Morgunblaðið - 19.07.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 15
ERLENT
HEILÖG kona í Jammu á Indlandi, eða svokölluð sadhvi, fann apaungann
Geetanjali í hofi og matar hann nú og gætir hans. Apar eru heilagir í aug-
um hindúa og einn ástsælasti guð þeirra, Hanuman, hefur ásjónu apa. Apar
eru algengir í þéttbýli á Indlandi og geta verið með eindæmum hrekkjóttir.
AP
Heilagur hrekkjapúki
FRAMKVÆMDIR við Ryugyong-
hótelið, 3.000 herbergja hótel í
Pyongyang, hófust árið 1987, um
það leyti sem undirbúningur vegna
Ólympíuleikanna í Suður-Kóreu stóð
sem hæst. Þeim var hins vegar hætt
fjórum árum síðar og höfðu illar
tungur á orði að öfund vegna nýrra
mannvirkja í tengslum við Ólympíu-
leikana í Seoul hefði verið hvatinn
að byggingunni, sem tímaritið Es-
quire valdi þá ljótustu í sögunni.
Hótelið fékk viðurnefndið
„draugahótelið“, en hugmyndin var
að fimm veitingastaðir snerust
hringinn umhverfis efstu hæðir
hinnar 330 metra háu byggingar.
Ljótasta byggingin
Draugahótelið í N-
Kóreu senn opnað
Óklárað Hótelið er 105 hæðir.
Reuters
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
FRAMBJÓÐANDI demókrata-
flokksins, Barack Obama, býr sig nú
af krafti undir 10 daga ferð til Evr-
ópu og Miðausturlanda, sem fyr-
irhuguð er í næstu viku.
Fyrsti áfangi ferðarinnar er Jórd-
anía, þar sem hann mun lenda á
þriðjudag. Þá mun hann jafnframt
heimsækja Ísrael, Írak og Afganist-
an auk Þýskalands, Frakklands og
Bretlands.
Mikið fjölmiðlafár er í uppsiglingu
í Bandaríkjunum vegna ferðarinnar
og er ljóst að Obama muni hljóta
mun meiri athygli en aðal-
keppinautur hans, John McCain,
hlaut í ferð sem hann fór í mars síð-
astliðnum.
Í för með Obama verða frétta-
menn frá þremur stærstu sjónvarps-
stöðvum Bandaríkjanna sem munu
fylgjast með hverju fótspori fram-
bjóðandans. Um 200 fréttamenn
berjast jafnframt um að komast með
í ferðina en 40 sæti standa til boða.
Óvenjulegur leikur
Það þykir óvenjulegt að forseta-
frambjóðandi hætti sér til útlanda í
miðri kosningabaráttu og telja
margir fréttaskýrendur vestanhafs
að með því taki Obama mikla
áhættu. Öruggari leikur hefði verið
að halda sig heima og einbeita sér að
vandamálum þjóðarinnar sjálfrar.
Með utanlandsferðinni er Obama
sagður brjóta hefðina en í því sam-
hengi hefur verið bent á að það sam-
ræmist vel kosningaherferð hans,
sem boði breytingar.
Tilgangurinn með ferðinni er
vissulega að safna atkvæðum heima
fyrir og verjast jafnframt þeim orð-
rómi að Obama sé of ungur og
óreyndur til að valda leiðtoga-
hlutverkinu. Þess verður því krafist
að hann sýni öryggi í umgangi við
erlenda leiðtoga auk góðrar þekk-
ingar á alþjóðamálum. „Við erum
meðvituð um að það verður fylgst
gaumgæfilega með honum,“ sagði
David Axelrod, aðalráðgjafi hans,
við fréttamenn.
Mikil áhersla verður lögð á heim-
sókn Obama til Þýskalands þar sem
hann mun halda opinbera ræðu á
fimmtudag. Helstu málefni sem
Obama mun ræða við leiðtogana
verða málefni Íraks og Afganistans,
hlýnun jarðar og önnur umhverf-
ismál og útbreiðsla kjarnavopna.
Obama heldur í ferðalag
og heimurinn fylgist með
Forsetaframbjóðandinn hyggur á ferð til Evrópu og Miðaust-
urlanda í næstu viku og er það talinn áhættusamur leikur
Reuters
Á förum Obama leggur upp í ferða-
lag og mun ræða við leiðtoga.
Eftir Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur
sigrunhlin@mbl.is
HUNGURSNEYÐ blasir við íbúm
Simbabve vegna verðbólgu, sem er
nú níu milljón prósent. Í gær var
verðgildi 50 milljarða dala seðils sem
svarar um 25 íslenskum krónum.
Það dugir fyrir einu eggi. Simbabve-
dalurinn fellur svo hratt að verslanir
hækka verð oft á dag. Matvæli skort-
ir sárlega vegna verðtakmarkana, og
verslanir sem ekki hafa sambönd í
ríkisstjórninni geta aðeins boðið upp
á hreinsiefni og innlent grænmeti og
ávexti. Stjórnin sakar þær um að
hvetja þannig sveltandi borgara til
uppreisnar. Talið er að í ár verði
kornframleiðsla landsins fjórðungur
þess sem þarf til að fæða íbúana.
Margir hafa aðeins efni á einni
máltíð á dag. Menn óttast veikindi,
því dýrt er að leita læknis og nánast
engin lyf til. Auk þess hafa margir
læknar og hjúkrunarfræðingar flúið
land í von um betri kjör. Þriðjungur
Simbabvebúa vinnur erlendis og
sendir fjölskyldum sínum gjaldeyri.
Þessir peningar eru megnið af gjald-
eyri sem kemur inn í landið. Tvöfalt
hagkerfi er að myndast þótt ólöglegt
sé að taka við erlendum gjaldeyri
sem borgun. Í yfirgefnum vöruhús-
um eru reknar neðanjarðarmatvöru-
búðir, og eldsneyti er aðeins hægt að
kaupa með bandaríkjadölum. Einka-
rekin fyrirtæki greiða laun og
heimta leigu í bandaríkjadölum.
Ríkisbankinn annar ekki eftir-
spurn því seðlar eru á þrotum. Þýskt
fyrirtæki sem útvegar pappír til að
prenta þá á hefur sagt upp samningi
sínum við bankann. Hugmyndir hafa
heyrst um að Simbabve ætti að fá að
taka upp suður-afríska gjaldmiðilinn
rand. Þá hafa einnig verið uppi há-
værar raddir um að efnahags-
ástandið lagist ekki meðan Robert
Mugabe er við völd.
Tvö egg? Það verða
100 milljarðar, takk
Hver er fjárhagsstaða Obama nú?
Tilkynnt hefur verið að í júní hafi
safnast 52 milljónir Bandaríkjadala í
kosningasjóð Obama eða sem nem-
ur rúmlega fjórum milljörðum króna.
Á sama tíma hefur John McCain
safnað 22 milljónum dala. Þeir
standa þó nokkuð jafnir að vígi þar
sem flokkur McCains hefur verið iðn-
ari við kolann en flokkur Obama.
Hver verður áherslan í Evrópu?
Obama mun leggja sérstaka áherslu
á heimsóknina til Þýskalands. Mikil
umræða er um hvar hann muni
halda opinbera ræðu sína. Fyrst
lagði hann til Brandenborgarhliðið
sem er mikilvægt í sögu Berlínar en
þeirri bón var hafnað.
S&S
Atvinnuleysi í Simbabve hefur
náð 80 prósentum. Menn kvarta
því ekki undan því að þurfa að
ganga til vinnu klukkutímum
saman. Far með strætisvagni
kostar vikukaup starfsmanns í
verslun. Tugir manna safnast í
hópa og ganga saman til vinnu
af ótta við ræningja. Þeir ræna
ekki fé, því það á enginn, heldur
nesti sem fólkið hefur með sér.
Haldið fast í nestið
Reuters
Grænmeti Markaður í Harare. Kílóverð upp á milljarða hefur eflaust hækkað síðan myndin var tekin í fyrradag.
3.-24. júlí í Kringlunni
Bandarískur hermaður hvílist upp
við skotbyrgi í Korengal-dalnum í
Afganistan, 16 september
Tim Hetherington, UK fyrir Vanity Fair
GANGA.IS
Ungmennafélag Íslands