Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 13

Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 13 FRÉTTIR             ÆTTARMÓT Á SÍÐUNNI Laugardaginn 26. júlí 2008 halda afkomendur hjónanna Kristófers Þorvarðarsonar (1854 - 1893) bónda og pósts á Breiðabólstað á Síðu og konu hans Rannveigar Jónsdóttur (1860 - 1939) húsfreyju, ættarmót austur á Síðu til að heiðra minningu þeirra hjóna. Mótið verður formlega sett í Prestbakkakirkju kl.13:00 og blómsveigur lagður á leiði hjónanna og sr. Þorvarðar Jónssonar (1798 - 1869). Að því loknu verður afhjúpaður minnisvarði um hjónin og gengna afkomendur þeirra í Rannveigarlundi á skógarjörðinni Prestbakkakoti og gróðursettar trjáplöntur í lundinn. Kaffisamsæti og dagskrá verður síðan í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Upplýsingar um ættarmótið er að finna á vefsíðunni www.mosar.is. Óskað er eftir að fólk skrái þátttöku í ættarmótinu ekki seinna en 20. júlí n.k. Þeir afkomendur sem þurfa nánari upplýsingar geta haft samband við Rannveigu Jónsdóttur í síma 588 3475 / 863 4305, netfang: rannveig@fa.is, eða Ólafíu Jakobsdóttur í síma 892 9650, netfang: olafiaj@centrum.is. KFUM og KFUK á Íslandi og Sjóvá trygginga- og forvarnarfélag skrif- uðu undir samstarfssamning í Vatnaskógi í fyrradag. Allir þátttakendur í vetrarstarfi félaganna munu koma til með að fá kynningu á vönduðu starfi for- varnahúss Sjóvá og auka þannig ör- yggi sitt og lífsgæði, þá eru öll börn sem og starfsfólk félagsins tryggð hjá Sjóvá sem leggja mun KFUM og KFUK lið með ýmsum hætti. Forvarnarstarf KFUM og KFUK á Íslandi er fjölþætt, en rúmlega 17.000 börn og unglingar taka ár- lega þátt í starfi félagsins. „Áhersla KFUM og KFUK á að elska og virða eigið líf og annarra fellur vel að forvarnarstefnu Sjóvá og þó mikil blessun hvíli yfir sum- arbúðum KFUM og KFUK á Íslandi er gott að vita til þess að jafn öflugt og traust fyrirtæki eins og Sjóvá sýnir félaginu það traust að gerast bakhjarl þess,“ segir í frétta- tilkynningu. Forvarnarstarf sumarbúða KFUM og KFUK og Sjóvár Morgunblaðið/hag Samningur Sjóvá og KFUM&K gerðu með sér styrktarsamning. FYRSTI keisaraskurður var fram- kvæmdur á dögunum í sjúkrahús- inu í Monkey Bay í Malaví sem reist var fyrir íslensk þróunarfé. „Til þessa hafa aðgerðir á þessu svæði farið fram á héraðssjúkra- húsinu í héraðshöfuðborginni Man- gochi. Á svæðinu eru rúmlega 40.000 barnshafandi konur á hverju ári, um 6.400 þeirra þurfa að gang- ast undir keisaraskurð og við reikn- um með að gera 300 keisaraskurði árlega. Það er ákaflega kærkomið að geta létt álaginu af héraðs- sjúkrahúsinu, sérstaklega á fæð- ingar- og kvensjúkdómasviði. Áður þurfti oft að flytja konurnar til Mangochi, sem er að minnsti kosti klukkutíma ferðalag og mun lengra á rigningartímanum,“ segir Guð- brandur Þorkelsson, læknir og ráð- gjafi við sjúkrahúsið. Fyrsti keis- araskurðurinn UNGIR jafnaðarmenn (UJ) fagna tillögu Björns Bjarnasonar dóms- málaráðherra um að látið verði á það reyna að taka upp evruna með sérstöku samkomulagi við Evrópu- sambandið þó að ljóst sé að sú leið er ófær eins og forsvarsmenn Evr- ópusambandsins hafa margoft bent á. Í tillögu dómsmálaráðherra felst hins vegar viðurkenning á að pen- ingaleg þjóðernishyggja er ekki valkostur fyrir smáþjóð í hnatt- væddum heimi eins og Samfylk- ingin hefur raunar mörgu sinnum bent á, segir í ályktuninni. UJ fagna tillögu Björns Bjarna ÚRSKURÐARNEFND í við- lagatryggingarmálum hefur úr- skurðað að viðlagatrygging skuli bæta það tjón sem varð á dælustöð- inni í Kaldárholti í Rangárvalla- sýslu í jarðskjálftanum fyrir átta árum. Með niðurstöðu úrskurð- arnefndarinnar er viðlagatrygg- ingu gert að greiða OR um 60 millj- ónir króna í vexti og dráttarvexti. Auk þess gerði OR kröfu um að fá greiddan kostnað sinn af rekstri málsins, alls liðlega 115 milljónir. Loksins bætur STUTT ÝMISLEGT fæst keypt í Melabúðinni en ef það er eitthvað sem ekki er falt þá er það búðin sjálf. Sögusagnir hafa gengið í Vesturbænum þess efnis að 10-11 verslunarkeðjan hafi keypt Melabúðina og eru Vesturbæingar ugg- andi yfir því enda hefur búðin verið órjúfanlegur hluti borgarhlutans sl. 52 ár. Þegar náðist í Friðrik Ármann Guðmundsson, sem rekur búðina ásamt bróður sínum Pétri, og orðrómurinn var borinn undir hann skellti hann uppúr. „Melabúðin er ekki til sölu, ekki í gamla daga þegar Eiki [Eiríkur Sigurðsson] átti 10-11 og Jón Ásgeir hefur heldur ekki hringt í mig.“ Sala stendur ekki til Er Friðrik er spurður hver ástæðan geti verið fyrir því að sögusagnir sem þessar komist á kreik stendur ekki á svörum. „Sögusagnir fara af stað venjulega þegar illa gengur en það gengur mjög vel hjá okkur. Við erum ekki til sölu og það stendur ekki til meðan við bræðurnir stöndum vaktina og erum tilbúnir að þjóna Vesturbæingum um allt land.“ ylfa@mbl.is Vörur falar en ekki Melabúðin sjálf FRÉTTASKÝRING Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is SÝKLALYFJANOTKUN hér á landi hefur aukist ár frá ári þrátt fyrir að hún sé í mörgum tilfellum óþarfi. Íslendingar nota mest allra Norðurlandaþjóða af sýklalyfjum. Samkvæmt tölum um sölu sýklalyfja jókst salan hér á landi um 18% á ár- unum 2003-2006. Víðast hvar annars staðar í heiminum dróst hún saman. Börn nota hlutfallslega mest af sýklalyfjum og telur Vilhjálmur Ari Arason heimilislæknir að aukningin sé mest meðal þeirra. Langoftast séu börnum gefin sýklalyf við mið- eyrnabólgu þó að allt að 80% slíkra tilfella lagist af sjálfu sér. Alþjóðleg heilbrigðisvá? Að sögn Vilhjálms er hætta á að möguleikinn til að lækna alvarlegar sýkingar með sýklalyfjum geti runn- ið læknavísindunum úr greipum vegna ofnotkunar sýklalyfja gegn minniháttar sýkingum. Hann segir sýklalyfjaónæmi vera vaxandi vandamál í heiminum og að Alþjóða- heilbrigðisstofnunin telji það verða helstu heilbrigðisógn veraldar á komandi áratugum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur jafnframt að um helmingur sýkla- lyfjanotkunar í heiminum sé óþarf- ur. Sýklalyf eru notuð gegn kvefi, hálsbólgum og vægum eyrnabólgum sem allt lagast á tiltölulega skömm- um tíma án inngrips sýklalyfja. „Það eru einnig vísbendingar um það í okkar rannsókn að við séum kannski að búa til stærra vandamál með því að nota sýklalyfin af svona litlu til- efni,“ segir Vilhjálmur. Rannsókn sem Vilhjálmur gerði ásamt Karli Gústaf Kristinssyni lækni og fleirum á 1-6 ára börnum á árunum 1992-2003 benti til að sýkla- lyfjameðferð fylgdi umtalsvert meiri hætta á endursýkingu. 30% barnanna báru með sér bakteríur sem ónæmar voru fyrir sýklalyfjum. Karl segir að ónæmið þróist yf- irleitt þannig að sýklalyfin útrými næmum sýklum en ráði ekki nið- urlögum ónæmra sýkla. Með brott- hvarfi næmu sýklanna myndast „tómarúm“ sem hinir ónæmu sýklar geti fyllt. Þannig getur hver end- urtekin eyrnabólgusýking orðið erf- iðari viðureignar. Hann telur einnig að breiðvirk sýklalyf, sem herja á fleiri tegundir örvera og mynda stærra „tómarúm“, séu of mikið not- uð þegar þröngvirk lyf duga. Skyndilausnir á öld hraðans Ástæður ofnotkunarinnar eru taldar margþættar. Áðurnefnd rannsókn leiddi í ljós tengsl milli skilnings og þekkingar fólks á sýkla- lyfjum og afleiðingar notkunar þeirra. Foreldrar á Egilsstöðum voru best meðvitandi um þær afleið- ingar sem lyfjunum geta fylgt en þar var sýklalyfjameðferð barna fátíðust í lok rannsóknartímabilsins. Sýnir þetta mikilvægi fræðslu um sýklalyf. Vilhjálmur telur að álag og hraði nútímasamfélags þrýsti á foreldra til að grípa til skyndilausna. Til að forð- ast áþján barna sinna, fjarvistir frá vinnu og fleira leggi foreldrar hart að læknum að grípa til sýklalyfja. Þetta er þó ekki skynsamlegt þegar litið er til langtímaafleiðinganna. Ofnotkun sýklalyfja útbreidd hér á landi Morgunblaðið/ÞÖK Skoðun Miðeyrnabólga er algengasta tilefni sýklalyfjanotkunar barna en í 80% tilfella lagast hún af sjálfu sér. Leiðir til ónæmis sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að gæti orðið ein stærsta ógnin við heilbrigði fólks um allan heim Hvergi í heiminum gangast eins mörg börn undir rörísetningar- aðgerð og á Íslandi. Um þriðjungur íslenskra barna fær rör í hljóð- himnu en á öðrum Norðurlönd- unum er hlutfallið mun lægra og aðeins örfá prósent í Bandaríkj- unum. 44% barna í Vest- mannaeyjum gangast undir rör- ísetningaraðgerð samkvæmt tölum frá árinu 2003. Gerist eyrnabólga þrálát og ekki tekst að ráða niðurlögum hennar með sýklalyfjum eða vægari úrræð- um er gripið til rörísetningar. Rann- sóknir sýna að fylgni er milli notk- unar sýklalyfja og aukins fjölda rörísetninga. Er því talið að með mikilli notkun sýklalyfja verði sýkl- arnir ónæmir fyrir þeim og þannig aukist nauðsyn aðgerðinnar. Einar Hjaltested, háls-, nef- og eyrnalæknir á Landspítalanum há- skólasjúkrahúsi, segir þráláta eyrnabólgu vera með algengari ástæðum rörísetningar. Þegar rör eru sett í hljóðhimnu kemst loft að miðeyranu, vökvinn sem safnast hefur fyrir fer og þannig minnka lík- ur á endurteknum sýkingum. Þriðjungur íslenskra barna fær rör í eyra SAMFYLKINGIN í S-Þingeyjar- sýslu og Norðurþingi fagnar heils- hugar ákvörðun iðnaðarráðherra, Össurar Skarphéðinssonar og ríkis- stjórnarinnar um að framlengja viljayfirlýsingu um hagkvæmisat- hugun álvers við Bakka. „Við tökum undir orð ráðherra um línulögn og samtengingu milli Kára- hnjúka og Kröflu til hagkvæmari og öruggari orkunýtingar á þessum svæðum.“ „Við hvetjum Landsvirkjun til að hraða orkuöflun og Alcoa til að flýta framkvæmdum enda þarfnast norð- urland allt þeirrar uppbyggingar sem þessum framkvæmdum mun fylgja,“ segir í ályktuninni. Styðja álver við Bakka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.