Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 44

Morgunblaðið - 19.07.2008, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is „ÞEGAR þetta var sem erfiðast uppi á spítala vorum við sammála um að um leið og við hefð- um þol í að standa í lappirnar færum við aftur af stað,“ segir Svala Björgvinsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Steed Lord. „Við nennum ekki að gera ekki neitt og vorkenna sjálfum okkur.“ Hljómsveitarmeðlimir lentu í hörmulegu bíl- slysi í apríl og voru sumir þeirra mjög hætt komnir á tímabili. Nú er Steed Lord komin aft- ur á ról og gott betur því bandið er á leið til Bandaríkjanna í þriggja vikna tónleikaferðalag. Til að hita upp fyrir Bandaríkjaförina ætlar Steed Lord að halda tónleika á Q-bar í Ingólfs- stræti og er von á miklu fjöri því kvöldið hefst með heljarinnar grillveislu kl. 20 og taka DJ Danni Deluxxx og DJ M.E.G.A. þátt í fjörinu. Steed Lord stígur á svið á miðnætti. Aldrei svona mikið áður „Við höfum spilað mikið úti, en aldrei neitt svona, ekki nema 3-4 gigg í hverri ferð í mesta lagi,“ segir Svala, en leiðin liggur um 15 borgir frá vesturströnd til austurstrandar og norður til Toronto. Svala hlær þegar blaðamaður spyr hvort hljómsveitarmeðlimir verði ekki orðnir allverulega sjúskaðir eftir ferðalagið: „Nei nei, ég held að þetta verði rosa gaman, við myndum aldrei fara út í þetta ef við nenntum þessu ekki.“ Það er heldur ekki að ástæðulausu að Steed Lord þarf að fara svo víða. Alls staðar bíða þeirra ólmir aðdáendur: „Mikil eftirspurn er eftir hljómsveitinni og margir í Ameríku sem vilja sjá okkur. Það spilar inn í að við erum komin með umboðsmenn bæði í Bandaríkj- unum og Evrópu en við sjáum t.d. í gegnum Myspace-síðu hljómsveitarinnar hversu mikill áhuginn er.“ Breytt fólk en sami hljómurinn Ný plata er væntanleg frá Steed Lord með haustinu á íslenskan markað og standa vonir til að gefa plötuna út vestanhafs snemma á næsta ári. Svala lofar góðri tónlist: „Auðvitað er tón- listin okkar í stöðugri þróun en Steed Lord- sándið er alltaf á sínum stað,“ segir hún. En þótt Steed Lord-hljómurinn sé ennþá þá sami neitar Svala því ekki að slysið í apríl hafði mikil áhrif á meðlimi hljómsveitarinar. „Auðvit- að breytir þetta manni algjörlega og eftir svona slys tekur maður engu sem sjálfsögðum hlut lengur. Við fundum það sjálf þegar við byrjuð- um að semja og æfa að slysið hefur breytt okk- ur öllum. En við komum sterkari út úr þessu.“ Aftur af stað 19. júlí: Q-bar 25. júlí: San Francisco (m. Does It Offend You, Yeah?) 26. júlí: Seattle 27. júlí: Portland (m. Chromeo) 28. júlí: Los Angeles 29. júlí: Los Angeles 31. júlí: San Diego (m. Chromeo) 1. ágúst: Costa Mesa 2. ágúst; Los Angeles 5. ágúst: Atlanta 6. ágúst: Austin 7. ágúst: Dallas 8. ágúst: Toronto 9. ágúst: Chicago Viðkomustaðir Steed Lord Steed Lord heldur tón- leika á Q-Bar í kvöld til að hita upp fyrir tón- leikaför um Bandaríkin Vesturfarar Meðlimir Steed Lord koma víða við á löngu og strembnu tónleikaferðalagi um N-Ameríku. Svala ásamt Einari, Eðvarði og Erlingi Egilssonum. www.myspace.com/steedlord www.qbar.is / ÁLFABAKKA HANCOCK kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára WANTED kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára WANTED kl. 2 LÚXUS VIP B.i. 16 ára THE CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 2 - 5 B.i.12 ára DECEPTION kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára MAMMA MÍA kl. 1:30-3:40-5:40D-8D-10:20D LEYFÐ DIGITAL MAMMA MÍA kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ LÚXUS VIP KUNG FU PANDA m/íslensku tali kl. 1:30D - 3:40D - 6 LEYFÐ DIGITAL KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI eeee Yfirburða snilldarleg bresk- bandarísk gaman-, söng- og dansræma byggð á svellandi ABBA-lögum, frábærlega fjörug, fyndin, fjölskrúðug og kynþokkafull. - Ó.H.T, Rás 2 eee “Hressir leikarar, skemmtilegur fílingur og meiriháttar tónlist!” - T.V. - Kvikmyndir.is Það er heill heimur inni í honum sem heldur honum gangandi SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK eee - L.I.B, Topp5.is/FBL VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB STÓRLEIKARARNIR HUGH JACKMAN OG EWAN MCGREGOR FARA HAMFÖRUM Í BESTA ÞRILLER SUMARSINS. / KRINGLUNNI DECEPTION kl. 8:10 - 10:30 B.i. 14 ára MEET DAVE kl. 2 - 4 - 6 B.i. 7 ára WANTED kl. 8D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 2D - 4D - 6D LEYFÐ DIGITAL CHRONICLES OF NARNIA kl. 2 - 5 B.i. 7 ára INDIANA JONES 4 kl. 8 B.i. 12 ára THE BANK JOB kl. 10:20 B.i. 16 ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.