Morgunblaðið - 11.08.2008, Side 15

Morgunblaðið - 11.08.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2008 15 MENNING STEFÁN Ragnar Höskuldsson, sólóflautuleikari við Metropolitan- óperuna í New York, og Gerður Gunnarsdóttir, konsertmeistari óperuhljómsveitarinnar í Köln, koma fram á kammertónleikum í Salnum í Kópavogi í kvöld ásamt fimm öðrum hljóðfæraleikurum. Tónleikarnir eru hluti af tónleika- röð Tónlistarhátíðar unga fólksins sem fer fram þessa dagana og stendur til 17. ágúst. Stefán Ragnar og Gerður kenna á hátíðinni en í tónleikaröðinni koma ýmist fram kennarar eða fulltrúar ungu kynslóðarinnar. Helgi Jónsson, tónlistarfræð- ingur og einn skipuleggjenda hátíðarinnar, segir það frábært að fá þessa listamenn á hátíðina, Stef- án og Gerði, til kennslu og tónleika- halds. „Þau koma, sökum anna við störf sín, sjaldan fram á Íslandi og því er það viðburður að fá að sjá þau tvö á tónleikum hér á landi,“ segir hann. Námskeiðin á hátíðinni skiptast í einka- og hóptíma, þ.e. master- klassa, auk þess sem nemendur koma fram á hádegistónleikum sem eru öllum opnir. Helgi segir það hluta af lærdómi þátttakenda á námskeiðinu að sjá leiðbeinendur sína leika á hljóðfæri. Á efnisská tónleikanna í kvöld eru flautukvartett og klarinettu- kvintett eftir Mozart, partíta fyrir sólóflautu í a-moll eftir Bach og Bachianas Brasilieiras nr. 6 fyrir flautu og fagott eftir tónskáldið Heitor Villa-Lobos. Frekari upplýs- ingar eru á musicfest.is. helgisnaer@mbl.is Viðburður í Salnum Gerður Gunnarsdóttir Stefán Ragnar Höskuldsson LISTAMENNIRNIR Hulda Vilhjálmsdóttir og Valgarður Bragason sýna málverk og teikningar sínar í Galleríi Verðandi að Lauga- vegi 51, á sýningunni Lista- konan og lærlingurinn. Hulda hefur haft Valgarð í læri í 10 ár, að því er segir í tilkynningu, og sýnir hann nú afrakstur þess náms. Sýningin var opnuð í fyrradag og stendur út ágúst. Gallerí Verðandi er í bókabúðinni Skuld. Lista- konan og lærlingurinn er þriðja sýningin í galleríi Verðandi en til stendur að opna nýja sýningu mánaðarlega í galleríinu. Myndlist Listakona sýnir með lærlingi sínum Málverk eftir Valgarð Bragason. Myndlistarmaðurinn Mýrmann sýnir ný olíu- málverk á veit- ingastaðnum Energia í Smáralind. Verkin ein- kennast af draum- kenndu, ímynduðu lands- lagi, að því er segir í tilkynningu. Mýrmann heitir réttu nafni Víðir Ingólfur, fæddur í Reykjavík árið 1973. Mýrmann hefur fengist við myndlist frá unga aldri, nam við Myndlistaskólann í Reykjavík, Myndlistarskólann Rými og Iðnskólann í Reykjavík. Mýrmann hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en þetta er 12. einkasýningin hans. Afgreiðslutíma Energia má finna á vefsíðu Smáralindar, smaralind.is. Myndlist Mýrmann sýnir ímyndað landslag Verk eftir Víði Ingólf, Mýrmann. NÆSTU sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns fara fram á morgun og eru helgaðir ís- lenskri tónlist. Á þeim flytja Guðrún Ingi- marsdóttir sópransöngkona og Jónína Erna Arnardóttir píanóleikari fjölbreytta dag- skrá með íslenskum söng- lögum, aríum og leikhústónlist eftir Atla Heimi Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Sigvalda Kalda- lóns, Pál Ísólfsson og Sigurð Þórðarson, auk ann- arra. Fluttir verða meðal annars söngvar úr Gullna hliðinu, Pilti og Stúlku, Sjálfstæðu fólki, Dansinum í Hruna og Allra meina bót. Tónleik- arnir hefjast kl. 20.30 og er aðgangseyrir 1.500 kr. Tónlist Leikhústónlist, sönglög og aríur Guðrún Ingimars- dóttir söngkona. gunnhildur@mbl.is Á TÓNLISTARHÁTÍÐINNI Berjadögum á Ólafsfirði hafa tengsl tónlistar og náttúru verið í forgrunni frá byrjun, en hátíðin er haldin í tí- unda sinn um helgina. „Markmið hátíðarinnar er að gestir geti notið fagurra lista og stórbrotinnar náttúru byggðarlags- ins, en Tröllaskaginn skartar um þetta leyti sínu fegursta,“ segir Örn Magnússon, stjórnandi hátíðarinnar. „Þetta er tónlistarhátíð þar sem flutt er aðgengileg sígild tónlist í band við þjóðlög og eitt og annað sem til fell- ur.“ Nafn Berjadaganna er í samræmi við markmiðið, að njóta lista og nátt- úru í einu. „Þarna fyrir norðan eru mikil berjalönd og berjamenning sem setur lit sinn á mannlífið á þess- um tíma ársins,“ segir Örn. Hátíðin hefur vaxið og þroskast í gegnum ár- in og er orðin talsvert umfangsmeiri en í upphafi. „Henni hefur vaxið fiskur um hrygg, við byrjuðum með tvenna tónleika og einn gestalista- mann árið 1999. Svo hefur þetta vax- ið og núna erum við komin með fimm tónleika og myndlistarsýningu.“ Örn vill ekki gera upp á milli tón- listaratriðanna fimm á hátíðinni. „Ég held að hverjir tónleikar hafi sinn sjarma. Við hugsuðum þetta eins og eina veislu þannig að fólk á að geta farið á alla tónleikana. Þeir eru allir temmilega langir, nema náttúrlega lokatónleikarnir sem eru vel útilátnir.“ Hjartaknúsandi fínerí Fyrstu tónleikarnir verða á föstu- dagskvöldið og þar flytja Elva Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og Bar- okksveit Berjadaga „Árstíðirnar“ eftir Vivaldi. Hann samdi tónverkið undir áhrifum frá sonnettum og þær verða lesnar af Guðmundi Ólafssyni. „Þetta er sívinsælt verk og Elfa Rún er ein af aðalfiðluleikurunum okkar í dag,“ segir Örn. „Hún valdi síðan einvalalið hljóðfæraleikara með sér úr Sinfóníuhljómsveitinni, Kammer- sveitinni Ísafold og Nordic Affect.“ Á laugardeginum leikur Örn sjálfur með félögum sínum úr Spilmönnum Ríkínís. „Við erum með gömul hljóð- færi, gígjur, hörpur, langspil og sin- fón, þetta eru hljóðfæri sem voru til hér á 16. og 17. öld. Við ætlum að flytja tónlist úr íslenska Melódíu- Eftir Gunnhildi Finnsdóttur handritinu sem við erum að bera á borð í fyrsta sinn. Það sem er sér- stakt við þetta er að þetta eru ver- aldleg lög og ástarljóð og þessum lögum hefur verið frekar lítill gaum- ur gefinn. Stærstur hluti tónlistar frá þessum tíma er úr fórum kirkj- unnar.“ Ísafoldarkvintettinn er skipaður strengjahlutanum úr samnefndri kammersveit og leikur ásamt gest- um á laugardagskvöldinu verk eftir Dvorák og Handel. Á sunnudeginum flytja flautuleikarinn Kolbeinn Bjarnason og semballeikarinn Guð- rún Óskarsdóttir dagskrána Pörótt sem er sambland af gamalli og nýrri tónlist. Dagskránni lýkur síðan með veg- legum lokatónleikum undir yfir- skriftinni Berjablátt afmæliskvöld þar sem allir listamennirnir koma fram. „Þar eru allir með eitthvað hjartaknúsandi fínerí og koma fram í minni hópum og sem sólistar og allavega. Barokksveitin slær svo botninn í kvöldið með Melkorku Ólafsdóttur flautuleikara,“ segir Örn. Tæmandi dagskrá má nálgast á heimasíðu Fjallabyggðar. Fimmréttað á Berjadögum Markmiðið að gestir njóti fagurra lista og stórbrotinnar náttúru Ólafsfjarðar Morgunblaðið/Kristinn Berjagleði Örn Magnússon og Barokksveit Berjadaga tóku sér hlé frá æfingum í fyrradag, allir í sólskinsskapi. www.fjallabyggd.is JORIS Rademaker, hollenskur listamaður bú- settur á Akureyri, hefur undanfarin ár haldið þó nokkuð margar litlar en vel heppnaðar einkasýningar sem jafnan hafa fengið góðar viðtökur. Nú sýnir hann myndverk í Grafík- safninu, einföld við fyrstu sýn en um leið óvænt og grípandi. Í list sinni hefur Joris skapað sér sérstöðu með persónulegri nálgun sinni við hversdags- lega, fundna hluti og sérstakri úrvinnslu sinni á formrænum eiginleikum þeirra í samspili við agaður kraftur og vinnuaðferðin ljær verk- unum óvænt tengsl lífs og listar. Í minni myndum af sama toga er línuspilið lárétt eins og öldur eða letur. Spaghettímyndirnar minna við fyrstu sýn m.a. á mynsturmyndir hins ofurfræga Keith Haring frá síðari hluta síðustu aldar. Þetta endurspeglast einnig í málverkum Joris þar sem mannslíkaminn er ummyndaður í einföld form líkt og púsl sem dansa á myndfletinum. Málverkin með púslformunum eru ekki síður sterk í nálægð og uppsetning þeirra lifandi í rýminu og hér má sjá fínleg smáatriði í útlín- um einfaldra forma. Á þessari litlu sýningu koma saman minni úr listasögunni og stefnum innan hennar, sér- stök og óvænt tenging lífs og listar og tilfinn- ing fyrir persónulegri og íhugulli sköpun þar sem húmorinn er aldrei langt undan. huglæga. Sem dæmi má nefna tannstöngla, þar sem saman fer náttúrulegt efni, iðnaðar- framleiðsla, geómetrískir formrænir eig- inleikar og eins og listamaðurinn segir sjálfur, tilfinning fyrir einhverju oddhvössu en ofur- viðkvæmu um leið. Annað efni sem allir þekkja úr hversdagslíf- inu er spaghettí. Í Grafíksafninu heldur Joris áfram með spaghettíþema sem hann hefur unnið með áður, þar sem soðið spaghettí er notað til að skapa svarthvítar myndir. Spag- hettílengjurnar eru lagðar á myndflötinn, spreyjað yfir og þær fjarlægðar svo eftir standa hvítar línur. Lífræn, óregluleg form í sterkri, sjónrænni mynd sem eins og hverfist út frá miðju. Það er líkast því að línurnar verði þrívíðar og komi út úr myndunum, í þeim býr Myndrænir möguleikar MYNDLIST Grafíksafnið Til 17. ágúst. Opið fim. til sun. kl. 14-18. Aðgangur ókeypis. Skipulagt kaos í svarthvítu, Joris Rademaker bbbmn Ragna Sigurðardóttir GESTALISTAMAÐUR úr annarri listgrein hefur á hverju ári tekið þátt í tónlistarhátíðinni Berjadögum og í ár er það myndlistarmað- urinn Eggert Pétursson. Örn segir að list Eggerts falli vel að nátt- úruþema hátíðarinnar. „Eggert er náttúrlega maður gróðursins og hefur opnað augu okkar fyrir honum með myndlistinni, þar sem hann hefur gert ótrúlega fallega hluti. Það eru þrjú ár síðan ég bað hann um að koma og það er frábært að fá hann í ár.“ Í gegnum árin hafa meðal annarra málarar, keramiklistamenn og rithöfundar verið gestalistamenn á Berjadögum og þar var til dæmis leikverkið Tenór- inn eftir Guðmund Ólafsson frumflutt. Lyng og blómabreiður Morgunblaðið/Sverrir FORLAGIÐ Ballantine Books hefur hætt við útgáfu rómantískrar skáld- sögu rithöfundarins Sherry Jones um barnunga brúði Múhameðs spá- manns, Aishu, af ótta við möguleg hryðjuverk öfgasinnaðra múslima. Bókin ber heitið The Jewel of the Medina. Til stóð að gefa bókina út á morgun en íslamskir fræðimenn hafa gagnrýnt söguna harðlega. Einn þeirra, Denise Spellberg, segir sögu Jones vera „ljósblátt klám“. Jones segir söguna raunsæja lýs- ingu á heimilishaldi Múhameðs. Aisha var gefin Múhameð níu ára gömul. Í bókinni er því m.a. lýst því þegar hjónabandið var fullkomnað. „Ljósblátt klám“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.