Morgunblaðið - 11.08.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.08.2008, Blaðsíða 36
MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 224. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Hrávöruverð lækkar  Verð á hrávörum, líkt og korni, ol- íu, sykri og hveiti, hefur lækkað nokkuð hratt á heimsmarkaði. Útlit er fyrir að þessar lækkanir skili sér fljótlega inn í matvælaverð og munu Íslendingar þá væntanlega njóta góðs af því. Lækkanirnar eru þó háðar því að íslenska krónan haldist frekar stöðug en hún hefur fallið um 40% síðan um áramótin. » 2 Hlaup í Skaftá  Hlaup hófst í Skaftá í Skaftárdal í gær. Venjulegt rennsli í ánni er um 150 rúmmetrar á sekúndu en það mældist tæplega 300 rúmmetrar á sekúndu í gærmorgun. Hlaupið fór heldur hægt af stað en því óx ásmeg- in eftir því sem leið á daginn. » 6 Hvers vegna innrás?  Hvers vegna er Rússum svo mjög í mun að knésetja Georgíu? Er það til að tryggja að ekki verði neitt af því að vestræn fyrirtæki leggi olíu- leiðslu frá Kaspíahafi um landið til að gera Vestur-Evrópu óháða leiðslum um rússneskt land, nokkru norðar? Eða er um að ræða lið í út- þenslustefnu sem sumir segja að verði af sögulegum ástæðum alltaf eins og partur af pólitísku erfðaefni ráðamanna í Moskvu? » 1 8 SKOÐANIR» Staksteinar: Leiðsögn felld niður um helgar Forystugreinar: Kemur vottun of seint? | Nánara samstarf Ljósvakinn: Glaðar fitubollur UMRÆÐAN» Átökin í Kákasus Fortakslaus einhliða úrsagnarréttur Öngstrætisfíkn Ekki blása á kertið Gamli skólinn bæjarprýði á ný Fingurbjörg – lífsins björg Búseta boðnar íbúðir Kennsla í ljóstækni við Tækniskólann FASTEIGNIR» Heitast 16 °C | Kaldast 8 °C  NA- eða breytileg átt, 3-8 m/s. Léttskýjað að mestu s- og v-lands. Annars skýjað og dálít- il súld með köflum. » 10 „Það er gaman að segja marijuana- sögu líka, því yfir þessum heimi hvílir ákveðin þekkingar- leysishula.“ » 30 KVIKMYNDIR» Alvöru götumál KVIKMYNDIR» Múmían 3 fær tvær stjörnur. » 29 Tónleikar Erics Claptons fá þrjár og hálfa stjörnu. Nóg var af vel fluttum blús en minna um smelli. » 29 TÓNLIST» Bláir tónleikar FLUGAN» Flugan fór í gleðigöngu, partí og á tónleika. » 28 FÓLK» Bush reynir sig í strand- blaki kvenna. » 29 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Stunginn í hálsinn með flösku 2. Ísland lagði Rússland 3. Ólafur: „Getum verið stoltir“ 4. Enn einn sigur FH á KR TVEIR ungir karlmenn sjást hér kyssast í miðju mann- hafi gleðigöngu samkynhneigðra á Laugavegi í fyrra- dag. Tugþúsundir manna voru í miðbænum af þessu til- efni og sungu og glöddust með göngumönnum. Samtökin ’78, hagsmuna- og baráttusamtök homma og lesbía á Íslandi, fagna þrítugsafmæli í ár. | 32-33 Fjölbreytileika mannlífsins fagnað Tugþúsundir fylgdust með gleðigöngu í miðbænum Morgunblaðið/Júlíus Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is MARGIR hafa kvartað yfir miklum hita og loftleysi í Egilshöll á tón- leikum gítarhetjunnar Erics Clapt- ons liðið föstudagskvöld. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins fór hitinn upp í 29 gráður í húsinu og þótti mörgum loftræst- ing alls ekki fullnægjandi. Í tónleikagagnrýni Árna Þórar- inssonar í Morgunblaðinu í dag segir til dæmis: „[…] Clapton var orðinn heitur og ákaflega sveittur eins og almennt gestir í þessum óboðlega tónleikasal, þar sem allt of seint var brugðist við súrefn- isleysi og kæfandi mollu.“ Kristján Sveinbjörnsson segir jafnframt á bloggi sínu, krissiblo.blog.is, að hann hafi yfirgefið húsið klukkan hálfellefu vegna loftleysis og flök- urleika. Að sögn Gríms Atlasonar, skipu- leggjanda tónleikanna, gekk fram- kvæmd þeirra mjög vel. „Það hefði verið betra að geta losnað við hit- ann. Hins vegar er loftræsting mjög hávær og við keyrðum hana einungis á fullu þegar við höfðum kost á. Hún hefði t.d. yfirgnæft kassagítarslögin.“ Hann segir erfitt að opna út á slíkum tónleikum enda breytist þá öll birta í tónleikasalnum og það geti haft djúpstæð áhrif á útlit tón- leikanna. „Það var opnað um leið og tók að rökkva.“ Kæfandi hiti á Clapton  Hitastigið fór upp í 29 stig inni í Egilshöll á tónleikunum  „Loftræstingin hefði yfirgnæft kassagítarslögin“ Morgunblaðið/hag Hiti Gítarsnillingurinn Eric Clapton svitnaði hressilega í hitamollunni. Í HNOTSKURN »Loftræstikerfi Egilshallarer heldur hávaðasamt og erfitt að nýta krafta þess að fullu á tónleikum. »Að opna út getur líka haftáhrif á útlit tónleikanna. Sigur karla- landsliðs Íslands í handbolta gegn Rússum á Ól- ympíuleikunum var sætur en lið- ið ætlar þó ekki að „gleyma sér í fagnaðar- látum“, að sögn Snorra Steins Guðjónssonar leikmanns. Næsti leikur er á morgun kl. 12.45 að íslenskum tíma. Örn Arnarson „Ef ég á að taka það jákvæða þá er þetta besti tími minn á árinu,“ sagði Örn Arnarson sund- maður eftir að lenda í 35. sæti í 100 m baksundi á ÓL. » Íþróttir Fartölvurnar ThinkPad frá Lenovo eru miklar öndvegistölvur en verð- ið á þeim reynist heldur betur mis- hátt milli landa. Í vefverslun Ný- herja má finna tölvuna ThinkPad X61 til sölu á 322.700 kr. Sama gerð með sams konar viðbótarbúnaði og ábyrgð kostar í bandarískri net- verslun Lenovo um 163.500 kr. þeg- ar íslenskum virðisaukaskatti hefur verið bætt við (engir tollar leggjast á tölvur). Verðmunurinn er slíkur að fyrir verðið á tölvunni á Íslandi mætti fljúga fram og til baka til New York á lægstu fargjöldum Icelandair, gista á allgóðu hóteli í viku, kaupa tölvuna þar og samt eiga ágætis af- gang til að eyða í fríhöfninni á leið- inni heim. asgeiri@mbl.is Auratal NÝDÖNSK mun innan skamms halda í hljóðver til að taka upp nýja plötu. Að sögn Jóns Ólafssonar, píanóleikara hljómsveitarinnar, verður um að ræða ekta Nýdanska plötu í hrárri kantinum. Platan mun líkjast Deluxe sem var tekin upp á einni viku en aðrar plötur sveitarinnar hafa verið meiri stúdíóplötur. Eftir yfir 20 ára feril hefur Nýdönsk engu gleymt. | 31 Ekta Ný- dönsk plata

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.