Morgunblaðið - 19.07.2008, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.07.2008, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurbjörg Elí-asdóttir fæddist á Siglufirði 19. des- ember 1961. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Siglufjarðar 12. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Aðalheiður Þorsteinsdóttir, f. 26.3. 1925, d. 13.1. 2000 og Elías Bjarni Ísfjörð, f. 30.8. 1927, d. 12.9. 1988. Systk- ini Sigurbjargar eru: 1) Kristján Sig- urður, f. 7.8. 1950, kvæntur Lilju Eiðsdóttur. 2) Þorsteinn, f. 23.8. 1951. 3) Rafn, f. 29.7. 1953, kvænt- ur Unu Þóreyju Sigurðardóttur. 4) Gísli Jón, f. 20.2. 1956, vinkona hans er Anna Kristinsdóttir. 5) Dagmar, f. 11.6. 1957, gift Jaques W. Loxton. 6) Heiðar, f. 17.4. 1959, kvæntur Önnu Júlíusdóttur. 7) Sólrún, f. 9.5. 1960, gift Ómari Geirssyni. Einnig átti hún þrjú hálfsystkini, þau eru: 1) Árni Þor- kelsson, f. 20.9. 1945. 2) Jóna Þor- kelsdóttir, f. 1.7. 1947, gift Hall- dóri Sigurðssyni. 3) Sverrir Eyland Gíslason, f. 8.2. 1963, kvæntur Sigurrós Sveinsdóttur. Maður Sigurbjargar er Frið- finnur Hauksson, f. 20.10. 1957. Foreldrar hans eru Guðný Frið- finnsdóttir, f. 8.10. 1932 og Hauk- ur Kristjánsson, f. 29.2. 1928, d. 7.1. 1997. Börn Sig- urbjargar og Frið- finns eru: 1) Elías Bjarni Ísfjörð, f. 20.1. 1981. 2) Guðný, f. 20.10. 1984, sambýlis- maður Daði Már Guðmundsson, f. 21.1. 1981. Sonur hans er Heimir Már, f. 13.10. 2004. 3) Að- alheiður Jonna, f. 22.12. 1991. 4) Þór- ey Vala, f. 7.8. 1998. Sigurbjörg, eða Sibba eins og hún var alltaf köll- uð, ólst upp í stórum systkinahóp á æskuheimili sínu á Siglufirði. Snemma varð hún sjálfstæð, stofnaði sitt eigið heimili og hóf störf við fiskvinnslu. Seinna fékkst hún við önnur störf, s.s. heimilishjálp og ræstingar. Síð- ustu ár rak hún veitingastaðinn Bíó Café ásamt fjölskyldu sinni og vinafólki. Sibba var afar félagslynd og vinamörg, naut sín best í góðra vina hópi og var jafnan hrókur alls fagnaðar. Félagsstörf voru henni hugleikin, þá sérstaklega innan Knattspyrnufélags Siglu- fjarðar, og tók hún þátt í þeim af mikilli ósérhlífni. Útför Sigurbjargar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Hún litla systir mín, Sigurbjörg Elíasdóttir, eða Sibba eins og hún var oftast kölluð er látin langt um aldur fram aðeins 46 ára, eftir stutta en snarpa baráttu við hinn illvíga sjúk- dóm krabbamein. Eftir sitjum við með brostið hjarta og skiljum ekki af hverju hún, sem elskaði ekki bara hann Friðfinn sinn og börnin fjögur takmarkalaust, heldur elskaði lífið og naut þess að vera til, er látin. Hún þessi sólargeisli sem var síbrosandi, segjandi brandara, leikandi og syngj- andi, jafnvel fárveik gat hún gert grín af sér og öðrum, en svo eins og hendi væri veifað var hún farin. Ósköp er ég samt fegin að hafa hitt hana í stutta stund áður en hún kvaddi. Ég vil þakka allar þær góðu stundir sem við áttum, þá gleði að hitta hana og fjölskylduna og fylgjast með þeim í gegnum lífið, var frábært. Sibba syst- ir var ekki bara lífsglöð og góð mann- eskja heldur var hún líka dugleg og drífandi. Ég á eftir að sakna hennar mikið. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku litla systir. Við fjölskyldan sendum Friðfinni, Elíasi, Guðnýju, Heiðu Jonnu og Þór- eyju Völu innilegar samúðarkveðjur. Jóna, Halldór og börn. Það er með miklum og sárum trega að ég skrifa þessar línur í minningu um Sigurbjörgu systur mína, er lést laugardaginn 12. júlí sl. Hún var yngst okkar systkinanna og oft kölluð „jólabarnið“ innan fjölskyldunnar vegna þess hve nálægt jólum hún fæddist. Stóð hún fyllilega undir því nafni og meira til, því hún var sann- kallaður sólargeisli í skammdegi lífs- ins. Hún var alltaf til í að ærslast og grínast og með sínum hvella, bráð- smitandi hlátri gat hún fengið hvern sem er til að brosa. Það var stundum nóg að hún skellti upp úr yfir ein- hverju sem henni datt í hug, og maður hló ósjálfrátt með. Og svo allar gam- ansögurnar og stundum ágætar eft- irhermur og maður var óðara kominn með krampa í magann af hlátri. Það kom manni því lítið á óvart að hún skyldi fara að búa með Friðfinni Haukssyni, svo keimlíkir gleðipinnar sem þar tóku höndum saman um sambúð, það var helst að maður hefði áhyggjur af því að þau hlægju sér til óbóta. Ástæðulaust var þó að hafa þessar áhyggjur því þrátt fyrir ærsla- ganginn, hláturinn og gleðina voru þau alvörugefin og djúpt þenkjandi hjón og gerðu sér vel ljós vandamál samtímans en voru svo sem ekkert að velta sér upp úr þeim vandamálum. Samheldni, vinnuskipulag og sam- vinna var mikil hjá þeim og tók maður sérstaklega eftir því er þau hófu rekstur Bíósins. Sigurbjörg var góður vinur vina sinna, traust, fórnfús og hjartahlý. Það var gott að tala við hana, trúa henni fyrir sínum leyndustu hugsun- um og ekki vantaði stuðninginn frá henni ef eitthvað bjátaði á. Ég og mín fjölskylda áttum svo sannarlega hauk í horni þar sem Sigurbjörg var og börnin mín sáu eitthvað miklu meira í henni en bara frænku sína. Keppnismanneskja var hún mikil, lék knattspyrnu með KS í nokkur ár og hélt með Liverpool. Síðustu vetur sat hún á skólabekk og ekki var keppnisandinn fyrirferðarminni þar en í boltanum. Fjögur efnileg börn hafa misst móður sína; Elías Bjarni, Guðný, Að- alheiður Jonna og Þórey Vala. Sig- urbjörg var þeim góð móðir og góður vinur, en góðir vinir eru börnum nauðsynlegir, sérstaklega þegar ung- lingsárin hellast yfir með öllum sínum vandamálum. Það, að ræða málin við börnin sín á jafnréttisgrundvelli, er vanmetinn þáttur í uppeldi barna, setja sig inn í hugarheim þeirra, en þar var Sigurbjörg listamaður og við hlið hennar í þeirri listgrein var Frið- finnur, hennar stoð og stytta er nú, eftir að hafa staðið sem klettur við hlið hennar í veikindunum, sér á eftir sinni elskuðu konu, félaga og góðum vini. Ég og fjölskylda mín erum full samúðar í garð Friðfinns og barnanna en jafnframt full þakklætis fyrir að hafa fengið að kynnast Sig- urbjörgu og eiga smáþátt í hennar allt of stutta lífi. Sagt er að hláturinn lengi lífið, hann gerði það kannski ekki fyrir Sigurbjörgu, en hlátur hennar hefur örugglega lengt líf okk- ar sem eftir sitjum og fyrir það erum við henni þakklát. En mikið rosalega á ég eftir að sakna þín, Sibba litla. Kristján Elíasson og fjölskylda. Hvað getur maður eiginlega sagt þegar svona fréttir berast? Hún Sibba, mín góða vinkona og mágkona, er dáin einungis 46 ára gömul. Mér eru efst i huga þau orð sem ég hef svo oft heyrt: „Þeir sem Guðirnir elska deyja ungir.“ Vil ég með þessum orð- um til hennar kveðja hana og minnast þeirra dýrmætu og ógleymanlegu stunda í lífi okkar, þar sem við vorum snemma samferða á lífsleiðinni. Sibbu kynntist ég sem unglingur i gagn- fræðaskóla og man alltaf hennar smitandi og uppörvandi hlátur og hvað var gaman hjá þeim vinkonum á böllum í skólanum. Hún, Hadda og Helga voru alltaf stuðboltarnir á svæðinu og dönsuðu eins og dívur. Leiðir okkar lágu enn frekar saman er við urðum barnshafandi á sama ári og eignuðumst prinsana okkar, þá Elías og Hauk. Við bjuggum þá á móti hvorri annarri á Hvanneyrarbraut- inni og léku drengirnir okkar sér saman. Við áttum þar frábærar stundir í kaffi og hlátursköstum, enda hvergi leiðinlegt þar sem Sibba var annars vegar. Ekki datt mér þá í hug að þessi stúlka og hann Finni bróðir minn yrðu eitt, eins og mér fannst þau alltaf vera. Alltaf var það þannig að þau voru nefnd saman, Sibba og Finni eða Finni og Sibba, eins og þau væru ein og sama persónan. Það er svo yndislegt að sjá svona sambönd þar sem ást, virðing og hlýja skín i gegn- um einstaklingana. Enda var gleði mín mikil yfir því að hann Finni minn skyldi eignast svona frábæra konu. Upp frá því voru þau mér mínir bestu vinir, gengu í gegnum súrt og sætt með mér og voru mér ómetanleg hjálp. Þau tóku börnunum mínum sem sjálfsögðum hlut á þeirra heimili og alltaf voru þau velkomin þar, daga sem nætur. Ég minnist allra ógleym- anlegu stundanna á Túngötu 10 þar sem mikið var setið og drukkið kaffi. Að sjálfsögðu var Sibba skellandi í kökur, hægri vinstri eins og góðri bú- konu sæmir, enda afar gestkvæmt á heimilinu þar sem allir voru ávallt vel- komnir og gleðin og hláturinn fyllti alltaf andrúmsloftið. Ég minnist einn- ig opnun þeirra á Bíókaffi þar sem við „ítalska stórfjölskyldan hennar“, sem við fjölskyldan hans Finna vorum fyr- ir henni, vorum viðstödd. Þrátt fyrir að Sibba eigi stóra og góða fjölskyldu vorum við alltaf hennar fjölskylda líka og hún alltaf ein af okkur. Elsku Sibba, ég kveð þig með sárum sökn- uði, með þessu texta við lagið sem við sungum oft saman: „Leaving on a boat / for beyond the other side of the ocean.“ Elsku Finni minn, Elías, Gunna, Heiða og Þórey Vala ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar og til að halda minning- unni um ástina ykkar og okkar allra á Sibbu. Einnig vil ég bera kveðju frá börnunum mínum Hauk, Elsu Petru, Viktoríu og Gullu tengdadóttur. Selma. Sibba var yngsta systir Kristjáns pabba míns, og því næst mér í aldri af systkinum hans, þrátt fyrir 14 ára aldursmun okkar á milli. Ég man fyrst eftir henni þegar hún sem unglingur passaði okkur systk- inin. Það var alltaf hlegið með Sibbu, enda var hlátur hennar skemmtilega smitandi – ég velti því oft fyrir mér sem krakki hvort hún hefði kannski fæðst brosandi. Síðar meir, þegar ég varð ungling- ur, var hún mér sem systirin sem ég átti aldrei. Við æfðum saman knatt- spyrnu með meistaraflokki kvenna hjá KS, ég deildi með henni leynd- armálum og fékk að blása þegar ég var ósammála foreldrum mínum. Hún varð mín trúnaðarvinkona. Sibba eignaðist 4 börn, og varð ég að sjálfsögðu barnapían þeirra, dæm- inu snúið við. Það var alltaf glatt á hjalla hjá þeim Sibbu og Finna, og alltaf heitt á könnunni. Hún reyndist mér ómissandi þegar foreldrar mínir voru fjarverandi vegna vinnu sinnar og ég sá um heim- ilið og mig vantaði aðstoð við elda- mennskuna, ja, eða hún aumkaði sig yfir okkur systkinunum og bauð okk- ur í frægu fiskbollurnar sínar með bleiku sósunni. Því þrátt fyrir barna- fjöldann, var alltaf pláss fyrir fleiri við borðið. Síðar meir þegar ég eignaðist dótt- ur mína Telmu Dögg, þá stóð nú ekki á Sibbu að endurgjalda alla pössun- ina, og tók henni opnum örmum nokk- ur sumur, enda vissi Telma lítið betra en að eyða sumrinu á Siglufirði. Ein skemmtilegasta helgarferð mín erlendis, var þegar ég, Sibba og Lilja mamma mín fórum til Dublin. Ég held að hlátur okkar hafi ómað um alla borgina, því Sibba sá alltaf húm- orinn í öllum aðstæðum. Þegar ég renni yfir myndirnar frá þeirri ferð, þá kalla þær svo sannarlega á hlátur frekar en grátur. Þrátt fyrir að ég hafi búið í Reykja- vík síðustu ár, þá var alltaf yndislegt að koma á Siglufjörð, og stoppa við í Túngötunni og síðar Fossveginum. Þar var oftast á boðstólnum gúllas- súpa a la Finni og faðmlag og hlátur a la Sibba. Síðastliðin hvítasunnuhelgi var allri fjölskyldu Sibbu erfið, þegar veikindi hennar komu í ljós. Ég átti mjög erfitt með að trúa því, vildi ekki gera mér grein fyrir alvarleikanum, „Sibba er keppnismanneskja“, hugsaði ég, hún mun berjast, sem hún gerði svo sann- arlega, en á örskömmum tíma varð hún að játa sig sigraða fyrir þessum ósanngjarna og sársaukafulla sjúk- dómi og kveðja þennan heim. Það er sumt sem maður saknar Vöku megin við Leggst út af á mér slokknar Svíf um önnur svið Í svefnrofunum finn ég Sofa lengur vil Þegar svefn minn verður eilífur Finn ég aldrei aftur til. (Nýdönsk.) Það er stórt hol í hjarta mínu, þeg- ar ég kveð hana Sibbu frænku, hol sem ég mun fylla af góðum minning- um um þessa yndislegu konu, sem öll- um vildi vel og öllum þótti vænt um. Elsku Finni, Elli, Gunna, Heiða og Þórey Vala, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Brynhildur Þöll Kristjánsdóttir og fjölskylda. Elsku Sibba, hér sitjum við skvísurnar sem hófu nám ásamt þér í Grunnmenntaskól- anum í janúar 2007. Ekki óraði okkur fyrir því í vor þegar við útskrifuðumst að við sætum hérna fjórum mánuðum seinna að skrifa minningargrein um þig. Við vorum tíu konur á ólíkum aldri fullar tilhlökkunar að takast á við námið, kanna getu okkar og ekki skemmdi það að þú sást ætíð til þess að kennslustundirnar væru fullar af húmor, skemmtilegar, fræðandi og það voru þær. Þarna strax náðum við að tengjast sterkum vináttuböndum. Minnisstæðast er okkur í byrjun kennslustundar þegar kennarinn spyr: „Hvar er Sibba? Var þá svarað: „Hún kemur eftir smá“ Og brást það ekki, því skömmu síðar komst þú tipl- andi á kúrekaskónum og sagðir: „Af- sakið hvað ég kem seint.“ Þetta var eitthvað sem að þú hafðir gantast með í byrjun skólans að mæta of seint og stóðst þú við það. Ekki var langt liðið á skólann hjá okkur þegar var farið að skipuleggja útskriftarferð. Að vori var stefnan svo tekin til Akureyrar það sem við nut- um þess að láta dekra við okkur í einn dag þar sem líkaminn var tekinn í gegn frá toppi til táar. Síðan lá leið okkar í jólahúsið þar sem við keyptum okkur óséða jólapakka, keyrðum síð- an til Siglufjarðar þar sem beið okkar dýrindiskvöldverður sem hann Finni þinn hafði lagt sig allan fram við að elda handa okkur. Síðan voru opnaðir jólapakkarnir, mikið var hlegið og skemmtum við okkur langt fram á nótt. Þessar minningar munu lifa með okkur um ókomna tíð. Elsku Sibba, það voru forréttindi að hafa fengið þennan tíma með þér. Við kveðjum þig með söknuði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Finni, Elli, Gunna, Daði, Heiða, Þórey og aðstandendur, megi Guð veita ykkur styrk á þessum erf- iðu tímum. Agnes, Anna Hermína, Dagný, Elín, Guðrún, Hallfríður, Lilja, Svanfríður og Valdís. Þegar maður heyrir af andláti fólks á besta aldri þá staldrar maður alltaf við. Mann setur hins vegar hljóðan þegar einhver nákomin deyr. Þannig var okkur öllum innanbrjóst þegar við fréttum af andláti vinkonu okkar, Sig- urbjargar Elíasdóttur eða Sibbu. Hún hafði barist við erfið veikindi og í þeim notið dyggrar aðstoðar fjöl- skyldu sinnar og vina. Í þeirri baráttu kom glögglega í ljós hversu samrýmd þau Finni voru. Fréttin um andlát hennar hefur verið okkur öllum erfið og hennar verður sárt saknað. Stundirnar sem við, leikhópurinn Fílapenslar, áttum með þeim voru frábærar. Það eru eig- inlega ekki til orð til að lýsa því Sigurbjörg Elíasdóttir ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ELÍNBORG SIGURÐARDÓTTIR, Aðallandi 1, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 10. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gunnar Albertsson, Sigurður Albertsson, Erlendsína Sigurjónsdóttir, Olga Albertsdóttir, Alla Berta Albertsdóttir, Kristján Pálsson, Mikael G. Mikaelsson, Ellý Helga Gunnarsdóttir, Sverrir Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KLARA GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR, Lækjargötu 34e, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, föstudaginn 4. júlí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Þórður Jóhann Karlsson, Málmfríður Þórhallsdóttir, Karl Ómar Karlsson, Fríða Guðjónsdóttir, Rúnar Ægir Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.