Morgunblaðið - 11.08.2008, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært stökktu tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol, 21. ágúst í 1 eða 2 vikur og 28. ágúst í viku.
Þú bókar og tryggir þér sæti og 4
dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og
tryggðu þér sumarfrí á frábærum
kjörum á vinsælasta
sumarleyfisstað Íslendinga.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Costa del Sol
Allra síðustu sætin!
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
frá kr. 59.990
21. eða 28. ágúst
Verð kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í
herbergi / stúdíó / íbúð í viku, 21.
eða 28. ágúst. Aukavika kr. 15.000
(aðeins í boði í brottför 21. ágúst).
Stökktu til
HEYSKAPARTÍÐ er hreint ekki lokið og Anja
Mager heyjaði af miklum dugnaði á Dýrastöðum
í Norðurárdal á dögunum. Hún er þýsk en hefur
fest rætur í Borgarfirðinum. Innt eftir ástæðum
þess að hún fluttist til Íslands svarar hún einfald-
lega að hér sé gaman að vera. Henni til halds og
trausts var tíkin Prúð, sem fylgdist með öllu úr
ökumannssætinu. Hafði Anja orð á því að þótt
hún héti Prúð væri hún það ekki. andresth@mbl.is
Vinnur undir vökulu auga hundsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Andrés Þorleifsson
andresth@mbl.is
MANNBJÖRG varð þegar trillan
Glaður SK170 sökk á Skagafirði að-
faranótt sunnudags. Báturinn er tal-
inn hafa sokkið á miðnætti um tvær
sjómílur vestur af Þórðarhöfða en
maðurinn, sem var einn um borð,
komst í gúmmíbát.
Sjómaðurinn hafði róið til fiskjar
og ætlaði að koma til hafnar um
klukkan eitt að nóttu. Eiginkona
mannsins hafði samband við vakt-
stöð siglinga um klukkan þrjú og
sagði manninn ekki hafa skilað sér.
Björgunarsveitir voru strax kallaðar
út og var þyrla Landhelgisgæslunn-
ar á leið í loftið þegar maðurinn
fannst.
Björgunarmenn komu auga á
hann 15 metra frá landi skammt frá
Þórðarhöfða klukkan 4:32. Var mað-
urinn orðinn nokkuð þrekaður eftir
að hafa róið af miklum móð í marga
klukkutíma til að komast hjá því að
lenda í stórgrýttri fjörunni. Hann var
fluttur á sjúkrahúsið á Sauðárkróki.
Fóru boðin ekki strax af stað?
Þegar björgunarbátur blæs út á
sjálfvirkur neyðarsendir hans strax
að fara í gang. Neyðarskeytið á að
berast til björgunarmiðstöðvar í
Bodö í Noregi sem síðan kemur
skeytinu áfram til gæslunnar.
Engu að síður fékk Landhelgis-
gæslan ekki boðin fyrr en klukkan
4:19. Að svo stöddu eru orsakir taf-
arinnar ekki kunnar, en að sögn
Landhelgisgæslunnar er um að ræða
gamlan búnað frá byrjun níunda ára-
tugar síðustu aldar. Málið er í rann-
sókn hjá rannsóknarnefnd sjóslysa.
Trilla sökk vestur af
Þórðarhöfða í Skagafirði
Langur tími leið
þar til Landhelgis-
gæslan fékk boð
SÍÐASTLIÐINN júlímánuð fóru
tæplega 293 þúsund farþegar um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar saman-
borið við 309 þúsund farþega í sama
mánuði í fyrra. Farþegum fækkar
því um rúmlega 5% á milli ára.
Fækkun farþega á milli ára er
langmest í hópi áfram- og skipti-
farþega, eða 39,9% og 14,5% í hvor-
um flokki. Umtalsvert minni fækkun
er hins veagr í hópi komu- og brott-
fararfarþega, en þeim fækkaði um
3,25%, annars vegar, og um 2,34%,
hins vegar.
Komu- og brottfararfarþegum
hefur þó fjölgað lítillega sé litið til
alls ársins, eða um 2% og 0,45%.
Þá hafa 1.232 þúsund farþegar
farið um flugstöðina það sem af er
ári en voru 1.252 þúsund í fyrra, sem
er hlutfallsleg fækkun um 1,6%.
Farþegum
fækkar
Flug Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Mest munar um
áframfarþega
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
Í BYRJUN júlí var Hermann Vals-
son, þáverandi landvörður í Vatna-
jökulsþjóðgarði, á ferð rétt fyrir ut-
an þjóðgarðinn þegar hann stóð tvo
stóra bíla, sem hann áætlar að hafi
hvor fyrir sig vegið um 40 tonn, að
utanvegarakstri. Um var að ræða
fjögurra öxla vörubíl sem var að
draga dráttarbíl með gröfu aftan á.
Bílarnir óku um 16 metrum fyrir ut-
an veg og keyrðu þar, að mati Her-
manns, a.m.k. 300-350 metra áður en
hann stöðvaði þá. Ummerkin eru
mjög greinileg.
„Þetta mun sjást næstu fimm til
tíu árin að minnsta kosti,“ segir Her-
mann en hann lét framkvæmda-
stjóra garðsins umsvifalaust vita af
brotinu. Að mati Hermanns sýndi sá
hins vegar sinnuleysi gagnvart mál-
inu en bað Hermann að fara ekki
með ljósmyndirnar, sem hann tók af
skemmdunum, til fjölmiðlanna. Her-
mann hefur nú upp á sitt einsdæmi
kært utanvegaraksturinn til sýslu-
mannsins á Hvolsvelli og er málið
þar í vinnslu.
„Hrein og klár leti“
Að sögn Hermanns var um að
ræða verktaka á vegum veiðifélags
Veiðivatna. Þeir komust ekki upp
brekku við þjóðgarðinn en í staðinn
fyrir að létta á tengivagninum til að
koma báðum bílunum upp brekkuna,
sem Hermann telur að hefði tekið
innan við klukkutíma, tóku þeir
sveig utan vegar. „Þetta var hrein og
klár leti í þeim,“ segir Hermann.
Að sögn Hermanns komu menn
frá veiðifélaginu daginn eftir og
reyndu að laga förin en það er hæg-
ara sagt en gert. Hann segir menn-
ina hafa beðið sig að kæra ekki en
Hermann ákvað að gera það, þrátt
fyrir beiðni frá mönnunum um ann-
að og litla hvatningu yfirmannsins.
Stóð 40 tonna bíla að utanvegarakstri
Skildu eftir djúp för á yfir 300 metra kafla við Vatnajökulsþjóðgarð Mun sjást næstu 5-10 árin
Landvörðurinn var beðinn að kæra utanvegaraksturinn ekki til lögreglu en hann gerði það þó
Ljósmynd/Hermann Valsson
Djúp för Greinileg för má sjá í sandinum eftir utanvegarakstur bifreiðanna.
Í HNOTSKURN
»Hermann stöðvaði tværþungar bifreiðar við ut-
anvegarakstur í Vatnajökuls-
þjóðgarði. Hann hefur kært
atvikið til lögreglunnar. Ný-
lega var ökumaður jeppa við
Langasjó sektaður um 200
þús. fyrir utanvegarakstur.