Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 22

Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 22
lifun 22 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Frikki Leynir á sér Þetta er fjórða sumarið sem þau Sigríður Þóra Árdal og Bergsteinn Björgúlfsson nota hýsið. Nú síðast á ættarmóti þar sem fimmtán manns komu sér fyrir og höfðu það kósý. V ið erum hestafólk og höfum gaman af allri útiveru. Bergsteinn vinnur þannig vinnu að það er eiginlega ekkert hægt að skipuleggja sig og panta gistingu með fyrirvara og þegar hann á lausa stund, þá þurfa hlutirnir að gerast hratt,“ segir Sigríður Þóra Árdal og á þar við manninn sinn Bergsteinn Björgúlfsson kvik- myndagerðamann. Svefnpláss fyrir 3,5 Þau fréttu af gömlu Camper- pallhýsi sem safnaði ryki í Mosfells- dal. Eigandinn væri meira en til í að selja. Bergsteinn fór til að kíkja og sneri heim með gripinn, alsæll og yfir sig hrifinn. „Ég var ekki eins hrifin,“ segir Sigríður. Kaupin voru handsöluð fyrir 100 þúsund krónur. „Ég hafði enga trú á þessu og kannski eins gott að ég fór ekki með að skoða. En það var margt jákvætt í þessu eins og gaseldavél, vaskur, miðstöð, ísskápur og svefnpláss fyr- ir 3,5. Bergsteinn myndi segja 5.“ Í fyrstu ferðinni voru þau sex, með börnum og Skímu. „Við sváfum uppi í rúminu, bræðurnir Bjarmi og Sindri í borðkróknum og Birta á dýnu á gólfinu. Skíma var inni í bíl. Sú ferð var algjört púsluspil. Ég var voða neikvæð í upphafi en fljót- lega varð mér ljóst að þetta var al- gjör snilld. Allt virkaði og var not- hæft og okkur leið vel í þessu, fyrir utan lyktina og gamalt plast sem var í hverju skoti og yfir öllu. Og þegar maður hefur svona viðkvæmt fegurðarskyn, þá var ljóst að það var brýnt að gera eitthvað í mál- inu.“ Eins og leg „Ég var ekki viss um hvernig ég vildi útfæra þetta og „gúglaði“ og „breinstormaði“. Íslenskt veður getur verið svolítið miskunnarlaust og því var markmiðið að þarna yrði notalegt og gott að vera,“ segir Sig- ríður Þóra sem er grafískur hönn- uður. Hún valdi af mikilli natni skærbleikan lit, appelsínurauðan og blóðrauðan sem hún notaði inn í skúffurnar og skápana. „Þá er eins og maður sé að opna eitthvað lif- andi,“ segir hún. Á netinu fann hún mynstur sem hafði verið tattúverað á maga barnshafandi konu. Sama mynstur prýðir nú stærstu skúffu hýsilsins. Smám saman varð það ljóst að þetta yrði blanda af ind- verskum glamúr og svona sígauna- stemningu. „Þetta átti bara að vera hlýlegt, eiginlega eins og leg … svona eftir á að hyggja … gull- skreytt. Glamúrleg á hjólum!“ segir hún brosandi og enn eitt nafnið hef- ur fæðst á gripinn sem hingað til hefur verið kallaður Hamingju- hýsillinn, Indverska vændishúsið og Útihúsið. Meistarapróf á eBay Sigríður og Bergsteinn segjast helst ekki vilja eyða óþarfa pen- ingum. „Við erum sammála um það, látum okkur ýmislegt nægja og ger- um gott úr hlutunum.“ Þegar mið- stöðin, dyntótt og sérlunduð, gafst loks upp, þá kom lagni þeirra hjóna á uppboðsvefnum eBay sér vel. Bergsteinn fann þar gamla miðstöð sem kostaði hingað komin 3.000 Glamúrleg á hjólum „Varstu búin að sjá matjurtagarðinn?“ segir Sigríður Þóra og teymir blaðamann og ljósmyndara stolt út í garð. Sólin er í rólegum dansi við skýin og hefur betur öðru hverju. Af hringlaga matjurtagarði er ljóst að hér býr fólk sem er ríkt af hugmyndum. Katrín Brynja Hermannsdóttir fékk að snarla hamingjunasl og líta inn í hýsil sem hlýtur að teljast algjörlega einstakur. Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Hraustlegur húðlitur á velvið í sól og sumri. Sól-kysst hörund, rjóðar kinn- ar og glansandi varir – sumarförð- unina ætti að hafa sem náttúrulegasta. Þess vegna er sólarpúðrið líka vinsælt yfir sumartímann og segir Helga Em- ilsdóttir, förðunarfræðingur hjá Bobbi Brown, að ekki eigi síður að hafa húðlitinn í huga við val á sól- arpúðri en farða. „Mér finnst alltaf best að velja meðaldökkan lit af sólarpúðri og jafnvel ljósari ef húðin er mjög föl,“ segir Helga. „Það er betra að geta frekar byggt litinn upp smám saman og náð þannig eðlilegri skyggingu. Ljósari lit fylgir síðan líka sá augljósi kostur að hann hentar ekki síður vel yfir vetr- artímann.“ Sólarpúður á þá ekki að setja á eins og venjulegt púður, heldur á að nota það til skyggingar og byggja upp lög af litnum eftir því sem við á. Dusta jafnvel létt yfir hálsinn og niður á bringuna ef lík- aminn er fölur. Og galdurinn við ásetningu sólarpúðursins er, að sögn Helgu, að leggja mesta áherslu á þá staði þar sem áhrifa sólarinnar gætir fyrst. „Liturinn á Morgunblaðið/Frikki Hraustlegt útlit Förðunin á að vera náttúruleg og létt yfir sumartímann líkt og á þessari fyrirsætu sem Helga farðaði með vörum frá Bobbi Brown. Afríkusól Sólarpúðrið Soleil d’Afrique og litaða dagkremið Voile de Soleil, setur Yves Saint Laurent á markað í takmörkuðu upplagi. Touche Blush kinnalitur nr. 6 er einnnig frá YSL. að vera sterkastur á kinnbein- unum. Síðan er áferðin höfð ljósari upp með gagnaugunum, meðfram hárrótinni og við kjálkabeinið. Þannig er andlitið rammað inn og svo er dustað léttilega yfir höku og Með sólkysstar kinnar tíska

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.