Morgunblaðið - 19.07.2008, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 19.07.2008, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 43 nokkurt grínefni í boði á Íslandi annað en pólitískt grín, og það fæst gott, en blessunarlega hefur það ástand snarbatnað, þar gnæfir Næturvaktin (og eins mætti nefna Svínasúpuna og Stelpurnar) upp úr og sannar að það má vel hlæja að Íslendingum þótt þeir séu ekki að herma eftir öðrum nafngreindum Íslendingum. Því væri vafalítið spennandi að sjá þá hæfileikaríku gamanleikara sem mynda Spaug- stofuna búa til nýjar frumsamdar persónur í stað þess að endurnýta endalaust jakkafataskrílinn af al- þingi, það er einfaldlega orðið þreytt og hér er dýrmæt húmor- auðlind að fara í súginn á hverju laugardagskvöldi.    En þótt gamanefnið hafi batnaðþá er pólitíska grínið enn jafnslappt. Helst að Halldór Bald- ursson teiknari hafi komið þar inn með nýja og ferska strauma síð- ustu ár. En það vantar oftast allan brodd í pólitískt grín á Íslandi. Flestöllum íslenskum stjórnmála- mönnum finnst í góðu lagi að þeir séu teknir fyrir í Áramótaskaupi eða Spaugstofu, það telst jafnvel heiður. En pólitískur húmor hefur venjulega þann tilgang að opin- bera fáránleika hlutanna, en hér- lendis virðist hann frekar gera fáránleikann að norminu. Húmor- smiðjurnar eru orðnar jafnþung- lamalegar og þær stofnanir sem eiga að vera skotmörk þeirra, húmorinn orðinn stofnanavæddur. Sjaldgæf undantekning var Spaug- stofuþáttur í kjölfar borgarstjórn- arskipta í vetur, en þá virtist gagn- rýnin frekar þjóna því hlutverki að drepa umræðunni á dreif, grínist- arnir gátu ekki unnið.    En jafnglaðir og íslenskirstjórnmálamenn eru þegar þeir verða skotmark hérlendra grínista leyfi ég mér að efast að nokkur bandarískur stjórnmála- maður gleðjist sérstaklega yfir því að vera tekinn fyrir í The Daily Show with Jon Stewart eða álíka þáttum. Það er gamanþáttur sem hefur vigt í þjóðmálunum, brodd- fluga sem kitlar og stingur. Það er vonandi að einhver slík broddfluga fari að nema hér land, okkar stofn virðist nefnilega í útrýmingar- hættu. asgeirhi@mbl.is WILLIAM Petersen sem fer með hlutverk tæknirannsóknarlögreglu- mannsins bráðsnjalla Gil Grissom í þáttunum vinsælu CSI: Crime Scene Investigation mun vera að hugsa sér til hreyfings skv. frétt AP. Hann hefur fallist á að koma fram sem gestaleikari í stöku þætti og vera áfram hluti af teyminu sem stýrir gerð þáttanna, en Grissom verður ekki lengur aðalsöguhetja CSI frá og með næstu þáttaröð. Hvorki Petersen né framleið- endur þáttanna gáfu upp ástæður þessara breytinga en von er á að ný karlhetja verði kynnt til sögunnar þegar Grissom hverfur á braut. Í aðdraganda þess að Grissom tekur pokann sinn er von á að spenn- an nái miklum hæðum og munu söguhetjur á borð við Söru Sidle, Lady Heather og svo sjálfan Mód- elsmíða-morðingjann hafa mikið að segja um framvindu mála. Grissom að hætta? Glöggur Fáir komast með tærnar þar sem Gil Grissom hefur hælana. Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! eeee 24 stundir SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI M. ÍSL. TALI, HÁSKÓLABÍÓI M. ENS. TALI ,,Ævintýramynd Sumarsins” - LEONARD MALTIN, ET. Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 2 og 5 500 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000 Meet Dave kl. 1 - 3:30 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára Hancock kl. 1 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára Kung Fu Panda ísl.tal kl. 1 - 3:15 - 5:50 LEYFÐ Hellboy 2 kl. 3 D - 5:30 D - 8 D - 10:30 D B.i. 12 ára Mamma Mia kl. 3 D - 5:30 D - 8 D - 10:30 D LEYFÐ Mamma Mia kl. 3D - 5:30D - 8D - 10:30D LÚXUS LEYFÐ Sýnd kl. 2 og 4 m/ íslensku tali JACK BLACK SANNAR AF HVERJU HANN ERTALINN EINN AF FYNDNUSTU GRÍNLEIKURUNUM Í HEIMINUM Í DAG. JACK BLACK SANNAR AF HVERJU HANN ERTALINN EINN AF FYNDNUSTU GRÍNLEIKURUNUM Í HEIMINUM Í DAG. SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15 eeee Yfirburða snilldarleg bresk- bandarísk gaman-, söng- og dansræma byggð á svellandi ABBA-lögum, frábærlega fjörug, fyndin, fjölskrúðug og kynþokkafull. - Ó.H.T, Rás 2 eee “Hressir leikarar, skemmtilegur fílingur og meiriháttar tónlist!” - T.V. - Kvikmyndir.is eee - L.I.B, Topp5.is/FBL Sýnd kl. 1:20, 3:30, 5:50, 8 og 10:15 FRÁ VERÐLAUNA-LEIKSTJÓRA PAN´S LABYRINTH. FRÁ VERÐLAUNA-LEIKSTJÓRA PAN´S LABYRINTH. VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! -bara lúxus Sími 553 2075 eee “Helvíti gott sumarbíó! Brilliant útlit ásamt góðum hasar og húmor.” - Tommi - kvikmyndir.is eee “Helvíti gott sumarbíó! Brilliant útlit ásamt góðum hasar og húmor.” - Tommi - kvikmyndir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.