Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 33
✝ Þráinn Pálssonfæddist á Enni á
Höfðaströnd 13.
nóvember 1940.
Hann lést á heimili
sínu 10. júlí síðast-
liðinn eftir stutt
veikindi. Hann var
sonur hjónanna
Svanhvítar Jóhann-
esdóttur frá Ós-
brekkukoti, Ólafs-
firði, f. 8. júní 1910,
d. 10. júlí 2001 og
Páls Þorleifssonar
frá Hrauni á Höfða-
stönd, f. 16. október 1903, d. 17.
maí 1979. Systkini Þráins eru
Hugljúf, gift Óttari Skjóldal, þau
eiga 1 dóttur, Jóhannes, d. 2005,
kvæntur Sigfríði Vigfúsdóttur og
eiga þau 3 börn, Ingi, kvæntur
Brynju Erlendsdóttur, þau eiga 3
börn og Auðbjörg, gift Árna Indr-
iðasyni, þau eiga 2 syni.
Þráinn kvæntist hinn 17. októ-
ber 1975 Auði Aðalsteinsdóttur
frá Akureyri, f. 26. nóvember
1949, dóttur hjónanna Andreu
Steinar, f. 6. maí 1993, Birgir
Þór, f. 16. október 1995 og Stein-
þóra Jóna, f. 28. september 1998.
c)
Emma Geirsdóttir, f. 14. febr-
úar 1972, gift Kristjáni V. Grét-
arssyni, f. 14. mars 1964, búsett í
Grindavík. Synir þeirra eru Agn-
ar Már, f. 11. mars 1994 og Stefán
Örn, f. 27. desember 1996. Dóttir
Kristjáns er Eygló Sigríður, f. 21.
janúar 1989.
Þráinn var búsettur í Enni á
Höfðaströnd til ársins 1975 þá
fluttist hann til Akureyrar og
starfaði lengst af við smjörlík-
isgerðina Akra og svínabú Bún-
aðarsambands Eyjafjarðar. Árið
1986 fluttust Þráinn og Auður til
Hveragerðis. Þar vann hann við
garðyrkjustörf fyrstu árin og síð-
ar við fiskeldi. Árið 1994 fór Þrá-
inn að vinna við ullarmat og vann
við það í 10 ár. Síðustu fjögur ár-
in vann hann við garðyrkjustöð-
ina við dvalarheimilið Ás.
Útför Þráins fer fram frá
Hveragerðiskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Margrétar Þorvalds-
dóttur og Aðalsteins
Þórólfssonar, d.
2007. Dóttir Þráins
og Auðar er Andrea
Margrét, f. 5. desem-
ber 1966, gift Guð-
jóni Sigurðssyni, f.
27. október 1964, bú-
sett í Grindavík.
Dætur þeirra eru
Þórdís Jóna, f. 25.
mars 1984, sambýlis-
maður Helgi Einars-
son, sonur þeirra
Bergur Ísak, f. 22.
maí 2008, Snædís Ósk, f. 21. maí
1985, dóttir hennar Selma Líf, f.
17. ágúst 2006 og Árdís Sif, f. 19.
október 1991. Stjúpbörn Þráins
eru a) Aðalsteinn Dagsson, f. 15.
ágúst 1965, kvæntur Selmu D. Ás-
mundsdóttur, f. 26. mars 1966,
búsett á Akureyri, sonur þeirra
Ágúst Svan, f. 15. ágúst 1988. b)
Ómar Geirsson, f. 30. maí 1969,
kvæntur Aksonsuda Sangmee, f.
19. ágúst 1974, búsett í Þorláks-
höfn. Börn hans eru Guðveigur
Lífstraumar iða hver öðrum mót
frá efsta kvisti að dýpstu rót.
En yfir öllu er hvolfsins hylur.
Svo hljótt við jurtirnar suðrænn þylur.
Þær breiða ylinn, sem eldstjarnan gaf
yfir þá jörð, sem þær spretta af.
Með nýrri sjón yfir hauður og haf
sá horfir, sem blómin skilur.
(Einar Benediktsson.)
Auður.
Nú ertu farinn, elsku afi minn, eft-
ir stutta en erfiða baráttu við krabba-
mein. það er ótrúlegt að hugsa til
þess að koma til Hveragerðis og þú
munir ekki vera þar. Það var alltaf
svo gott að koma í heimsókn til ykkar
og þú fórst að spila á píanóið og
syngja eða fórst út með Selmu Líf og
þið fóruð að gefa hænunum að borða.
Já, alltaf fannstu eitthvað skemmti-
legt að gera, enda alveg hrikalega
stríðinn og skemmtilegur. Þú hefur
alltaf verið mér svo góður og ynd-
islegur, eða þið amma auðvitað.
Það var alltaf svo gaman þegar þú
hringdir í mig austur, alltaf var húm-
orinn góður og gátum við hlegið
endalaust. Eins þótti mér alltaf ákaf-
lega vænt um þegar þið amma komuð
í heimsókn til mín á sumrin alla leið
austur og var þá alltaf gaman hjá
okkur. Eins hefurðu alltaf verið ynd-
islegur við Selmu Líf dóttur mína og
ég veit að þú varst montinn með okk-
ur barnabörnin og barnabarnabörnin
það fór sko ekki á milli mála. Já, við
vorum rosalega heppnar að hafa átt
svona æðislegan afa og þín verður
sárt saknað, elsku afi, og mun minn-
ing þín lifa í hjörtum okkar.
Hvíldu í friði, elsku afi.
Þínar,
Snædís Ósk og Selma Líf.
Elsku afi, nú ertu látinn og við
sjáum þig ekki meir. Það er svo sárt
að hugsa til þess. En svona er lífið.
Það var alltaf svo gaman að koma
til ykkar ömmu, það var svo hlýtt og
notalegt. Þú varst ekki fyrr kominn
heim en þú fórst að gera eitthvað, úti
eða inni. Garðurinn var í miklu uppá-
haldi hjá þér, þú hugsaðir svo vel um
hann og varst svo stoltur af honum.
Enda er hann algjör paradís eins og
heimilið ykkar ömmu. Þú bakaðir
mjög góðar kökur, djúpsteikti fisk-
urinn var í miklu uppáhaldi sem þú
gerðir, einnig þótti okkur svo gaman
að fara með þér í fjárhúsið og gefa
kindunum. Þú áttir svo fallegar hæn-
ur og smíðaðir fallegan hænsnakofa.
Alltaf fengum við svo gott að borða
eða drekka þegar við komum til þín,
elsku afi. Þú og amma hugsuðuð svo
vel um okkur.
Elsku afi, það var svo gaman hjá
okkur í jólaboðunum, þá hittum við
frændsystkinin og fullorðna fólkið
spjallaði saman.
Elsku afi, við vitum að Guð passar
þig fyrir okkur og vakir yfir þér. Við
munum hugsa til þín og geymum
minningar um þig í hjörtum okkar.
Elsku afi, takk fyrir hlýjuna og ást-
úðina.
Elsku amma, Emma, Andrea, Óm-
ar, Steini, Kristján, Guðjón, Akson-
suda, Selma og aðrir aðstandendur,
við vottum ykkur okkar dýpstu sam-
úð. Megi Guð styrkja ykkur í sorg-
inni.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum í trú
á að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni
vekja hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Þín afabörn,
Guðveigur, Birgir og Steinþóra.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Héðan skal halda
heimili sitt kveður
heimilisprýðin í hinsta sinn.
Síðasta sinni
sárt er að skilja,
en heimvon góð í himininn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Elsku Auður og fjölskylda, vottum
ykkur okkar dýpstu samúð.
Kári og fjölskylda.
Látinn er kær vinur okkar, Þráinn
Pálsson frá Enni í Unadal í Skaga-
firði.
Þeir kynntust ungir piltar, Þráinn
og Ögmundur eiginmaður minn þeg-
ar þeir unnu báðir í sláturhúsinu á
Króknum. Milli þeirra tókst strax
djúp vinátta sem hélst alla tíð þótt oft
yrði langt milli funda. Ólíkir voru
þeir um margt en afar tilfinningarík-
ir báðir og áttu sameiginlega ástina á
landinu, náttúru þess og sögu.
Ég minnist heimsókna í Enni með-
an Þráinn bjó þar, hve hann naut
þess að sýna okkur jörðina og bú-
stofninn, ekki síst geiturnar sem
hann lagði sérstaka rækt við. Þarna
var hann kóngur í ríki sínu.
Alltaf var jafngott að sækja þau
hjón heim, Auði og Þráin, eftir að þau
settust að í Hveragerði, það besta
ævinlega falt, hlýja og væntumþykja
í fyrirrúmi.
Það varð ekki langt milli þeirra
vinanna, rúm tvö ár, og sami sjúk-
dómur lagði báða að velli. Í veikind-
um Ögmundar kom enn í ljós hve
vænt Þráni þótti um æskuvin sinn
svo vel sem hann fylgdist með hon-
um.
Í samtölum mínum við Þráin eftir
að hann greindist með krabbamein
dáðist ég að æðruleysi hans og vissu
um hvað tæki við eftir dauðann. Ég
vona sannarlega að þessir tveir skag-
firsku smaladrengir gangi nú saman
á ódáinsökrum eilífðarinnar.
Innilegar samúðarkveðjur færi ég
Auði, börnunum og fjölskyldunni
allri frá okkur Helgu og Ólafi.
Ragna Ólafsdóttir.
Látinn er langt um aldur fram
Þráinn Pálsson. Hann starfaði í garð-
yrkjustöð Áss frá því í apríl 2004. Ég
kynntist honum þó fyrr því Auður
kona hans hefur unnið í Ási í áratugi.
Einnig hitti ég Þráinn þá sjaldan sem
bæjarfulltrúar Hveragerðisbæjar
heimsóttu ullarþvottaverksmiðjuna
en þar vann Þráinn um langt árabil.
Það var aldrei asi eða læti í Þráni.
Hann vann sín verk af samviskusemi
og alúð. Hann var svo sannarlega í
essinu sínu í garðyrkjustöðinni því
hann hafði mikinn áhuga og yndi af
allri ræktun. Garðurinn í Heiðar-
brúninni ber þess glöggt vitni en þau
Þráinn og Auður fengu viðurkenn-
ingu Hveragerðisbæjar fyrir falleg-
asta garðinn fyrir nokkrum árum. Að
líta út í garð úr stofunni er eins og að
líta út í fallegan blómagarð suður í
Evrópu. Þráinn tók einnig til hend-
inni í eldhúsinu og hann var sérstak-
ur snillingur í pönnukökubakstri.
Hann bakaði nokkur hundruð pönnu-
kökur fyrir 17. júní ár hvert sem voru
seldar ásamt öðrum kaffiveitingum í
grunnskóla bæjarins, íþróttafélaginu
til styrktar. Aldrei taldi hann það eft-
ir sér að hjálpa til með þessum hætti.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Þráni og haft hann í vinnu í
Ási. Auði og allri hans stórfjölskyldu
votta ég mína dýpstu samúð. Megi
góður Guð styrkja ykkur í sorg ykk-
ar og söknuði.
Gísli Páll,
framkvæmdastjóri Áss.
Þráinn Pálsson
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 33
Atorkumikill fram-
kvæmdamaður er fall-
inn frá. Hann skilur
eftir sig djúp spor í
byggingarsögu
Reykjavíkur. Ungur
haslaði hann sér völl
við húsasmíðar og öðlaðist snemma
meistararéttindi á því sviði. Í byrj-
un vann hann fyrst og fremst við
mótauppslátt húsbygginga og var
annálaður dugnaðarforkur. Á þeim
árum voru steypumót slegin upp
með timburborðum en flekar og
kranar lítt eða ekki notað. Reyndi
því mjög á krafta og útsjónarsemi
smiðanna. Hann og félagi hans
Ólafur Haukur Árnason voru taldir
meðal bestu húsasmiðanna.
Síðar hófst samvinna þeirra og
Björns L. Sigurðssonar húsasmíða-
meistara sem einnig var í þessum
hópi afkastamikilla og góðra smiða.
Þeir unnu síðan saman í eina tvo
áratugi við að byggja og selja íbúð-
arhúsnæði, einkum fjölbýlishús, og
má ætla að þeir hafi byggt á annað
hundrað íbúðir á Reykjavíkursvæð-
Magnús G. Jensson
✝ Magnús GuðjónJensson fæddist
29. júní 1933. Hann
lést á heimili sínu 6.
júlí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Grafarvogs-
kirkju 16. júlí.
inu. Á þeim árum var
verðtryggingin ekki
komin til sögunnar.
Söluverð íbúðanna var
því fast og á verð-
hækkunartímum féll
því ávinningurinn í
hlut kaupenda. Lánsfé
var af skornum
skammti og eigi heldur
unnt að leita eftir er-
lendu lánsfé, en eins
og allir vita er nú um
stundir talið að erfið-
leikar efnahagslífsins
hér á landi stafi m.a. af
því að Íslendingum bjóðist ekki er-
lent lánsfé. Segja má með réttu
„öðruvísi mér áður brá“. Þeir fé-
lagar byggðu hagkvæm hús með vel
hönnuðum íbúðum sem þeir sjálfir
áttu þátt í að móta og síðan reisa
með eigin höndum og ígrundun.
Íbúðirnar voru yfirleitt seldar til-
búnar undir tréverk og kaupendur
gátu því sjálfir lokið gerð þeirra.
Þeir félagar skiluðu samfélaginu
miklu af sínu eigin hug- og verks-
viti. Því miður kom heilsuleysi í veg
fyrir enn lengra samstarf þeirra fé-
laga en Magnús hélt ótrauður
áfram á eigin vegum í mörg ár.
Magnús var einarður og hafði
fastar skoðanir á hlutunum. Hann
var fljótur að sjá aðalatriði hvers
máls og lét ekki sitja við orðin tóm.
Hann kom hlutum í framkvæmd.
Hann var mikill félagsmálamaður
og vann sem slíkur að ýmsum góð-
um málum. Hann starfaði í nefnd-
um á vegum Reykjavíkurborgar og
lét þar gott af sér leiða. Hann trúði
á mikilvægi einstaklingsframtaksins
og var virkur í starfi Sjálfstæðis-
flokksins í mörg ár. Magnús var
ákafur laxveiðimaður og unni ís-
lenskri náttúru. Hann og fjölskylda
hans áttu gott húsnæði við Með-
alfellsvatn og voru þar löngum
stundum. Við hjónin áttum ótal
samveru- og gleðistundir með hon-
um og Kristínu konu hans. Við get-
um vermt okkur við þær góðu
minningar. Þær munu lifa.
Við vottum Kristínu og allri fjöl-
skyldunni samúð við fráfall Magn-
úsar. Blessuð sé minning hans.
Sigrún og Grétar Áss.
Þegar kemur að kveðjustund
góðs vinar finnst okkur hún ávallt
ótímabær. Svo er nú þegar við
kveðjum Magnús G. Jensson. Um
leið fer hugurinn af stað og minn-
ingarnar um allar þær góðu stundir
sem við áttum saman í kiwanisstarf-
inu. Ferð frá Lúxemborg til Móna-
kó, ekið gegnum fögur héruð
Frakklands og Þýskalands. Nokkr-
ar ferðir vestur á Ísafjörð með við-
komu á Illugastöðum, í góðra vina
hópi. Maggi að elda að sínum hætti
og Höbbý að halda utanum hlutina.
Ferð í Landmannahelli og veiði í
Frostastaðavatni og þá ekki síst all-
ar veiðiferðir okkar félaganna síð-
sumars í Veiðivötn sl.
10 ár. Við vorum búnir að bóka
hús 25. ágúst nk. til að fara í hina
árvissu ferð í Veiðivötn, en Maggi
fer nú í önnur veiðilönd.
Það eru margar minningarnar
um góðar og skemmtilegar ferðir,
en samskiptin við Magga voru á svo
mörgum sviðum. Það var gott að
leita ráða hjá honum þegar eitthvað
var að húsinu, þar kom maður ekki
að tómum kofunum, hann var
reyndur maður og úræðagóður. Það
var gott að starfa með honum að fé-
lagsmálum, hann hafði skýra skoð-
un og setti hana fram á ákveðinn
hátt en var ávallt
tilbúinn að ræða aðrar tilögur og
sættast á þá skoðun sem vitrænust
virtist vera. Í þessum kraftmikla
manni sló hjarta sem vildi hjálpa
þeim sem minna máttu sín í þjóð-
félaginu. Það væri að æra óstöð-
ugan að reyna að telja upp allt það
sem Maggi lagði á sig í vinnu fyrir
Kiwanisklúbbinn Heklu gegnum
þau mörgu ár sem hann starfaði
þar.
Að leiðarlokum þökkum við Erla
allar þær góðu stundir sem við átt-
um saman. Höbbý, börn og fjöl-
skylda þið eigið alla okkar samúð,
en minningin um góðan dreng lifir
með okkur um ókomna framtíð.
Og er þú lætur hinsta sinn úr höfn
við hljóðir þökkum okkar gömlu kynni.
Og þegar góðra drengja nefnast nöfn,
mun nafn þitt jafnan oss í fersku minni.
(Þ.H.)
Þorsteinn og Erla.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upp-
lýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is