt í marga lækna og staðan kynnt fyrir þeim, en enginn viljað. Álag þar til lausnin finnst Staðan, sem hefur verið laus í heilt ár, er þríþætt. Almenn geð- læknisþjónusta við almenning og svo sérstök þjónusta við fanga á Litla- Hrauni og á réttargeðdeildinni að Sogni. Deildin á Sogni fær sér- framlög á fjárlögum en er rekin af HSu. Þar starfar einn geðlæknir og er hann undir nokkru álagi eins og staðan er nú, að sögn Óskars. Rætt var við nokkra geðlækna í gær og virðast ástæður þess að eng- inn tekur að sér stöðuna margvís- legar. Sjúklingarnir á Sogni eru í fyrsta lagi erfiðir. Þá er skortur á geðlæknum hér á landi og sérmennt- aðir réttargeðlæknar aðeins örfáir. Löng bið er að sögn eftir því að kom- ast að hjá sjálfstætt starfandi geð- læknum og því hugsa þeir sig tvisvar um áður en þeir taka starfinu. Stað- setning og smæð Sogns skipir líka miklu máli. Bæði Sigurður Guð- mundsson landlæknir og Kristófer Þorleifsson, formaður Geðlækna- félags Íslands, taka undir það. Sig- urður segir sína persónulegu skoðun þá að réttargeðdeildin eigi að vera nær Reykjavík og tengjast geðsviði Landspítala mun sterkari böndum. Kristófer segir geðlækna jafnvel ótt- ast faglega einangrun taki þeir við stöðu á jafnlítilli sjálfstæðri deild eins og Sogni. Þá er af samtölum ljóst að orðspor Sogns hefur orðið fyrir skaða, þótt árangur af meðferð brotamanna þar sé ótvíræður og tugir útskrifaðra vistmanna hafi ekki brotið af sér eftir vistina þar. Heimildir herma að tregða hafi verið milli stofnana að vinna saman í málefnum fanga og ósakhæfra brotamanna. Það standi þessum málum fyrir þrifum. Um leið eru rekstrarleg og læknisfræðileg rök fyrir því að réttargeðdeildin sé sér- stök deild, aðskilin frá geðdeild á Landspítalanum, og málið því flókið. Vill þverfaglega göngudeild Tómas Zoega, yfirlæknir á geð- deild LSH, segir rætt hafa verið um þessi mál fyrr í sumar en ekkert formlegt erindi borist deildinni enn. Landlæknir segir vonast til þess að meira komi frá geðdeild LSH til að þjónusta Sunnlendinga almennt og fyrrnefndar stofnanir. Einnig vill hann göngudeildarþjónustu fyrir fyrrverandi fanga og vistmenn á Sogni sem þurfa eftirfylgni. Sú göngudeild þurfi að vera nær Reykjavík og vera þverfagleg. Undir hvaða stofnun hún eigi að vera og hvernig stjórn hennar eigi að hátta sé enn óákveðið. Óskastaðan sé að sú deild verði undir LSH, en þá verði að koma til pólitísk ákvörðun þess efnis, tilheyrandi aðstaða og ein- hverjir fjármunir. LSH þjónusti fanga og ósakhæfa Landlæknir telur að réttargeðdeildin eigi að vera nær höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/RAX Hraunið Staðan felst m.a. í geð- læknisþjónustu fyrir fanga. RÚMLEGA 100 útlendingar sóttu um að læra íslensku við Stofu Sig- urðar Nordals í sumar, en einungis var pláss fyrir 35 nemendur. Þrjár ástæður eru fyrst og fremst gefnar fyrir auknum áhuga útlend- inganna á námskeiðinu: tónlistin, al- mennt aukinn áhugi á Norður- Evrópu auk persónulegra ástæðna. „Ég þykist merkja það að áhugi þeirra sem taka þátt í námskeiðunum sé svolítið annar en fyrir tíu árum,“ segir Úlfar Bragason, rannsókn- arprófessor við Stofnun Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum, sem stjórnað hefur námskeiðinu í 20 ár. Úlfar segir að fyrir tíu árum hafi fyrst og fremst miðaldarfræðingar sótt námskeiðin og hafi þeir t.a.m. haft mikinn áhuga á söguslóðum Njálu og Egilssögu. Í dag þurfi aftur á móti að fara á söguslóðir Bjarkar og Sigur Rósar.„Það eru rosalega marg- ir sem nefna tónlist í umsóknum sín- um,“ segir Guðrún Guðmundsdóttir, kennari á námskeiðinu, sem segir nemendurna vel að sér í íslenskri nú- tímatónlist. Sigur Rós og Í svörtum fötum Patrick Ostellari, stærðfræði- kennari frá Frakklandi, segir áhuga sinn á íslenskunámi fyrst og fremst tengjast almennri forvitni um nor- rænu löndin, en hann hefur einnig lært norsku, sænsku og dönsku, ís- lenskan hafi verið rökrétt framhald. Ástæðan liggi líka að hluta í íslenskri menningu og hlustar Patrick til að mynda mikið á Sigur Rós og Í svört- um fötum. Adam Oberlin er doktorsnemi á þrítugsaldri frá Bandaríkjunum. Hann lærir íslensku í tengslum við fræðigrein sína, textafræði. Adam hefur m.a. lært fornensku og miðhá- þýsku og nú er komið að íslenskunni. „Ég hef lært íslensku í Þýskalandi fyrir þremur árum, þetta sumar hef ég lært íslensku í sex vikur. Ég held að þetta sé ekki svo erfitt því að ég tala þýsku, norsku og sænsku,“ segir íslenskuneminn á nær fullkominni ís- lensku. Fyrir utan þetta námskeið var hann í þriggja vikna íslensku- námskeiði í Bandaríkjunum og kom til Íslands í annað þriggja vikna nám- skeið áður en hann byrjaði í nám- skeiðinu hjá Stofu Sigurðar Nordals. andresth@mbl.is Fleiri útlendingar vildu læra íslensku en fengu Í HNOTSKURN »Stofa Sigurðar Nordalsstendur fyrir íslensku- námskeiðum í sumar í sam- starfi við heimspekideild Há- skóla Íslands og Háskólann í Minnesota. »Nemendur eru valdir meðprófi í íslensku á netinu og hafa þeir sem komust inn yf- irleitt náð 90% árangri. »Meðalaldur þátttakenda erí kringum þrítugt og koma þeir víðs vegar að. Áhugasamir Aukinn áhugi er á sumarnámskeiði í íslensku hjá Stofu Sigurðar Nordals. Á söguslóðir Bjarkar mbl.is | Sjónvarp Höggvið verði á hnútinn Sveinn Magnússon HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt hollenskan karlmann til 18 mánaða fangelsis fyrir að hafa smyglað 770,33 grömmum af kókaíni til landsins. Ákærði kom með áætlunarflugi frá Amsterdam og veitti fíkniefna- hundur í Leifsstöð honum athygli. Eftir að leitað hafði verið án ár- angurs á manninum og í farangri hans var stroka af manninum sett í jónaprófun og gaf hún jákvæða svörun fyrir kókaíni. Grunur kviknaði þá um að hann hefði fíkniefni innvortis og var hann því vistaður í opnum klefa á lög- reglustöðinni í Keflavík undir eft- irliti lögreglumanns, þar til sam- tals 42 fíkniefnapakkningar höfðu skilað sér. Við ákvörðun refsingar var horft til hættueiginleika efnisins og þess að dómstólar hefðu að jafnaði ákveðið þung viðurlög vegna inn- flutnings kókaíns. Á móti var litið til játningar ákærða og þess að maðurinn var burðardýr. Þá var ákærði dæmdur til að greiða allan sakarkostnað málsins, samtals rúmlega eina milljón króna. Arnfríður Einarsdóttir kvað upp dóminn. andresth@mbl.is 18 mánuðir fyrir kókaín Með 42 pakkn- ingar innvortis MAKRÍLL hefur veiðst talsvert við Vestfirði undanfarið á sjóstöng. Matthias Brill, starfsmaður Is- angling sem gerir út 21 bát til sjó- stangaveiða ferðamanna frá Tálknafirði, Bíldudal og Súðavík, sagði að síðustu tíu daga hefðu veiðimenn sem fóru frá Tálknafirði fengið talsvert af makríl. Hann taldi að þeir hefðu veitt 50-70 fiska. Eins höfðu veiðimenn frá Súðavík veitt makríl, en færri fiska en þeir sem fóru frá Tálknafirði. Á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda segir frá tveimur herramönnum á áttræðisaldri sem reru til fiskjar frá Tálknafirði á fimmtudaginn var. Þeir voru hvor með sína veiðistöngina og ætluðu að veiða sér þorsk. Þeir fengu í soð- ið og ætluðu þá að snúa aftur í land, en ákváðu að renna enn einu sinni. Báðir settu þeir í spikfeita makríla og þótti þessi afli tíðindum sæta á Tálknafirði. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir Fengur Makríll er hér með sandsíli. Makríll bítur á við Vestfirði HRÚTURINN Hreinn fékk nýjan leikfélaga þegar Helgi Már Ingvarsson, lítill snáði á öðru ári, kom í heimsókn að Mjóeyri á Eskifirði. Helgi verður tveggja ára í október og hafði gam- an af að eltast við hrútinn. Þótt ungur sé að árum þótti hann sýna takta sem gætu nýst vel í smalamennsku síðar meir. Berglind S. Ingvarsdóttir á Mjóeyri sagði að Hreinn, sem er frá Engjabakka, hefði orðið viðskila við mömmu sína og kom- ið haltur að Mjóeyri. Nú er hann óðum að braggast og unir sér vel með labradortík á bænum. Þau eru góðir félagar og spáss- éra löngum um eyrina. Berglind sagði að ferðamenn frá mörgum löndum sem hafa gist á Mjóeyri sæki mjög í að fá að gefa Hreini mjólk úr pela og þyki það skemmtileg reynsla. Ferðamenn sækja í að gefa heimalningnum Hreini á Mjóeyri við Eskifjörð mjólk úr pela Ljósmynd/Helgi Garðarsson Snemma beygist krókurinn til þess sem verða vill

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.