Morgunblaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SALMAN Rush-
die segist hafa
slegið metið í því
að árita sem flest-
ar bækur á sem
stystum tíma
þegar hann árit-
aði þúsund bæk-
ur á 57 mínútum.
Fyrra metið átti
vínsérfræðing-
urinn Malcolm Gluck.
Rígurinn á milli höfundanna
tveggja byrjaði þegar Gluck hélt því
fram að Rushdie skrifaði aðeins-
upphafsstafina sína á titilblöðin og
því væri ekkert að marka það þó
hann væri afkastamikill við áritanir.
Met hans er 1001 bók á 59 mínútum.
Rushdie neitaði þessu og segist
alltaf skrifa fullt nafn, en hann hafi
reyndar notið liðsinnis aðstoðarfólks
sem bar í hann bækurnar og opnaði
þær á réttum stað. Hann segir að
hraðvirkustu áritararnir séu, auk
hans sjálfs, Jimmy Carter, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna, og
skáldkonan Amy Tan.
Rushdie
sló metið
Salman Rushdie
VIRTUSTU uppboðshús heims
berjast nú um það að fá að hafa um-
sjón með sölu á listaverkasafni fata-
hönnuðarins Yves Saint Laurent
sem lést í síðasta mánuði. Safnið er
talið vera rúmlega 47 milljarða
króna virði og þetta verður því
stærsta sala á listaverkum í einka-
eigu sem haldin hefur verið. Í safn-
inu er að finna verk eftir Mondrian,
Picasso, Warhol, Matisse, Goya og
marga fleiri. Eigandi þess er Pierre
Bergé viðskiptafélagi, lífsföru-
nautur og erfingi Saint Laurents
sem byggði safnið upp með honum.
Tvö stærstu uppboðshús heims,
Christies og Sothebys, eru líklegust
til þess að ná sölunni og berjast nú
sín á milli um upphæðirnar sem í
húfi eru og upphefðina sem fylgir
nafni hönnuðarins.
Safnið selt
Litir Innblásturinn fyrir þennan kjól
frá YSL kom frá Mondrian.
SÍÐASTA sýningarhelgi er á
ljósmyndasýningu Árna Gunn-
laugssonar í Sverrissal sem
haldin er í tilefni af 100 ára
kaupstaðarafmælis Hafnar-
fjarðar. Árni Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður hefur
verið ötull í að mynda Hafn-
firðinga en það var fyrir 50 ár-
um sem hann fór að hóf að taka
myndir af eldra fólki á förnum
vegi í Hafnarfirði, aðallega af
þeim Hafnfirðingum sem lengi höfðu átt þar
heima. Á sýningunni eru um 440 ljósmyndir af
eldri Hafnfirðingum, sem teknar voru á árunum
1960-92 og eru allar svart-hvítar. Safnið er opið
frá kl. 11 til 17 og aðgangur er ókeypis.
Ljósmyndir
Síðasta sýningar-
helgi í Hafnarborg
Hafnfirsk
sveitasæla.
BERGRÚN Íris Sævarsdóttir
opnar í dag sýningu á mál-
verkum sínum á Hótel Djúpa-
vík í Árneshreppi á Ströndum.
Bergrún á ættir sínar að rekja
til Vestfjarða, til dæmis á Gjög-
ur við mynni Reykjarfjarðar.
Verkin á sýningunni eru flest
máluð á þessu ári og eru ýmist í
raunsæjum ljósmyndastíl eða
óhlutbundin og draumkennd.
Bergrún er á síðasta ári í list-
fræði við Háskóla Íslands og stefnir á háskólanám
í myndlist.
Sýningin, sem er önnur einkasýning Berg-
rúnar, opnar kl. 13 þann 19. júlí og stendur til loka
ágúst. Nánari upplýsingar á www.djupavik.is.
Myndlist
Önnur einkasýning
Bergrúnar
Bergrún Íris
Sævarsdóttir
Á SJÖTTU tónleikum sumar-
tónleikaraðar veitingahússins
Jómfrúarinnar við Lækjar-
götu, kemur fram kvartett
brasilíska píanóleikarans og
söngvarans Paulos Malagutis,
en hann er starfandi tónlistar-
maður í Rio de Janeiro. Auk
Malagutis skipa kvartettinn
þeir Sigurður Flosason á saxó-
fón, Jóhann Ásmundsson á
bassa og Einar Scheving á
trommur. Kvartettinn mun spila fjölbreytt úrval
brasilískrar tónlistar. Tónleikarnir hefjast kl. 15
og standa til kl. 17. Leikið verður utandyra á
Jómfrúartorginu ef veður leyfir, en annars inni á
Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
Brasilísk tónlist
á Jómfrúnni
Sigurður
Flosason
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
„SÝNINGIN er um kvenpersónuna
Sibille Schmidt, og það sem er að
gerast í rýminu kringum hana,“ seg-
ir Anna Mields sem opnar sýningu í
DaLí Gallery í dag. „Hún er ein-
hvers konar framtíðarímyndun með
einkenni gamalla austur-þýskra
staðalmynda, komin til Íslands og
hrífst af því sem hún sér. Hún er
kannski einhvers konar alter-egó af
mér sjálfri.“
Anna Mields er 31 árs gömul. Hún
bjó lengst af og stundaði nám sitt í
Berlín en leið hennar lá síðan til
Glasgow í framhaldsnám. Það var
þar sem hún komst í kynni við ís-
lenska listamenn og hélt hún hingað
norður eftir í framhaldinu, en Anna
hélt sína fyrstu sýningu hér á landi í
janúar á Kaffi Carolínu.
„Ég vinn einkum með muni og
innsetningar, og hvernig hlutirnir
gerast í rýminu. Ég nálgast formin í
gegnum hreyfingu og hegðun innan
rýmisins, hvernig hlutirnir falla,
rúlla, lyftast eða hanga,“ segir Anna
um hvernig hún vinnur list sína.
Anna hefur síðustu vikur unnið í
gestavinnustofu Gilfélagsins og læt-
ur hún vel af dvölinni hérna. „Lands-
lagið slær mig út af laginu. Það er
svo mikið rými hérna og ég hef ýms-
ar listhugmyndir sem mig langar að
gera að veruleika í þessu umhverfi,“
segir hún.
Sýning Önnu opnar kl. 17 í dag,
laugardag. DaLí Gallery er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14 til
17 og öðrum tímum eftir hentug-
leikum. Stendur sýning Önnu til 31.
júlí.
Ævintýri Sibille Schmidt
Listakonan Anna Mields sýnir í DaLí Gallery á Akureyri
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Á góðu róli Anna lætur fara vel um sig í einu af verkunum á sýningunni.
Sýningin fjallar um austur-þýska staðalmynd í íslenskum veruleika.
http://artistsstudio.blogspot.com/
http://daligallery.blogspot.com/
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞAÐ er hægt að gera bókstaflega
allt á Klais orgelið,“ segir norski
orgelleikarinn Bjørn Andor Drage,
en hann er gestur Alþjóðlegs orgel-
sumars í Hallgrímskirkju um
helgina. Þetta er svar hans við
spurningunni um það hvernig hægt
sé að breyta litlum sætum lýrískum
píanóstykkjum eftir Grieg í verk fyr-
ir fyrir risavaxna drottningu hljóð-
færanna, orgelið. Þessi vinsælu verk
Griegs ætlar hann einmitt að leika á
báðum tónleium sínum hér. „Það er
hægt að umrita verk á ýmsan veg;
sérstaklega á orgelið hér í Hall-
grímskirkju – það er eins og heil
hljómsveit og maður getur velt
möguleikunum vel fyrir sér. Ég
reyni að leita að nýjum og spennandi
hljómi sem fer vel í eyra Vandinn er
að velja úr möguleikunum.“
Minnist Messiaens og Distlers
Bjørn Andor Drage ætlar að
heiðra aldarafmæli tveggja tón-
skálda á tónleikunum. Það eru Oli-
vier Messiaen og Hugo Distler.
„Mér fannst það einfaldlega við hæfi
að minnast þeirra á tónleikum. En
það var líka óskað eftir því að ég
spilaði norska músík, og þess vegna
er ég með þá báða í farteskinu,
Grieg og Johan Halvorsen.“
Messiaen er sennilega eitt merk-
asta orgelskáld síðustu aldar; sjálfur
var hann organisti við Þrenning-
arkirkjuna í París í um 60 ár. Drage
spilar Joie et clarté des corps glo-
rieux – Gleði og hreinleika hinna
dýrðlegu líkama úr stærra verki um
líkamana dýrðlegu. Hugo Distler er
sennilega best þekktur af yndislegri
kórtónlist sinni. „Það eru ekki svo
margir sem spila orgelverkin hans,
en ég hef einsett mér að spila öll org-
elverkin hans á þessu afmælisári.
Hér ætla ég að spila tvö verk, annað
þeirra er Partíta, sem er ákaflega
falleg, og er um sálminn Nú kemur
heimsins hjálparráð. Hann samdi
það á barokkorgel í Lübeck og gaf
fyrirmæli um hvaða orgelraddir
skyldi nota. Það er ekkert mál að
fylgja þeim á Klais-orgelið.“
Allt þetta spilar Drage á tón-
leikum á sunnudagskvöld kl. 20, en
kl. 12 á hádegi í dag spilar hann
Grieg, og Konsert í G-dúr eftir Bach.
Orgelið
getur allt
Bjørn Andor Drage leikur á tvennum
tónleikum í Hallgrímskirkju
Í HNOTSKURN
» Bjørn Andor Drage laukeinleikaraprófi frá Tónlist-
arháskólanum í Ósló árið 1984.
» Í dag erhann pró-
fessor við há-
skólana í
Bodø og
Tromsø og
sinnir marg-
víslegum
öðrum list-
rænum störf-
um.
» Þá erhann líka virkt tónskáld og
þekktur fyrir spuna.
» Fyrir 15 árum hljóðritaðiBjørn plötu í Hallgríms-
kirkju með verkum eftir Grieg.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Hljómsveit „[O]rgelið hér í Hallgrímskirkju – það er eins og heil hljóm-
sveit,“ segir Bjørn Andor Drage sem leikur á það um helgina.
Edvard Grieg